| Fékk þetta lánað hjá Roosevelt vini mínum... |
|---|
| „It is not the critic who counts, not the man who points out how the strong man stumbles, or where the doer of deeds could have done better. Credit belongs to the man who is acTually in the arena, whose face is marred by dust and sweat and blood, who strives valiantly, who errs, and comes up short again and again: because there is no effort without error or shortcoming, but who does actually strive to do the deeds, who knows the great enthusiasms, the great devotions, who spends himself in a worthy cause, who at the best knows in the end the triumph of high achievement and who at the worst, if he fails, at least he fails while daring greatly. So that his place shall never be with those cold and timid souls who know neither victory nor defeat.“ |
05.02.2010 |
| Bronze ? |
|---|
| Við erum að tala um að leikurinn við Pólverja í dag gefi okkur verðlaun á þessu líka feiknasterka Evrópumóti í handbolta 2010. Í gær lutum við í lægra haldi fyrir Frakklandi og það þarf ekkert að efast um það að þeir eru hrikalega sterkir og við verðum að passa að setja ekki grýlu stimpilinn á þetta lið. Ég ætla mér samt ekkert að tala um fortíðina. Nú er bara að vinna síðasta leikinn og klára mótið með style. Fyrir þessa keppni vissum við að allt þyrfti að ganga upp til þess að eiga möguleika á því að vinna mótið. Við vissum það líka að það þarf ekki nema 10 slæmar mínútur til að klúðra leikjum. Á mánudaginn fljúgum við allir til okkar heima og taka nú við æfingar hjá félagsliðunum. Flestir fá 2-3 daga frí til að koma sér fyrir. Fyrsta sem ég og kærastan mín sem er hérna í Vín með mér ætlum að gera að er að sækja litlu Lúnu á hundahótelið í Germany og gera heimilið klárt. Það er ekkert grín að vera 5-6 vikur frá öllu, lifa í ferðatösku og hótellíf 24/7. En hvað gerir maður ekki fyrir Ísland. Ég er farinn að sofa og reyna að einbeita mér að því að vinna þennan leik á morgun og koma bronzinu á réttan stað... p.s vonandi þegar næsta færsla dettur inn þá er komið nýtt og ferskt look á síðuna... Fékk senda smá vísu sem ég var beðinn um að pósta hérna: Faðir Guðmundur þú sem ert á bekknum tilkomi þitt lið, verði þinn vilji svo í kolli sem á velli, gef oss í dag vort daglegt brons, svo fyrirgef oss vorum skuldum því að þitt er liðið, sigurinn og Bronsið að eilífu...AMEN!!!!!!!!!!!!!!!!! Bestu kveðjur frá bekkjarforsetanum, L&I-3. |
31.01.2010 |
| Last one ;) |
|---|
| Erum að detta á jammið ;) Langaði bara að enda á því að segja ykkur að við erum búnir að eignast nýjar hetjur.... Arnór er rosalegur ;) Gummi Gumm er besti þjálfari í Heimi.... Aron er efnilegasti leikkmaður heims... Bjöggi Gúst er að verða sá besti í heimi... Takk fyrir mig.... Chairman of silver and the bank ;) Bronze á EM 2010 ;) ... ég er kominn með þrennuna... |
31.01.2010 |
| Vidtal fra Pressunni.is, nenni ekki ad blogga i dag!!! |
|---|
| Ég læri bara þegar ég geri mistök! Þessa dagana á Evrópumeistarakeppnin í handbolta hug allflestra landsmanna sem sitja límdir við skjáinn. Silfurstrákarnir okkar frá Ólympíuleikunum eru meðvitaðir um þrýstinginn sem þeir eru undir. Einnig finna þeir fyrir hvetjandi meðbyr úr norðri sem þeir nýta sér óspart til að gera sitt besta – og aðeins betur ef það er það sem þarf. Vinstri skyttan Logi Geirsson hefur ekki verið mikið inni á vellinum í fyrstu leikjunum en að hans sögn á þjóðin og liðið hann alveg inni í keppninni. Hann er hvarvetna þekktur fyrir jákvætt hugarfar og slíkt er hverri liðsheild afar mikilvægur þáttur í árangri. Hann heldur úti bloggsíðunni www.logigeirsson.de þar sem hann á einlægan hátt sýnir fram á hvað hugarfarið skiptir miklu máli í daglegu lífi samhliða boltanum. Logi gaf sér tíma til að svara örfáum spurningum áður en hann lagðist til hvílu til að safna kröftum fyrir leikinn gegn Króötum klukkan 15 í dag. Það verður hans 93. landsleikur og hann er staðráðinn í að sitja ekki á bekknum þegar kemur að þeim hundraðasta. Hvaða hugsun drífur þig af stað á morgnana? Að vita að ég læri eitthvað nýtt og sé vitrari í dag en í gær. Hver er þín stærsta fyrirmynd og hvers vegna? Faðir minn. Hann hefur að geyma einstakan mann og hefur stutt mig í öllum þeim ákvörðunum sem ég hef tekið í gegnum tíðina. Oft hafa þær verið á móti straumnum. Það er reyndar óréttlátt að nefna bara hann því mín fjölskylda stendur saman sem einn maður og réttara sagt er hún mín stærsta fyrirmynd. Þegar líf þitt hefur tekið dýfur, hvað hefur þú gert til þess að spyrna upp á við? Ég hef tamið mér það að setja mér markmið og unnið út frá þeim. Ég hef kynnst ýmsu á minni lífsleið og alltaf haft jákvæðnina að leiðarljósi. Það að trúa, setja sér markmið og vera jákvæður er eflaust besti „cocktaill“ sem til er. Hvaða atvik hafa/hefur kennt þér mest? Ég læri bara þegar ég geri mistök og það er nauðsynlegt að þurfa að reka sig á á lífsleiðinni. Þegar maður gerir eitthvað gott þá er það gaman og uppörvandi en þegar maður gerir mistök þá staldrar maður við og hugsar: „Þetta vil ég ekki að komi fyrir aftur.“ Sem þýðir að maður læri aðeins af mistökunum. Hvað hefur komið þér mest á óvart í lífinu hingað til? Hvað heimurinn er spilltur og líka hversu ótrúlega sterk tilfinning það er að elska. ;) Hverju býst þú af framtíðinni? Ég ætla ekkert að búast við neinu sérstöku. Ég ætla að láta ákveðna hluti gerast sem mig hefur alltaf dreymt um. Hvaða viðhorf ráðleggur þú öðrum Íslendingum að nota til þess að horfa fram á við? Setja sér markmið og vera tilbúin að fórna einhverju fyrir það, gamli góði fórnarkostnaðurinn. Svo líka bara gamla góða spakmælið sem ég samdi fyrir nokkrum arum: „Nýttu tímann því annars nýtir tíminn þig!“ |
25.01.2010 |
| Það er stutt á milli... |
|---|
| Núna erum við mættir til Wien eins og Austurríkismenn skrifa það, duttum í hús um hádegisbilið í dag. Það var gaman að vinna Danina og ég tala nú ekki um í svona mikilvægum leik eins og þessi var. Núna erum við bara mættir fullir sjálfstrausts í milliriðlana og ætlum að selja okkur helvíti dýrt. Núna fer fyrst að verða gaman hérna og bestu liðin eftir. Við komum inná hótelið hérna sem er við West Bahnhof eða "vestur brautastöðina" og ég verð nú að segja að þetta er nú með því lélegasta sem ég hef lent í. Sérstaklega í ljósi þess að það er mikilvægt að hvílast vel á milli leikja og geta haft einhverja afþreyingu s.s internet og flott lobby. Hérna er nákvæmlega ekkert sem heitir Lúxus og þægindi. Ég og Aron neyðumst til að deila einu hjónarúmi saman og sjónvarpið er í hliðarveggnum. Reynið að ímynda ykkur hvernig við horfum á sjónvarpið saman;) Það sem mér finnst þó merkilegast við þetta er að það eru öll hin liðin í milliriðlinum sem eru að láta bjóða sér þetta. Það er aðeins 1 lyfta því hin er biluð að við erum á 5 hæð sem þýðir að maður er að hanga 5-10 min eftir að komast í lyftuna??? Þið getið Googlað Mercure hótel "west bahnhof" í WIen. Nóg um það, þetta reddast... Þetta átti lía bara að vera varnaðarorð ef þið ættum leið hér um Vín að bóka ykkur ekki hérna inn. Við strákarnir erum komnir með nýtt herbergisnúmer 528, ekki að það skipti einhverju máli og ég skil heldur ekkert hvernig ég nenni að skrifa þetta hérna. Þetta er bara ég, var einmitt að fá spurninguna hvort ég væri með 100 leiki? komst að því að ég er kominn með 92 landsleiki, það er þokkalegt. Ég mun lofa því að sitja ekki þann hundraðasta á bekknum ;) eða allavega reyna að sleppa því. Það væri ekkert leiðinlegt að vinna þetta mót hérna, mig langar og vantar Evrópumeistaratitil í safnið. Það er algjört möst, það væri ekkert leiðinlegt að vera á næsta ári á ströndinni í Dubai með SIlfrið frá ÓL í vinstri og Evrópugullið í hægri, já og fálkaorðuna hneppta í hlýrabolinn ;) hehe, það er allt í lagi að láta sig dreyma það er nú samt langur vegur í það að ég sé farinn þangað. En aldrei að vita. Já þá kem ég að því að konan mín er að koma í dag, mikið verður það nú gaman. Manni finnst maður bara vera hálfur maður og ég tala nú ekki um hana litlu Lúnuna okkar sem er í pössun í BruderstraSe að bíða eftir okkur. Ég held að það sé fátt betra en sækja hana, ég hef aldrei séð neitt líf vera jafn glatt yfir neinu eins og þegar við sækjum hana á hundahótelið. Nú þegar ég er dottinn í þessar umræður þá verð ég að tala um hvað lífið er hverfult og óútreiknanlegt. Í gær þá dó maður að nafni Oleg Veleky, hann var 32 ára og spilaði handbolta og lést eftir margra ára baráttu við krabbamein. Alltaf þegar eitthvað svona kemur upp hugsa ég um það hversu heppinn ég er, bara að geta farið að borða, elska, hlaupið keyrt bíl og verið heilbrigður. Ég velti fyrir mér í gær fyrir leikinn á móti Dönum þessu með dauðann... Rosalega skrýtin tilfinning reyna að hugsa þetta til enda, en þetta er eitthvað sem er hluti af því að fá að taka þátt í lífinu hérna á jörðinni og óumflýjanlegt. Maður á ekki að hræðast það að tala eða hugsa um þetta, samt. CUT Já ég sat í rútunni í dag með skrifblokkina mína og var að velta fyrir mér hlutunum. Ég er eiginlega orðinn svona þekktur fyrir það að hafa aldrei nein raftæki með mér meðan að ég er að ferðast og spila. Ég hef satt best að segja bara ekkert verið að pæla í því hvort það gagnist mér eða ekki. Finnst meira gefandi að labba milli herbergja og deila einhverju fersku. En allavega þá var ég þarna sitjandi í rútunni og fékk þá líka bráðsnjöllu hugmynd um það að reikna út hversu lengi á þessum 6 árum sem ég hef verið í atvinnumennskunni ég hafi ferðast með Rútu. Að lokum tókst mér að finna út tölu ( gamli er nú búinn með slatta úr BS in Business úr bifröst) sem hljóðar uppá ca "86.400 km". Þarna tók ég inní æfingaleiki, landslið, og venjulegar rútuferðir í deildinni. Þetta eru þónokkrir hringir í kringum Ísland, humm ha humm. Svo var ég líka að hugsa hversu mikil snilld þetta er að vera búinn að halda þessari síðu www.logigeirsson.de út í öll þessi ár. Eftir tímabilið verð ég búinn að láta einhvern smella þessu í eina bók með myndum og öllu og gamli er bara með allt merkilegt sem gerðist á árunum 2004-2010. Ég ætla bara að gera eitt eintak og eiga hana sjálfur. Hún á að heita ???????? nei ég er ekki búinn að ákveða það. Svo geri ég ráð fyrir því að enginn sé óhultur fyrir okkar frábæru Silver auglýsingum sem hafa verið að poppa upp í kringum EM á besta tíma og svo Audda og Sveppa og ég veit ekki hvar ;) Bjöggi er allavega ekkert að bora í nefið hérna á milli leikja, það eitt er víst. Svo er þetta alveg lygilega góð tilfinning að vera orðinn svona heill aftur og geta gert það sem manni þykir skemmtilegast. Ég hef alltaf sagt það og mun segja það áfram, heilsan í 1. sæti. Það er erfitt í keppninni að vera að spila svona lítið en ég tók að mér þetta hlutverk sem Guðmundur vildi fá mig í og ég mun líka skila því almennilega. Svo bara ef einhver er að hafa áhyggjur af mér þá er ég hrikalega glaður og ánægður. Voðalega hef ég mikið að segja frá í dag en mér finnst ég vera orðinn 10 kg léttari eftir þessa losun. Með bestu kveðjur héðan frá WIEN, Logi Geirsson. |
24.01.2010 |
| Við höldum ykkur gangandi… |
|---|
| Þá er komið að enn einum pistlinum frá snilldar herberginu 406… Það eru komin ár og dagar frá því að ég var svona virkur á lyklaborðinu í svona marga daga í röð. Ég var líka farinn að sakna þess, ég ligg hérna uppí rúmi og er að hlusta á Nýdönsk nánar tiltekið frelsið. Það er alveg merkilegt hvað góð tónlist getur gert fyrir mann. Nóttin í gær var frekar erfið og Herbergi 406 sem er komin með nafnið “EM stofan” var vakandi langt fram eftir. Meira segja það lengi að frábæri nágranninn okkar í 404 Guðmundur nokkur Guðmundsson þurfti að hringja yfir og reka okkur í bælið, þegar þarna var komið við sögu var klukkan að ganga 03. Bjöggi Gúst var að hanga með okkur og Aron kom okkur í hláturskast hvað eftir annað. Aron er með þannig humor að þegar hann segir eitthvað fyndið þá mjólkar hann brandarann þangað til ekkert er eftir. Hann má nú samt eiga það að hann er drullu fyndinn. Flestir íþróttamenn kannast nú við það að eiga erfiðleika með að sofna þegar adrenalínið er í botni, samt ekki að ég og Aron höfum verið að spila mikið. Held að það sé líka alveg fínt að eiga okkur inni í keppninni, þetta eru mörg skref og aðeins 1 af mörgum búið. Kl.05.30 dauðbregður mér þegar Aron fer eitthvað að kalla uppúr svefni, þegar ég lít yfir á hans rúm liggur hann þar á 4 fótum og snýr rassinum að mér og er að öskra og tala við vegginn. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var fljótur að snúa mér aftur við og segja honum að þegja. Það gengur á ýmsu hérna hjá okkur, ég er meira að segja að pæla í að sviðsetja þetta atriði og birta myndir hérna á morgun. Það er gaman af honum þó að hann sé hrikalega eigingjarn á tölvuna sína sem er bara svona ljót MC book sem er með jafn stóran skjá og Iphoninn minn !!! ;) Annars bara bestu kveðjur úr EM stofunni, L&I_3. Maður dagsins: Óskar Bjarni hann er svo mikill snillingur þessi gæji. Gáta dagsins: Hvað er gult og rautt og bleikt og goggar??? Pelíkaninn sem goggaði Ívar Guðmunds… Matur dagsins: Massívur kjúlli með öllu tilheyrandi. Sjónvarpsefni dagsins: Tekinn með Audda Blö. Heimasíða dagsins: www.ibs.is |
21.01.2010 |
| Fyrsti leikur búinn og eitt stig í hús… |
|---|
| Jæja þá er spennan sem er búin að byggjast upp fyrir EM búin að fá að líta dagsins ljós. Við vorum að spila móti Serbunum og misstum niður því miður eiginlega unnin leik. Við erum að koma okkur fyrir á hóteli eftir leikinn og menn eru að jafna sig. Ég sit hérna í tölvunni hjá Ella sjúkraþjálfara og er með 10 nálar í mér útum allt sem sagt ( Nálarstungur). Við sitjum hérna ég Guðjón Valur, Arnór, Hreiðar og Óli Stef, allir að láta að gera við sig. Ég held að við þurfum ekkert að ræða þennan leik eitthvað frekar enda geri ég ráð fyrir að svona 90% af þjóðinni hafi verið með augun á skjánum. Nú verður bara einbeitt sér að því að vinna næsta leik sem verður á fimmtudaginn á móti Austurríki. Við sáum leikinn hjá þeim í dag og er greinilegt að Dagur er búinn að búa til helvíti sterkt lið. Danir þurftu að hafa virkilega vel fyrir því að vinna og má segja að með smá heppni hefði þeir getað stolið sigrinum. Það er alveg klárt að við þurfum að vera á tánum í öllum leikjum enda bara sterkir mótherjar hér á ferð. Sambúðin með Aroni hefur gengið ágætlega, það er alltaf góður húmor í herbergi 406. Við erum að drepa tímann með því að fara aðeins í Gymið hérna á hótelinu sem er væntanlega besta hotel gym sem ég hef farið í. Það vinnur þar gæji sem er að stæla Schwarzenigger, hann er með sömu röddina og er líka að copy/pasta greiðsluna hans. Hann má samt eiga það hann gerir hörku góða próteindrykki ;) en nóg af honum. Morgundagurinn verður væntanlega eins og allir aðrir stórmótsdagar: Morgunmatur, fundur, æfing og sjúkraþjálfun. Maður dagsins: Einar Þorvarða fyrir það að nenna að keyra 10 tíma strait frá Parísar með farangurinn okkar. Spakmæli dagsins: You must have long term goals to keep you from being frustrated by short term failures. Matur dagsins: Pasta með Bolognese sem ætti reyndar að vera matur vikunnar því ég er búinn að borða það á hverjum degi. Held að það þurfi að láta kokka almennt vita að íþróttamenn þurfa ekki alltaf BOLOGNESE. Bestu kveðjur frá Austurríki, L&I_3. |
20.01.2010 |
| Mættir til Linz á EM 2010... |
|---|
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera handboltamaður skal ég segja ykkur. Ég var að koma úr nálastungum hjá Ella sjúkraþjálfara sem er búinn að vera að hjálpa mér að koma öxlinni í lag síðustu 2 vikur og gengur það líka svona skínandi. Ég ætla að útnefna hann mann vikunnar, ótrúlega góður og hress sjúkraþjálfari. Ég er í herbergi með Aroni og er ég kominn með nickname-ið " Stockton" en hann gerði einmitt bara það sem þrfti til þess að vinna. Frakklandsförin var fín, þar sá maður styrkleika liðsins, sælirnú hvað við erum massívir. Þetta er orðin svo reynd og yfirveguð liðsheild og vel undirbúnir í þokkabót. Ég held bara svei mér á að spariskotin séu að fara að detta inn. Ég er kominn með svona nýtt hlutverk í liðinu, koma floti á boltann og dæla stoðsendingum vinstri hægri ;) öfugt við gamla leikstílinn. Tímarnir breytast og mennirnir með;) Svo fyrir ykkur heima þá er ég með nokkra fróðleiksmola. Linz borgin sem við gistum og spilum í er 3 stærsta borg Austurríkis með ca 190.000 manns. Stærsta er engu að siður Vín með ca 2 millur. Þetta er flottur staður og ekkert ólíkur þýskalandi þar sem flestir okkar spila. Hérna er töluð þýska og hótelið Marriot og maturinn mjög góður. Svo er fyrsti leikurinn á morgun þriðjudag á móti Serbíu. Ég get nú ekki sett inn færslu án þess að nefna það hversu gaman var að koma heim tíl Íslands í janúar. Ég er ekki frá því að þetta hafi verið mín besta heimsón frá árinu 2004. Sæll hvað það er langt síðan þegar ég skrifa þetta ártal og það er komið 2010.Ég hitt alla fjölskylduna og vini og naut þess að fá ferska íslenska menningu beint í æð. Kíkti á Bjarnfreðarson í bíó en ég hafði ekki farið í bíó í 10 ár ;). Chillaði á kaffihúsum, gaf öndunum, tók á þvi í Wold Class, leigði Hömmerinn fyrir hljómsveitina og tók syrpu í Stúdío með Lundunum svo fátt eitt sé nefnt. Good times Busta Rhymes ok þetta var djók sentning, dont judge the book by the cover - band -. Brandari dagsins: Hvað geturu gert úr gömlu hakki ??? Eldri borgara ;) ;) Matur dagsins: Harðfiskur Drykkur dagsins: Góður prótein shake eftir gott gym Spurning dagsins; Hvað heitir lagið í myndinni Groundhog Day þegar hann vaknar á morgnana??? Flottustu mörk vikunnar: Ég í hálfleik á móti Frökkum og Aron í fótboltanum þegar yngri unnu eldri enn og aftur. Bestu EM kveðjur, L&I-3. |
18.01.2010 |
| 27 ára. Ný saga hefst... |
|---|
| Árið 2009 var eftirminnilegt að mörgu leiti. Rétt eins og öll ár sem líða gerast hlutir sem hafa manni mismikla þýðingu. Mig langaði í tilefni þess að ég bloggaði lítið sem ekkert síðustu 3 mánuði ársins að setja saman smá uppgjör yfir það helsta sem á daga mína dró á árinu sem var að líða. Myndi líka segja að Facebook væri stór áhrifaþáttur á það að ég skuli ekki hafa verið duglegri að blogga. Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert. En ég er víst ekki þannig, það eitt er alveg víst. Janúar: Byrjaði fjörugt, spilaði mína allra bestu landsleiki í móti í Svíþjóð og ef ég man rétt þá var ég valinn maður leiksins alla 6 leikina sem við spiluðum. Þarna man ég að ég hugsaði, það er komið að þessu nú er það bara að brillera í ár. Svo um miðjan mánuðinn ætli það hafa ekki verið bara 15. jan sem að fyrsti þátturinn í atvinnumönnunum okkar leit dagsins ljós þar sem fólk gat fengið að skyggnast í hinn persónulega heim atvinnumannsins. Svo í lok mánaðarins finn ég líka mína frábæru kærustu Ingibjörgu Elvu. Eins og einn góður maður sagði, “annast skal vel þá sem maður elskar”. Febrúar: Í þessum mánuði vorum við í Lemgo að brillera og ég var markahæsti leikmaður liðsins. Svo gerist það að ég meiði mig illa í leik á móti Kronau. Læknarnir finna ekkert strax og ég spila handónýtur næstu 3 vikurnar þangað til að einn læknirinn fann að öxlin var mjög illa rifin og þurfti á aðgerð að halda. En á þessum tíma vorum við Silver bræður ég og Björgvin Gústavs komnir ansi langt með hugmyndina um að gera Silver að raunveruleika. Einnig skráðum við Ingibjörg okkur í einkaþjálfarann hjá ÍAK ásamt elítunni úr landsliðinu. Mars: Þarna var klárt að ég yrði frá minnsta kosti 6 mánuði og myndi aðgerðin fara fram 30.03 í smábæ rétt við Stuttgart þar sem einn hæfasti axlarsérfræðingur Þýskalands vinnur. Ég flaug heim fyrir aðgerðina og lenti og vægast sagt ótrúlegri lífsreynslu í kjölfarið hérna heima sem fær kannski eftir nokkur ár að líta dagsins ljós. Síðan tók ég síðustu vikuna fyrir aðgerðina Roadtrip með kærustunni til Milano og Monaco þar sem við nutum þess í botn að vera til. Fórum í Casino þar sem ég vann, hittum Prince of Germany sem ég sat á spjalli við og Ingibjörg fékk að sitja í Louis Vuitton Rolls Royce-inum hans, good times. April: Ákváðum að fara til Florida í sumarfríinu, leigja okkur hús og fara með tengdafjölskyldunni. Man að þetta voru rosalegir tímar eftir aðgerðina þar sem Morfín og svefnleysi einkenndi fyrstu 3-4 vikunar. Þeir sem hafa lent í svona aðgerð skilja mig. Alltaf héldum við samt áfram að vera bjartsýn og jákvæð enda veðrið orðið fáránlega gott. Þarna fengum við tengdó í öllu sínu veldi í heimsókn sem var ekkert smá skemmtilegt. Einnig kláraðist ekki þessi mánuður án þess að ég fékk mitt 4 tattoo. Framhandleggurinn varð fyrir fíkninni. Mai: Þessi mánuður einkenndist af endurhæfingu og aftur endurhæfingu. Þarna var ég farinn að æfa vel og staðráðinn að komast í sama gamla formið. Júni: Tímabilið í handboltanum klárast í kringum 6. júni og ég ennþá meiddur þannig að það var klárt mál að ég myndi ekki spila með landsliðinu í sumar. Þannig að við kærustuparið flugum til Mallorka og í nokkra daga og vorum svo lánsöm að fá Svítuna við ströndina sem ekkert leiðinlegt. Ingibjörg var ekkert að hata það að fá 2 hæða svítu á flottasta staðnum. Þarna fórum við á ströndina versluðum og skemmtum okkar af okkar alkunnu snilld. Eftir það var haldið til Íslands þar sem kynningin á The Silver fór fram í smáralind og undirbúningurinn fyrir sjálft silver partýið var kominn á fullt. Öllu var tjaldað þar og að mínu mati eitt flottasta partý sem ég hef komið nálægt. Daginn eftir var svo flogið til Florida að æfa, spila Golf og slaka á í geðveikasta húsi sem ég hef stigið fæti inní. Þarna vorum við með tengdó en það hefðu passað 20 manns í húsið til viðbótar, svo stórt var þetta í Great America. “Njóttu á meðan þú getur, þoldu á meðan þú verður.” Júli: Fyrstu daga þessa mánaðar fóru fram í USA en svo tók alvaran við og undirbúningur í Lemgo var að fara að hefjast þann 20. juli. Þarna fann ég að ég átti ennþá langt í land og má eiginlega segja að ég hélt bara svei mér þá að öxlin væri einfaldlega bara ekkert að verða betri. Sama hversu mikið ég æfði, teygði, fór í sjúkraþjálfun þá gerðist ekkert. Ekkert regn....engir regnbogar. Ágúst: Þennan mánuð á handboltinn skuldlaust. Þarna var undirbúningurinn búinn, við vorum eiginlega búnir að tapa öllum leikjum sem við vorum búnir að spila. Við fengum meira að segja þá gjöf að spila í forkeppni Champions League en tókst ekki að vinna 1 leik af 3. Í kjólfarið þá voru þjálfararnir reknir, Markus Baur og Daniel Stephan. Það var heldur ekkert leiðinlegt að gamli þjálfarinn minn sem keypti mig frá Lemgo tók við. September: Seldi mótorhjólið fyrir veturinn og konan plataði mig til að kaupa fataskáp fyrir allan peninginn ;) Þarna var gelið farið að vekja athygli víða í Germany. Handboltalega séð þá gátum við ekkert í deildinni og þetta var ekki skemmtilegasti staðurinn til að vera á. Þarna vissum við að þeir ætluðu að skera niður peningana, lækka samninga og s.frv. Október: Ég og Ingibjörg fengum boð um að fara í tökur og viðtal hjá flottasta blaðinu þarna í héraðinu, Top Magazin. Sem við gerðum og rúlluðum upp. Ég ætti kannski að setja bút af því hérna á síðuna við tækifæri en ég geri það fyrst þegar nýja útlitið er komið. Við fórum í þvílíkt flotta afmælisferð 10.10 þar sem konan bauð mér í lúxushelgi til Hamburgar. Svo nokkrum dögum síðar uppgötvum við að það er von á barni ;) ;) Nóvember: Öxlin var farin að taka vel við sér þrátt fyrir að ég hafi í byrjun þessa mánaðar verið skráður með ónýta öxl og ég gæti ekki spilað handbolta framar. Það var ákveðið shock en engu að síður vissi ég vel að það væri bara bull. Það má eiginlega segja að þetta hafi hjálpað mér hrikalega og ég varð staðráðinn í því að geta sýnt þessum læknum að þeir hefðu rangt fyrir sér. Það kom líka á daginn að ég spilaði minn fyrsta leik 27. nóv. Þar spiluðum við á móti Dormagen í leik sem ég var ekkert smá góður í og skorðaði 3 góð mörk. “I go my own way” "The nice thing about egotists is that they don't talk about other people." Desember: Frábær mánuður í 2 orðum sagt :) Ég gat fylgt handboltanum eftir og öxlin var að verða betri og betri. Ég sá bara satt best að segja skýjin hverfa af himnum og sólin skein eins og á Dubai. Jólin voru haldin eins hátíðleg og kostur var og það er mínum betri helming Ingibjörgu og litlu Lúnu að þakka. Við vorum að spila mikinn hluta jólanna og einhverja hluta vegna er aldrei hægt að ná sömu stemmningu og heima á Íslandi. Þarna í millitíðinni ákvað ég að reyna að setja upp jólalag, “Logandi Jól” sem komst í spilun á nokkrum útvarpstímum en það verður endurbætt með smá hjálp fagmanna. Svo áður en ég hélt heim til Íslands fór ég á fund hjá forráðamönnum Lemgo og gerði þeim ljóst fyrir að ég myndi yfirgefa liðið að ári án þess þó að ég hafi nokkuð borðfast. Hárrétt ákvörðun því seint sama kvöld hringir í mig maður sem segir að lið hafi virkilegan áhuga á að fá mig til liðs við sig einungis í 1 ár. Ég var búinn að segja við kærustuna að ég þurfi nýja áskorun og umhverfi til þess að blómstra og jafnvel að taka 1 ár í því að ná líkamanum í það ástand að vera 100 %. Það er eiginlega minn eini draumur í augnablikinu að fara að losna við þessi meiðsli sem hafa verið að hrjá mig. Bottom line er: Fjölskyldan er hress og allt leikur í lyndi. Það sem við gerum fyrir aðra lifir áfram og verður ódauðlegt! Hlakka til að sjá ykkur fara að koma reglulega á síðuna aftur. Því miður gat ég ekkis ett myndir inn útaf breytingunum en þið verðið bra að scrolla aðeins niður og líta á myndirnar, þær segja oft söguna... www.logigeirsson.de |
11.01.2010 |
| Couple of times... |
|---|
| Sit hérna heima á Sævangi 10 og er að jafna mig eftir erfiða landsliðsæfingu. Við erum komnir á fullt í undirbúninginn fyrir Em í Austurríki sem hefst 19 þessa mánaðar. Það ríkir mikil eftirvænting frá þjóðinni að sjá okkur standa okkur vel og reyna að fylgja eftir frábærum árangri frá Ól 2008. Ég ætlaði nú að vera búinn að opna síðuna fyrir langa löngu en það var kominn tími á breytingar á útliti hennar og efni. Ég fékk þær fréttir í gær að náunginn frá þýskalandi sem er búinn að vera að vinna í breytingunum getur í fyrsta lagi verið búinn að þeim í enda mánaðar og þar sem þetta er svo að segja blómatími bloggsíðunnar "JAN" þá ætlaði ég bara að formlega opna gamal lookið til að tappa af ferskum færslum. Það er mikið búið að vera að gerast hjá mér á árinu sem var að líða og mín næsta færsla mun fá að fjalla um árið í heild sinni í máli og myndum ;) Ég er farinn í heitt bað og reyna að mæta ferskur á æfinguna í fyrramálið. Þangað til næst, L&I_23. |
06.01.2010 |
| Handboltadraumar frá Hallgrimi.is ;) |
|---|
| Ég kom út af vinnustofunni rétt fyrir fimm og heyrði drunur af himni. Leit upp og sá þotu svífa yfir austurborgina. Henni fylgdu tvær þyrlur. Strákarnir okkar voru komnir heim. Með sextán silfurmedalíur frá ÓL í Peking. Staðreyndin helltist yfir mann, hjartað tók kipp og augun fylltust af tárum. Maður er búinn að vola mikið þessa Ólympíudaga. Það er líklega sögunnar vegna. Á bakvið handboltasilfrið í Peking er langt og mikið puð. Það tók okkur hálfan mannsaldur að klifra á þennan pall. Þegar faðir minn æfði handbolta og stóð í markinu hjá ÍR upp úr 1950 æfðu öll liðin í sama húsi: Gömlum bragga sem breski herinn hafði reist inni við Skeiðarvog og hét Hálogaland. Þetta var eini almennilegi íþróttasalur landsins frá stríðslokum og þar til Laugardalshöllin var opnuð 1965. Landsleikir voru fátíðir og töpuðust flestir. Eitt sinn náðist þó jafntefli við Finna, kannski vegna þess að leikið var utandyra, á Melavellinum. Ég fór með pabba á fyrstu landsleikina í Höllinni. Í stúkunni voru bara karlmenn, allir í svörtum rykfrökkum og hvítum skyrtum, sumir reykjandi. Og ég man eftir nafninu “Labbi”. Það var goðsagnakenndur blær yfir því: Gunnlaugur Hjálmarsson hafði valist í heimsliðið eftir HM í Þýskalandi ’61. Svo man ég fyrsta sigurinn á Dönum, 15-10, í Höllinni ‘68. Sigurbergur Sigsteinsson láréttur í loftinu og hinn skotfasti Jón Hjaltalín Magnússon að skora frá miðju. “Mesta íþróttaafrek Íslandssögunnar,” kvað ráðherrann Gylfi Þ. um sigurinn. Og smám saman fjölgaði húsunum. Leiðarstef æsku minnar var krafan um íþróttahús við hvern skóla með handboltavelli í fullri stærð. Álftamýrarskóli fékk eitt og ég fór í markið af því að pabbi hafði staðið þar og af því ég gat ekki gómað boltann. Í staðinn fengu ökklar og læri að brenna undan skotum frá Sigurði Gunnarssyni og Atla Hilmars. Atli bjó í blokkinni okkar og var bestur í boltaskotum, fót og hand. Eftir skóla æfðum við látlaust í skólaportinu og fórum í Höllina á kvöldin að sjá guð í mannsmynd: Geir Hallsteinsson úr Hafnarfirði. Hér var kominn íslenskur handboltamaður sem var ekki bara í heimsliðinu heldur einfaldlega BESTUR Í HEIMI. “Hann var listamaður og séní,” svo vitnað sé í Guðjón Guðmundsson, handboltaföður og -fræðing á Stöð 2. Undirhandarskot hans voru svo föst að enginn sá boltann fyrr en í netinu, hvorki markmaður né áhorfendur. Það flottasta við hann var þó hvernig hann hljóp til baka í vörnina. Í fjögur ár hlupum við allir eins og Geir Hallsteinsson. Svo komu markmenn. Óli ver og Hjalti ver. Og við náðum jafntefli við Rúmena í frægum leik, 14-14, þar sem Hjalti Þorsteinsson gekk berserksgang og Ómar Ragnarsson hrópaði látlaust “HJALTI VER!” inn í hjarta þjóðarinnar sem var svo hrifin að hún heimtaði að leikurinn yrði endursýndur á gamlársdag. Svo kom að því að einn úr okkar hópi gekk inn á völlinn. Atli Hilmarsson endaði í landsliðinu og fyllti okkur af stolti. Sjötta sæti á ÓL í LA ’84. Sjötta sæti á HM í Sviss ’86. Þá var pólski þjálfarinn Bogdan Kowalczyk kominn til sögunnar með alveg nýjar kröfur, ný markmið og sinn fræga aga. Hann skilaði strákunum á efsta pall í B-keppninni í Frakklandi ’89. Alfreð Gísla og Kristján Ara tóku fyrsta sætið á heimsmeistaramóti sem var aðeins merkara en B-ið gefur til kynna. Nú vorum við komnir í fremstu röð og fastagestir á stórmótum síðan. Fjórða sæti á ÓL í Barselóna ’92. Fimmta á HM í Kumamoto ’97. Og aftur fjórða á EM í Svíðþjóð ‘02. Í fyrra vorum við svo marki frá því að sigra Dani á HM í Þýskalandi í tvíframlengdum áttatíu marka leik þar sem íslenskir markverðir vörðu tvö skot. Þá sagði þjálfari Ólafs Stefánssonar í Ciudad Real að við þyrftum ekki nema einn sæmilegan markvörð og þá myndum við keppa um gull. Það gekk eftir. Björgvin Páll varði okkur á pall í Peking. Árangur næst ekki einn tveir og þrír. Árangur næst í þremur kynslóðum. Það er langt tilhlaupið að hæsta marki. Hallsteinn faðir Geirs var kallaður “faðir handboltans á Íslandi”. Logi sonur Geirs skoraði gullvæg mörg í Peking. Hann leysti Arnór Atla af í skyttustöðunni vinstra megin. Arnór er sonur Atla Hilmarssonar. Leikstjórnandinn Snorri Steinn er sonur fyrrnefnds Guðjóns sem var liðsstjóri hjá Bogdan. Það er söguleg dýpt í þessum sigri. Af öllum þessum ástæðum og fleirum vöknar okkur um augu við að sjá silfurstrákana fá fálkaorðu á Bessastöðum. Að baki þeim standa öll landslið Íslands, alveg frá því það fyrsta fór á heimsmeistarmót, í Austur-Þýskalandi árið 1958. Og allir sem á þau horfðu. Takk, strákar. Gaman að fá þetta sent á þessum tímum ;) |
04.10.2009 |
| Að koma hlutunum almennilega frá sér... |
|---|
02.09.09 og ég sit hérna heima í stofu að drita eitthvað hressandi hérna inn. Strákarnir í liðinu fóru til Spánar í morgun og ég flýg væntanlega á eftir þeim á föstudaginn. Við erum eins og flestum er kunnugt um að fara að spila í forkeppni fyrir Championsleague. Leikið verður í Ademar Leon en ásamt þeim verða Bjöggi og co í Kadetten frá Sviss og Celja frá Slóveníu að eigast við og mun efsta sætið gefa sæti í skemmtilegustu deild í heimi. Ég verð að treysta á strákana núna því ég er ekki alveg orðinn 100% samt mjög nálægt því. Þessi “Wildcard“ riðill verður spilaður um helgina og svo er 10. Sept fyrsti leikur í deildinni á móti Magdeburg hérna hjá okkur í Lemgo. Það ríkir mikil eftirvænting og spenna fyrir þessu tímabili en undirbúningurinn rataði beint í einstefnu og af 12 sterkum liðum sem við spiluðum á móti töpuðum við 11 sem er ákveðið áhyggjuefni. Engar áhyggjur ég er að koma að reyna að redda því sem reddað verður ;) hehe. Maður má aldrei gleyma því að trúa á sig og það sem maður gerir, því afhverju ætti einhver annar að gera það.![]() Sumarið er hægt og sígandi að renna burtu héðan frá okkur í Lemgo þrátt fyrir að það koma fáranlega góðir dagar inná milli. Við fengum til að mynda frí um síðustu helgi sem við nýttum til að hitta „Soninn“ í Kiel ;). Aron er búinn að koma sér einstaklega vel fyrir í Kiel og var gestum sínum til fyrirmyndar með gestrisni og góðu skapi. Mamma hans og Pabbi eiga hrós skilið fyrir að vera búin að ná að innrétta risa íbúð á Bolt-tíma. Það eru spennandi tíjmar þar framundan en þeir hafa styrkt sig gríðarlega fyrir komandi tímabil. ![]() Ég sit hérna núna og er að bíða eftir að einhver gæji sem er að bjóða í hjólið mitt komi og skoði það. Nú er kominn sept og maður er ekkert að nenna að keyra þetta svona seint á árinu. Ef ég ákveð að selja það á ég eflaust eftir að sjá heví eftir því enda eitt svalasta mótorhjól sem ég veit um. Honda VTX 1300 custom made, það er engin núðla skal ég segja ykkur. ![]() Svo er ég að fá stórvin minn Arnór Jón í heimsókn til mín og ætlar hann að heiðra mig með náveru sinni í ca viku hérna í Lemgo. Það hefur væntanlega aldrei verið jafn lítið að gera í heimsóknum og á þessu ári, væntanlega spila meiðslin eitthvað þar inní en ekki gleyma að allir vinir velkomnir eins og ávalt. Loksins þegar húsið sem ég er í rúmar 10 manns þá kemur enginn ;) Einkaþjálfarinn í ÍAK er að byrja aftur. Ég var eiginlega búinn að segja mig úr honum því ég var ekki að sjá framá með þessi axlarmeiðsli að geta klárað skólann. Því þetta er allt sniðið að landsliðinu en öxlin er orðin það góð að ég geti spilað með landsliðinu í okt og því um að gera að demba sér í þetta og klára. Enda svakalega skemmtilegt og fræðandi, mæli eindregið með þessu námi enda er heilsan alltaf í tísku og sniðugt uppá framtíðina. Varðandi stúdío ferðina þar sem ég ætlaði að taka upp 2 frumsamin frábær lög varð að bíða betri tíma en ég er að vinna í því að geta frumflutt það hérna á síðunni. Annars varð mér allt í einu hugsað til þess hvað bloggsíður eru að deyja út, ég bara trúi því ekki að það sé að ske. Það er einmitt ástæðan fyrir fyrirsögninni á færslunni, á Facebook eru þetta bara stikkorð. Ég bið kærlega að heilsa ykkur þarna heima og öllum vítt og dreift um heiminn sem gera sér ferð hingað inn til að lesa það sem ég skrifa. Hef gaman af því að deila, gangi ykkur vel og bestu bros kveðjur til fjölskyldunnar, vina og kunninga og líak ykkur sem lesið bara til að lesa. Það er gott að lesa, stækkar heilann og þroskar mann. Það er allavega mín skoðun og ég hef sem betur fer rétt á henni, L&I. ![]() Jón Örn Stefánsson er einn af þeim flottustu sem að sækja heimasíðuna mína og sendir hann mér reglulega ljóðin sem hafa slegið í gegn hérna á síðunni í gegnum tíðina. Núna er engin breyting á og er það mitt mat að hann sé mögulega að toppa sig núna. Njótið og farið varlega ;) Ekkert verður þér um megn, og ekkert skákar lengur. Í Lemgo aftur slærð í gegn, þú káti Silfur-drengur. Í hárið góðar vörur veljast, og það er ekkert bull. Silfur-línan er að seljast, alveg eins og gull. Ef að þú vilt lúkka vel, og sýnast fitt og klár. Þá tekur þú THE-Silver gel, og skellir í þitt hár. Íslendingur vikunnar: Anton Ingi Sigurðsson Spakmæli dagsins : Mikið hjálpar ekki mikið, því stundum er minna meira. Pæling dagsins: Er bara ekki hægt að setjast öfugt á klósettið? ;) |
02.09.2009 |
| Að hrósa einhverjum fyrir það að vera góður, verður oft tilefni fyrir hann að verða það... |
|---|
Jæja þá eru 4 vikur lidnar síðan að við hófum undirbúning, það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá. Við erum búnir að spila í 2 mótum og verið í síðasta sæti í þeim báðum. Það segir kannski ekki alla söguna því við höfum átt við meiðsli að stríða og æfum eins og enginn sé morgundagurinn. Hvað varðar mig þá er ég allur að koma til og verð betri og betri með hverjum deginum. Það er ekkert grín að eiga við svona axlarmeiðsli en ég er búinn að læra það hérna í atvinnumennskunni að það er ekkert hægt að gefast upp. Gamla góða tuggan um að vera jákvæður og leggja enn harðar að mér er eina sem gengur upp. ![]() Við erum núna í æfingaferð sem tekur 2 vikur og eyðum við mjög miklum tíma saman. Við munum æfa og spila í suður Þýskalandi þar sem sólin skín allann daginn. Þetta gengur eiginlega útá það að flakka milli hótela, spila/ æfa /sjúkraþjálfun. Við skiptum alltaf upp hlutverkum í liðinu fyrir tímabilið og fékk ég hlutverkið eða valdi það réttara sagt“Vídeovörðurinn“ sem þýðir að ég þar alltaf að sjá til þess að vídeoið sé í gangi í rútunni, og ímyndið ykkur, við erum 2 vikur að ferðast. Ég er heppinn að eiga hel... stórt safn af dvd svo þetta reddast. En víkjum okkur að einhverju öðru en handbolta... Þrátt fyrir að Lemgo sé engin New York þá er nú samt hægt að vera að dúlla sér í góða veðrinu. Við fórum um daginn á U2 tónleika sem var rosalegt upplifelsi. Schalke fótbolta völlurinn stútfullur og 70.000 manns að hlusta á þá í „360 gráðu“ túrnum sínum. Svo erum við mikið með Lúnuna okkar í göngutúrum og leika okkur á Vezpunni. Grilla og chilla og allur pakkinn. Við fengum heimsókn á Bruderstrase í fyrsta skipti í langan tíma þegar Helena móðir Ingibjargar kom og kíkti á okkur. Frábær persóna sem kryddaði tilverauna aðeins upp hjá okkur í Lemgo. Svo flugu þær saman núna til Íslands meðan að ég stend í ströngu með liðinu. ![]() Núna loksins er mér að takast eftirn langan langan tíma að finna einhvern sem hefur kunnáttu og passion í að breyta útliti síðunnar og setja nýjustu og flottustu fídusana inn. Það er ekki hægt að vera með best fyrir 2006 þegar kemur að þessum málum, þó að ég sé reyndar að leggja mesta áherslu á texann sem ég skrifa hérna inn. Ég sé það líka á heimsóknunum að eftir að facebook kom fer bara fólk þangað til að fá púlsinn á manni. Ég er reyndar ekki að fíla facebook útaf þessum takmarkaða vinafjölda... ![]() Ég er líka að pæla í setja inn skemmtilegar sögur frá því sem hefur hent mig á síðustu árum sem ég held að muni slá í gegn hérna á síðunni ;) Svo er ég farinn að sakna allra þeirra sem sendu mér ljóð dagsins, fyndna brandara og deila skemmtilegum sögum... Ég hér með óska eftir þeim kjarna sem sendi mér um árabil ;) Með bestu fitness-kveðjum, L&I_23. Afmælisbarn mánaðarins: Pabbi gamli, alltaf ferskur. Ég held að Pabbi sé sá sem hefur oftast heimsótt síðuna af öllum. Algjör snillingur... ![]() Dagsins besta: Hver dagur án Ingibjargar og Lúnu er bara hálfur dagur ;) Heimasíða dagsins: www.ebay.com hérna á maður að versla miklu meira ;) Íslendingur dagsins: Helena Rafnsdóttir. Réttur dagsins: Stökk önd með grilluðu fersku grænmeti og stórt gott vatnsglas. Vignir dagsins er nýr liður hjá mér sem byrjar í næstu færslu... DVD dagsins: The Goonies, Choookolate heheheheh. Lag dagins: African Queen ![]() |
17.08.2009 |
| Uss hvað þetta er búið að vera skemmtilegt sumar ;) |
|---|
| Nú er ég búinn að vera hérna í Lemgo í 2 vikur í undirbúningi og það er óhætt að segja að þetta sé full vinna. Við erum allann daginn að stússast á æfingum, spila leiki, hlusta á músik saman og labba í Buffalo skóm (MBT) googla þetta. Já þú ert að lesa rétt, það á sko að prófa allt í ár hjá Lemgo, já og meðan ég man þá er líka verið að steypa okkur í ískalt kar og svo beint í gufu eftir allar æfingar. Svona er lífið í Lemgo í undirbúningi fyrir nýtt tímabil. Öxlin er allavega rétt skrúfuð á mig og er ég ánægður að vera byrjaður á fullu og getað skotið á markið. Ég má ennþá taka mér 2 vikur í að fara geta skotið af 100% krafti. En þegar alvaran hefst þá er ég mættur, og formið sem ég ætla að koma mér í, sæææælll. Ég og Vignir erum búnir að setja okkur markmið og þeim verður að sjálfsögðu landað. Ég var á ferð og flugi í sumar með kærustunni, fórum til Mallorka svo til Íslands þar sem Bjöggi og Ég settum www.thesilver.is á laggirnar eftirminnilega. Síðast þegar ég talaði við framkvæmdastjórann þá sagði hann að þetta væri rétt að byrja... So stay tuned there. Svo flugum við strax eftir partýið til USA þar sem við leigðum okkur hús á Orlando og nutum þess að slappa af. Tókum svo 1 dag í Boston á leiðinni heim sem var ekkert smá flott borg. Þannig að maður getur strokað Florida út af „To Do“ listanum fræga. Ég get nú ekki annað en talað aðeins um tónlistana enda er hún farin að eiga stærri og stærri hluta af manni. Planið var eins og flestir læsir menn á Íslandi vissu að L&L ætluðu að túra en sökum mikilla anna hjá nokkrum meðlimum bandsins urðum við sð skippa því í þetta sinn. En fyrir áhugasama auglýsti ég það reyndar á facebook að ég myndi taka í gítarinn fyrir hönd Lundana á Celtic Club og gerði ég það svona 5 sinnum í sumar. Tók þessi helstu, Use somebody sem við tókum líka í Partýinu, Ofboðslega frægur, Wonderwall og Beat it. Þessi staður var smekk fullur og ég er ekki að ljúga þegar ég segi að íslendingar kunna að meta góða trúbadora ;) Vildi bara þakka fyrir mig og væri alveg til í nokkrar myndir sem voru teknar þarna, endilega senda á mig logi.geirsson@gmx.de . Ég ætla að vera duglegur að setja inn eins og síðustu 5 árin ;) ... Bestu verzlunarmanna-kveðjur, L&I_23. |
13.08.2009 |
| There are no shotcuts in Life... |
|---|
| Smá texti frá „101082“ í þýskalandi... Ég er búinn að vera að hugsa svo margt að undanförnu. Flest af þessu, ef ekki allt jákvætt en samt líka hvað ef þetta!!! STOP „ Trúðu á Þig og þína leið“ Mig langar að segja ykkur hvernig ég hef verið að setja mér markmið og hvernig það er að snerta mig núna. Ég er eins og lesendum síðunnar er flestum kunnugt um alltaf að brýna á markmiðasetningu. Þá getiði rétt ímyndað ykkur hversu mikla þýðingu það hefur fyrir mig. Ég er líka alltaf að rekast á það að þegar maður setur sér markmið lendir maður í smá ógöngum á leiðinni þangað. Það er einfaldlega hluti af því að ná því sem mann langar mest til. Þegar bílnum er keyrt inní einstefnu á maður að vera fljótur á því að átta sig á því og bakka og halda leið sinni áfram ótrauður. Bara þetta að muna að vera jákvæður og trúa á leiðina sem maður velur sér. Skipuleggja sig og ef manni finnst eins og maður nái ekki að afreka það sem manni langar þann daginn þá vaknar maður klst fyrr og fer klst seinna að sofa og málið dautt ;) Veit að það er auðveldara sagt en gert en þessi formúla virðist vera ódrepandi. Núna er ég að stíga skref sem ég hef aldrei áður ætlað mér jafn mikið sem íþróttamaður. Ég ætla reyndar að láta verkin tala og vera einbeittur á það sem ég er að fara að ætla mér. Allt sem ég hef verið að ganga í gegnum að undanförnu hefur bara verið að styrkja mig og ég er ekki að skrifa það bara til að skrifa það. Ég hef fengið nýja sýn, nýjan metnað og þetta sem hefur verið að gerast hjá mér hefur opnað bæði augun mín fyrir öllum þessum tækifærum sem eru þarna úti. Fyrir ykkur sem eruð þarna heima og með allt í steik peningalega þá segi ég bara eins og ríkasti maður heims sagði fyrir stuttu, „Kreppan er móðir tækifæranna“. Maður á að leyfa sér að hugsa stórt, geri mér líka grein fyrir að Róm var ekki byggð á einni nóttu. Fannst það nokkuð merkilegt sem Óli Stef sagði í viðtali ekki alls fyrir löngu og ég er svo hjartanlega sammála. Maður tekur ákvörðun og maður neyðist til að fá neikvæð viðbrögð frá fólki sem segir að þetta sé ekki rétt o.s.frv. og þá á maður ekki að bugast. Yfirleitt er þetta fólk sem reynir að brjóta mann niður búið að klúðra öllu fyrir sjálfu sér en stundum er líka hreinskilið fólk sem þykir vænt um mann að segja þér hvað því finnst. En þegar öllu á botninn er hvolft er þetta þitt líf og engir 2 einstaklingar sjá heiminn með sömu augunum, það ert þú sem átt eftir að hafa rétt fyrir þér að lokum. ![]() Ég var að sjá þáttinn um Óla Stef í atvinnumönnunum okkar í fyrsta skipti í gær. Þessi þáttur skildi ekkert smá mikið eftir sig og fékk mig til að hugsa, endurskipuleggja mig. Það er jú þannig sem maður þróar sig áfram. Ég vona svo sannarlega að Óli verði sýnilegur í íslensku samfélagi þegar hann flytur heim. Svona menn eiga að reyna að gefa af sér það sem þeir hafa náð að afreka á sinni ævi til yngri kynslóðar landsins. Óli ég veit þú lest þetta, mannstu þegar þú talaðir um „ræturnar“!!! í mínum skilningi ertu fræið fyrir yngri kynslóðir. Fékk allt í einu áhuga á því að pæla djúpt í því hvað fólk er að hugsa gera og leggja á sig. Ég fór á tónleika hjá Beyoncy Knowles í handboltahöllinni í Oberhausen þar sem 10.000 manns komu saman að bera hana og flottasta showi sem ég hef séð, augum. Ég hef spilað þarna fyrir jafn marga áhorfendur, þetta opnaði fyrir mér augun og ég fékk Inspiration sem ég ætla að nýta mér. Ég er byrjaður á fullu að læra einkaþjálfarann í ÍAK. Menntun sem mig hefur lengi dreymt um og stefnt að er orðin að veruleika. Við ákváðum nokkrir strákarnir í landsliðinu að skella okkur í þetta saman ásamt kærustunni minni og aldrei að vita hvort að vði stofnum ekki allir líkamsræktarstöð seinna þegar við erum hættir í atvinnumennskunni. Aldrei að vita... Maður verður að stefna hátt til að komast hátt, það er bara þannig. www.thesilver.is má að sjálfsögðu enginn gleyma en „Gelið“ er að koma á markaðinn núna heima eftir nokkrar vikur. Ég og Bjöggi stofnuðum fyrirtækið sem ber heitið S08 eftir að við vorum báðir byrjaðir að gera okkar eigin blöndur. Þá má eiginlega segja að áhuginn hjá okkur hafi kveiknað þegar fólk fór að prófa vöruna og vildi fá meira og meira af þessu. Það verður enginn svikinn af The Silver enda ekta. Það sem ég er nú líka að vinna í er að reyna að glamra meira á gítarinn því maður er fjótur að detta úr æfingu. Er hinsvegar búinn að vera duglegur að sjá og sækja það hvernig hinir helstu tónlistarmenn heimsins eru að gera. Fara á flottustu showin því það er alveg klárt að Logi & Lundarnir munu spila á landinu í sumar og þá er eins gott að missa ekki af okkur en það verður auglýst seinna. Maður dagsins: Jóhanna Guðrún og hundurinn hennar. Lag dagsins: In your eyes með Ben Harper Acustic Drykkur dagsins: Gamli uppáhalds sumardrykkurinn minn frá 1998 minnir mig er mættur aftur. Fanta Lemon í sumar ussssss ;) Ein mynd í tilefni þess. ![]() Pæling dagsins: Sá sem fann upp tímann, 24/7, 60 sek, 60 min, hvað var hann að gera. Ef þessu yrði breytt! Yrðum við jafn gömul??? nei er mitt svar ;) |
19.05.2009 |
| Minningar að poppa inn ;) |
|---|
![]() Jæja 13. Maí 2009 runninn upp. Ekki það að hann sé eitthvað merkilegri en einhver annar dagur, nema fyrir þær sakir að hann er eini dagurinn í heiminum. Því ekki er til dagurinn í gær og hvað þá morgundagurinn. Var bara að leika mér á netinu að skoða flug og eitthvað því tengt og fór að rifja það upp að ég kom hérna 2004 eða fyrir 5 árum ca. Mætti hingað með Bakpoka með smá pening í sem var varla meira en illa launað skúringarstarf og vissi ekkert hvar ég væri að fara að búa eða sofa þá nóttina. Var bara búinn að vinna í Kaplakrika og æfa eins og brjálæðingur allt sumarið en þetta var árið sem landsliðið var að æfa fyrir Ól í Aþenu. Man eftir þegar Mamma og Pabbi komu með mér og ég fór á skrifstofurnar hjá Lemgo þar sem einn starfsmaður félagsins var með lykil og við keyrðum á eftir honum. Þá kom í ljós að ég væri að fara að búa fyrir ofan banka, ég hafði ekki hugmynd um það hversu stór íbúðin væri. Mér var nú líka alveg slétt sama um það og var orðinn mjög svo spenntur að byrja að búa einn. Eina sem var í íbúðinni var 1 rúm og sófi, ég svaf í sófanum og M&P í Rúminu. Án sjónvarps, útvarps, ísskáps og borða og stóla var mjög skrýtið að koma sér fyrir. ![]() Ég átti að fara á æfingu daginn eftir og síðan leikur um kvöldið fyrsti leikurinn fyrir Lemgo. Ekki var oná þetta allt bætandi að það voru 35 gráður þarna og hitabylgja að ganga yfir landið. Sem gengu svo ekkert heldur voru þarna fyrstu 3 vikurnar mínar. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig það var fyrir hvítasta mann Evrópu að æfa úti í þessu. Kannski er líka fyndið að segja frá því að ég gerði 14 mörk í þessum leik, sem var reyndar fyrir liði sem er í 3. Deild en þetta vakti athygli. Varð til þess að ég var vakinn daginn eftir og þeir búnir að redda mér bíl sem tók mig 1 viku að afhenda aftur og finna mér nýjan. Ári seinna var Ásgeirs Örn rúntandi um á honum, ég ætla samt ekkert að láta það fylgja sögunni að það var ekki 20 cm blettur á bílnum sem var ekki dæld á ;) hahahah. Svo man ég að Pabbi sagði Logi láttu þá leggja inná þig svo við getum reddað öllu í IKEA, jújú samdægurs lögðu þeir inná mig og Pabbi bara WOW það er ekkert annað, ekki „amalegt“ er orðið í minningunni sem Pabbi notaði. Þetta myndi ekki duga fyrir fólk sem býr í hjólhýsi í dag ;) en tíminn líður og mennirnir með. Ætla nú hérna í leiðinni að þakka Mömmu og Pabba aftur fyrir að koma mér upp öllu á þessum tíma, góð fjölskylda er gulli betri, þið eruð líka búin að fá það tilbaka í dag ;) ![]() Svo það sem ég hef aldrei skrifað niður né sagt. Mig hlakkaði svo til að fara að búa aleinn bara með allt mitt dót, símann nýja Benzinn sem Óli Már reddaði mér, og allt. Ég skutlaði ykkur til Frankfurtar þar sem elsti bróðir minn Arnar bjó og beið eftir að geta keyrt af stað. Kvaddi ykkur og var búinn að keyra í 30 km þegar ég bara shit ég er aleinn í heiminum, tilfinning sem ég get og gat ekki lýst og sneri við. Pabbi mannstu ég hringdi og sagðist hafa gleymt veskinu og kom svo aftur til að vera með ykkur lengur, maður var ekki meiri töffari en það. Man að ég var að hlusta á orginal með sálinni á leiðinni og þessari bílferð mun ég aldrei gleyma. Shit svo loksins þegar ég fékk mig til að keyra af stað leið sem tekur 2.45 tókst mér að villast svona svakalega. 7 tíma á leiðinni fastur í Kassel, Pabbi hringir jæja kominn þá stökk ég á Mc Donalds til að þykjast vera einhverstaðar inni „ Jájá fyrir klukkutíma“ vildi ekki drepa ykkur úr áhyggjum. Steiktur tími ![]() Ég ákvað bara að skrifa minningarnar... Thats all ;) Líf of fjör, Lakkrísrör... |
13.05.2009 |
| To be or not to be ;) ... |
|---|
| Það er alltaf líf hjá okkur hérna í Lemgo þrátt fyrir að bærinn sé sofandi. Mig langar að segja ykkur skemmtilega sögu eftir nokkrar áskoranir á facebook þar sem að ég hét í statusnum „ ég bjargaði tónleikunum hjá Lionel Richie“ það er kannski aðeins orðum ofaukið en ég læt þetta engu að síður flakka hérna. Veit ekki hvernig mér reiðir af að lýsa en þessu en here we go... Ég fór á tónleikana með Lionel í Gerry Weber sem er risastór tennishöll þar sem við spilum nokkra heimaleiki á hverju tímabili. Ég hefði nú líklega ekki farið nema fyrir þær sakir að kærastan finnst hann alveg frábær en hvað um það. Við mættum 2 tímum fyrir showið og sátum í tónleikastólunum okkar eins og ég kalla þá og vorum að koma okkur í stuð. ![]() Keyptum diskinn hans og hlustuðum á hann nokkrum sinnum fyrir tónleika til að gera þetta almennilega. Það voru komnir saman svona 7500 manns og stemmningin var ekki nógu góð að mínu mati nema hvaða að Lionel tekur lagið „3 times a Lady“. Þá voru nokkrir camerumenn í salnum að taka mynd af fólki í höllinni og þeir byrja á því að mynda þekktann fótboltamann úr Arminia Bielefeld og var hann á nokkrum risaskjáum í höllinni. Ég hugsaði bara voðalega stendur hann heimskulega með kærustunni sinni. Ég var ekki búinn að hugsa þetta nema í 2 sek fyrr en cameran er með mig í closeup. Þá flaug mér í hug „ to be or not to be“ og ég tók kærustunna og kyssti hana og það varð allt vitlaust. Meira að segja Lionel leit upp frá Píanóinu. Svo án þess að ég hefði hugmynd um það þá voru helling af strákum í liðinu þarna og þið getið rétt ímyndað ykkur hvað rigndi inn af sms. Vignir Svavars sat þarna 20 metrum frá mér og sagði að þetta hefði verið u.þ.b. það fyndnasta sem hann hefði séð. Það er frekar erfitt að reyna að lýsa þessu svona svart á hvítu þetta var svona „ you had to be there moment“. Kærastan roðnaði niður á rass en þetta var worth it... Annars er allt í topp málum hérna og endurhæfingin á öxlinni gengur framar vonum, nú eru næstum 5 vikur síðan aðgerðinni lauk og er allt annað að vakna á morgnana. Svo gengur liðinu mjög vel og við eigum stóran séns á því að spila í Championsleague á næsta ári sem væri alger draumur. Ég var einmitt að lýsa síðasta leik á móti Dormagen í sjónvarpinu sem er alltaf gaman að gera. Ég fékk mér svo tattoo í síðustu viku á framhandlegginn. Svo svona til að loka þessu þá er ég kominn með einkaþjálfara sem ætlar að koma mér í form lífs míns fyrir næsta tímabil. ![]() Með átaks-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Heimasíða dagsins: www.karfan.is Maður dagsins: Meinolf Krome nýji einkaþjálfarinn Drykkur dagsins: Próteindrykkur Spakmæli dagsins: Your journey needs weel, LG. ![]() |
01.05.2009 |
| “He who blames others has a long way to go on his journey. He who blames himself is halfway there. H |
|---|
![]() Ég er allavega lifandi ;) undanfarið er mjög svo mikið búið að vera að gerast í mínu lífi, bæði handaboltalega, persónulega og viðskiptalega er óhætt að segja. Ég er loksins að gefa mér tíma til þess að skrifa aðeins um það sem á daga mína hefur rekið að undanförnu ![]() Kannski væri best að byrja á handboltanum og því tengdu. Ég fór eins og flestir vita í aðgerð á öxlinni þann 30.3.2009 í Rottenburg sem er bær með einum besta axlarsérfræðingi þýskalands rétt sunnan við Stuttgart. Ég gisti 4 daga eftir aðgerðina á hóteli sem liggur við spítalann. Þetta var allt frekar erfitt en ég tel að þetta hafi átt að ske fyrir mig því allt gerist jú að ástæðu ekki satt? Guð vildi bara athuga hvort ég væri nógu sterkur til að vinna bug á þessari hindrun á leið minni sem íþróttamaður ;) ! en aðgerðin tókst mjög vel. Ég er búinn að vera í fatla núna í 3 vikur og er að losna úr honum núna fyrir ca 5 klukkutímum síðan. Það er kannski engin ástæða til þess að biðjast afsökunar á að hafa ekki hent inn færslu með vinstri en ég bara nennti því ekki. Núna tekur bara við hjá mér sjúkraþjálfun á hverjum degi í ca 3 mánuði í viðbót og þá á ég að geta farið að spila á fullu. Ég fékk sendan stól heim sem sér um að hreyfa á mér öxlina í ca 2-3 tíma á dag sem hefur reynst mér mjög vel. Mig er mikið farið að hlakka til að geta sofið í heila nótt samfellt, en ég hef verið að vakna 3-10 sinnum á hverri nóttu í 3 vikur vegna verkja. ![]() Ég þarf svo að fljúga eftir 3 vikur til Stuttgart til þess að hitta læknirinn aftur og fara í skoðun sem ég geri fastlega ráð fyrir að koma jákvæð út ;) Veðrið er búið að vera yfir 20-25 gráður og sól í ca 15 daga og ekkert lát virðist vera á því að maður borði á svölunum allann daginn og njóti þess að vera úti á stuttum buxum. Það lítur út fyrir að þetta verði svakalegt sumar en það verður að koma í ljós. Ég verð að öllum líkindum ekki mikið hérna því ég ætla að fara að koma til Íslands innan skamms og svo til Orlando, Florida í smá stund. Ég fór fyrir aðgerðina í smá “roadtrip” kíkti með kærustunni til Mílanó og svo til Mónaco til að eyða smá pengs. ![]() Mónaco heillar mig ekkert eðlilega mikið, vorum á Beach hóteli og lágum á ströndinni í sólbaði og fórum svo á kvöldin í Casino þar sem ég vann $$$. Svo hitti ég Prinsinn frá þýskalandi Markús spjallaði aðeins við hann en hann keyrði um á Rolls Royes allann þakinn “Louis Vuitton” hann gerðist meira að segja svo almennilegur að leyfa kærustunni að setjast undir stýri. Þið getið séð þennan gæja hér, www.princeofgermany.com ![]() Á föstudaginn er ég að fara á tónleika hjá Lionel Richie hérna í Bielefeld og verður það eflaust frábær skemmtun. Ég hef ekki farið á stóra tónleika síðana ég fór á Foo Fighters í Egilshöll fyrir nokkrum árum þannig að þetta verður stuð. Pixies og Rage Agains the machines voru höfðu sinn sjarma fyrir öllum þessum árum en eiga væntanlega lítinn séns í Lionel ;) Það er víst komið að þessu með “Gelið”. Ég man bara eftir þegar ég byrjaði á þessu árið 2005 og núna 4 árum seinna er þetta að verða að veruleika. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er enginn annar er landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Gústafsson og hefur hann unnið dag og nótt í nokkuð langan tíma að því að gera þennan draum að veruleika. Mig langar helst til þess að segja sem minnst um þetta og leyfa ykkur að sjá hvað þetta kemur með mikilli sprengju til Íslands frekar en að blasta allar væntingar til himna sem ég hef nú reyndar aðeins gert með þessum texta. En ég get lofað því að þetta verður “HIT” enda svakalega margir sem hafa beðið óþreyjufullir eftir að fá að prófa vöruna endanlega... “Stay Tuned” ![]() Svo get ég nú ekki klárað færsluna án þess að tala aðeins um Loga & Lundana en nú er loksins að koma heildarmynd á þetta. Þetta mun verða frá 23 – 27 að öllum líkindum og verið að vinna í að velja úr skemmtanir en Lundarnir skemmta ekki fyrir mikið minna en 1000 manns ;) Það er bara þannig... ![]() Annars óska ég ykkur alls hins besta og gleðilegt sumar ;) L&I... |
23.04.2009 |
| Langt síðan ég kom með eitthvað af viti ;) |
|---|
| Setti saman nokkra punkta sem allir gætu haft gott af… Er eiginlega brot úr gömlum fyrirlestri sem ég hélt. „Sjaldan er góð vísa of oft kveðin“ Virðing: Berið viðingu fyrir hvort öðru og öllum í kringum ykkur, það er enginn yfir annan hafinn í þessu lífi. Lærið að koma fram við náungan eins og þið viljið að sé komið fram við ykkur hvort sem um er að ræða kennara, foreldra, systkyni, vini eða annað fólk. Maður fer ekkert í þessu lífi á einhverjum stælum eða vanvirðingu. Ekki dæma fólk eftir efnahag eða setja fólk í flokka, því að í grunninn erum við öll nákvæmlega eins. Ég er alltaf að komast betur að því á ferðalögum mínum um heiminn að við erum öll eins hvort sem við búum í Ísrael, Íslandi eða Kanada við erum menn með tilfinningar og vitum hvað er rétt og rangt. Og einnig eigum við okkar drauma á misjöfnum sviðum ![]() Að velja lífsleiðina: Hlustið á eigin sannfæringu og eltið drauminn og hafið trú á honum hvað svo sem sagt er við ykkur af öðrum. Ekki láta einhvern segja ykkur hvað þið eigið að verða í framtíðinni, þetta vitið þið ein og reynið að finna út á hverju þið hafið áhuga og hvar ykkar hæfileikar liggja. Það er mitt mat að við höfum öll einhverja hæfileika og þeir liggja hjá okkur á mismunandi sviðum. Ég vildi frá upphafi leika handknattleik og fylgdi þeirri sannfæringu og lenti þar sem ég er í dag. Að setja markmið: Lesið ykkur til um markmiðasetningu og skipulag þegar þið hafið fundið út hvert þið stefnið. Hugsið um þessi markmið og þið munið á endanum komast á leiðarenda, þó að oft komi upp að maður renni inn í einstefnu og villist af leið þá er ekkert mál að bakka og koma sér aftur af stað á rétta leið. Skrifið hlutina í bók og opnið bókina reglulega til þess að skerpa á ykkar stefnu og markmiðum. Að lifa lífinu lifandi: Þakkið fyrir hvern dag og reynið að nálgast alla daga með jákvæðni og því markmiði að gefa af ykkur og gleðja aðra. Þegar maður gefur af sér líður manni betur. Ég minni mig daglega á það hversu heppinn ég er að vera alinn upp á Íslandi og hafa átt yndislega æsku í norðurbæ Hafnarfjarðar. Ef ég hugsa oft til allra þeirra sem eiga bágt í þessum heimi og líður mér illa td. við hugsanir um fólk sem er stríðshrjáð, fátækt, veikt. Þetta þekkjum við ekki hér á Íslandi. Þakkið fyrir á hverjum degi að geta gengið í skóla, farið til vinnu og geta verið með vinum og fjölskyldu. Alllir þessir hlutir kosta okkur ekki neitt. Allt það góða í þessu lífi er ókeypis??? ![]() Vímuefni til unglinga: Haldið ykkur frá þeim, svo einfalt er það. Ekki reyna að ganga í augun á einhverjum og fara að nota vímuefni. Þið eigið eftir að sjá það í framtíðinni að þeir sem geta sagt „nei“ eru flottastir. Það er sjálfsagt það versta sem foreldrar geta ímyndað sér er að missa barn sitt út í heim fíkniefna og einhverntíma verðið þið foreldrar og hugsið það sama. Ekki láta einhver skítaefni eyðileggja fyrir ykkur drauminn ykkar. Ef einhver er nú þegar kominn út á þessa braut ráðlegg ég honum að leita sér aðstoðar til þess að vinna bug á fíkninni með góðri aðstoð. Jákvæðni: ( skilgreining :Jákvæður sálfræðilegur auður er skilgreindur sem jákvætt ástand hjá einstaklingi sem er í þróun og einkennist af sjálfstrausti, bjartsýni, von og seiglu.) Verið jákvæð og takist á við öll verkefni með jákvæðni. Ef maður er svartsýnn mun ganga illa en á hinn bóginn er jákvæðni aðgangsorð að öllum lausnum. Að lokum á eg mer eitt uppáhalds spakmæli: „Hver vegur að heiman er vegurinn heim ;)“ |
11.03.2009 |
| Árangur krefst erfiðis… |
|---|
Ég var nú búinn að lofa þvílíkum færslum hérna á síðuna á nýju ári og fara með hana í hæstu hæðir. Ég hef nú ekkert verið að fara á kostum það sem af er í bloggskrifum hehe, en betra er seint en aldrei. Það er líka þetta blessaða „Facebook“ sem hefur verið að riðja öllu úr umferð enda fáranlega skemmtilega uppsett síða fyrir utan að ég get ekki addað 1500 manns? Þið vitið þá allavega afhverju. Ég ætla mér nú samt sem áður að halda í ræturnar og rækta síðuna mína því hún hefur jú verið einskonar besti vinur minn hérna í Lemgo síðustu 5 árin ;) Ég ætla að reyna að ná í markhópinn minn aftur sem ég sé á aðskónartölum að ég sé búinn að tapa, frá ca 1250 manns á dag í 350 ? það er ekki nógu gott enda var ég farinn að fá lífshótanir í gegnum email að lofa færslum sem svo aldrei komu. Hehe núna verða vonandi breyttir tímar.![]() Það er fáranlega margt búið að gerast hjá mér síðan að ég setti síðast eitthvað af viti á síðuna. Mig langar í dag til þess að fara frá A til Ö í því. Þetta gæti því orðið löng lesning en vonandi eitthvað gefandi ;) maður er nú ekki vanur neinu öðru ;) Byrja á handboltanum: Við erum búnir að vera að spila mjög góðan handbolta í ár og erum sem stendur í 2 sæti í deildinni. Ég er búinn að vera að vinna mig í skyttuna og er byrjunarmaður þar í síðustu leikjum og sem stendur markahæstur í liðinu. Staðan er því búin að breytast mikið frá því fyrir jól þegar ég var næstum því farinn. Þetta er fljótt að gerast í boltanum. Við reyndar duttum út í EHF-Cup um daginn sem var skandall en núna er það bara að tryggja sig í Championslige á næsta ári. Svo er landsliðið að fara að koma saman um miðjan mánuðinn þar sem að við spilum úti á móti Makedónu og svo á móti Eistum heima á laugadalshöll. Þetta eru mikilvægir leikir uppá það að tryggja okkur rétt til að spila á EM í byrjun næsta árs. Það er mikilvægt að vera með á stórmótum því við ætlum að halda standart frá því á ÓL. Hvað heilsuna varðar hef ég verið að vesenast aðeins með öxlina og fengið að hvíla míg í 2 leikjum uppá síðkastið og ætla mér að spila með núna á fullu í næstu leikjum. ![]() Lífið: Það er búið að vera mikið um heimsóknir hérna í Lemgo uppá síðkastið og færri komist af en vildu. Það voru t.a.m 15 íslendingar að hofa á síðasta heimaleikinn hérna hjá okkur á móti Löwen með Guðjóni Val og co sem við unnum sannfærandi. ![]() Það er nú þegar farið að vora aðeins og lífið hérna farið að lifna við, ég hlakka ekkert eðlilega mikils til sumarsins. Ætla mér að njóta þess að fara í nokkra daga í rútu og túra um Ísland með “Lundunum” og svo er ég stunginn af til Miami Florida þar sem ég ætla að gleyma mér í gleðinni. ![]() Lag dagsins: Kids með Mgmt. Flashback dagins: “Þeir sem þora, þeir skora” LG Spakmæli dagsins: Stefán Ólafur sendi mér það. "Lífið er einsog konfektkassi, ef þú lendir á vondum mola, þá spýturu honum bara út úr þér og færð þér annan!" Óvæntasta ársins... Innrásin með Loga og Bjögga ;) Útvarpsstöð dagsins: FM 95,7 (snilld að hafa hana í gangi á netinu) |
04.03.2009 |
| Meiddur i Öxlinni ;) |
|---|
| Bara til thess ad koma i veg fyrir einhverjar vangaveltur tha er eg buinn ad taka mer viku fri fra aefingum sökum smavaegilegra axlarmeidsla!!! Eg akvad ad spila ekki leikinn a moti Stralsund thvi their geta ekki blautann en aetla ad spila a moti Wetzlar i midri thessari viku ;) Bestu kvedjur annars fra Lemgo, L&I. |
08.02.2009 |
| Fyrsta blogg ársins 2009, árið sem ég ætla að njóta þess að lifa... |
|---|
| Búið að vera algjör snilld hingað til og ég hef sett mér ný markmið og takmörk á árinu. Það er ekkert smá gaman þegar maður getur tekið í stýrið og vitað nákvæmlega hvert maður er að stefna. Landsliðs törnin sem við vorum í um daginn var ekkert smá skemmtileg og ég er að komast í svakalega gott spilform og svo skemmir það heldur ekkert fyrir þegar að maður er að spila vel;) Samt er ég nú aðallega að skrifa hérna inn núna vegna þess að ég er búinn að vera lengi að pæla í hvaða góðverk ég gæti gert enda var það eitt af því sem ég setti mér fyrir árið. Það má eiginlega segja að hugmyndin hafi kveiknað um daginn þegar ég bauð í bíó. Var ekki búinn að fara í bíó í svona 5 ár og var eiginlega búinn að gleyma því hversu skemmtilegt það væri. Ég er búinn að ákveða það að bjóða „öllum“ langveikum börnum og aðstandendum á Íslandi í bíó með popp og Coke núna á næstunni í samvinnu við samtökin þeirra ;) Einnig ætla ég að setja landsliðsbúninginn minn frá því á Ólympíuleikunum á uppboð en ég hef fengið helling af fyrirspurnum, hvort ég vilji ekki selja hann. Ætla frekar að láta upphæðina renna til umhyggju sem er félag langveikra barna á Íslandi. Það eru ekki allir jafn heppnir í þessu lífi að geta látið drauma sína rætast og mér finnst það vera skilda mín að geta látið gott af mér leiða enda er hamingjan til þess að deila henni, ég vona allavega að ég geti glatt nokkur hjörtu eins og mamma segir alltaf ;) "You get the best out of others when you give the best of yourself.” Love og takk fyrir allar kveðjurnar og jákvæðu viðbrögðin af þættinum sem þið hafið gefið mér. ![]() |
18.01.2009 |
| Árið 2008, allt er gott sem endar vel… |
|---|
Ég sit hérna á Þorláksmessu í Lemgo og datt í hug að fara yfir árið 2008 sem var upp og niður hjá mér. Þetta er síðasta færslan mín á árinu og því ætla ég að gera hana almennilega og rifja upp það minnisstæðasta. Fyrirsögnin lýsir árinu vel ;)![]() Janúar: Mánuðurinn byrjaði vel og mig var farið að hlakka til að spila fyrir íslenska landsliðið sem var að fara að spila á EM í Noregi. Ég var ekki búinn að spila Handbolta í einhverja 4 mánuði fyrir mótið og var mjög slakur í því, náði mér aldrei almennilega á strik. Held að ég hafi skorað fleiri bíla heldur en mörk á þessu móti ;). Ég var svo pirraður eftir einhverja leiki í mótinu að ég dressaði mig upp, fór úr og þrumaði snjóboltum í bíla í Þrándheimi, alveg mjög þroskað ;) haha. Eftir þetta mót dró ég mikinn lærdóm sem kom mér á hærra level sem handboltamaður. ![]() Febrúar: Hætti ég og unnustan saman en við vorum búin að vera saman í 3 snilldar ár sem ég myndi ekki vilja skipta út fyrir neitt. Hluti af minni mótun sem einstaklingi og litla Lúna varð eftir hjá mér, þeim báðum líður vel. Það er jú fyrir öllu. Þarna ákvað ég að setja námið mitt, viðskiptafræðina í Bifröst á smá HOLD og eyða meiri tíma í handboltann. ![]() Mars: Fór ég að slá í gegn í boltanum og við unnum hvern leikinn á fætur öðrum og ég náði að skora eins og brjálaðingur og meðal annars 10 mörk + í 2 leikjum í röð sem mig var lengi búið að langa að ná. Ég kynntist skemmtilegu fólki og fór að setja sjálfan mig í fyrsta sæti og hugsaði bara jákvætt. ![]() Apríl-maí: Tímabilið í handboltanum var að klárast og ég fékk skemmtilegar heimsóknir frá fjölskyldu og vinum. Ég keypti mér drauma mótorhjólið mitt sem ég fékk sent frá USA og keyrði þetta hérna um allar sveitir eins og vindurinn. Svo eftir mótið flaug ég til Mallorka með Aroni og vorum við þar í 10 daga og í kjölfarið tók við skemmtilegasta sumar lífs míns. Sumarið: Ég lyfti eins og brjálaðingur og fór út að hlaupa klukkan 05.00 á nóttunni 3-4 í viku og átti það til að hlaupa golfvöllinn á Hvaleyrinni, alltaf tók ég Aron með. Ég hafði það einmitt í bakhöndinni að langa að bæta mig í golfinu og nota þetta til þess að læra á völlinn. Það varð að staðreynd og ég bætti mig helling í Golfinu. Ég varð líka drullugóður á gítarinn, allavega finnst mér það og gerði bara hluti sem ég mest gaman af ;) Ég hélt Partý á Rúbín sem er einn alflottasti staður á íslandi sem ég kallaði svo Partý ársins haha, í tilefni þess að lífið er yndislegt. Það komu 250 til 300 manns í frían bjór og skemmtun þar sem Ingó í Idolinu, Grasræturnar og Merzedes Club tróðu upp og svo var að sjálfsögðu Be Not sem stal senunni í lokin með mig sem söngvara. Svona á að halda partý people. ![]() Svo tók við undirbúningurinn fyrir Ólympíuleikana sem var hrikalega erfiður en þess virði. Þessi lífsreynsla er sérstök fyrir hvaða íþróttamann sem til er því þetta er toppurinn í lífi hvers íþróttamanns. Að við skulum hafa náð því að komast í úrslitaleik á ólympíuleikum og þetta var btw síðasti atburður leikanna í Peking og svei mér þá ef það hefur ekki verið hátt í miljarður að horfa á okkur. Mér leið svo fáranlega vel og fannst eins og ég hafi verið að ryðja nýjar leiðir sem að mig hefur jú alltaf langað að gera. ![]() Koma heim í móttökurnar var frábært og það verður held ég seint toppað, og að ég hafi fengið fálkaorðuna var heldur ekkert leiðinlegt. Mér fannst nákvæmlega þarna ég vera á “Top of the world” og þetta væri það sem ég hefði verið að stefna að. ![]() September – Desember: Búið að vera skemmtilegur tími hérna í Lemgo og mér hefur liðið alveg frábærlega þrátt fyrir að vera eitthvað að væla yfir því að vera ekki að spila nóg. Þegar ég hugsa til baka þá hefði verið best ef einhver hefði bara hringt á vælubílinn fyrir mig, haha. Ég verð líka bara að átta mig á því að ég er að spila í næst besta liðinu hérna í Þýsku bundesligunni sem er talin vera sterkasta deild í heimi og er í samkeppni við 2 þýska landsliðsmenn sem er bara gaman að taka þátt í. Það eru forréttindi að spila fyrir Lemgo og geta stundað atvinnumennskuna af kappi og geta unnið við það sem mér þykir skemmtilegast að gera. Landsliðið er búið að vera að koma saman í einhverjum verkefnum og erum við ekki búnir að tapa leik og það er heldur ekkert ætlunin. Þetta ár er líka búið að vera snilld hvað meiðsli varðar en ég er varla búinn að misstíga mig sem er stórt skref framá við fyrir mig en ég var búinn að vera mjög óheppinn undanfarin ár. ![]() Ég er búinn að þroskast alveg fáránlega mikið á þessu ári og mun aldrei hætta að vera ég sjálfur sama hvað hver segir. Ég er líka með góða tilfinningu fyrir því að árið 2009 verði árið mitt en það verður bara að koma í ljós, maður á að læra að vera jákvæður en það er svo vanmetið afl að ég vildi óska þess að fleiri myndu nýta sér það. Vil þakka ykkur gótt fólk sem hefur reglulega heimsótt hjá mér síðuna og haldið mér við efnið. ![]() Ég er strax farinn að setja mér markmið í boltanum og skólanum fyrir næsta ár og ætla að fara brosandi inní það. Ég sit núna 23 des. kl. 22 með 1 rauðvínsglas í vinstri og Lúnu í hægri og er að boðra Parmesan en það er frí á morgun. Ég er alltaf að læra það meira og meira að vera þakklátur fyrir það sem ég á, heilbrigða fjölskyldu og þessi tækifæri til að geta láta gott af mér leiða. Vil óska ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, munið að það sem maður hugsar og vilja að hendi sig verður að veruleika. ![]() |
23.12.2008 |
| Rokk og ról svona rétt fyrir Jól ;)… |
|---|
| Núna er kominn 18.des, sælll hvað þetta líður allt saman hratt. Ég er að fara að koma heim eftir 10 daga og ykkur að segja held ég að tilhlökkunin að fara til Íslands hafi aldrei verið meiri en nákvæmlega núna. Handboltinn gengur frábærlega í augnablikinu, við vinnum hvern leikinn á fætur öðrum og sitjum í 2 sætinu og erum að reyna að ná Kiel. Það eru 2 leikir eftir á þessu ári og eru þeir báðir á útivelli, Gummersbach og Melsungen. Það verður nú ekki mikil pása sem við fáum til þess að slaka á en 3.jan verður farið út á sterkt mót í Danmörku og Svíþjóð og síðan komið aftur til Íslands og leiknir 2 leikir helgina 15.til 17.jan. Eftir það þurfum við Lemgo menn að fljúga beint til Króatíu en Lemgo verður þar í undirbúningi fyrir seinni hluta deildarinnar. Þetta leggst annars svakalega vel í mig allt og ég er extra jákvæður á þetta. Búinn að vera að velta miklu fyrir mér að undanförnu og það nýjasta er að ég er að pæla í að fara í eitthvað nám hérna úti og prófa eitthvað nýtt. Reyna að nýta þennan tíma sem maður er með hérna, reyndar er ég búinn að vera að rækta líkamann undanfarið. Kallinn er búinn að skera af sér 3,5 kg góðan daginn, þurfum við að ræða það eitthvað ;) Bestu þakkir á Björn Þór Sigurbjörnsson hjá www.body.is hann er að standa sig. Þeir sem hafa líka áhuga á því að vita hvernig Lúna hefur það, þá er hún ferskari en nokkru sinni. Ég er að fara að kaupa snjóþotu fyrir hana til þess að draga hana hérna í götunni. Ég myndi samt þora að veðja að ég væri með lötustu hundaeigendum að fara út að labba, ég sest uppá “vezpuna” og læt hana hlaupa á eftir mér. Hún er hætt að nenna því sjálf þannig að ég keyri bara með hana í töskunni einn hring í hverfinu;) haha Viggi ekki hlægja… Þetta var svona það helsta sem er að frétta héðan úr litla þorpinu fyrir miðju þýskalands… Með bestu Lúnu-kveðjum, L&I. Gangi ykkur vel. ![]() |
18.12.2008 |
| Fínt að vera heima veikur ;) |
|---|
| Það var leikur áðan á móti Minden sem við unnum 24-21 og var þetta síðasti heimaleikurinn okkar á árinu en við eigum eftir að spila 2 leiki. Móti Gummersbach næstu helgi í Köln og svo Melsungen 27.des. Ég treysti mér ekki til þess að spila þennan leik en það er einhver skíta flensa að ganga hérna og með tímanum lærir maður það að fara ekki hálfur maður í leik. Ætla ekki að hafa þetta lengra í dag en fékk þennan texta sendan fyrir stuttu síðan, datt í hug að einhver hefði gott af því að lesa þetta ;) bestu kveðjur frá Lemgo, L&I. Hafðu ávallt hugfast að vandamál dagsins í dag komu ekki fram af sjálfum sér. Þau eru afsprengi valkosta og athafna gærdagsins. Þess vegna ættir þú að fullvissa þig um að sérhvern dag sáir þú rétta fræinu fyrir morgundaginn. Fremur en að óska þess að gærdagurinn komi aftur, vertu þá ánægður með þann dag sem þú lifir. Þú ert hérna núna, þetta er því stundin þín. Vænstu mikils af lífinu og vertu vongóður um morgundaginn. Óskaðu aldrei eftir liðnum dögum því að þeir munu aldrei koma aftur. Þú átt ekki að gráta vegna vandamála dagsins í dag ; þau eru tækifæri þitt til þess að koma á breytingum í heiminum þínum. Byrjaðu núna að búa þig undir betri morgundag með því að nota öll þau nauðsynlegu tæki sem finna má í lífinu til verksins. |
13.12.2008 |
| Dementi |
|---|
| Um den Gerüchten um meine Person ein Ende zusetzen möchte ich hiermit offiziell Bekannt geben, dass ich nicht nach Spanien wechseln werde, sondern meinen Vertrag beim TBV Lemgo bis 2010 erfüllen möchte. Alles andere ist keine Option für mich, zumal ich von dem Interesse der spanischen Clubs an meiner Person überhaupt nichts mitbekommen habe – das sind reine Gerüchte. Ich arbeite hart an mir und freue mich auf weitere spannende und Interessante Zeiten mit dem TBV Lemgo. Logi Geirsson |
06.12.2008 |
| Allur pakkinn eins og hann leggur sig ;) |
|---|
| Það hefur væntanlega ekki farið framhjá mörgum þessi umræða um það hvað sé að frétta úr Lemgo og hvort ég sé að fara til Spánar og hvað sé að gerast. Ætla að klára þetta hérna frá A-Ö og hætta að velta því fyrir mér hvað gerist á morgun og lifa aðeins 1 dag í einu. Maður er alltaf að læra í þessu lífi og ég er einmitt að ganga í gegnum þannig ferli núna;) Þetta er í síðasta skipti sem ég tala um þetta opinberlega. Orðinn þreyttur á spurningum hvert ég sé að fara, e-mailum og fleira. Þetta byrjaði með því að ég varð ósáttur með hlutverk mitt hérna í liðinu eftir góða byrjun og var orðinn pirraður í hvað væri að stefna hjá liðinu. Ég fer á fund hjá Lemgo og segi að ég sé ekki sáttur með þetta og þeir segja að þetta hafi ekki verið viljandi gert heldur hafi leikmannahópurinn í bland við meiðsli þróast svona. Engu að síður breyttist ekkert og ég bað þá um option um að geta farið frá félaginu ef ég myndi finna eitthvað spennandi!!! Þeim kom þetta mjög á óvart og vildu að ég myndi uppfylla samninginn minn til ársins 2010 nánar tiltekið júli. Eftir þetta fór ég að skoða með umboðsmenn hvaða möguleika ég hefði ef þetta myndi halda áfram og talaði við 3 slíka. Allir sögðu að ég væri í góðum málum og ég tjáði þeim að ég hefði áhuga á að prófa að spila á Spáni. 3 vikum síðar frétti ég af áhuga hjá Barca gegnum umba sem var þar og að Portland væri að losa sig við eina skyttu og þeir væru að leita og ég væri spennandi kostur eftir frammistöðu mína í undanúrslitum á Ólympíuleikunum á móti einmitt Spáni. Ég er beðinn um að fá að vita hversu mikið ég kosta ef Lemgo myndi vilja losa mig. Ég fer á fund hjá “managernum” og þeir segjast ekki vilja losa mig og hafi aldrei velt því fyrir sér, ég sé hluti af þeirra framtíðarplani og spila í Championsleague á næsta ári. Ég verð þrátt fyrir það heitur fyrir þessum möguleikum á Spáni og var satt best að segja tilbúinn að fórna þessum pakka hérna í Lemgo fyrir hann. ![]() Betur sjá Augu en Auga: Áfram heldur þetta og svo fer ég að komast að því að bæði þessi lið séu að styrkja sig í þessar stöður og alltaf mér haldið heitum. Síðast í dag talaði ég við gæja sem veit allt sem er að gerast á markaðnum hann segir mér að þjálfarinn sé ekkert inní þessu en þetta er búið að vera viðræður við managerinn. Minnir mig á þegar Einar Hólmgeirs fór til Flensburgar og þjálfarinn var ekkert inní þessu og hafði planað allt annað!!! Ég er farinn að sjá það með hjálp góðra manna að þetta er ekkert klárt fyrr en maður fær eitthvað í hendurnar, því það er talað mikið í þessum heimi. Allar þessar vangaveltur eru ekki fréttir!!! Heldur “áhugi” Ég er búinn að taka þá afstöðu að sjá einfaldlega hvað gerist og tala minna og gera meira og einbeita mér að því að spila handbolta hér í Lemgo þar sem frábær samningur er í gildi til 06. 2010. Ætla að láta aðra um að það sem er að gerast fyrir utan völlinn ;) Þegar öllu er á botnin hvolft þá þurfa endalaust margir hlutir að ganga upp og ég er ekki að sjá það gerast né að áhuginn sé það mikill að þetta sé að gerast. Þannig að bottom line-ið er að ég eins og staðan er í dag klára ég minn saming við Lemgo og einbeiti mér að því. Vildi bara koma þessu frá mér eins og þetta er búið að vera að þróast svo það sé ekki alltaf verið að taka 1 og 1 hlut úr þessu sem er ekki í samhengi. Næstu fréttir varðandi þessi mál verða þegar ég verð búinn að skrifa undir, ekki fyrr. Ég er farinn að einbeita mér að því að spila handbolta, það sem ég geri best. Bestu kveðjur frá Germany, L&I… Ps. “Gæti verið” að ég sé að fara að byrja inná á móti Flensburg, haha. ![]() |
04.12.2008 |
| Það Fuckar enginn í Íslandi ;) |
|---|
| Nú er maður kominn aftur til Lemgo eftir dvölina með landsliðinu. Þið getið ekki ímyndað ykkur hversu gott það er að mæta á æfingu á morgun og labba inní klefann eftir þessa leiki. Glöggir hafa kannski tekið eftir því að það voru 6 leikmenn þýska landsliðsins sem eru að spila með okkur Vigni í Lemgo og þar á meðal 2 sem eru í stöðusamkeppni við mig. Mér leið í fyrri leiknum eins og ég hefði verið að mæta á æfingu!!! Þessi vika var algjör snilld og gott að geta minnt aðeins á sig hérna í Germany, ég var einmitt búinn að segja þjálfaranum okkar að það væri ekki séns að við myndum tapa fyrir Þjóðverjum. Hann fór bara að hlægja og sagði að samanlagður markamunur yrði ca. -20 mörk, Æjjj Æ, hann þarf aðeins að éta það ofaní sig hehe. Ég held líka að ég hafi gert svona 5 veðmál fyrir þessa leiki og ég vann 3 þeirra, þannig að ég verð í plús. Maður verður alltaf að hafa smá keppni í þessu. En svona Bottom Line er að ég er ekkert smá sáttur við þetta og vona líka að fólk sjái hversu vel við kláruðum þetta. Þetta lið í bland við þá stráka sem vantar er eitruð blanda og gæti orðið GULL-Liðið hehe, Gummi ég veit það… halda væntingunum niðri. ;) Núna tekur daglega lífið við í Lemgo og við erum að fara að spila á móti Verl í æfingaleik á morgun skilst mér og svo Bjerringbro Silkeborg í EHF-CUP. Annars er leikur við Flensburg um helgina. Þetta er toppslagur og það er kominn tími til þess að við tökum einn slíkan en við unnum einmitt Nordhorn í síðasta leik Við erum núna í 2. sætinu í deildinni og ef allt fer eins og það á að fara gætum við spilað í Champions-League á næsta ári en ég er farinn að sakna þess að spila þar. Þannig að desember er mjög busy mánuður og það verður spilað þétt Maður dagsins: Guðjón Valur fyrir að vera einn besti alhliða leikmaður í heimi… Lag dagsins: Cannonball með Damien Rice Spakmæli dagsins: My little dog - a heartbeat at my feet. haha ![]() |
01.12.2008 |
| Maður er ekki lengi að snúa sér aftur við… |
|---|
Við erum að fara að spila á morgun hérna í Lemgo á móti Riga í EHF, það verður nú að segjast eins og er að það ríkir engin sérstök eftirvænting eftir þessum leik enda frekar slakt lið þar á ferðinni. Skilst að það sé aðeins búið að selja 2500 miða þannig að það er spurning hvort að maður sé eitthvað að taka spariskotin;) en það verður að koma í ljós.![]() Ég er annars kominn í góðann fíling hérna enda er einhverra hluta vegna komin léttur jólastemmari í þorpið og það er orðið frekar kalt. Pabbi og Binni bróðir eru að koma til gamla í heimsókn núna í vikunni og það er alltaf gaman að fá gott fólk í heimsókn. ![]() Ég var að setja mér nýtt markmið sem er að verða svo FIT að enginn hefði trúað því. Ég fann hérna eina mynd af einhverjum gæja sem hefur haldið sér þokkalega og ég ætla að vera í svipuðum hlutföllum og þessi í janúar ;) ![]() Maður dagsins: Ég sjálfur fyrir að vera búinn að setja mér ný massa góð markmið ;) Pæling dagsins: Sá frétt um að Davíð Oddsson og Árni Matt “Fjármálaráðherra” hefðu boðað til fundar og setja stefnuna á að láta faglærðara fólk um mikilvægustu stöðurnar í landinu. Árni Matt er nefnilega “Dýralæknir”??? Er ég eitthvað að misskilja þetta! |
18.11.2008 |
| Lightning Crashes… |
|---|
| Það er eitthvað við þetta lag sem gerir það að verkum að ég fer að hugsa um gamla góða tíma. Það er einmitt fyrsta lagið sem ég hlustaði á þegar ég fékk bílprófið og síðan að ég heyrði það aftur fyrir um viku síðan hef ég verið að mastera það!!! Þegar ég spila þetta hérna heima í stofunni í græjunum sem ég er með hérna fæ ég gæsahúð á að hlusta á sjálfan mig ;)!!! Haldiði að það sé ekki góðs viti? Lagið er með Live en að öðru núna. ![]() Við vorum að spila á móti Riga frá Lettlandi og unnum við þann leik 42-30 sem voru fín úrslit. Ég spilaði slatta og skoraði 6 mörk, alltaf gaman að spila í Evrópukeppninni en næsti leikur er á móti þeim hérna á miðvikudaginn næsta. Ég get ekki klárað þetta umræðuefni nema að minnast á það hvað ég var að meta þessa borg. Maður heldur alltaf að maður sé að mæta í eitthvað “slömm” en það sem ég sá var hrikalega töff. Hótelið var snilld, 27 hæða kvikindi og efst uppi var Sauna, líkamsrækt, og kaffihús með útsýn yfir alla borgina. ![]() Spakmæli dagins: “Any problem you can't solve with a good guitar, is either, unsolvable or isn't a problem.” Hrós dagins: Fá FHingar fyrir það sem þeir eru að gera í kringum félagið og nú er ég aðallega að tala um handboltastjórnina sem er að vinna einhverja flottustu umgjörð sem hefur verið í kringum handboltann á Íslandi. Sem dæmi: litlar myndir af leikmönnum, flotta og faglega umfjöllun eftir hvern leik, vel auglýstir leikir, Vef-TV og margt fleira og ekki má gleyma að nefna Mugg í þessu samhengi en ég vildi bara óska ykkur til hamingju með þetta. Maður dagsins: Michael Kraus sem spilar með mér hérna í Lemgo. |
16.11.2008 |
| Stundum er minna meira ;) |
|---|
Ég ætla að láta þessa mynd nægja í dag, hver og einn getur túlkað það fyrir sig.![]() En svona til þess að losa aðeins um þetta drama ;) þá eru Auddi Blö og félagar búnir að vera að skjóta heimildarmynd hérna síðan á mánudag. Þetta er búið að vera mjög þétt prógram og voru þeir bara að detta útúr húsi og mér leið eins og ég hafi verið að hætta með kærustunni!!! Engar camerur, ekkert vesen, ekki að falla á tíma... Ég var að pæla í að hringja í þá og biðja þá að koma aftur hehe. Núna erum við að fara að ferðast til Lettlands þar sem við spilum í EHF-CUP á móti Riga á laugardaginn. Það er mikilvægt að taka þessa leiki og vinna þá uppá framhaldið, sérstaklega í ljósi þess að við eigum að geta unnið þennan titil og það væri nú ekki leiðinlegt. Lúna verður að fara í pössun hérna í húsinu á móti. Þar búa 2 litlir vinir hennar, hérna er ein mynd af þeim... ![]() Gangi ykkur vel, kv Geirsson. |
13.11.2008 |
![]() FH-ingar ef þið gerðuð einhvern mann stoltann í gær þá er það þessi ;) Hallsteinn Hinriks, til hamingju með þetta guys. Bestu kveðjur á ykkur alla og haldið áfram að steikja þetta. Ég er búinn að finna hungrið aftur og er að fara að taka mig á, BIG-TIME. Nokkrir hlutir sem ég er að taka í gegn eru: * Matarræðið * Æfa Meira * Sofa Meira * Vera Jákvæður * Glaður Langaði bara að deila þessu með ykkur því vonandi get ég rifið einhvern með mér á toppinn. Bestu FH-kveðjur frá Lemgo, L&I. ![]() Maður dagsins: FH liðið. Lag dagsins: Ain’t talking bout Love Ljóð dagsins: Fékk ég sent og verð að deila með ykkur… Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður, vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður. Ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að. Ég ákveð því að velja að vandamálin fá vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti, ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti. Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur, faðma þennan morgun og allar hans rætur, hita mér gott kaffi, af kærleik þess ég nýt. Kexið smyr með osti, í blöðin svo ég lít. ![]() Að endingu ég segi við þig sem þetta lest: Þetta er góður dagur, hafðu það sem best. Ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni. Faðmlag þér ég sendi, og kveð þig nú að sinni. höf. Unnur Sólrún |
06.11.2008 |
| Don't tell me that the sky is the limit when there are footsteps on the moon… |
|---|
| Auðvita gat ég reitt mig á ykkur lesendur að senda mér góð spakmæli og þetta hérna að ofan er fyrir allan peninginn. Rándýrt quote, ég bara því miður man ekki hver sendi mér það en það skiptir ekki öllu, thx. Ætlaði aðeins að ræða næsta leik hjá okkur í deildinni eins og ég var búinn að lofa ykkur í byrjun vikunnar. Við erum að spila á móti Kiel á sunnudaginn á þeirra heimavelli og ef við vinnum þá komumst við í 1. sæti deildarinnar. Það væri hrikalega mikilvægt og má segja að við séum á góðri leið með markmiðin sem við settum okkur í upphafi móts. Það eru þessir leikir sem eru skemmtilegastir, 10.000 brjálaðir áhorfendur og erfiðasti útivöllur í heimi. Það segir samt ekkert til um úrslitin eins og þessi maður sýndi í CL í sumar. ![]() Óska honum alls hins besta þarna í Danmörku finnst þetta vera algjört snilldar move hjá kallinum. Ég hefði gert það sama í hans sporum. En ég verð að drífa mig á æfingu, það er ekkert ókeypis að mæta of seint. Bestu kveðjur frá Germany, L&I. Maður dagsins: Vignir Svavarsson, aka “Vic” Leikur dagsins: FH-Haukar |
05.11.2008 |
| Stundum þarf að ná botninum til að geta spyrnt sér upp aftur… |
|---|
Nú er ég loksins kominn aftur til Lemgo en þetta ferðalag frá Noregi ætlaði engan enda að taka. Flugvélin bilaði 2 sinnum í Köben sem varð til þess að ég, Vignir og Ingimundur urðum eftir í Höfuðborginni og hittum fyrir nokkra snjalla Íslendinga. Þarna var elítan úr handboltafélaginu Guðrúnu mættur og úr varð líka þessi fíni sunnudagur. Við Lemgo menn fengum kærkomið frí í dag enda eðlilegt eftir æfingatörnina með landsliðinu. ![]() Svo voru væntanlega flestir að fylgjast með þessum leik á móti Norsurunum, gott að ná jafntefli þarna úr því sem komið var. Annars hef ég voða líðið að segja um þennan leik nema það að eins gott að Stockton hafi ekki spilað sinn feril á Íslandi á sínum tíma. Næstu landsleikir eru á móti Þjóðverjum hérna í lok mánaðarins í Oberhausen og Koblenz sem er snilld því það er alltaf gaman að mæta þeim. ![]() Næsti leikur hjá okkur í deildinni er svo um næstu helgi á móti Kiel en þar er um sannkallaðann TOPPLEIK að ræða en liðin verma 2 efstu sætin í deildinni að loknum 10 umferðum. Ræði þann leik betur hér í vikunni en nú er ég að fara að sýna Alla að ég kunni kerfin ;) ![]() Annars er það að frétta að ég er byrjaður að læra spænsku á fullu og svei mér þá ef þetta er ekki bara mitt tungumál ;) Líf og fjör frá Lemgo, L&I_13. ![]() Lag dagsins: Waterdrops með L & L Ljóð dagsins: Jón Örn klikkar ekki grekar en fyrri daginn;) Þó seint í ganginn hrykki, þeir fjölina sína fundu. Og L&I með 13 stykki, svo var jafnað á síðustu stundu:) Á heimavelli sterkir stundum, og njóta sín í salnum. En teknir verða á endurfundum, þar sem liggja þeir í valnum. Maður dagsins: Þórir Ólafsson Spakmæli dagsins: Óska eftir því að fá send hjá ykkur einhver góð ;) Nú sjáum við hvað ég get treyst á ykkur. Love |
04.11.2008 |
| 04.11.2008 |
| Hélt að þið væruð fagmenn... |
|---|
Unnum stórt í gær í höllinni á móti Belgíu eða 19 marka sigur og var leikurinn í heild sinni jafn skemmtilegur og að horfa á “málningu þorna”. Annars var fín stemmning í höllinni og alltaf gaman að fá fulla höll enda er það bara krafa þrátt fyrir að þetta lið sé það lélegasta sem ég hef spilað við. Ég er samt ánægður með að hafa tekið þá með þetta miklum mun og enginn hafi meiðst. Það er varla hægt að dæma frammistöðu leikmanna þó að Ívar hjá mbl hafa gert þeim góð skil ;) Veistu hver John Stockton er??? Nei hélt ekki.![]() Svo erum við að fara út á morgun og það koma 2 leikmenn inní hópinn Rúnar Kára og Sturla Ásgeirs. Þetta á eflaust eftir að verða dúndur leikur á móti Noregi en þeir eru gríðarlega sterkir fyrir á heimavelli rétt eins og þeir sýndu á EM í fyrra. ![]() En allavega þá er ég farinn á æfingu að reyna að gera eitthvað af viti ;) Með landsliðs-kveðjum, Logi Geirsson. Maður dagsins: Inga Sjúkranuddari, algjör snillingur. Lag dagsins: The Hope með Sign. Heimasíða dagsins: www.facebook.com Spakmæli dagsins: Við erum öll í sama báti - þó við stýrum ekki öll. |
30.10.2008 |
| All are lunatics, but he who can analyze his delusion is called a philosopher. |
|---|
| Það er landsleikur á morgun eins og flestir vita en Belgarnir eru að koma í heimsókn og væntum við þess að það verði full höll enda er frítt á leikinn. Um að gera að kíkja á okkur og létta aðeins á sér yfir góðum handbolta. Leikurinn hefst kl. 20.15 og verður reyndar líka sýndur í beinni á Rúv. Sjáumst þar kveðja Logi Geirsson. ![]() p.s You ask Óla Stef a question and after he has talked for a bit, you don't understand your question any more. And thats what I like ;) bara að sýna ykkur að ég sé ekki búinn að gleyma enskunni. |
28.10.2008 |
| Óli þú ert snillingur, hehe. |
|---|
![]() |
27.10.2008 |
| Sökum eins emails sem ég fékk hef ég ákveðið að birta aftur það sem ég hafði tekið út!!! |
|---|
| "Að segja það sem manni finnst og vera sá sem manni langar til að vera"… Ég er mikið búinn að vera að velta fyrir mér lífinu að undanförnu, hvað ég sé að gera hvernig mér líður og hvort það sé kominn tími á breytingar. Yfirleitt eru breytingar af hinu góða en að sjálfsögðu er það ekki alltaf þannig. ![]() Ég var með Lúnu í göngutúr hérna úti áðan og klukkan var 02.00 um nótt og ekki 1 ljós í götunni. Ekkert nema stjörnur og þeir sem hafa verið í heimsókn hjá mér geta vitnað í það að þegar það er stjörnubjart hérna þá er ekkert flottara en að vera vitni af þessu. Ég er orðinn það sjóaður að ég get lesið í næstum 10 stjörnumerki og mér finnst þetta alltaf jafn merkilegt. Ég er einn af þeim sá get lifað með sjálfum mér og liðið vel, það er ekkert sjálfsagt. Ég er búinn að búa hérna í 4 frábær ár sem hafa þroskað mig sem einstakling og gert mig að þeim manni sem ég er í dag, allavega átt hlut í því. Ég veit ekki alveg hvert ég er að fara með þetta en langar einfaldlega að skrifa það sem ég er að hugsa. Ég er svo ánægður með það sem ég er að gera og mér líður vel, ég er búinn að koma mér upp ákveðinni rútínu til þess að skrifa inn færslunar mínar. Lífið mitt eins og ég kalla það er nákvæmlega eins og ég hafði óskað mér, mig langar að gefa af mér. Stundum held ég að ég sé heppnasti maður í heimi en það er eflaust einhver annar sem hugsar það sama, allavega vona ég það ;) Mér finnst rosalega mikil forréttindi að vera Íslendingur og ég vona líka svo sannarlega að ykkur finnist það líka. Þetta litla land, ég kannski met það svona mikils því ég fæ ekki nóg af því og bý erlendis og finnst alltaf eins og ég sé að missa af einhverju. Þessi eyja, fólkið, lífið, loftslagið og allt sem fer þarna fram er ákveðin menning sem einungis fyrirfinnst þarna heima. Ég er að prófa það að skrifa í fyrsta skipti inná síðuna án þess að líta yfir það og sortera út það sem mér finnst eiga heima þarna og ekki. Ég er breyttur maður, ég er ekki hræddur við að horfast í augu við sjálfan mig og taka mér eins og ég er. Segja við fjölskylduna mína hversu vænt mér þykir um þau og reyna að vera fyrirmynd fyrir þá sem hafa áhuga á því að taka mark á því sem ég hef fram að færa. Við lifum held ég alltof mikið í ótta við að vera við sjálf, ég allavega er búinn að taka þá stefnu eins og froskurinn í froskasögunni sem ég setti hérna á síðuna ekki alls fyrir löngu að hlusta ekki á neinn neikvæðann. Vinsemd laðar að sér vinsemd og líkur sækir líkan heim og þessvegna ætla ég að einbeita mér að því að gefa af mér og vera óhræddur við það að tækla þessi X mörg ár sem ég fæ lifað á þessari jörð. ![]() Hver er sinnar gæfu smiður… Ég neita því ekki að hafa hugsað hvernig maður skrifar sögu!!! “History” ég er með ákveðnar kenningar um það. Ég er einn af þeim sem finnst gaman að setja fram kenningar og mitt nýjasta er það að ég ætla ekki að fylgja öllum formúlum sem mér eru kenndar. Hver og einn er með sýna sjálfstæðu hugsun sem samt er notuð mismikið. Held að maður eigi að opna augun og sjá það að allir í þessum heimi eru jafnir. Afhverju alltaf að vera fylgjandi, fólk skiptist í fylgjendur og leiðtoga munurinn er sá að mínu mati að Leiðtogar hugsa og ræða um lausnirnar, fylgjendur hugsa og tala um vandamálin. Hættur í bili… Segið ykkar skoðun Verið þið sjálf Þetta er mail sem ég fékk frá stelpu sem heitir Steffý, ég var það ánægður með þetta að ég ætla að birta þetta hérna á síðunni. ![]() Kæri Logi: Ég er sammála þér með formúlurnar. Okkur er alltaf kennt að flokka allt í kerfi, setja upp áætlanir og flokka jafnvel fólk í eins konar kerfi. Þetta er strax byrjað að kenna í leikskóla. Fólk er t.d. flokkað eftir einkunnum og árangri í skóla en afhverju? Þegar við höfum sigrað lífshlaupið þá fáum við enga einkunn heldur aðeins heiðurinn fyrir að hafa sigrað svo merkilegan áfanga. Það skiptir ekki máli hversu lengi við vorum heldur hvernig við sigruðum. Heiðurinn er eftir allt saman stærsta gjöfin sem okkur er gefin. Þegar öllu er svo á botninn hvolft kemst maður að því að lífið er ekkert kerfi og sumir fara í panik þegar þeir rekast á undantekningarnar. En samt er það svo frábært að oft eru það þessar undantekningar sem gefa lífinu svo mikið gildi. Fólk er oft að bíða með að láta drauma sína rætast. Það er alltaf að bíða eftir rétta tímanum. En afhverju að bíða? Það er aldrei rétti tíminn né rétti staðurinn. Allir hugsa einhvern tímann: Afhverju nýtti ég ekki tímann minn betur? Afhverju gaf ég mér ekki tíma til að láta drauma mína rætast? Ef ég hefði... o.s.frv. Við vitum ekki hversu mikinn tíma við höfum.Tíminn hleypur svo hratt, vafalaust Ólympíumeistari í öllum flokkum. Þess vegna á maður ekki að hugsa útfrá tímafjölda heldur leyfa æðri huganum að stjórna lífinu og sættast við sjálfan sig. Að lifa í sátt við sjálfan sig gefur manni svo óendanlega mikla orku til að finna leiðir til að elska lífið og allt það sem það hefur upp á að bjóða. Mín kenning er sú að hringrás lífsins hefur ekkert breyst frá sköpun jarðar. Hún er komin til að vera um aldir alda og að eilífu. Við getum ekki breytt henni en við getum haft áhrif á hana og stjórnum því sjálf hvaða áhrif hún hefur á okkur. Með snjó-kveðjum frá ÍS-landi, Steffý. |
24.10.2008 |
| Ísland we are on our way... |
|---|
![]() Þetta var svaka fín færsla í gær!!! hehe. Stundum verður maður bara að vera innilegur það er bara hluti af því að vera eins og maður vill vera. Annars erum við Viggi á leiðinni heim á sunnudaginn og ég var einmitt að fá mail frá einum félaga mínum sem á skemmtistað niðri í 101 hvort að við vildum ekki taka að okkur að trúbadorast á fimmtudeginum í næstu viku. Við eigum einmitt leik við Belgíu á miðvikudeginum í höllinnni og fljúgum svo út til Noregs á föstudagsmorgninum þannig að þetta gæti mögulega orðið að veruleika. Og b.t.w ef það verður mun ég koma með hrikalega skemmtilegan fídus inní þá skemmtun sem þið á klakanum yrðuð mjög sátt með en þetta verður tíminn að leiða í ljós ;) ![]() Með bestu Íslands-kveðjum, L&I_23. ![]() |
23.10.2008 |
| We must use time as a tool, not as a couch… |
|---|
| Það er nákvæmlega það sem ég er ekki búinn að gera en þetta er svona hálfgerð samvisku færsla. Ég þekki það sjálfur þegar ég fer inná síður hjá einhverjum sem mér finnst gaman að lesa og það kemur ekkert inn dag eftir dag þá verður maður pirraður. Það er ekki það sem ég vildi gera heldur er ég búinn að vera að stússast í öðrum hlutum. Þess í stað býð ég uppá dýrari týpuna í dag. Byrjum á að tækla handboltann. Við vorum að tapa okkar fyrsta leik um helgina í deildinni á móti Hamburg. Algjör skandall hvað við vorum slakir og ekkert æðislegt heldur að þetta hafi verið sjónvarpsleikur heima. Frétti að Gaupi hefði viljað fá mig í skyttuna, hann verður valinn maður dagsins í dag vegna þess að hann meira um handbolta en flestir aðrir á þessum hnetti. Við erum núna í 3. sæti og eigum næsta leik á móti Fuchse Berlin næsta laugardag og svo fljúgum við Vignir heim á sunnudaginn og hittum þar fyrir landsliðið. Veit samt ekki til þess að það sé búið að velja í liðið? Heyrðu já, svo drógumst við á móti Riga frá Lettlandi í EHF-CUP. Hefði verið gaman að fljúga til Íslands og fá Fram, en kannski gerist það í næstu umferð því Gummersbach getur ekkert ;) Lífið heldur áfram sínum vanagang hérna í Lemgo, það eru ca 15 gráður og veturinn er að skríða inn. Það gefur okkur í hljómsveitinni einfaldlega meiri tíma til að æfa og möguleika á því að slá í gegn næsta sumar þegar við ætlum að túra um landið. Við erum nú þegar búnir að fá til liðs við okkur þjóðþekkta söngkonu en það er engin ástæða til þess að nefna nafn hennar hér að svo stöddu. Áhugasamir sem vilja bóka Loga & Lundana geta haft samband við umboðsmanninn okkar og rótara, Aron Pálma í síma 8643480. Ef þið gætuð bent okkur á hressann rútubílstjóra sem fengi þann heiður að taka þátt í þessu með okkur þá endilega sendið mail á aronpalm@hotmail.com Það hafa komið óvenjulega margar heimsóknir á síðuna að undanförnu og leiði ég líkur að því að það sé vegna þess sem kom uppá í lok leiks þarna á móti Grossó. Ég má því miður ekkert tjá mig meira um þetta atvik því þetta er víst að fara fyrir einhverjar nefndir og dómstóla. Ætla samt að segja að þetta sé með því hlægjilegra sem ég hef upplifað á ferlinum. Það var einn maður í Grossó sem hafði hrikalega gaman af þessu og það var meistari Einar Hólmgeirs sem að hélt þessari rækju burtu frá mér með annarri, þið vitið um hvaða rækju ég er að tala. Má ekki nefna nei nöfn því heimasíðan mín var hluti af því sem þeir ætluðu að taka til skoðunar hahahahahahaha. Ég er bara ekki að trúa því að það sé ekkert betra að gera hérna hjá þessum gæjum en jæja maður verður að spila eftir reglunum. Ég get nú samt ekki klára þessa færslu nema minnast á Iphoneinn minn. Þetta er einhver flottasta og snilldarlegasta uppgötvun allra tíma. Þetta lifir næstum fyrir mann, ég ætla að nefna nokkra nytsamlega hluti: Það passar endalaust af tónlist inná þetta. Þetta er sími. Þetta er Internet. Þetta er email. Þetta er með klassa myndavél. Þetta er einn stór USB. Þetta er með Navi . Þetta er með gítarstilli. Þetta finnur hraðamyndavélarnir í umferðinni. Þetta er með youtube. Þetta sýnir mér veðrið út alla vikuna. Það er einfaldlega hægt að gera allt með þessu tæki. Menn dagsins: Guðjón Guðmunds, aka Gaupi, & Einar Hólmgeirs hann er minn maður. Spakmæli dagsins: “Ekki fara eftir formúlum” L&I Maður dagsins: Florian Kehrmann ætla að segja ykkur aðeins frá honum í næstu færslum. Lag dagsins: Shoop - Salt N Pepa Pæling dagsins: Sjáiði hvernig til dæmis fólkið í Afríku hagar sér sem hefur aldrei verið kennt hvernig það á að haga sér, ekkert sjónvarp, engin blöð, engin Biblía sem segir þeim hvað sé rétt og rangt. Við hlægjum að því að einn gæji eigi 20 konur og 100 börn??? Hver segir að það sé verra en að eiga eina konu og eitt barn? Nei bara svona að pæla!!! Heimasíða dagsins: karenogbjoggi.bloggar.is |
22.10.2008 |
| Ísland í dag! og feit færsla á morgun ;)... |
|---|
| An American said: *'Wehave George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Johnny Cash.'* *And an Icelander replied: *'Wehave Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash'. |
08.10.2008 |
| Maðurinn, ólíkt dýrunum, hefur aldrei áttað sig á því að eini tilgangur lífsins er að njóta þess. |
|---|
| Jæja dömur mínar og herrar, hvar á ég að byrja í dag. Já handboltinn er endalaust jákvæðar hugsanir við vorum að spila við Magdeburg og unnum þá sannfærandi 27-23 og leiðum deildina með 13 stig af 14 mögulegum. Ég spilaði seinni hálfleikinn í skyttunni og skoraði bara eitt, var mjög slakur en spilaði vel fyrir liðið. “It’s all about health and winning folks”. Svo er Gummi búinn að framlengja í 4 ár kannski fyrsta skipti sem það er komið öryggi yfir landsliðsþjálfara stöðuna. Þá getur maður byrjað að sleikja hann upp aftur. Gummi þú mátt bara eiga 3 evrurnar og 75 centin sem ég lánaði þér í Frankfurt 3. ágúst kl. 12.40, þó að þetta sé orðinn 1000kr ;) En að öðru... ![]() Ég, Vignir og Matti Ingimars fórum að sjá Burgdorf spila á móti Nettelsted og tapa með einhverjum 9 mörkum. Svo eftir leikinn hittumst við öll hjá Gylfa Gylfa í smá teiti þar sem við spiluðum póker og höfðum gaman, öll nema einn. Við skulum ekkert ræða það hver stóð uppi sem sigurvegari ;) jíha. Vildi samt bara þakka ykkur öllum fyrir frábært kvöld, við Lemgo guys tökum að okkur næsta hitting. ![]() Ég ætla að fara með Lúnsu á einhverja hátíð sem er hérna í þorpinu sem ég bý í. Okkur hefur aldrei liðið betur ef einhver er að hafa áhyggjur af því, nákvæmlega hélt ekki. En annars er svo feitt gaman að sjá hvað eru margir að skoða síðuna undanfarið, má segja að það haldi mér við efnið. ![]() Spakmæli dagsins: Þetta er snýst um dónutsinn, ekki gatið. Afmælisbarn dagsins: Frank Von Behren og sonur hans ;) Maður dagsins: Hlín “First impression, second thoughts” hahaha Lag dagsins: What Is Love - Haddaway Pæling dagsins: Ef Columbus hefði snúið við hefði enginn ásakað hann. En auðvita hefði heldur enginn munað eftir honum ;) Heimasíða dagsins: www.angela-grewe.de |
05.10.2008 |
| Virðing fyrir þér, virðing fyrir öðrum og ábyrgð á öllum þínum gjörðum. |
|---|
| Lengi lifi músíkin gott fólk, ekki bara það að músik meðferðin sem allt liðið er í sé skemmtileg og áhrifarík heldur erum við Viggi í hljómsveitinni (Logi & Lundarnir) að fara á kostum. Það eru opnar æfingar á hverju kvöldi, og gæðin eru sífellt að verða betri, einkunnagjöfin fyrir gærkvöldið lítur svona út. * Búnaður, hljóðkerfi og aðstæður voru 9. * Spilamennskan 8,5 * Lagaval 8 * Sviðsframkoma 9 Ég ætla að loksins að gefa eftir og túra um landið næsta sumar og leyfa fólki að njóta spilakrafta minna um skeið. Vignir mun væntanlega fara frekar með bylgjulestinni en það verður bara að koma í ljós. En að öðru. Næsti leikur er á morgun á móti Magdeburg hérna í Lemgo og er löngu uppselt og væntanlega brjáluð stemmning þar sem við munum verja 1. sætið með öllum tiltækum ráðum. Núna byrja skemmtilegu leikirnir þar sem kemur virkilega í ljós hvar við stöndum. Allir í liðinu eru heilir og við erum búnir að vera að æfa vel að undanförnu. Við Viggi erum að taka aðeins extra í gyminu og svona svo man ég hvað Ali sagði long time ago. “Champions aren't made in gyms. Champions are made from something they have deep inside them-a desire, a dream, a vision. They have to have the skill, and the will. But the will must be stronger than the skill” En bara svo það sé á hreinu þá hjálpar það til við að fara í gymið. Afmælisbarn dagsins: Sá sem á afmæli 3. okt. Minnir að Hugga Ketils hafi átt afmæli í dag. Maður dagsins: Gunnleifur Gunnleifs. Lag dagsins: You ain’t seen nothing jet, Bachman Turner Spakmæli dagsins: Þú getur mælt velgengni þína á því hverju þú þurftir að fórna til að öðlast hana. Heimasíða dagsins: www.visir.is |
03.10.2008 |
| Lemgo komið á toppinn... |
|---|
| Góðan daginn, byrja á því að óska knattspyrnudeildinni hjá FH til hamingju með titilinn ;) Við vorum að spila í gær á móti Dormagen hjá þeim og unnum sannfærandi 21-30 og erum komnir í fyrsta sætið í deildinni með 50 mörk í plús eftir 6 umferðir. Það er alltaf gaman að leiða deildina og eins og ég sagði í gær þá voru góðar líkur á því að Flensburg myndi fara að misstíga sig og það varð raunin. Þó að við séum að sjálfsögðu að einblína á okkur sjálfa er gott að efstu liðin séu að misstíga sig svona í byrjun móts. Næsti leikur er á móti Magdeburg hérna í Lemgo á laugardaginn næstkomandi og við eigum harm að hefna eftir að þeir unnu okkur hérna í fyrra. ![]() En að öðru eins og kannski einhverjir ráku augun í úr blöðunum er verið að gera heimildarmynd um mig sem er búið að vera að vinna í síðan í júni minnir mig. Það er verið að leggja lokahönd á þetta og þeir sem hafa verið að senda mér e-mail og spyrja hvenær þetta verður sýnt “ ég bara veit það ekki” ég pósta því hérna inn um leið og ég veit ákveðna tímasetningu. Annars bara sunnudags mótorhjólakveðjur frá Lemgo, L&I. ![]() Afmælisbarn dagsins: Mimi Kraus Maður dagsins: Heimir Guðjóns þjálfari FH , til hamingju með þetta gamli. Lag dagsins: Manic street preachers, I ‘m not working Spakmæli dagsins: Þegar sá síðasti verður fyrstur. Heimasíða dagsins: www.handball-world.com |
28.09.2008 |
| Úr heimi atvinnumannsins... |
|---|
| Nú er komið að því að skrifa aðeins um handboltann en ekki þetta persónulega svona í eitt skipti. Við erum að spila á morgun í deildinni á útivelli á mót Dormagen sem er það lið sem hefur komið hvað mest á óvart í deildinni. Þeir hafa gert jafntefli við Kiel unnið Hamburg sem kemur svakalega á óvart miðað við að vera nýliðar í deildinni. Við ætlum að fara þangað með því markmiði að “keyra yfir þá”. Við erum sem stendur í 2 sæti í deildinni á eftir Flensburg sem er eina liðið sem hefur ekki tapað stigi. Dormagen eru í 12. sæti en staðan í deildinni segir aldrei til um hvernig leikirnir spilast, þannig er þetta bara í bundesligunni. Nú eru búnar 5 umferðir en það er ekki nóg til þess að sjá hvaða lið munu koma til með að berjast á toppnum. Við sem dæmi höfum lent í liðum sem eru yfirleitt í neðri hluta töflunnar og nú fer fyrst að reyna á þetta hjá okkur. Annars er stemmningin hjá okkur í liðinu mjög skemmtileg og við erum búnir að púsla saman skemmtilegri blöndu af góðum ungum leikmönnum í bland við nokkra reynslubolta. Þjálfarinn okkar er ekki ósvipaður Gumma Gumm hvað varðar það að skoða mótherjan vel og finna lausnir á leik þeirra í hvert skipti sem er mjög gott en getur verið mjög tímafrekt líka. Við erum að glápa á video í klulla og svo tekur við 2 tíma æfing í kjölfarið, daginn fyrir leik!!! En meðan við vinnum alla leiki væri ég til í að horfa á video allan daginn, þannig er það bara. ;) Lemgo hefur aldrei haft jafn marga “útlendinga” á einu seasoni eins og núna en við erum 6 talsins. 2 Íslendingar, 2 gúmmitékkar, 1 Hollendingur og Ungverji. Það er endalaust í umræðunni hérna í deildinni að Heiner Brand landsliðsþjálfari þeirra vill fá meira af uppöldum þjóðverjum inní deildina en í sannleika sagt þá væri þessi deild ekki besta deild í heimi ef það væri ekki allraþjóða lýður á parketinu hérna. Ég ætla að fara snemma að sofa því ég ætla að koma með 2 stig heim frá Dormagen sem gæti þýtt að við værum að leiða deildinna svo lengi sem Flensburg misstígur sig sem fer að fara að detta inn, bestu nautasteiks-kveðjur L&I. Lag dagsins: Informer - Snow Maður dagsins: Aron Pálma sem sló nýtt met í krikanum móti HK hélt að enginn myndi slá það. Snilld dagsins: Ég er búinn að starta Facebook Heimasíða dagsins: www.tbv-lemgo.de |
26.09.2008 |
| Froskasagan & Eftirlýstur |
|---|
| Það var einu sinni hópur froskaunga sem ætluðu að koma á fót kapphlaupi. Markmiðið var að komast upp á topp á háum turni. Margmenni hafði safnast saman til að fylgjast með hlaupinu og hvetja þátttakendur. Síðan var hlaupið ræst. Í sannleika sagt: Enginn áhorfendanna trúði því í raun að froskaungarnir gætu klifrað upp á topp turnsins. Það eina sem heyrðist voru setningar eins og: ,,Oh svo krefjandi!!! Þeir munu áreiðanlega ALDREI komast alla leið” eða ,,ekki séns á að þetta takist, turninn er allt of hár!” Froskaungarnir hættu, hver á fætur öðrum….- nema einn….sem fljótt kleif hærra og hærra. Fólksmergðin hélt áfram að hrópa ,,þetta er allt of krefjandi!!! það mun enginn geta þetta!!” Fleiri og fleiri froskaungar urðu þreyttir og gáfust upp…Bara einn hélt áfram hærra og hærra… Hann vildi hreint og beint ekki gefast upp!! Fyrir rest höfðu allir hinir gefist upp á að klifra – fyrir utan þessi eini froskur, sem eftir mikið erfiði náði toppnum! Nú vildu allir hinir þátttakendurnir auðvita fá að vita hvernig hann fór einginlega að því að vinna þvílíkt afrek – og ná í MARK!!!! Þá sagði lítil Froskastelpa úr hópnum þetta er bróðir minn og hann er heyrnarlaus!!! Og lærdómurinn af þessari sögu er: Hlustaðu aldrei á fólk sem er alltaf neikvætt og bölsýnt…..vegna þess að það tekur frá þér ÞÍNA fallegustu drauma og óskir, sem þú berð í hjarta þínu! Hugsaðu allaf um kraft orðanna af því að allt sem þú heyrir og lest hefur áhrif á gjörðir þínar! Þess vegna: vertu ALLTAF JÁKVÆÐUR. Og fyrst og fremst: Vertu hreint og beint HEYRNARLAUS þegar einhver segir við þig að þú getir ekki látið ÞÍNA drauma rætast!! Hugsaðu alltaf: Ég skal geta það!!! Þetta var smá saga til þess að vekja einhverja en ég lýsi hér með eftir ljósmyndaranum sem var að taka myndir af mér fyrir utan Bessastaði með JR hattinn. Held að hann vinni á fréttablaðinu. Þarf nauðsynlega að ná á þeim manni ef einhver getur veitt mér upplýsingar um nafnið á honum er viðkomandi í góðum málum. Annars líf og fjör og ég bið ykkur um að dreifa boðskap sögunnar áfram. Maður dagsins: Ásgeir Örn fyrir að hafa lítið sem ekkert samband. Lag dagsins: Undantekningar með B2cool. Spakmæli dagsins: Betra er að ganga framaf mönnum en björgum. (Nóri) Setning dagsins: Viggi: ”enn eitt skoffínið ?” Markmið dagsins: Gefa af mér, brosa, vera jákvæður, og læra af deginum. Söknuður dagsins: Sverrir vinur minn Garðarsson. Muna dagsins: Árni verðum að ræða þetta með úrið, gengur ekki lengur. |
25.09.2008 |
| Í rónni liggur krafturinn... |
|---|
| Jæja gott fólk á maður ekki að byrja á boltanum!!! Hummha. Tap á móti Nettelsted í bikarnum sem er mesti skandall sem ég veit um í langan tíma. Trúi bara ekki að þetta hafi gerst með fullri virðingu fyrir Nettelsted sem spilaði ágætlega. Ég held ég hafi sjaldan eða aldrei verið jafn pirraður eftir einn leik eins og í gær. Ég og Viggi misstum okkur aðeins inní klefa og þurftum að biðja svona 10 sinnum afsökunar á því en þetta er svona að ganga yfir. En það þýðir nú lítið að ræða það. Svo hef ég ákveðið að veita GRÍMUNA fyrir 2008 og Þórir Ólafs hlýtur hana fyrir frábæra tilburði í gær. Ég er búinn að setja mér markmið að finna þetta atriði en leikurinn var sýndur á DSF í gær og setja á youtube. Svo datt honum líka í hug eftir leikinn að bjóða okkur í mat á sunnudaginn, við sögðum honum að hann gæti stungið þessum mat uppí rassgatið á sér. Annars er ég bara hérna heima að leika mér í Tiger Woods og spila á gítarinn. Reyna að drepa smá tíma, fór meira að segja hérna niðrí bæ og keypti hnetur fyrir íkornana en þeir eru að safna fyrir veturinn. Þegar ég hendi Lúnu hérna niður í garð eru alltaf svona 5 íkornar að stríða henni og láta hana elta sig. Svo er ég að fara að hlusta á smá músik til að róa hugann og komast í góðan djúpsvefn. Þeir sem hafa verið að fylgjast með síðunni muna um hvað það snérist. Svo er ég með skemmtilegar fréttir úr undirheimum handboltans sem ég kannski pósta í næstu færslu. Annars er næsti leikur hjá okkur á móti Dormagen á laugardaginn hérna á heimavelli og þar er sigur skylda, bestu afslöppunar kveðjur, L&I. Maður dagsins: Gylfi Gylfa Lag dagsins: Connected - Stereo MCs Setning í hita leiksins í gær inní klefa: “Ef þú ætlar að kenna mér eitthvað um þetta þá slýt ég af þér hausinn og skalla þig” Svolítið ironic að taka fyrst hausinn af áður en látið er vaða. Svona er þetta nú stundum í sportinu. Spakmæli dagsins: Afhverju ætti maður að tapa ef maður getur unnið??? |
24.09.2008 |
| Þegar á móti blæs er bara málið að soga inn ;) |
|---|
Við erum á fleygiferð í deildinni og það virðist ekkert lið vera að fara að stoppa okkur, allavega miðað við 5 fyrstu umferðirnar ;) Erum reyndar í 2 sæti í deildinni með 9 stig af 10 mögulegum og næsti leikur er núna á þriðjudaginn í bikarnum á móti Þóri Ólafs og félögum í Nettelsted. Við förum bara í hvern einasta leik með því markmiði að vinna og ætlum að reyna að halda okkur við það. Við spiluðum í gær á móti Tussem Essen þar sem ég náði að misstíga mig gat ekki spilað áfram, ekki það að ég hafi spilað mikið í leiknum. Þeir vilja bara greinilega bara nota mig á móti góðu liðunum;) Var mjög sáttur við að vakna hress í morgun og þurfa ekki að vita til þess að ég væri að fara að missa einhverja leiki úr. Lítil sem engin bólga og YEAASSS hvað ég er sáttur. Svona á þetta að vera.![]() Annars héldum við Viggi smá tónleika hérna heima hjá mér fyrir nokkra velvalda eftir leikinn í gær og verð ég nú að segja að þetta voru ágætis tilburðir hjá okkur. Ef ég ætti að gefa okkur einkunn væri hún eftirfarandi... * Búnaður, hljóðkerfi og aðstæður voru 8,5. * Spilamennskan 7,5. * Lagaval 8 * Sviðsframkoma 10 * Tónleikagestir 3. ( Þjóðverjar kunna enga texta né góða hittara ) ![]() Núna er maður svo bara að taka netrúntinn og slaka vel á, bið ykkur vel að lifa og hendi á ykkur bestu kveðjum frá, Brüderstraße 8 í Dörentrup, L&I... ![]() Maður dagsins: Sturla Ásgeirsson, vinur minn, sendu mér bú nýja símanúmerið þitt... Lag dagsins: “Ring of Fire” Svar dagsins: Besta svarið af mörgum góðum ;) Sæll Meistari Logi, Kristmann hérna.... Spurninginn sem þú kastaðir í loftið í síðustu færslu þinni um hvort það skuli segja á Íslandi eða í Færeyjum o.g.svfr snýst um \"málvenjur\" kem með smá útskýringu. Það eru margar og mismunandi málvenjur. Tökum Ólafsfjörð sem dæmi. Þar var jafnan talað um bæi „í firðinum\" og þá átt við fjörðinn (ekki sjóinn), líkt og „í Eyjafirði.\" Þegar byggð stækkaði í kauptúninu var rætt um „á Ólafsfirði\" þegar talað var um hús í þorpinu, síðar kaupstaðnum. Á Húsavík töluðu heimamenn alltaf um „á\" en ekki „í\" eins og fór að heyrast síðar, svo sem í útvarpi. Um víkur gildir nokkuð skýr regla. Frá Reykjavík, um vesturland og norður á Hómavík segja menn „á\" - en þaðan í austur og alla leið austur og suður og aftur að Vík í Mýrdal er sagt „á\" viðkomandi vík. Höldum við áfram, þá breytist það svo aftur „í\" Grindavík og Keflavík. Í þessum efnum gildir skýr regla: Málvenjan. Svo einfalt er það. Hjá Ríkisútvarpinu til að mynda er til handbók um þetta og margt fleira skylt - en illa gengur að kenna starfsmönnum að nota hana. Varðandi Ísafjörð: Sagt er „á Ísafirði“ þegar átt er við byggðina við Skutulsfjörð en „í Ísafirði“ þegar átt er við Ísafjörð í Djúpi, innstu totu Ísafjarðardjúps. Þannig að í stuttu máli Logi minn Geirsson snýst þetta í raun frekar um það sem Íslendingar hafa tileinkað sér að segja í gegnum tíðina. Vonandi að ég hafi gert þetta skiljanlegt. ;-) |
21.09.2008 |
| There are no shortcuts to any place worth going… |
|---|
| Ég er svona að berjast við það að finna smá tíma til þess að gefa eitthvað frá mér á síðuna :) Finnst eins og það sé allt að hlaupa frá mér þó að það sé líka allt að koma til mín!! Veit að það er erfitt að útskýra þetta en ég er ennþá að vinna upp þessa 3 mánuði sem ég var í burtu og er að koma öllu í fyrra horf. Annars gegnur að sjálfsögðu mjög vel í boltanum, við erum með 7 stig af 8 mögulegum úr fyrstu fjórum umferðunum. Næsti leikur er svo á morgun á móti Tussem Essen á heimavelli okkar og ég þarf að bæta fyrir “ekki nógu góðan leik” á móti Kronau um síðustu helgi. Það er farið að kólna alveg skemmtilega mikið og maður getur ekki farið útí garð að spila á gítarinn meðan Lúna hleypur og fíflast. Núna er það bara að klæða hana í úlpuna og ég í vettlingum að halda á mér hita. Það voru 25 gráður í síðustu viku og núna á sama tíma eru 8 þannig að veturinn er farinn að minna á sig. Það hefur reyndar líka sína jákvæðu punkta, því fólkið hérna í sveitinni notar spítur og við til að halda hita á húsunum og það minnir mig á jólin og lyktina heima á Íslandi. Vá bara að skrifa það eru svo góð tilfinning, snilld hvað mannfólkið er búið að búa til góðan tíma þarna í lok des ;). Jólin mega aldrei deyja. Mig langar að gera svo margt núna en einhverra hluta vegna er ég ekki að ná að skipuleggja mig. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í þetta skiptið en ég kem með færslu um nokkrar góðar sögur á sunnudaginn ef ég finn tíma ;) átaks-kveðjur frá þýskalandi, L&I_23. Maður dagsins: Sá sem finnst eiga það skilið... Lag dagsins: Nessun Dorma með Paul Pots, hvernig stendur á því að ég vissi ekki hver hann er? Pæling dagsins: Afhverju segir maður á Íslandi, á Grænlandi, á Ítalíu, í USA, í Færeyjum, í Japan, á Krít, í Finnlandi? Sá sem getur útskýrt þetta fyrir mér fær verðlaun af ekki verri tegundinni. Spakmæli dagsins: Við berum ábyrgð, ekki aðeins á því sem við gerum heldur líka því sem við gerum ekki. |
19.09.2008 |
| Frábær helgarferð til Íslands og boltinn aftur tekinn við... |
|---|
Ég og Vignir fengum að vita það á föstudaginn síðasta að við myndum fá helgarfrí. Það er nú ekki daglegt brauð í heimi atvinumannsins þannig að við litum á hvern annan svona eins og Bananarnir í “Bananas in Pajamas” er þú að hugsa það sem ég er að hugsa!!!![]() Klukkutíma seinna vorum við búnir að panta okkur ferð um kvöldið heim og það var ekkert smá sem við þurftum að leggja á okkur til þess að komast heim. Sturtuðum okkur ískalt í 1 mín svo við hættum að svitna eftir æfingu og svo var hlaupið úti bíl og brunað berir að ofan fólki til mikillar gleði. Hannover flugvöllurinn var markmiðið því við vorum að missa af fluginu og það hefði verið frekar sorglegt miðað við verðið á þessu öllu. Síðan var 2 klukkutíma seinkun til Köben og Icelandair vélin ákvað að bíða í 20 mín eftir okkur 2 og kunnum við bestu þakkir öllu crewinu þar. Veit að þessar kveðjur komast til ykkar því 2 flugfreyjur segjast lesa bloggið reglulega :) Síðan þurfum við ekkert að ræða snilldina að kíkja til Íslands. Frábær ferð og við vorum að detta í hús hérna í Lemgo. Næsti leikur er á móti Guðjóni Val og félögum í Rhein Neckar Lowen og ætlum við okkur sigur í þeim leik, hann er á miðvikudaginn næstkomandi. Við erum með fullt hús stiga og vorum í efsta sæti í deildinni þegar við flugum heim við eigum síðasta leikinn í umferðinni sem sker úr um það hvort við höldum 1 sætinu. Það er hrikalega gaman þegar svona vel gengur. Með jákvæðum kveðjum, L&I_23. ![]() Er gjörsamlega að sofna, ætla að enda þetta á nokkrum punktum... Fór á FH-Valur leikinn. Fór í bæinn og hitti alla vini og kunningja. Fór á Skímó á Nasa. Fór í Barnaafmæli. Fór mikið að hlægja. Fór í póker við Vigga og Vann, tapaði smá. Fór í klassa innflutningspartý. Fór í flott matarboð. Hitti alla fjölskylduna og naut lífsins. Og svo margt margt fleira ;) Menn dagsins: Flugfreyjurnar hjá Icelandair á leiðinni heim, ánægður með þetta “Silfurkort”. Lag dagsins: Going to the Top með Be Not. Afmælisbarn vikunnar: Litla Ingibjörg Eldon varð 2 ára. ![]() Spakmæli dagsins: “Sóaðu ekki nýjum tárum á gamlar sorgir” & þetta spakmæli minnir mig líka reglulega á það sem Mark Twain var alltaf að benda okkur á. “Ég grét um daginn vegna þess að ég átti ekki fyrir skóm. Ég hætti að gráta þegar ég sá mann sem misst hafði fæturnar” |
15.09.2008 |
| Ég á mér drauma... |
|---|
Gaman að vera kominn aftur á skrið í boltanum hérna í Lemgo, þetta með þjálfarann sem kom fram í mbl var ekki eins alvarlegt og ég hélt. Ég var mjög stutt frá því að þurfa að hringja í Jóhann Inga og bjóða honum út;). Nei annars erum við búnir að vinna 2 fyrstu leikina og ég var látinn byrja inná í skyttunni. Náði að svara því vel og skora 10 góð mörk og gefa endalaust af stoðsendingum. Vigir kallar mig Magic þannig að ég hlýt að hafa verið að gera eitthvað rétt;) Annars er bara málið að vera ferskur og halda áfram að raða mörkum, næsti leikur er á móti Wetzlar á heimavell á miðvikudaginn næstkomandi.![]() Annars er Binni bróðir minn búinn að vera í heimsókn hérna hjá mér og er fínt að hafa BB-King hérna. Hann er með einhverja golfara sem eru að reyna að “qualificera” inná Evróputourinn sem er ekkert grín. Ég spilaði einmitt með þeim 9 holur og ég veit að ef ég myndi segja ykkur hvernig það fór mynduð þið ekki trúa mér, svo við látum það bara liggja milli hluta... ![]() Þegar ég kom aftur hingað fékk ég frábærar viðtökur frá fólkinu og var meðal annars boðaður á fund hjá bæjarstjóranum og fleiri háttsettum hérna og fékk þann heiður að skirfa í “Gullnu Bókina”. Ég get nú ekki sagt að það hafi verið jafn mikill heiður og að fá fálkaorðuna hjá Forsetanum en alltaf gaman að fá verk sín metin. ![]() Ég og Vignir notuðum líka þennan fína sunnudag í að bruna til Minden og sjá leik hjá þeim á móti Flensburg og BTW var ég að lýsa þessum leik og tók nokkra súra brandara sem ég er viss um að hafi slegið í gegn en það má sjá leikinn á heimasíðunni www.hbl.tv. Það sem kannski stóð uppúr á þessum leik var að Vignir henti upp sparigreiðslunnni sinni sem hreinlega allir virtust taka eftir. Svo var hann spurður hvar er hægt að fá svona svaraði hann “ Hvergi, hún heitir samt “Business at the front party at the Back” ætla að redda mynd af honum á morgun í hliðarprófil og þá vitið þið um hvað ég er að tala og ekki gleyma því að hann er að nota rétta GELIÐ... ![]() Svo má ekki gleyma litlu Lúnu sem var heila 3 mánuði frá mér og voru það fagnaðarfundir þegar ég sótti hana á hundahótelið. Er hægt að vera meiri snillingur en þessi litla mús, veit að allir sem eiga ekki hund eru með æluna núna en það eru nokkrir þarna sem skilja mig. Núna hangir hún með mér 24/7 og hefur aldrei liðið betur. ![]() Bið ykkur að vera jákvæð, hress og muna að bestu hlutirnir í lífinu eru yfirleitt ekki hlutir, L&I_23. Heimasíða dagsins: www.hbl.tv Maður dagsins: Meistari Valdi tollvörður í Keflavík. Lög dagsins: So Beautiful með Savage Garden og Inní mér syngur vitleysingur með Sigur rós. Spakmæli dagsins: Tindurinn er ekki bara einn. Tindarnir eru jafn margir og markmiðin. Þegar maður hefur komist á fyrsta tindinn hefst ferðin á þann næsta og svo koll af kolli. Lífið er fjallganga. |
07.09.2008 |
| The journey was the award.... |
|---|
Maður verður að leyfa sér að setja smá ensku slettur hérna inn en fyrirsögnin segir mikið til um þessa ferð. Þetta er búið að vera hreint út sagt einn stór draumur, þetta er búið að kosta svita og tár og hellings orku en það er búið að skila sér 1000 falt til baka núna.![]() Við byrjuðum undirbúninginn á endalaust mikið af æfingum, 2var sinnum á dag vorum við mættir saman að undanskildum fundum, myndatökum og að borða saman í hádeginu. Sumarið var strembið en hrikalega gaman enda var hópurinn samstilltur frá fyrstu æfingu. Mér er minnisstætt hversu hrikalega mikið mig hlakkaði til að taka þátt í þessu ævintýri. Það að koma hingað til Kína á Ólympíuleika var svolítið öðruvísi og stærra en kannski flestir gera sér grein fyrir. ![]() Þegar mótið svo hófst vorum við búnir að slípa okkur saman og vorum staðráðnir í því að leggja líf okkar undir í baráttunni um það að komast uppúr riðlinum. Það eitt og sér hefði talist gott fyrirfram því þar höfðum við Evrópumeistarana, Heimsmeistarana, Afríkumeistarana, Asíumeistarana og hina gríðarsterku Rússa sem eru margfaldir heimsmeistarar undanfarinna áratuga í handboltanum. Við spændum þessum riðli og tryggðum okkur sæti í 8 liða úrslitum þar sem við vorum að fara að mæta Pólverjum sem fyrir keppnina voru líklegir til þess að ná í titilinn. Við slógum þá útaf laginu með gríðarlega miklum undirbúning, vídiofundur 2-3 á dag í bland við æfingar og taktík og sigruðum við þá auðveldlega. Staðreyndin sú að Ísland væri komið í undanúrslit Ólympíuleikana. Þá var farið að fara um marga hvað væri að gerast og næsti mótherji Spánn sem hafði unnið okkur 4 sinnum í síðustu 5 leikjum á stuttum tíma. Sá leikur var kannski sá sætasti í keppninni, þeir áttu ekki “Break” og vissu ekki hvurslags bylgja hefði lent á þeim og Ísland hafði tryggt sig í úrslit á Ól. Var þetta virkilega að gerast, sumum fannst einsog þetta væri draumur og spennufallið var það mikið að menn voru að taka áttir mörgum klukkutímum eftir leik. Síðan fórum við í leik um gullið við Frakka og það verður bara að segjast eins og er að þeir voru betri. Eina sem að maður getur svekkt sig á er að hafa ekki búið til spennandi leik og verið betur tilbúnir, en SILFRIÐ er staðreynd og það verður aldrei tekið af okkur. ![]() Ég var með Sverri í herbergi alla ferðina og sagðist hann gjarnan vera til í að sofa við hliðina á mér aftur í mánuð svo lengi sem hann fengji aðra svona medalíu en þetta er búið að vera frábært. Við erum að fara uppá flugvöll eftir 3 tíma og þá tekur við 10 tímar til Þýskalands og svo aðrir 3 og hálfur til Íslands. Við erum síðasta liðið til þess að koma sér héðan úr þorpinu en það eru bara sjálfboðaliðar á vappinu hérna fyrir utan. Ég er líka ánægður með það að hafa klárað nokkur markmið sem ég hef sett mér, komast á pall á Ólympíuleikum, skoða Kínamúrinn en ég var þar rétt í þessu, einstakt upplifelsi, feta í fótspor Hallsteins Afa og fá fálkaorðuna, og vera orðinn nýr og betri einstaklingur eftir þessa ferð. ![]() Vil enda á að þakka öllum og þá meina ég öllum fyrir samveruna, og þið heima fyrir skeytin, e-mailin og góða strauma og síðast og ekki síst crewinu sem kom og kveddi okkur á Esso 3.ágúst. Ég hlakka hrikalega til að koma heim í smá fagnaðarlæti og sjá sem flesta, bestu kveðjur, L&I. ![]() Maður ferðarinnar: Stulli er með yfirburðum, þvílíkur fagmaður er sá gaur. Mæli með honum í fyndnasta mann Íslands á næsta ári. Lag ferðarinnar: Fix You með Coldplay en ég hlustaði alltaf á það fyrir leiki. Spakmæli ferðarinnar. Maður getur aðeins tekið út það sem maður hefur lagt inn... |
26.08.2008 |
| Congratulations to Logi and the Icelandic Team.... |
|---|
![]() |
24.08.2008 |
| Hvað er betra en konunglegt nudd ;) |
|---|
Okey klukkan er orðin 04.00 að nóttu til og ég er ekki ennþá sofnaður, ég er heldur ekki einn um það. Maður er núna að átta sig á þessu öllu að við erum að fara í úrslitaleik við Frakka um gullverðlaun á flottustu Ólympíuleikum fyrr og síðar að flestra mati. Mig langaði nú bara aðallega að kasta á ykkur kveðjum og láta ykkur vita að það er allt 100% hérna hjá okkur og við stefnum að sjálfsögðu á að taka Frakkana og koma heim með gullið. Takk fyrir stuðninginn...![]() Eins og kannski ykkur er kunnungt um þá var Dorrit að nudda mig í gær og “nota bene” glöggir lesendur síðunar geta borið það saman við síðustu færslu hvað allt geti gerst svo lengi sem maður sjái það fyrir sér og sé jákvæður. Mér líður ekkert smá vel núna og get ekki lýst neinu sorry það kemur seinna. Það er aðeins 1 skref eftir í það að draumurinn uppfyllist, maður verður að vera tilbúinn að fórna sér. Það er bara þannig í þessum bransa og við erum allir, þá meina ég allir búnir að vinna að sömu markmiðum síðan við hittumst 9. júli síðastliðinn. ![]() Það eru forréttindi að spila fyrir Ísland, með bestu markakveðjum, Logi Geirsson. Maður dagsins: Ég sjálfur ;) Lag dagsins: Eitthvað bara með Enya Spakmæli dagsins: Annaðhvort lifum við sem Team eða deyjum sem einstaklingar. |
22.08.2008 |
| “Koma svo strákar, bara einuuu sinni” |
|---|
Þetta voru síðustu skilaboðin sem við fengum þegar við yfirgáfum Ísland 3. ágúst á leit ævintýranna hérna í Kína. Þeir voru voru mættir á Esso lækjargötu AP, Binni bróðir og Siggi Pétur kl. 05.00 til að peppa okkur upp fyrir ferðina. Það síðasta af mörgu góðu sem kom frá þeim var fleyg setning sem Siggi Pétur Golfari lét fylgja með okkur “ Koma svo strákar, bara einuuu sinni”, haha. Þetta hefur verið valin setning ársins af skemmtinefndinn í landsliðinu og vill Arnór Atla meina það að þetta hafi verið “SIGN”. Set eina mynd af Sigga kallinum...![]() Við erum eins og ykkur er öllum kunnugt um komnir í undanúrslit og mætum þar Spánverjum eftir 2 daga. Við erum ferskir, allir heilir, jákvæðir, ánægðir og hvergi nærri saddir að keppa fyrir Ísland í þessum Ólympíuleikum. Eftir leikinn kom forseti Íslands Ólafur Ragnar með konu sinni Dorrit að hitta okkur. Smá innskot! Ég hugsaði nákvæmlega fyrir 3 dögum þegar ég sá Phelps vinna 8 gullið og boðið að koma að hitta Bandaríkjaforseta að ég væri til í að hitta okkar forseta. Ég fékk þessa hugmynd úr hámarks árangri en þar var einmitt Bryan Tracy að segja hvernig hann ímyndaði sér að hann væri að hitta forsetann. Hvað gerðist í dag, forsetinn kom og spjallaði við kallinn, og til að fullkomna þetta þá hvíslaði Dorrit að mér “you are very beautiful” Nei þetta var kannski aðeins of mikið hehe. Það gerist kannski næst, hlutirnir eru fljótir að gerast. ![]() Takk fyrir allar kveðjurnar “Positiv” og stay tuned með okkur hérna í Peking, Logi Geirsson. Maður dagsins: Bo Gúst. Lag dagsins: Cannonball með Damien Rice Mynd dagsins: Ég og HB að blasta tattoounum, vona að hann sendi mér hana ;) Hljómsveit dagsins: Smashing Pumpkins Kveðjur dagsins: Jón Ari Ólafsson |
20.08.2008 |
| Just let the mind flow... |
|---|
| Jafntefli við Dani og Egypta núna í morgun kom okkur í 6 stig og nú er bara að bíða átekta hvað gerist í hinum riðlinum og fá einhvern verðugan andstæðing sem við ætlum að tækla eftir 2 daga. Það eru allir mega sáttir í hópnum og stemmningin sjaldan eða aldrei nokkurntíma verið jafn jákvæð og skemmtileg. Við vorum vaktir kl. 05.00 í nótt!!! Farðu útúr bænum hvað það var hressandi leikfimi með Óla þar sem menn fengu blóðið aðeins til þess að streyma. Ég svei mér þá held að þetta hafi virkað vel, allavega á mig þó að við höfum ekki mætt alveg vitlausir til leiks. Þegar við vorum að borða eftir leikinn hérna í þorpinu mætti ég Ronaldinho og félögum í matsalnum og voru gjörsamlega allir að taka mynd af sér með honum og ég stóð við hliðina á honum í salatröðinni. Þá spyr gæji hvort ég vilji ekki láta taka mynd af mér með honum? “Honum svara ég”! Ég á mynd af mér og Big G og það er bara þannig að þegar maður á mynd af sér með DaVinci þá er maður ekkert að stessa sig á því að ná einni af Kára Stefáns. Með fullri virðingu fyrir honum. ![]() Það sem brennur líka á margra manna vörum hérna í þorpinu er að HB er búinn að láta þruma á sig einu góðu Tattooi. Uppi eru miklar getgátur um það hvað hann hafi látið næla í sig og til að eyða öllum óþarfa misskilningi skora ég á hann að pósta því á síðuna sína ekki seinna en á morgun. Ég tippa á að þetta séu nöfnin á börnunum hans en ég er tvímælalaust giskkóngur ferðarinnar, sjáum á morgun hvort að það sé eitthvað að breytast... Annars handboltalega séð er ég að fá smá “Flashback” frá 2006 þegar við vorum í úrslitum í EHF-CUP og fór að fletta upp hérna á síðunni og gott ef þetta hefur ekki kveikt vel í mér. Ég sit hérna í tölvunni með Mc Kaffi og American Brownie og ætla að fara að segja þetta gott. Með bráðum Bestu breaking news kveðjum for a long time, L&I. ![]() Lag dagsins: This Years Love með David Grey. Heimasíða dagsins: www.gillz.is Nickname dagsins: Grizzly Bear aka Fúsi69 Spakmæli dagsins: “Imagination is more important than knowledge” Spakmæli vikunnar: Hámarksárangur næst með því að þú takir algjörlega ábyrgðina á þínu lífi og öllu sem hendir þig. |
18.08.2008 |
| Pain is Temporary, Pride is Forever... |
|---|
“Það er svo fallegt í Kína, keisarans hallir skína” hver kannast ekki við þetta lag ;) Verð að byrja á að leiðrétta það sem ég var að segja um veðrið, þessi dagur var heaven. Það voru 30 gráður+ og ekki ský á lofti. Fórum á æfingu um hádegisbilið og eftir það var gefið kærkomið frí sem flestir nýttu sér til að skjótast niðri bæ og vesenast. Ég reyndar nennti ekki og fór þess í stað með Óskari Bjarna í Gymið smá gufu og spókaði mig svo á sundlaugarbakkanum aðeins of lengi. Held að ég sé ekki lengur hvítasti gæjinn í þorpinu, en gæti verið orðinn sá rauðasti.![]() Annars eru bara allir að halda einbeitingunni, láta sinna sér í sjúkraþjálfun og gíra sig inn fyrir leikinn á morgun. Við verðum á vera á tánum allann tímann hérna því eins og Pabbi sagði alltaf “Það er stutt í kúkinn”. ![]() Mér skilst á öllu að við séum að fara í byrjun næstu viku að skoða Kínamúrinn, eina mannvirkið sem sést frá Tunglinu (good information). Held að það verði þokkalegt upplifelsi, það er svo þreytt í þessum keppnisferðum að maður sér aldrei neitt. Ég ætla 100% ekki að missa af þessu og mun ég pósta inn nokkrum myndum af þeirri ferð. ![]() En spyrjum að leikslokum á morgun, þangað til þá með bestu endurheimtar kveðjum, Logi Geirsson. Maður dagsins: Bjarki Kristinsson vinur minn, geymdu safnið vel ;) Lag dagsins: Bahama með Ingo Idol, en þetta er uppáhaldslagið hans Didda. Kvikmyndagetraun dagsins: Sá sem fyrstur getur þetta fæ senda gjöf frá China... “ Marvin are you okey” ? ![]() |
15.08.2008 |
| We got to lose some to win some... |
|---|
Látum mig sjá! Hvar á ég að byrja. Já alveg rétt leikurinn við Suður kóreu fór fram áðan, við töpuðum leiknum með 1 marki 22-21. Við vorum leiðinlega nálægt því að stela öðru stiginu í lokin og tryggja okkur inní 8 liða úrslitin hérna í Peking. Við eigum engu að síður eftir að spila 2 leiki í riðlinum á móti Evrópumeisturum Dana og Afríku meisturnum Egyptum. Við vitum hvað þarf til og erum hvergi nærri hættir bara svo það sé á hreinu.![]() Ef eitthvað er þá þjappast hópurinn saman og við höldum gleðinni og jákvæðninni og þá er ekkert að fara að hindra okkur. Næsti leikur er á laugardaginn á móti Dönum og verður þá gaman að hefna ófaranna frá því á HM 07, svo er ekki þessi Madsen með þannig að við hljótum að vinna hehe. Við erum annars búnir að sína mjög góðan stöðugleika og við skulum bara spyrja að leikslokum. ![]() Ég ákvað eins og ég var búinn að segja að henda mér í smá Stripes hérna í þorpinu og heppnaðist það líka svona hrikalega vel. Þegar ég sá samt gæjann byrja að blanda einhverjar jurtir og kunna enga ensku þá var ég næstum því rokinn úr stólnum en bara fuck it. Þessi gæji fékk allt mitt tips fyrir vandaða vinnu. Nenni ekki að tala um þetta blessaða hár samt núna, sit hérna með Didda, Óla Stef og Sverri. Diddi er b.t.w að borða 4 snickers súkkulaðið á þessum 10 mínútum sem ég er búinn að sitja hérna. Annaðhvort er ég að heyra hann fitna eða að Sverrir er að reka við. ![]() Annars er lífið í þorpinu eins og það á að vera fyrir utan leiðinda rigningu sem á að haldast út vikuna, gott að vera að keppa inni á leikunum en ef ég þekki Chinnana rétt byggja þeir bara nýtt þak á 5 mín. Við skjáumst líkalega aftur á morgun með bestu keppnis kveðjum frá Beijing China, Logi Geirsson. Kvikmynd dagsins: Any Given Sunday Kveðjur dagsins: Beint í Lemgo til Mömmu & Pabba, Love. Menn dagsins: Allir í 18 ára liðinu og þá sérstaklega AP again, go for it. Heimasíða dagsins: www.sport.is Mottóið mitt: Fara vaxandi. |
14.08.2008 |
| Nú er gaman að vera lifandi í China... |
|---|
Það er hrikalega gaman að vinna handboltaleik en að taka Þjóðverjana svona er miklu meira en það. Stemmningin í hópnum og fjörið er ekkert nema unaður og allt er með besta móti. Það er óhætt að segja að það sé verið að mata okkur af upplýsingum um andstæðingana en það eru yfirleitt 2 fundir hjá okkur á dag og manni líður eins og það sé verið að forrita mann ;) það er líka bara gott mál þegar það gengur svona.![]() Ég sit núna í sjónvarpsherberginu á fyrstu hæðinni þar sem við komum oftast saman á kvöldin til að fá sem besta netsambandið. Stulli og Alex eru hérna við hliðina á mér að tala við konurnar sínar á skype meðan ég er að pikka þetta inn. Það er nákvæmlega núna verið að sýna highlight úr deginum eða brot af því besta og þar erum við að sjálfsögðu! ![]() Á morgun er svo frídagur og þá verður gott að líta aðeins í Gymið hérna, fá svo gott nudd og hlaða hin margfrægu battery sem maður er alltaf að tala um. Svo er ég að hugsa um að taka smá séns og fara í klippinguna hérna til þess að láta að ferska aðeins uppá strípurnar en ég er ekki sure því ég er hræddur um að þeir geri mig gulhærðan því ég hef ekki ennþá séð hvíthærðan chinna. Það kemur í ljós á morgun hvernig þetta heppnaðist hjá vinum mínum hérna en ég tek mynd fyrir og eftir. Svo varðandi myndirnar sem ég er að birta hérna verð ég að þakka strákunum og teaminu hérna fyrir að gefa mér þær því ég hef ekki ennþá komist niður í bæ að kaupa myndavél og skóna sem ég verð að ná í. ![]() En áður en ég hætti að skrifa verð ég að tala aðeins um leikinn og hvernig hann kom mér fyrir sjónir. Það var alveg ljóst að þetta yrði hrikalega erfiður leikur og Þjóðverjarnir þekktir fyrir að hætta aldrei en við vorum alveg sure á að við gætum tekið þá. Maður fann það bara strax fyrir leik að menn voru staðráðnir í að ná þessu markmiði. Leikurinn var í járnum alveg framá síðustu 10 mín en þeir misstu einhverja menn útaf í rauðum spjöldum og meiðslum sem þeir náðu ekki að bakka upp. Við tókum geðveikina á þetta og vorum hrikalega fastir fyrir frá fyrstu mínútu og uppskárum laun erfiðisins og ég er farinn að sofa ;) Næsti leikur er Suður Kórea og það verður hrikalega erfiður leikur líka... Heimasíða dagsins:+ www.handbolti.is Man of the day: Mimi Kraus liðsfélagi minn úr Lemgo sem skoraði 13 mörk takk fyrir. Lag dagsins: Fix You með Coldplay mæli með því að allir hlusti á það ;) |
12.08.2008 |
| Punkta færsla í dag ;) |
|---|
| 1 leikur 1 sigur. Tilhlökkun að mæta Þjóðverjum. Skila helling af kveðjum & þakka góðar kveðjur. Fórum í boð til menntamálaráðherra í íslenska sendiráðinu hérna í China í gær. Það er snilldar fyrirkomulag að hafa alltaf 1 dag á milli leikja. Ingimundur hefur fengið titilinn: “fljótast pirraði leikmaðurinn”. Besta hljómsveitin U2 og besta lagið undir the Bridge með R. H. C. P. Það er allt að gerast hérna á C8. Sverrir er líklega eðlilegasti náungi sem ég hef kynnst. ![]() Þessir 300 metrar sem maður labbar 5 sinnum á dag uppí matsal er orðin frekar löng leið. Það rigndi brjálæðislega mikið í gær, mjög líklega eitthvað met. Ætla að kaupa mér á morgun fyrir leikinn nýju Nice Cyper Dunk skóna 300 gr. ;) Það eru ekki eins margir að sækja leikina hérna eins og búist var við. Þeir sem vilja senda kveðjur sem verða prentaðar út, logi.geirsson@gmx.de Spakmæli dagsins: No Gutts No Glory. Mjög happy með 18 ára landsliðið og þá sérstaklega AP... ![]() Búinn að komast að því að það kostar ca 1500 kr mínútan að hringja til Íslands úr þýskum gsm. Nýjasta æfingin hjá mér og Stulla í Gyminu kallast Tutchkin. Pain is Temporary, Pride is Forever... Með bestu kveðjum frá Peking herbergi 103, Logi Geirsson. ![]() |
11.08.2008 |
| Don’t worry about the World ends today, its already tomorrow in China... |
|---|
| Ég veit nú ekki hvernig þessi fyrirsögn datt svona inn hjá mér en hún á vel við núna, fyrir ykkur heima á Íslandi. En nóg með það, í dag er Opnunarhátiðin og má segi að núna byrji þetta fyrir alvöru. Það er allt frekar rólegt í þorpinu og flestir að leggja lokahönd á undirbúninginn hjá sér áður en baráttan hefst. Eins og áður sagði er fyrsti leikur á sunnudaginn 10. kl. 10.45 á kínverskum tíma sem þýðir 02.45 hjá ykkur heima. Það er fín stemmning í hópnum og allir gerskir og hungraðir í að byrja þetta á fullu. Það er óhætt að segja að það sé allt til alls hérna í þorpinu og allir þessir sjálfboðaliðar eru sko sannarlega að standa sig. Það er einn að vökva blómin og fyrir aftan hann standa 3 að halda slöngunni!!!hehe svo er fólk sem vinnur bara við það að heilsa keppendum, köllum þau heilsarana en þau standa á öllum hornum og segja bara halló og brosa. Hérna á svæðinu er þvottahús,spilatækjasalur, nefkaffi, hárgreiðslustofur,verslunarmiðstöð, líkamsrækt, sundlaugar, dvd herbergi, relax herbergi og fleira svo eitthvað sé nefnt. Nú er maður bara að dæla í sig vítamínum, próteini og öllum þessum fæðubótarefnum sem hjálpa manni að meika hitann, æfingarnar og veruna hérna. Maður verður að vera fit þegar á hólminn er komið, það er bara þannig. Það er unaður að koma aðeins hérna inná herbergi hjá fararstjórunum þar sem er ískalt og gott og dreifa huganum og blogga aðeins heim. Annars er ég farinn að leggja mig en við erum vaktir kl. 06.30 á hverjum morgni núna til að verða morgunhressir. Líf og fjör og Markús á ég að taka M ið á opnunarhátíðinni? Heh , kv. L&I... Maður dagsins: Pabbi er að sjálfsögðu maður dagsins en hann átti afmæli í gær kallinn, hann er fæddur 1946 þannig að þið sjáið bara um að reikna það út hversu gamall hann er. Hann tók einmitt þátt á ólympíuleikunum í Munchen 1972, þannig að maður er að feta í fótsporin á kallinum. Brandari dagsins: Stulli samdi hann og ég vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða ekki? Hehe Stulli: Afhverju eru allir kínverjar svona pírðir um augun? Logi: Ekki hugmynd? Stulli: Það er svo erfitt að skíta “Hrísgrjónum” haha. Leiðrétting dagsins: Hann heitir Sverre Jakobson ekki sen. Sorry aftur ;) Lag dagsins: My hero með Foo Fighters og rétt á eftir því Bravó með Stjána Stuð ;) |
09.08.2008 |
| Maður á að skemmta sér meðan maður lifir... |
|---|
Okey kl. er 22.00 á miðvikudags kvöldi. Dagurinn í gær var með hefðbundnu sniði, tvær æfingar þar sem að sjálfsögðu var “tekið vel á því”. En það eru uppáhálds orð Gumma þessa dagana. Í dag tókum við síðan smá æfingaleik á móti Pólverjum sem á eflaust eftir að reynast okkur vel. Það var ekki talið þannig að það veit enginn hvernig hann fór enda var það kannski ekki aðalatriðið heldur að menn séu fit þegar flautað verður á sunnudaginn.![]() Síðan var verið að vígja allann íslenska hópinn inní þorpið í dag kl. 15.00 og þá var spilaður þjóðsöngurinn og fleira skemmtilegt. Flestir Íslendinganna eru mættir í þorpið ásamt fjölmiðlunum og að sjálfsöðu mætti Dolli Zomba kátur að venju með fríðu föruneyti. Annars er eitthvað lítið að ske, sumir nýttu seinni part dagsins í að fara að skoða Torg hins himneska friðar sem á víst að vera eitthvað svakalegt en ég og Bjarni Fritz ákváðum að fara frekar í GYMmmið og taka hressilega á því. Þar vorum við að lyfta með gæjum eins og Tyson Gay heimsmethafanum í 100 metra hlaupi og Ginobili körfuboltagæjanum í San Antonio Spurs og fleiri góðum. Sæææææææææææææææælllllllllllllllll núna voru NBA gæjarnir að koma hérna inn, Lebrown J James, Jason Kid og þeir allir og ég lét sjálfsögðu taka mynd af mér með þeim. Þeir voru bara að koma inn að kíkja á Íslensku dömurnar. ![]() Með bestu NBA kveðjum, L&I_23. Maður dagsins: Jón Ari Ólafsson Lag dagsins: Overcome með Live. |
06.08.2008 |
| Ferðalagið tók sinn toll og ég er mættur til Peking, China… |
|---|
Að ferðast til Kína er ekkert grín, við lögðum af stað úr Reykjavíkinni á laugardagsnóttunni og vorum við vel hvaddir af dyggum stuðningsmönnum landsliðsins. Þar ber hæst að nefna Sigga Pétur sem sendi okkur af stað vel innstilla, hann kann að motivera menn, kallinn hann má eiga það. Við flugum til 4 tíma flug til Munchen og biðum þar í 5 tíma eftir fluginu til Kína. Maður var orðinn vel spenntur að koma og sjá hvernig allt þetta væri en maður vissi líka að það væri erfitt 10 tíma flug yfir á hinn helming hnattarins. Brynjólfur læknir hjálpaði okkur með því að dæla í okkur svefnlyfum sem hefðu getað svæft “fílahjörð” og ég man ekkert eftir fluginu. Ég vaknaði bara við lendinguna og var að dreyma einhverja þvælu og vissi ekkert hvert ég væri kominn. ![]() Þegar í Ólympíuþorpið var komið og við að ganga inní íbúðirnar er fyrsti maðurinn sem ég sé Dirk Nowitzki NBA gæjinn en hann er hérna í næsta húsi eins og allir þjóðverjarnir. Ég á nú 3 þýska félaga úr Lemgo sem eru hérna í sömu húsaröð. Þetta er hrikalega flottur staður og allir sjálfboðaliðarnir sem eru hérna er með ólíkindum, 400.000 manns í sjálfboðastarfi, sææll. Ég er með Sverre Jakobsen í herbergi og er allur aðbúnaður er hér til fyrirmyndar. Fórum að borða áðan í risa stórum matsal þar sem að allt er að sjálfsögðu frítt, með Mc Donalds sem reyndar enginn nema Gunni Mac fer á nei ég meina Gunni Magg ;). Til þess að gera ykkur grein fyrir stærðinni geta 5000 manns borðað þarna inni í einu. Ég ætla nú samt ekki að segja frá öllu svona í fyrstu færslu. Ég er að fara að kaupa mér Cameru á morgun og taka video og myndir en strákarnir ætla að vera góðir við mig og lána mér nokkrar vel valdar með blogginu. ![]() Með spennandi Ól_kveðjum, L&I_23. p.s. í næstu færslu mun ég velja allt dagsins besta og læt þetta duga í dag. En spurning dagsins er engu að síður hver er með Bjögga á myndinni? |
04.08.2008 |
| Ólympíuleikarnir í Peking 2008... |
|---|
| Þá er það ljóst að líklega er ein merkasta stund mín sem íþróttamaður að verða að veruleika. 10.000 bestu íþróttamenn veraldar eru þarna saman komnir og pælið í því að það búa 6 miljarðar manns í heiminum. Að minnka þessa tölu 10.000 er undir manni sjálfum komið. Það er flug á sunnudaginn 3. ágúst, opnunarhátíðin er 8. og fyrsti leikurinn hefst þann 10. á móti Rússum. Undirbúningurinn hefur gengið vel og er 15 manna hópurinn er klár. Nú verður maður bara að taka gömlu góðu GÆS-ina á þetta, GET ÆTLA SKAL. Sumarið er annars búið að vera unaður út í gegn. Búinn að æfa eins og brjálaðingur og er þetta í fyrsta skipti í einhver 3 ár þar sem ég get tekið undirbúningstímabil á fullu meiðslalaus, það er í rauninni áfangi útaf fyrir sig fyrir mig hehe. Annars er ég búinn að nýta sumarið vel hérna heima enda ekki oft sem maður fær að vera heima á Íslandi 2 mánuði á ári en ég fór ferðaðist um landið, fór í útileigur, hélt frábært partý sem heppnaðist vonum framar, spilaði golf, reif í lóðin og náði að sinna fjölskyldunni vel svo fátt eitt sé nefnt. Ég er ekki búinn að hreyfa síðuna hátt í mánuð og ég er búinn að fá hótanir um líkamsmeiðingar ef ég fer ekki að blogga þannig að það var skemmtileg hótun ;) Alltaf gaman að sjá hvað maður hefur náð á 4 árum að fanga stóran hóp fólks sem hefur gaman af því lesa það sem maður hefur fram að færa, en að öðru. Það verður bannað að blogga úti á meðan Ólympíuleikunum stendur. Ég er engu að síður búinn að fá mann í minn stað sem mun halda úti síðunni minni og setja inn viðtöl og góðar færslur meðan á leikunum stendur. Svo ef eitthvað klikkar þá er maður líka með 3G símann sem er ekkert að fara að klikka á manni þannig að það er alltaf plan B líka. Það er er ekki annað hægt en að reyna að koma þessari lífsreynslu á síðuna og deila henni með ykkur. The same old popular “INSIDE STORY”. Svo að sjálfsögðu mun ég byrja sjálfur að blogga á fullu þegar maður mætir aftur ferskur og hungraður til Lemgo í lok mánaðarins. Gangi ykkur öllum vel því ég byrjaður að pakka og ætla að geta eitthvað í China, með bestu sumar-kveðjum, Logi Geirsson. Maður dagsins: Er að sjálfsögðu enginn annar en varnarbuffið Sverre Jakobsen. Ljóð dagsins: Meistari Jón Örn sendi mér ljóð. Nú skaltu hvílast Logi minn, og spara krafta þína. Svo þú komir sterkur inn, er keppir þú í kína! Straumar dagsins: Sendi ég til litlu Lúnu sem er að bíða eftir mér á hundahótelinu ;) Lag dagsins: Hljómsveitin mín BE-NOT erum að gefa frá okkur væntanlega nýjan sumarsmell sem ber titilinn “1one step away” so stay tuned... P.s við erum eiginlega að stæla Magga Pop með því að hafa titilinn á ensku og syngja á íslensku, þetta er glææænýr fídus ;) Myndir dagins: Það er hundleiðinlegt orðið að setja inn færslur án þess að rífa upp stemmninguna með nokkrum velvöldum myndum. Bráðum koma svo allar myndir meira og minna úr partýinu en hérna eru nokkrar þar sem fólk var að týnast inn og svo er highlightið þar sem BE NOT náðist loks á mynd, njótið vel. ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
01.08.2008 |
| Maður getur bara tekið út það sem maður hefur lagt inn... |
|---|
Jæja þá er maður búinn að vera á landinu í góðan tíma og eitt og annað ferskt búið að gerast. Ég ætla núna á næstu dögum að taka það saman og birta helling af myndum og stikkla á stóru. Þangað til þá lifið heil með frábærum kveðjum, L&I.![]() |
13.07.2008 |
| Þá er komið að því... |
|---|
| Ég er heima á íslandi og er allur að braggast. Byrjaður að taka vel á því og fer að verða fit fyrir undirbúning ólympíuleikanna sem hefjast í byrjun ágúst. Það er samt ekki ástæðan fyrir því að ég sé að skrifa einhverjar línur hérna. Nú er komið að því að partýið sé að fara að líta dagsins ljós. 20.júni á Rúbín. Kl. 21.00 opnar húsið. Fjótandi veigar í mínu boði, bæði áfengt og ekki. Hljómsveit og eflaust einhverjar skemmtilegar uppákomur. Aldurstakmark er 18 ára. Aðeins er hægt að komast inn með boðsmiða sem verður dreift út. * Einnig er hægt að nálgast þá hjá Árna Inga með því að senda honum línu á mailið sitt arniingi220@hotmail.com Markmið: Sjá hvort við Íslendingar getum ekki innleitt almennilega partýmenningu og skemmt okkur í hóp skemmilegs fólks. Ég er búinn að halda partý á hverju ári síðastliðin 5 ár og það verður engin breyting þar á. Gaman líka að geta fagnað því að við erum búnir að stimpla okkur inná Ólympíuleikana í sumar. Með bestu Partý kveðjum, L&I_23. ![]() |
13.06.2008 |
| Þá er það staðfest, ég er frá í 4 vikur... |
|---|
Eins og ég var búinn að skýra frá með höggið sem ég fékk á mjöðmina á fimmtudaginn fyrir ca. viku og hélt að ég myndi enda í hjólastól. Bólgurnar eru búnar að vera að minnka alla vikuna og rétt í þessu var ég að koma útúr rörinu þar sem ég fékk loksins svör hvað héldi fyrir mér vöku á nóttinni... ![]() Í mjög grófum dráttum þá er ég með rifinn magavöðva og mér var sagt að ég væri ekki að fara að hreyfa mig í 4 vikur. Maður hefur nú látið jákvæðnina skína í gegn í gegnum tíðina en núna er ég orðinn góður. Vildi bara deila þessu með ykkur og nenni ekki að tjá mig meira um þetta, annars líf og fjör. Með bestu Hawaii-kveðjum frá Lemgo. Mynd dagsins er ef nýja leiktækinu. ![]() |
16.05.2008 |
| Þegar ég lyfti Sigfúsi Sigurðssyni með 1 putta... |
|---|
Fyrirsögnin er eins sönn og hún kemur ykkur fyrir sjónir. Ég er að fara að setja inn svakalegt video núna innan skamms og þess vegna datt þetta inn hjá mér og mig langar að deila þessu með ykkur. Þetta var árið 2006 þegar við vorum í æfingabúðum í Magdeburg fyrir HM í þýskalandi. Ég veit að þið haldið að ég sé klikkaður þegar ég segi ykkur þetta en ég er eins eðlilegur og gerist og þetta er ekkert bull. ![]() Það er búin að vera mikil þróun á hugaræfingum innan íþróttaheimsins undanfarin ár. Því til stuðnings nefni ég þjóðverjana sem að hafa þurft að labba yfir “eld og glóð” berfættir án þess að það sjáist á þeim og allt er þetta úthugsað með hugarorkunni. Ungverjarnir sýndu framá hversu mikilvægt teamspirit er þegar að þeir leiddust allir í hring og svo lét þjálfarinn 1 hugsa endalaust neikvætt án þess að sýna svipbrygði. Sá neikvæði var fundinn í 90 % tilvika og þetta var í 14 manna kjarna. Ég hef einusinni prófað eitthvað í þessa áttina og var það frekar merkilegt: Við settum Sigfús í stól sem var svona týpískur hótelstóll og vorum við 4 saman. Þess ber að geta að Sigfús var svona 130 kg + á þeim tíma. Ég veit að þú ert bara “105” núna kallinn en þarna varstu virkilega FINE. Ég, Markús Máni, Ásgeir Örn og Hreiðar Guðmunds reyndum að lyfta honum upp og allir máttu bara nota vísifingur hægri handar. Stóllinn hreyfðist ekki, fór ekki 1cm frá jörðu. Síðan stóðum við þétt við hvorn annan og löggðum hendurnar 1-2 cm frá hvorum öðrum án þess að snertast og héldum hringnum í 2 mín ca. Síðan tókum við á kvikindinu og ég lýg því ekki ég lyfti honum í stólnum yfir öxl á einum helvítis putta. Ég leit undir stólinn til að athuga hvort þetta væri eitthvað grín? Það voru fjölmörg vitni af þessu, megnið af landsliðinu og svo af ógleymdri dömu á barnum sem var ekki alveg að kaupa þetta ;) Ég ætla að framkvæma þetta aftur núna með landsliðinu með sama kjarna og sýna ykkur þetta á video. Mér líður núna örugglega svipað og fólkinu sem segist sjá UFO. Gangi ykkur vel, Logi Geirsson. |
13.05.2008 |
| Hélt að ég myndi lenda í hjólastól... |
|---|
| Það var leikur í gær á móti Fuchse Berlín á þeirra heimavelli sem var vel sóttur með 5- 6000 manns. Fyrirsögnin er kannski einum of miklar ýkjur en deginum fyrir leikinn lenti ég í þvílíkt slæmu samstuði á æfingunni að ég hélt að ég hefði mjaðmargrindar brotnað. Lenti í samstuði við Kehrmann þar sem hann óvart stökk inn með hnéð á undan sér á fullri ferð beint inní mjöðmina og ég á ennþá erfitt með að ganga. Við vorum annars bara rétt í þessu að koma heim eftir 5 klukkustunda rútuferð þar sem að ég átti annars rjóma fínan dag í Pókernum og einhverjum tugum þúsunda ríkari. Meðan ég man þá töpuðum við leiknum sem var dapurt, 31-30 þar sem allt sauð uppúr í lokin. Annars vildi ég bara óska Óla Stef og Ciudad hjartanlega til hamingju með sigurinn og sérstaklega Óla fyrir 12 mörkin. Held að ég hafi verið eini í rútunni sem fagnaði Ciudad og hans stórleik. Við erum öruggir með að spila í EHF-CUP á næsta ári sökum þess að Nordhorn bar sigur úr býtum á móti FCK í gær. Þannig að markmiðum liðsins er náð og aðeins einn leikur eftir á laugardaginn næstkomandi á móti nýkrýndum EHF meisturum Nordhorn á þeirra heimavelli. Svo á sunnudaginn er kveðjuleikur fyrir Daniel Stephan sem er nú þegar orðið uppselt á. Óska ykkur alls hins besta og mér að sjálfsögðu líka, L&I_23. ![]() |
12.05.2008 |
| Eine Legende geht seinen Weg... |
|---|
| So, kaum zu glauben aber ich habe mich endlich wieder dazu entschieden etwas auf deutsch zu schreiben, aber dass hat auch einen besonderen Grund dieses mal. Ich möchte nämlich heute über Daniel Stephan schreiben, wie ja fast alle wissen beendet er ja leider bald seine aktive Karriere. Ich möchte am Aanfang starten, ich glaube ich war damals ca. 17 Jahre alt, da war Daniel schon einer der besten Spieler der Welt. Mein Bruder wohnte damals in Deutschland und hatte für mich einge Spiele auf Video aufgenommen und nach Island geschickt. Als ich diese Spiele gesehen habe, fand ich, dass er der beste Spieler auf dem Feld war. Damals habe ich mir eine TBV Lemgo Trikot gekauft - natürlich mit der Nummer 4, aber mit meinem Namen hinten drauf (in Island gab es sowas nicht). Im Internet fand ich seine Webseite und habe ihm eine Email geschrieben und ich weiß noch heute was da drinn stand: “Hi Daniel, mein Name ist Logi Geirsson und ich werde mit Dir zusammen in ein paar Jahren Handball spielen. Hast du vielleicht irgendwelche Tipps fur mich? Aber egal, ich kriege es selber hin ;) “ Ich habe nie eine Antwort von ihm bekommen! HAHA Und ein paar Jahre später ist es wahr geworden! Seit 2004 bin ich sein Mitspieler, sein Teamkollege und ich sag euch Eins: Er ist mit Abstand der beste Spieler mit dem ich in meiner Karriere je zusammen gespielt habe. Nicht nur als Spieler ist Daniel eine wahre Größe, sondern auch als Charakter ist er ein wahrer Typ. Es ist eigentlich traurig, dass er aufhören will! Für uns als Mannschaft wird es ohne ihn nicht leicht in der nächsten Saison – so wie ein Weihnachtsbaum ohne Schmuck! Aber zum Glück bleibt er uns im Verein als Sportlicher Leiter erhalten und kann uns mit seiner Erfahrung weiterhin helfen! Daniel, ich wünsche Dir alles Gute - durch Dich ist ein Teil meines Lebens wahr geworden: Du warst der Grund warum ich in Lemgo spielen wollte – jetzt freue ich mich auf Dein Abschiedsspiel. Logi Geirsson ![]() |
09.05.2008 |
| Sumarfríið mitt... |
|---|
| Nú er þessi skemmtilegi tími loks að bresta á þar sem maður fer að ákveða sig og panta sumarfríið. Ég er löngu búinn að ákveða mig hvert förinni er heitið en áður en ég kemst þangað þarf ég að fara þessa leið með landsliðinu. London – Spánn – Þýskaland – Pólland – Þýskaland – Makedónia – Ísland. Þetta eru viðkomustaðirnir frá 19.05 -15.06 takk fyrir. Svo þegar við höfum komist í gegnum þetta prógram tekur líklega annað eins við í júli sem endar með Ólympíuleikum í Peking. Þetta er eins og þið sjáið ekkert grín og næstum allt sumarið undirlagt í handbolta. Mér finnst fátt skemmtilegra en að spila handbolta en “Amen” fyrir G-14 samtökunum sem eru að berjast fyrir breyttu fyrirkomulagi. Annars ætla ég mér að fara til New York og Monaco, mér finnst ég eiga það skilið og þó það verði ekki nema í nokkra daga þá er mig strax farið að hlakka til. ![]() Strönd, Grill, Jey-ski, Golf, Skokka í sandinum, fara á flotta klúbba, Caprio og allur pakkinn. Kveðjur frá L&I_23 sem var að rústa öllum í strandblaki í gær ;) Maður dagsins: Michael Hegemann liðsfélagi minn sem er kominn í dúndur átak með mér. Heimasíða dagsins: www.progolf.is það verða allir að fara að drífa sig útá völl. Hint dagsins? Ég er hamingjusamur * 100 = Brian Tracy Þekkir þetta einhver Brandari dagsins: Hjón sátu og horfðu á sjónvarpið. Allt í einu sagði konan " Ég fer frá þér ef að þú hættir ekki að drekka!" Og maðurinn svarar : "skál ... Svona nákvæmlega lítur himininn út... ![]() |
07.05.2008 |
| Þeir kalla mig hvíta hákarlinn !!! |
|---|
| Gleðilegan þriðjudag gott fólk, gaman að vita að þið séuð enn og aftur mætt við tölvuna. Ég var í langan tíma ekki búinn að skoða aðsóknartölur en þær hafa farið ört vaxandni síðasta mánuð. Alltaf gaman að vita til þess að það gefa sér ca 1000 manns á hverjum einasta degi tíma til að lesa það sem ég skrifa, segir mér að ég sé að gera eitthvað rétt, vona ég. Ég hlustaði í gær á þáttinn Skjálfandi með Henry Birgi og fannst hann vægast sagt mega góður. Skil ekki afhverju er ekki löngu búið að setja manninn í útvarp. Kannski er ég extra sáttur því hann var jú að öllu leiti um handboltann og hvað má betur fara og ekki veitir af þeirru umræðu. “Respect” ![]() Hvað atvinnumennskuna varðar þá eru bara 2 vikur eftir og þá tekur landsliðið við eins og ég er búinn að koma að í svona ca síðustu 3 færslum en það er aukaatriði hehe. Mig er farið að hlakka svo hrikalega til að breyta um umhverfi, ekki að það sé leiðinlegt hérna en stundum þarf maður smá tilbreytingu. Fyrstu leikirnir okkar í undirbúningnum verða á Spáni nánar tiltekið Cordoba þann 24. og 25. þessa mánaðar. Fann hérna eina flotta mynd þaðan. ![]() Annars rólegur á veðrinu hérna félagi, þetta er bara búið að vera rugl. Maður vaknar í sól og sofnar í sól og ég er að vona að æfingin á eftir verði í rólegri kantinum útá fótboltavelli en þar er ég á heimavelli. Það er ósk dagsins og ég læt ykkur svo vita hvort hún hafi fengist uppfyllt en það er jú þannig að þetta fer að líða undir lok og þá er reynt að hafa svolítið gaman af þessu. Hefur allavega verið þannig síðstu 4 árin mín hérna. Með kveðjum frá Golfvellinum í Lage, L&I_23. |
06.05.2008 |
| Sigur, Sunnudagur og eintóm gleði... |
|---|
| Spiluðum í gær við Nettelsted í frekar þreyttum leik, unnum hann með 2 mörkum 33:31 (18:12) en þetta var síðasti heimaleikurinn okkar á tímabilinu. Ég spilaði bara fyrri hálfleikinn og var ekkert til að hrópa húrra fyrir skoraði samt 4/2 og 2 stig komu í hús, held að það hafi verið eina sem skipti okkur máli. Birkir og Þórir komu ekkert við sögu hjá þeim en þeir eru að öllum líkindum að fara að falla niður um deild. Það eru aðeins 2 leikir eftir í deildinni svo staðan er farin að skýrast á öllum stöðum í töflunni. Kiel verður meistari, það er svona 95% líkur á því að þeir klári það því Flensburg tókst að klúðra dæminu á móti Magdeburg í gær og Kiel eru nú ekki vanir að misstíga sig þegar mest á reynir. Nú eru aðeins 2 leikir eftir í deildinni á móti Berlin og svo Nordhorn og þá getur maður kúpplað sig útúr þessu umhverfi en það er kominn tími til þetta er búið að vera þétt tímabil. Það lítur út fyrir að við munum enda í 6 sæti eins og við höfðum ætlað okkur að ná fyrir tímabilið og þ.a.l spila í EHF-CUP á næsta tímabili. ![]() Ég var í dag í góða veðrinu í Bad Salzuflen hjá vini mínum sem á veitingastað þar og settist í 30 mín fyrir framan þennan vegg sem myndin er af en það er ótrúleg virkni af þessu. Þetta er sjávarþang og það er svo ferskt loft ca. 10 metra frá þessu að manni líður eins og maður hafi verið einhverstaðar í öðrum heimi. ![]() Þetta er oft skemmtilegasti tími ársins þegar sumarið kemur og maður getur setið útá svölum, grilla og hanga í tölvunni í sólinni. Ég er einmitt nákvæmlega að því núna... Ferskar nautalundir eru tilbúnar eftir 5 mín og sólin er að steikja mig núna. Íslendingur dagsins: Rósa Þórðar Lag dagsins: The Positiv Song, með Flame. Spakmæli dagsins: Life on the planet is born of woman. |
04.05.2008 |
| Ég er alltaf að sjá meira og meira hvernig maður á að fara að... |
|---|
Það er leikur á morgun kl. 15.00 móti Nettelsted hérna í hraðlestrar höllinni okkar í Lemgo. Við erum búnir að vera á frekar massívu róli að undanförnu og ætlum okkur ekkert annað en sigur í síðasta heimaleiknum okkar á þessu tímabili. Eins og ég hef áður sagt þá eru þjóðverjar eins og fílarnir og gleyma aldrei þannig að þessi leikur verður í hausnum á þeim fram á fyrsta leik á næsta tímabili svo það er eins gott að geta eitthvað ;).![]() Ég er búinn að ná að jafna mig líka svona svakalega vel og þá aðallega með hjálp Ulriks Conrady. Hann er gæjinn sem er með Handbolta og Fótboltalandslið Þjóðverja, lætur okkur hlusta á músik til að róa heilann og fleira í þá áttina. Svo eru þetta einhverjar blessaðar náttúrulækningar sem hafa bara verið að gera mér gott. Ég var búinn að minnast aðeins á hann hérna áður og ég mun koma bráðlega með smá texta tileinkaðan honum en hann lítur svona út. ![]() Svo er ég búinn að vera að vinna í gelinu og heimasíðunni eins og brjálaðingur og ég get sagt ykkur að þetta er ekkert grín að setja svona online “WebShop” gott fólk svo þið verið að vera þolinmóð. Gamla góða spakmælið, “góðir hlutir gerast hægt”. Þið getið samt gengið útfrá því að ég ætla að halda hrikalega feitt partý í sumar sem toppar væntanlega allt sem ég hef gert hingað til en maður er að reyna að láta þetta allt smella saman með landsliðinu en það er kapítuli útaf fyrir sig. Verður klassa gaman að fara að ferðast með 20 íslendingum útum alla Evrópu og verða landi og þjóð til sóma. ![]() Þetta lag minnir víst alveg svakalega mikið á mig hef ég fengið að heyra: Eruð þið sammála? Annars er mig farið að hlakka hrikalega að fara að koma heim til fjölskyldu og vina og fá að upplifa smá íslenskt sumar. Með 20 gráðu kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Click 4 You Tube Video Heimasíða dagsins: www.body.is |
02.05.2008 |
| Maður þarf alltaf að vera á tánum... |
|---|
Við vorum að spila við Hamburg núna á sunnudaginn sem endaði jafntefli 30-30 og var þetta hörku spennandi leikur framá lokasekúndurnar. Ég varð fyrir því óláni að eftir 2 mínútur af leiknum fékk ég svona líka svakalegt högg á hnéð að ég gat bara ekki gengið sársaukalaus. Ég skoraði bara 2 mörk og voru þau bæði af vítalínunni. Hrikalega leiðinlegt að skora ekki meira en leikurinn var á heimavelli okkar fyrir framan 12.000 manns og hefur stemmningin sjaldan eða aldrei verið jafn góð. Næsti leikur er á móti Birki Ívari, Þóri Ólafs og félögum í Nettelsted á laugardaginn kl. 15.00. Ætla rétt að vona að með hjálp sjúkraþjálfara nái ég fullum bata og geti tekið þátt í leiknum af krafti.![]() Ég verð nú samt að gefa Jóni Karli hrós vikunnar fyrir þetta mark á móti Aftureldingu en þetta var einum of svalt. Ég ætla samt að reyna að toppa þetta því er ég líka búinn að æfa smá trix og það er spurning hvort Birkir Ívar þurfi að spreyta sig á því. Annars er lífið hjá mér búið að einkennast af hollu matarræði og ykkur til gamans ætla ég að setja inn hvernig síðasta vika hjá mér byrjaði og hverju ég hef verið að troða í mig: Mánudagur 21. apríl 2008 2 samlokur með kjöti og spægipylsu. Kjúklinga salat, cesars salat í hádeginu. Banani og hálfur kexpakki fyrir æfingu. “Æfing hjá Lemgo 2 tímar” Kolvetnis og vítamín drykkur strax eftir æfingu 2 feitar kjúklingabringur með osti skinku og spínati ofaná með rjómasósu og hrísgrjónum Ps. Er að taka pensilín og hóstaleysandi sökum veikinda síðustu 10 daga. Þriðjudagur 22. apríl 2008 2 hrá egg úr glasi, Kíwí og lítil jógúrt dós. 2 kjúklingabringur með hrísgrjónum “Lyftingaæfingin” Próteindrykkur “Handboltaæfing” Prótein drykkur og vítamín + 2 kíwí 300gr. Nautasteik með kartöflum engin sósa. Ps. Hættur á lyfjunum og byrjaður að opna skápinn með glutamíninu og fæðubótarefnunum. Miðvikudagur 23.apríl 2008 1 hrátt egg, Kíwí, og jógúrt + poppkex “Easy Fit æfing, keyrsla + 35 mín brennsla” Prótein með Haframjöl (kolvetni) Heilan grillaðan fisk með salati og vítamíndrykk. Hálfan grillaðan kjúkling “Handboltaæfing” Kjúklingabringur með hrísgrjónum og smá salat. Ps. Drekk vatn eða vínberjasafa með öllum mat. Annars er lífið Beautiful eins og þessi hérna gæji... Líf og Fjör. |
29.04.2008 |
| Er hægt að toppa þennan gæja? |
|---|
| Þið verðið að hækka í hátölurunum... Nú er hádegi og ég er að reyna að setja inn þessa mynd í gegnum Iphone já vini mínum á Vesuvio. Vonandi birtist myndin ;) ![]() Annars er bara dúndur veður hérna hjá mér, ca. 20 gráður og sól. Ég er að fara að detta inn í sjúkraþjálfun og svo sitja fyrir á einhverjum auglýsingabækling fyrir „Erima“ sem verður nýja merki Lemgo næstu 3 árin eða svo en hingað til höfum við verið í Hummel. Næsti leikur er á móti Hamburg á sunnudaginn í Gerry Weber höllinni í Bielefeld fyrir framan 11.000 áhorfendur sem er alltaf gaman. Svo er maður í óða önn að reyna að púsla öllum hinum hlutunum saman sem maður er að keppast við. Góðir hlutir gerast hægt en það er líka hægt að gera þá hratt. Ég bið annars bara að heilsa ykkur til yndislega Íslands sem fer að styttast í að maður komi til, með ódrepandi-kveðjum, L&I_23. Maður dagsins: Mimi Kraus sem spilar með mér, Mimi-Kraus.de Heimasíða dagsins: Angies-Photos.de Hérna getið þið fundið allar nýjustu myndirnar úr leikjunum okkar. Brandari dagsins: Af hverju gat Pappírs Pési ekki tekið armbeygjur...? Af því að hann var með pappakassa.. HAHAHA Spakmæli dagsins: For my special one. In three words I can sum up everything I've learned about life: it goes on. |
22.04.2008 |
| Fæ bara aldrei nóg... |
|---|
| Manni líður bara eins og maður sé búinn að vera að svelta síðuna eftir kraftinn sem maður setti í færslunar í byrjun mánaðarins. Það er nú reyndar alveg hellingur af nýjum hlutum alltaf að gerast og ef það er lítið um það þá finnur maður sér eitthvað að gera. Þannig er lífið hjá mér, var að vakna á góðum sunnudagsmorgni eftir 4 tíma rútuferð frá Kiel í gær. Töpuðum 32-27 sem segir ekki neitt því við hefðum getað unnið þennan leik ef 2 góð lið hefðu bara fengið að spila leikinn, þetta var met dómgæsla. Ég var markahæstur hjá okkur með 6/2 og var allt í lagi hefði samt viljað taka meiri ábyrgð en það er nú þannig að þegar maður spilar í þessu blessaða horni þarf maður að vera óþarflega mikið háður skyttunni. Spilaði 50 mín ca og er sífellt að komast í betra form en álagið er aldrei eins mikið og í nákvæmlega þessum mánuði. Svo spiluðum við á miðvikudaginn síðasta á móti Tussem Essen og hreinlega völtuðum við yfir þá ég spilaði fyrri hálfleikinn og skoraði 5/2 en það er snilld að geta loksins farið að taka þessi víti. Leikurinn endaði með einhverjum 15 mörkum og nenni ekki einusinni að fletta því upp hvernig hann endaði í tölum. Annars erum við Lúna mega hress, fór með hana í venjulega gönutúrinn hérna í götunni. Ég er ekki frá því að fólkinu hérna í götunni finnist ég latasti gæji í heiminum vegna þess að ég keyri alltaf á vezpunni við hliðina á henni og læt hana hlaupa. Maður er að verða of gamall fyrir þessa göngutúra á hverjum morgni fyrir allar aldir. Svo enda ég á smá af dagsins besta með bestu heilsu-kveðjum, L&I_23. ![]() Spakmæli dagsins: Never tell your problems to anyone...20% don't care and the other 80% are glad you have them. Brandari dagsins: Mjög hávær, óaðlaðandi (ljót og feit) og hreinlega brussuleg kona kom inn í Hagkaup einn daginn með börnin sín tvö, dró þau sitt í hvorri hönd, skammaðist í þeim og var hin versta um leið og hún gekk inn ganginn. Strákur í kerrunum sá hana og heilsaði: "Góðan daginn frú og velkomin í Hagkaup. En yndisleg börn sem þú átt. Eru þetta tvíburar?" Forljóta konan hætti að öskra á börnin og sagði við strákinn: " Held nú síður. Sá eldri er 9 ára og hitt er að verða 7. Hvers vegna í fjandanum heldurðu það. Ertu blindur eða bara svona heimskur!?" "Ég er nú hvorugt, frú mín." Segir strákurinn. " Ég get bara ekki ímyndað mér að þú hafir fengið að sofa hjá tvisvar!! Hafðu það gott í dag og takk fyrir að versla í Hagkaup" |
20.04.2008 |
| Úr heimi þýska handboltans... |
|---|
| Það hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum að Kiel og Flensburg eru enn eitt tímabilið að berjast sín á milli um titilinn en eina liðið sem ætti séns á því að ógna þeim í ár eru Hamburg. Þessi 3 lið hafa einfaldlega stungið af en það má segja að harðar keppnir eru milli liða í efri hlutanum um að spila í evrópukeppnunum á næsta tímabili en efstu 6 liðin tryggja sér sér keppnisrétt til þess. Þau 4 efstu spila í Championsleague og 2 næstu í evrópukeppni bikarhafa. Ekki má gleyma því að baráttan á botninum er ekki sú auðveldasta en þar eru 4 lið sem eru í bullandi fallbaráttu, Lübbecke, Tussem Essen, Minden og Wilhelmshaven. Þegar þetta er skrifað þá eru ennþá 7 umferðir óleiknar þannig að ennþá getur mikið breyst og alltaf er von á einhverju óvæntu. Deildin í ár hefur engu að síður aldrei verið jafn góð og jöfn en það má kannski segja að síðustu ár hafi vinsældir handboltans farið gífurlega vaxandi og þá helst sökum þess að Þjóðverjar urðu heimsmeistarar 2007 eða fyrir rúmlega 1 ári hérna í sínu heimalandi. Þess er líka rétt að geta að peningunum hefur einfaldlega rignt inn í deildina og verður því umgjörðin og gæðin á allri hreyfingunni flottari og ég held persónulega að fólk geri sér ekki grein fyrir því hvað þetta er allt orðið professional og flott hérna enda er sterkasta deild í heimi keyrð hér. Í framhaldi af því er kannski rétt að geta þeirra upphæða sem eru að eiga sér stað á félagaskiptamarkaðnum. Dýrustu kaup Bundesligunnar frá upphafi eru að eiga sér milli Lemgo og Göppingen en þeir síðarnefndu vilja fá 1.000.000. evra fyrir markvörðinn þeirra Martin Galia sem gera 120 milljónir íslenskra króna. Hann hefur verið síðustu ár einn af bestu markvörðum deildarinnar og spilar fyrir landslið Tékka. Hann hefur til að mynda komist að samkomulagi persónulega í samningum við Lemgo en félögin þurfa að útkljá sín mál óháð leikmanninum. Til samanburðar peningalega fékk Lemgo í fyrra 500.000 evrur fyrir Filip Jicha þegar hann gekk til liðs við Kiel. Guðjón Valur lenti í svipuðu og þessir leikmenn að vera keyptur útúr samning en það er að aukast mikið og eins Blazenko Laskovic leikmaður Flensburgar sem einnig samdi fyrirfram. Eftir að forseti Hamburgar kynnti Blazenko sem leikmann þeirra tímabilið 2009 eftir sigurleik á móti einmitt Flensburg sauð allt uppúr og hefur verið mikið rætt um kaup á samningsbundnum leikmönnum, kannski gildi samnings sé að minnka að einhverju leiti? Mikið hefur verið rætt um þetta að undanförnu og menn hafa verið að tala um að setja þurfi reglur um það strax hvort aðeins megi semja innan ákveðinna tímamarka eins og tíðkast í mörgum öðrum íþróttagreinum. Ekki eru allir sammála en þetta mun koma í ljós innan skamms og þá verðum við með það á hreinu enda eru 2 hliðar á þessu máli. Þetta var það sem ég vildi helst koma frá mér í dag en í næsta pistli verður af nógu að taka og svei mér þá ef ekki eitthvað krassandi fái að líta dagsins ljós en þangað til þá, bestu kveðjur frá hjarta þýskalands, Lemgo. Logi Geirsson. |
18.04.2008 |
| Þú færð það sem þú átt skilið !!! |
|---|
| Annars er ég með smá video af Ferrari-inum... Mamma má ekki sjá meira en þetta ;) Það er leikur á morgun hjá okkur á móti Tussem Essen þar sem við ætlum okkur að sjálfsögðu að taka 2 stig og halda okkur í baráttunni um Evrópusæti á næsta ári. Annars þá ætlaði ég að segja ykkur frá því að “L&I Gelið” er tilbúið takk fyrir og góða nótt, þar sem það tekur því ekki að markaðsetja það á íslandi strax ætla ég að fara aðrar leiðir í því ;) sem koma í ljós. Kemur upp ný heimasíða þar sem hægt er að panta það og viku seinna er það komið á baðherbergið hjá ykkur og þið aldrei verið flottari ;) Ég er orðinn of seinn á æfingu en ég er með handboltann í fyrsta sæti núna, bestu Ferrari kveðjur frá Lemgo, L&I_23. |
15.04.2008 |
| Sigurleikur!!! Markahæstur með 8/2 og fréttirnar koma inn á mánudaginn... |
|---|
| Ég er ánægður núna skal ég segja ykkur, vorum að koma heim úr rútunni eftir 7 tíma rútuferð frá Balingen og klukkan er núna 03.47. Við spiluðum við þá í dag og unnum góðan sigur 30:26 (14:14). Þeir eru gífurlega erfiðir heim að sækja en við áttum gífurlega sterkan leik en þeir hafa komið hvað mest á óvart í deildinni í ár. Ég spilaði allan leikinn og átti einn minn besta leik í vörn og sókn og skoraði 8/2. Mikilvægt að hafa náð að stimpla sig vel inn eftir veikindin. Annars er ég farinn í háttinn og vildi líka minna ykkur á að ég þarf að skreppa frá á morgun þannig að færslan sem ég var búinn að lofa kemur á mánudaginn. Meira var það ekki, með bestu kveðjum frá Lemgo, L&I_23. ![]() Hrós Dagsins: Hinn litríki Hlynur Sigmars sem er að gera flotta hluti með heimaíðuna sína. Heimasíða dagsins: Handbolti.is Hljómsveit dagsins: Weezer Lokaorð dagsins: Velheppnaður dagur endar í notalegum svefni. |
13.04.2008 |
| Nú eru komnar fréttir í hús skal ég segja þér... |
|---|
Get rétt ímyndað mér hvað það er þreytt að hafa svona fyrirsögn en svo kemur ekkert merkilegt. Ég er nefnilega þannig staddur núna að ég get ekki sagt allt það létta. Við erum að fara að spila á móti Balingen á morgun og ég er búinn að ná mér hrikalega á skrið aftur eftir veikindin. Ég tók mynd útum gluggann í morgun og þá leit veðrið svona út !!!![]() Svo í gær grillaði ég fyrir nokkra gæja úr liðinu, Mimi Kraus, Lasse Boesen og Tamas Mocshai í gærkvöldi og horfðum við á Barca í CL, en ég spilaði á móti öllum þeirra á EM í Noregi en enginn af okkur fyrir sama landið. ![]() Líf og fjör og ég ætla að koma með sláandi fréttir á sunnudaginn en það er kannski það sem margir hafa verið að bíða eftir í svolítinn tíma. Með hollum matarræðis-kveðjum frá hjarta þýskalands, L&I_23. Maður dagsins: Það er hún Nína systir mín fyrir að vera snillingur. Lag dagsins: Delibes-Lakme Trademark dagsins: LG CL |
10.04.2008 |
| Þú verður að fylgja þinni sannfæringu eftir, þá ertu á grænni grein... |
|---|
Ég er nú ekki vanur að birta einhvern svona póst sem gengur á milli fólks á netinu en góð vinkona mín vildi endilega koma þessum texta hér á framfæri og að sjálfsögðu fær það sitt pláss hér á síðunni. Dæmisaga dagsins, gjörið svo vel. Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað. Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli. Síðan bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað. Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað. Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu máli. Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur. Lífið hélt áfram. Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað að vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn hafði fengið honum fyrir mörgum árum. "Þakka þér fyrir að gera þetta,því eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli" sagði móðir Magnúsar. Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af Því sem þeim þótti hvað vænst um. Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með þessu uppátæki. Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að lífið endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður. Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu þér mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en það verður of seint. Hver kannst ekki við það að horfa á bíómynd eða sökkva sér í góða bók og verða svolítið snertur af henni, það gerðist þegar ég horfði á Click myndina með Adam Sandler. Ég er með vitni af því ;) Annars bara líf og fjör og takið á þessu, kveðjur, Logi Geirsson. Menn dagsins: Jóhann Hjaltason og Ólafur Már Lag dagsins: Sweet child in time, með Deep Purple Spakmæli dagsins: Þjóðverjarnir segja þetta alltaf, ”Það kemur ekkert frá engu” |
08.04.2008 |
| Ljúfur dagur sem býður uppá allt það besta, verði ykkur af góðu!!! |
|---|
| Þetta skapandi andrúmsloft er ekkert að yfirgefa mig, kannski vegna þess að ég er búinn að drekka svona 10 red bull í dag. Allur að koma til og fer á æfingu á morgun en næsti leikur er á móti Balingen á laugardaginn næstkomandi. Þar verð ég væntanlega í banastuði en ég er farinn að sakna þess að fá hrós fyrir það að setja inn færslur alla daga síðustu viku!!! Þið hefðuð nú ekki mikið að gera í vinnunni ef ég væri ekki svona aktívur, ha! ;) Þetta er tímamóta færsla því það verður endalaust mikið af dagsins besta því það er ávalt gaman að lesa það. Gangi ykkur vel gott fólk, og mig dreymdi spakmæli sem er einum of gott og kemur í næstu færslu. Dvd dagsins: Rush Hour 3 “ShiiiiiiiiT” hvað hún er fyndin. Lag dagsins: Alan Jackson með Small town Southern Man Maður dagsins: Vinur minn Bennó fær þann heiður með þeirri von að ég fá markafisk aftur ;) Spakmæli dagsins: “I love the word 'luna'. I know it's a girl's name - so maybe for the next baby” Victoria Becks Sala dagsins: 1 fínn bíll. Drykkur dagsins: Red Bull en ég fékk um daginn gefins nokkra kassa af þessu og hann venst vel. Gleði dagsins: Að ég sé smá saman að skríða saman eftir flensuna. Spurning dagsins: Af hverju snýr tunglið alltaf sömu hlið að okkur? Staður dagsins: Hafnarfjörður 220, ég er stoltur gaflari. Speki dagsins: Það skiptir ekki máli á hvaða sviði, haltu bara áfram að vinna að þinni persónulegu byltingu til að umbreyta og bæta sjálfa þig á þann hátt sem er þér eðlilegastur.Það mikilvæga er að þú breytist á jákvæðan hátt. Það er sannarlega ekkert betra en líf þar sem maður skrifar sína eigin einstöku sögu um manneskju byltingu á hverjum degi. Brandari dagsins: Gunni Magg klikkar ekki, þessi liður væri dauður ef ekki væri fyrir hans góða húmor og lítið að gera í vinnunni... Þessi er samt einum of góður. Kona nokkur var að versla í Bónus-verslun í hverfinu. Hún var búin að setja 3 lítra af létt mjólk í körfuna ásamt 1 eggjabakka með 10 eggjum, 1/2 lítra af appelsínusafa, 1 höfuð kínakál, kaffipakka og bréfi af beikoni. Ölvaður maður fyrir aftan hana í röðinni fylgdist með þegar hún raðaði þessum hlutum á færibandið við kassann. Þegar kassadaman tók til að lesa strikamerkin inn sagði drukkni maðurinn hæglátlega: "Þú ert örugglega einhleyp"! Konunni gramdist þessi ummæli drukkna mannsins en jafnframt fannst henni athugasemdin skondin þar sem það var vissulega rétt, hún var einhleyp. Hún virti fyrir sér þessa sex hluti á bandinu og furðaði sig á hvernig í ósköpunum hann gæti komið með svona fullyrðingu af þessum ósköp venjulegu innkaupum. Forvitnin varð henni um megn svo hún sagði: " Þetta er vissulega hárrétt hjá þér. Hvernig í ósköpunum geturðu séð það??" . . . Drukkni maðurinn svaraði: " Af því að þú ert ljót!" ![]() |
07.04.2008 |
| Allur að koma til og ég er búinn að koma mér í einhverskonar óútskýranlegt hugarfar!!! |
|---|
| Fyrsta lagi ætla ég að segja ykkur frá því að heilinn í mér hefur aldrei nokkurntíma verið jafn frjór og nákvæmlega núna. Ég er að fá endalaust af hugmyndum og er búinn að skrifa þær allar niður og er meira að segja byrjaður að vinna í þeim en þetta eru engar smá hugmyndir skal ég segja ykkur. Kannski er þetta þessi músik meðferð sem við erum nokkrir í að virka svona svakalega en ég er er ekki enn sure. Hef meiri trú á því að staða himintunglanna sé þannig skipuð að ég allt er skapandi. Allavega er ég jákvætt hlaðinn eins og nýtt fullt Battery. Handboltinn segiði já, það er leikur á morgun á móti Gummersbach en ég get ekki verið með því miður. Ég er enn að taka pensilín og einhverjar aðrar jurtir frá þessum gæja sem er með okkur í náttúrulækningunum ;) hljómar eflaust skrýtið en staðreynd. Lemgo eru orðnir svo nýjungagjarnir að það nær engum áttum hvað við erum látnir prófa allt. Ég sagði ykkur minnir mig frá því þegar ég var látinn fara í fótabað sem hreinsar alla drullu úr líkamanum og vatnið varð svart og það er ekkert grín... Kannski besta nýjungin er að við vorum að fá einkaþjálfara frömuð frá Bandaríkjunum sem hefur verið að vinna með Klinsmann með þýska fótboltalandsliðinu, hann sér um fitness og matarræði. Gaman að geta spreytt sig aðeins í enskunni á honum en kannski enn betra að fá hjá honum góð ráð uppá veðmálið sem ég og Hannes Jón gerðum á Íslandi fyrir 2 vikum. Þannig að Hannes þú getur bara gleymt þessu, og farið í borgarana. Eina sem annars gæti reddað þér væri að hafa sambandi við Gillz en hann er skilst mér eini á landinu sem ætti að geta gefið þér ”tips!” í líkingu við það sem ég hef fengið. ![]() Annars ætla ég bara að setja myndir af 3 vinum mínum hérna í lokin og sleppa öllu besta dagsins. Samt ætla ég að minna á það að snillingurinn Björk FHingur á afmæli ídag. Ætla að taka í gítarinn og slurka í mig nokkrum vel völdum heilsutöflum, með secret kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Ég sakna þessa ykkar beggja, sérstaklega þér Svessi, hvar hefuru verið: ![]() Þessi maður er sá svalasti í Lemgo: (Giuseppe Cannetti) ![]() |
04.04.2008 |
| Þegar gott verður bara betra? |
|---|
| Heil og sæl. Aron Pálmarsson heiti ég og fæ þann gríðarlega heiður að vera ”Gestabloggari” á minni uppáhalds síðu og einni af umtöluðustu bloggsíðu Íslands. Í þessari færlsu ætla ég að segja frá því þegar ég var í Lemgo hjá Loga dagana 23-28 mars. Þetta byrjaði allt á því að ég hitti Loga á flugvellinum í Frankfurt um hádegisbilið, ég að koma úr keppnisferð með u-20 landsliðinu og Logi að koma frá Íslandi úr æfingaprogrami með A landsliðinu. Það var hrikalega gaman að sjá gæjann þvílikt ferskan eftir greinilega rólega og afslappandi íslandsferð! Það var heldur ekki leiðinlegt að geta sagt að ég verði eftir með Loga Geirs á meðan allir aðrir væru bara niðurlútir á heimleið til Íslands í 20 ára liðinu ef að við duttum út. Ég fékk mér sveittann MC-donalds meðan Logi fór á Salat barinn og héldum við svo beinustu leið niður í bílageymsluna þar sem beið eftir okkur Audi, ekki leiðinlegt það. 3 tíma keyrsla var framundan og yfirleitt eru svona langar bílferðir leiðinlegar en það sem gerði hana svo góða voru rugl góðar græjur og líka tilhlökkunin í að fara að ná í Lúnu litlu. Ég vissi ekki hvað var að gerast þegar Lúna sá Loga sinn labba inná hundahótelið, hún var eins hauslaus hæna hlaupandi um allt, grátandi, geltandi, froðufellandi og ráðast á hann þess á milli! Þvílikt tilfinningastríð ríkti þar, vægast sagt mjög fyndið. Því er kannski við að bæta að þessi hundur er eitthvað það krúttlegasta dýr sem ég hef á ævinni séð. ![]() Þegar ég kom til Loga í heimsókn fyrir 3 árum þá er óhætt að segja að ég hafi orðið fyrir smá áfalli. Íbúðin var jafn stór og herbergið mitt á íslandi, engar svalir, enginn garður, sjónvarp í stofunni sem var jafn stórt og við notum í eldhúsinu heima hjá okkur. 1 stóll í allri íbúðinni, þetta var kannski ekki alveg lúxusinn sem maður hefði gert sér upp í huganum en reyndar var Benz í hlaðinu. Nú er hinsvegar allt annað að sjá þig vinur minn ;) En að sögunni aftur... ![]() Um kvöldið fórum við Logi aðeins út að skemmta okkur, áttum það nú alveg skilið. Byrjuðum bara heima með góða tónlist, horfðum á TV og rugluðum aðeins í tölvunni. Enduðum svo á diskó sem var ágætt. Daginn eftir var bara tekið því rólega í 200 fm húsinu hans, með 2 borðtölvur og eina PS2, 42’ TV, Audi og BMW og massa netta Vezpu í hlaðinu, svalir sem eru stærri en gatan sem ég bý í og bókstaflega bara allt til alls!!! Það er greinilegt að þú hefur bætt þig á þessum árum þarna í Lemgo, svona ef maður miðar við húsnæði ![]() Við borðuðum á steikhúsum þarna öll kvöld, fórum í bakaríið og keypum líka þessi þvílíku bakkelsi á morgnana og ég veit ekki hvað og hvað. Hann lánaði mér meira að segja báða bílana sem verður nú að teljast gott traust og vezpuna að sjálfsögðu. Næst þegar þú kemur til Íslands máttu fá Yarisinn…. En þetta “Líf” einmitt það sem maður er að stefna á og styttist óðfluga í finnst mér persónulega ;). Síðan byrjuðu æfingarnar, ég s.s. var á reynslu hjá liðinu hans Loga þarna á meðan ég var í heimsókna hjá honum. Ég æfði með aðalliðinu einhverjar 4 æfingar og gekk bara svona helviti vel. Maður átti alveg í fullu tréi við þessa gæja fannst mér og náði maður að sýna sig vel þarna. Þeir voru eftir æfingarnar mjög sáttir og langar að setja mig í framtíðarplönin hjá sér enda er ég líka ekki alveg klár í að fara út núna í sumar aðeins 18 ára og með enga reynslu í efstu deild sem verður þvílikt sterk á næsta tímabili. Þannig að ég er búinn að gera upp hug minn um að vera heima um sinn því ég vill líka fara út til að spila ekki sem einhver varamaður! Þeir sögðust nú samt ætla að fylgjast með manni á Íslandi og erlends með landsliðinum. Þannig að það er nægur tími og spenndandi tímar líka framundan með FH sem ég vil alls ekki missa af. Það var síðan ekkert úr þessari Wetzlar ferð sem átti að vera. Volker Mudrow þjálfari Wetzlar vildi ólmur fá mig en ég bara nennti ekki að vera að eyða heilum degi í að keyra í 6 tíma til að æfa eina æfingu. Þá vildi ég frekar fara bara á aðra æfingu með Lemgo og vera með Geirssyni! En þá langar víst að bjóða mér út seinna og þá í viku, alvöru æfingaferð. Logi hefur sagt að hann sé frábær þjálfari og góður Charakter sem gerir þetta auðvita spennandi. Líst vel á það enda ekki annað hægt, maður verður að fá að fíla umhverfið og allt í kringum þetta, eins og Logi hefur stundum sagt hérna á síðunni, “Góðir Hlutir Gerast Hægt”. ![]() Þessi ferð verður lengi í minnum höfð og frábær reynsla fyrir mig sem leikmann og persónu og bara þúsund þakkir. Logi þú sannar það enn og aftur að þú mesti fagmaður sem til er. Að leyfa mér að koma og búa hjá þér og halda mér bókstaflega uppi ALLAN tímann. Þvílik gestristni sem maður fékk, enda ekkert mál fyrir mann eins og hann... Bestur í liðinu ( í dag) sem ég verð að viðurkenna að ég vissi það ekki hvað hann væri mikill kóngur hérna, allir þekkja hann í bænum og öll veitingahúsin t.d. keppast um að fá hann til sín að borða. Ég vissi ekki að gæjinn sem ég var að leika mér með á malarvellinum fyrir aftan víðistaðarskóla fyrir nokkrum árum væri orðin svona BIG en það er greinilegt að íþróttamenn hérna eru fyrirmyndir, það er víst straðreyndin. Þess vegna vil ég bara þakka Loga fyrir frábæran tíma og vonandi að við spilum saman á komandi árum ;) Að lokum mynd sem mér finnst lýsa þér hvað best, ekkert er ómögulegt, svo skoraðiru... ![]() Með Atvinnumanna kveðjum, Aron Pálmarsson |
03.04.2008 |
| Þegar einfaldlega allt verður brjálað... |
|---|
Ég get einfaldlega ekki beðið lengur með að segja að sjálfsögðu hafi ég tekið þátt í 1. apríl gabbinu. Eftir færsluna í gær hefur síminn verið rauðglóandi og e-mailunum einfaldlega rignt yfir mig, það er kannski líka best að ég segi að það er engu að síður smá sannleikur í þessu en ég skil ykkur bara eftir í þeirri spurningu ?![]() Það er greinilegt að síðan er grandskoðuð og ekki bara af Íslendingum því Þjóðverjarnir eru búnir að senda færsluna á þýðingarvef þar sem þeir fá þetta beint í æð og það er að rigna yfir mann commentum ;) Þrátt fyrir að 1.apríl sé nú líka smá spaugdagur hérna þá taka þeir ekki svona gríni haha. Hafið þið annars fundið einhvern Þjóðverja með kímnigáfu? Ætli það líði klukkutími áður en að ég fæ comment á þetta frá þeim, hehe. “No Gutts No Glory” Annars er veðrið nú töluvert að batna og hefur það farið yfir og verið um 20 gráður hér síðustu daga enda komin tími til. Ég er nú ykkur að segja búinn að vera rúmliggjandi frá síðasta leik og það er spurning hvort að ég nái að spila leikinn á móti Gummersbach á laugardaginn en ég er undir stöðugu eftirliti þar sem ég fékk léttvæga sýkingu í lungun og mér skilst að flensufaraldurinn hafa náð að breiða vel úr sér að þessu sinni. Ég kem reyndar með smá update á morgun hvernig staðan lýtur út og svo vill Aron P endilega setja inn smá gestapistil á síðuna á morgun en ég verð að ritskoða hann fyrst áður en hann verður birtur hér. Með rúmliggjandi kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Spakmæli dagsins: Rétta orðið getur verið einkar áhrifaríkt en þó hefur ekkert orð verið eins áhrifaríkt og þögn á réttri stundu. Maður dagsins: Jean Michell Paoli fyrir að vera einum of nettur. Lag dagsins: We build this city með Starship Hver er maðurinn? ![]() |
02.04.2008 |
| Já ég er svona brosandi núna... |
|---|
![]() Eins og ég sagði ykkur í síðustu færslu þá fór ég í langþráða helgarferð og Spánn varð fyrir valinu í þetta skiptið. Ég er búinn að vera undanfarnar 3 vikur í samskiptum við forráðamenn Barcelona um það að ganga til liðs við þá. Það er nú engu að síður ekki bara frá mér komið því eins og þið kannski flest vissuð kom upp ákveðið ósætti á milli mín og Lemgo. Í kjölfarið hafa þeir verið að leita af eftirmanni Daniels Stephan sem er að hætta eftir þetta tímabil og fyrsti kostur hjá þeim er Frakkinn Fernandes eða Svíinn Larholm sem spila einmitt báðir með Barca. Það kom upp á borðið að okkur Larholm væri einfaldlega skipt út á einu bretti þó ég geri nú væntanlega ráð fyrir því að Barca þurfi að borga eitthvað á milli en það geta þeir leyst sín á milli. Skilst að Fernandes sé ekki tilbúinn að ganga til liðs við Lemgo það sem bæði Montpillier og Chamberry hafa boðið honum betri samninga. Það eru því svona 75% líkur á því að ég spili í Barca næsta tímabil en ég er kominn með samningsdrög í hendurnar. Nú er ég bara að fara yfir stöðuna en það er alltaf erfitt að þegar fjölmiðlar hérna úti eru komnir með puttana í þetta að fara svo ekki útaf fólkinu en áhangendur sjá oft bara eina hliðina á málinu og halda að maður vilji endilega fara en það er ekki svo í þessu tilfelli. Ég hafði persónulega aldrei trúað því að Lemgo myndi vilja selja mig en það er eins í þessum bransa og öðrum að maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Mig langaði bara til þess að tjá ykkur frá þessu til þess að þið fengjuð ekki bara aðra hliðina á málinu. Annars er heldur ekkert ólíklegt að ég haldi til Wetzlar þar sem Mudrow gamli þjálfarinn minn reyndir ótt og títt að fá mig yfir en það er óhætt að segja að ég standi á tímamótum eins og staðan er í dag. Með bestu sólarkveðjum, L&I_23. Menn dagsins: Þeir sem gefa af sér í góð málefni. Lag dagsins: Running Away með Hoobastank. Spakmæli dagsins: “List er ekki einungis fólgin í því að geta grætt peninga, heldur líka að kunna að fara með” |
01.04.2008 |
| Ekkert nema gleðifréttir, Frelsi og enn ein helgarferðin... |
|---|
| Vikan er búin að líða alveg hættulega hratt en ég er búinn að vera að reyna að taka á því á æfingum þrátt fyrir að vera þvílíkt kvefaður en ég náði mér í einhverja flensuna þarna heima í síðustu viku. Þannig að ég sit hérna í stofunni með svona 5 bolla af grænu te en það er víst töfradrykkurinn ;) Mér tókst meira að segja að smita Lúnu og hún liggur hérna á teppinu sínu hnerrandi eins og brjálaðingur. Svo er þriðji aðilinn á heimilinu Aron Pálma líka orðinn slappur en maður lánar honum bara bílinn og þá er hann sprangandi um á stuttermabolnum þannig að ég er með þetta allt undir control. Hann er nú samt búinn að standa sig hrikalega vel á æfingunum og það var gaman að hýsa hann fyrir utan hvað hann smjattarrrrrr alveg hrikalega drengurinn. Gott að ég er með fleiri en einn stað til þess að borða á ;) Kem með í næstu færslu smá ferðasögu þar sem hann skrifar meðal annars hvernig var að vera hér og æfa, skoða aðstæður og hafa gaman... ![]() En að öðru, á morgun föstudag er svo leikur kl. 19.15 á móti Magdeburg og það er leikur sem við verðum og eigum að vinna. Ég er í kappi við tímann að ná mér góðum svo ég geti lagt mitt af mörkum í leikinn enda sjaldan eða aldrei verið jafn sprækur á vellinum og að undanförnu. Það er góður andi í liðinu hjá okkur og loksins allir heilir og það munar um minna hjá okkur. Svo verður leikur við Íslendinga félagið Gummersbach á laugardaginn eftir viku 5.4 og það er sannkallaður stórleikur. En eftir leikinn á morgun fáum við helgarfrí og það er fátt skemmtilegra en að fara og gera eitthvað af viti. Ætla að hafa þetta lokaorðin í kvöld en ég er farinn að teygja fyrir framan sjónvarpið ;) með bestu brjálæðis-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Maður dagsins: Lasse Boesen fyrir að vera skemmtilega ruglaður. Spakmæli dagsins: Taktu þátt í lífinu í kringum þig, það er skemmtilegra en að vera áhorfandi! Lag dagsins: Hero með Enrique Iglesias ;) Kveðjur dagsins: Heillaóskir til Snorra Steins og Marínar með frumburðinn ;) ![]() |
27.03.2008 |
| Kominn aftur til Lemgo eftir frábæra heimsókn... |
|---|
| Þá er maður mættur aftur út og óhætt að segja að þessi vika hafi liðið leiðinlega hratt en ég er samt þakklátur og sáttur hvernig ég nýtti tímann ;). Við eins og flestum er kunnugt um æfðum undir handleiðslu Guðmundar og held ég að þetta hafi verið árangursrík vika en við komumst yfir mikið og er ég persónulega mjög spenntur fyrir verkefnum landsliðsins sem framundan eru. Þetta eru krefjandi verkefni og nú er bara að bæta í og mæta 100% þegar fjörið hefst enda draumur hvers íþróttamanns að spila á ólympíuleikum og að sjálfsögðu Heimsmeistaramótinu líka. Núna tekur engu að síður við þétt prógram hjá Lemgo en við þurfum að halda áfram á því skriði sem við höfum verið á enda er mikið í húfi. Það er hellingur af nýjum leikmannakaupum hjá okkur sem verða brátt gerð opinber og við ætlum okkur að reyna að spila hærra á næsta ári. Næsti leikur hjá okkur er á föstudaginn næstkomandi á móti Magdeburg í Börderland Halle sem er ein skemmtilegast höll sem ég veit um til að spila í. Síðan fæ ég kærkomið helgarfrí 29-30 sem verður nýtt skemmtilega. En aðeins meira af handboltanum, Aron Pálmars FH-ingurinn ungi er hérna í reynslu bæði hjá Lemgo og Wetzlar en þessi lið vilja ólm fá hann í sýnar raðir en hann mun dvelja hér til föstudags og æfa með aðalliðinu þannig að það er spurning hvort að 3 íslendingar spili með Lemgo á næsta ári ? ;) Ég ætla líka að nota tækifærið hér og þakka öllum fyrir mig á Íslandi, tíminn var einfaldlega of stuttur og þið takið þetta til ykkar sem skiljið mig. Ég bæti ykkur þetta upp ;)... Með þakklætis-kveðjum frá Brüderstraße, L&I_23 og litla Lúna. Maður dagsins: Hannes Jón Jónsson fyrir það eitt að þora að veðja við mig ;) Lag dagsins: Fake Plastic Trees með Radiohead Spakmæli dagsins: „Orð er eins og fugl. Fljúgi það af vörum manns er ekki auðvelt að ná því aftur.“ Mynd dagsins: Það er ákveðið að ég ætla að leyfa New York að njóta starfskrafta minna í sumar ;) ![]() |
24.03.2008 |
| Sigur og markahæstur... |
|---|
| Vorum að spila við Gylfa og félaga í Wilhelmshaven og unnum þá örugglega 30-25 og ég var markahæstur á vellinum með 7 slummur. Alltaf gott að landa 2 stigum og ekki skemmir fyrir hvað gengur vel hjá mér persónulega. Gylfi stóð sig vel, var eitthvað að reyna að taka mig á taugum en sagan er svona: Ég tók víti í fyrrihálfleik og klikkaði og tók að sjálfsögðu næsta víti og þá gekk hann til mín á vítalínuna og sagði “Hvað ertu að hugsa Logi þú getur ekkert skorað hjá þessum gæja” Þá sneri ég mér við og sagði ég skora þó þið mynduð standa báðir þarna ;) Svo tók ég hann þegar hann kom í næstu sókn og hefndi mín hehe. Smá innsýn við hvað maður er alltaf að “deala” í leikjum. ![]() Maður dagsins: Gylfi... Snilld dagsins: Ég er að fara útúr húsi og beint til Íslands, ójá. Lag dagsins: High and Dry með Radiohead og ég elska þetta líf... |
16.03.2008 |
| Verstu erfiðleikar manns byrja þegar maður getur gert það sem manni sýnist… |
|---|
| Svo gott fólk ég er mættur aftur, gleði? Ætla bara að minna á það að ég að að koma heim á morgun sem er snilld og mig er ekki farið að hlakka neitt eðlilega mikið til. Verður gaman að komast aftur á heimaslóðir og æfa með strákunum og hitta fjölskyldu og vini, en mér sýnist á öllu að þetta sé frekar stíft plan sem Gummi er að setja upp!!! En áður en að því kemur að ég er að koma erum við að fara að spila við Gylfa Gylfa og félaga í Wilhelmshaven á þeirra heimavelli kl. 15.00 í dag og ég er að fara að koma mér í gírinn en ég reikna með að halda áfram að negla þessu inn. Hver leikur fyrir okkur núna er úrlsitaleikur og við erum á góðri siglingu í augnablikinu. Lúna litla er komin á Hundahótelið og allt er klappað og klárt og ég vona bara að ég hitti ykkur sem flest á klakanum en get engu lofað í þetta skiptið. Vikan verður væntanlega fljót að líða svo það er um að gera að nýta tímann. Maður dagsins: Árni Johnsen Spakmæli dagsins: Gestir eru ævinlega til ánægju – ef ekki þegar þeir koma þá þegar þeir fara… Lag dagsins: Benni Benassi með lagið “Turn me Up”. Síða dagsins: www.myspace.com/logigeirsson23 Það verða víst allir að eiga svona... |
15.03.2008 |
| Heldur skulum við ofmeta en vanmeta hvort annað… |
|---|
| Þá er maður kominn “heim” frá Amsterdam og ég bara viðurkenni það fúslega að þetta er top 3 flottustu borgir sem ég haf komið til og hefur maður nú farið víða, þetta er samt í svona 10 skipti sem ég kem þangað. Ég fæ aldrei nóg af því, verslanirnar þarna, kaffihúsin, mannlífið og stemmningin er svo þægileg og ég er búinn að ákveða það að kaupa mér íbúð þarna seinna meir. Ég geri mér líka grein fyrir því að ég er ekki sá eini sem hef komið þangað “hehe” en vildi bara leggja áherslu á að þetta er snilldar borg og hún fær öll mín bestu meðmæli. Mamma og Pabbi eru sem sagt farin til Íslands eftir skemmtilega viku í heimsókn hér í Lemgo. Ég held að þið fáið hrós dagsins óskipt fyrir að koma að meðaltali 3var á ári í heimsókn og skemmta ykkur alltaf jafn vel. Vildi bara láta ykkur vita að ég er þakklátur fyrir allt sem þið gerið og hafið gert fyrir mig ;). What goes around comes around... Er undanfarið búinn að vera að velta fyrir mér endalaust mikið af hlutum. Hvað ég er að gera núna? Hvert er ég að stefna? Á ég að bæta við markmiðin? Er eitthvað sem er að halda aftur af mér? Er þetta ekki nákvæmlega eins og ég vil hafa það ;)? Þetta eru spurningarnar sem að detta inn hjá mér og ég held að ég sé með svar við þeim öllum, takk fyrir. En ég er farinn uppí Sportpark í létt skokk, gufu og nudd. Maður verður jú að njóta þess góða í lífinu þegar maður getur leyft sér það, með lífsins jákvæðu kveðjum frá Lemgo, L&I_23!!! Spakmæli dagsins: Þetta er leiðinlega satt... ""If you're first, you're first. If you're second, you're nothing"" Lag dagsins: Siggi Lauf með lagið “Grafhýsi Frægðarinnar” Bloggari mánaðarins: Ég hef undanfarið eitt miklum tíma í að skoða blogg og það sem fólk er almennt að skrifa á netinu þar sem ég hrærist jú líka í þeim heimi. Ég ætla að hrósa manninum sem er kannski að fá meira af gagnrýni en hrósi og það er enginn annar en Henry Birgir sjálfur. Hann er skemmtilega umdeildur en það sem hann nær að hrista framúr lyklaborðinu er yfirburða lesefni og er yfirleitt að benda á hvað betur mætti fara. Eitt dæmi að lokum: Þegar hann var að tala um Handboltann og var að benda Kaupþingi og þessum styrktaraðilum á hvernig væri hægt að rífa þetta upp!!! Respekt, vona bara að menn sem hafi eitthvað að segja geri eitthvað í málunum en það fer allavega ekki milli mála að það eru flestir ef ekki allir sammála honum um þessa umræðu. Þú ert flottur eins og þú ert... ![]() Eigum við við ræða þetta eitthvað frekar í Apríl ;) Hækkið í græjunum!!! |
09.03.2008 |
| Á leiðinni til Amsterdam í helgarferð... |
|---|
| Við spiluðum á móti Flensburg á miðvikudaginn og töpuðum 24-28 á heimavelli. Ég sem var svo staðráðinn í því að vinna þennan leik og hafði tröllatrú á okkur en við vorum með 5 lykilmenn í meiðslum og það munar ágætlega um það þegar maður spilar á móti liðum með mikla breidd. Ég skoraði aðeins 3/1 mörk í leiknum og var ekki að koma mér í nógu mikið af færum en náði ágætis rispum í leiknum sem skiluðu mörkum. Spilaði í horni, miðju og hægra megin fyrir utan. Sáttur við margt en samt ekki nógu mikið enda er tap alltaf nógu mikil refsing. En boltinn heldur áfram, reyndar fengum við helgarfrí og ég er á leiðinni til Amsterdam að kaupa mér eitthvað af viti, tek að sjálfsögðu foreldrana og Lúnu með mér. Það er nú ekki oft sem maður fær að njóta sín í 3 daga helgarfríi í atvinnumennskunni svo þetta verður nýtt til fullnustu ;) Annars er bara allt á fullu hjá manni og ég er að koma til Íslands 16.júni með landsliðinu þannig að það verður fínt að breyta aðeins um umhverfi;) Ég verð heima frá sunnudegi til sunnudags og ætla að reyna nýta það eins best og kostur er. Ætla í dag ekki að koma með neitt nema ljóð sem ég fann, þessi Steinn Steinarr er snillingur hafði bara aldrei hugsað ljóðin hans svona djúpt. Lesið þetta og hugsið um að “Skara Framúr”. Með meistarakveðjum, L&I_23. Í draumi sérhvers manns er fall hans falið. Þú ferðast gegnum dimman kynjaskóg af blekkingum, sem brjóst þitt hefur alið á bak við veruleikans köldu ró. Þinn draumur býr þeim mikla mætti yfir að mynda sjálfstætt líf, sem ógnar þér. Hann vex á milli þín og þess, sem lifir, og þó er engum ljóst, hvað milli ber. Gegn þinni líkamsorku og andans mætti og öndvert þinni skoðun, reynslu og trú, í dimmri þögn, með dularfullum hætti rís draumsins bákn og jafnframt minnkar þú. Og sjá, þú fellur fyrir draumi þínum í fullkominni uppgjöf sigraðs manns. Hann lykur um þig löngum armi sínum, og loksins ert þú sjálfur draumur hans. Respekt gamli minn... |
06.03.2008 |
| Sá sem síðast hlær er seinn að hugsa, 11 mörk og sigur… |
|---|
| Vorum að spila í gær á móti Minden í Derby slagnum þar sem við höfðum betur 33:38 (13:17). Þar náðum við í fáránlega mikilvæg stig í baráttunni um EHF sæti á næsta ári. Við náðum strax undirtökunum í leiknum og leiddum leikinn frá upphafi til enda. Minden eru komnir með fínt lið en þeir hafa verið að bæta við sig mönnum uppá síðkastið. Ég hélt uppteknum hætti og var iðinn við kolann og náði að setja persónulegt met í deildinni með 11 mörkum sem gerir manni bara gott. Það er engu að síður stutt í næsta leik en Flensburg koma til okkar á miðvikudaginn og ég held að við gætum tekið þann leik en það myndi slökkva vonir þeirra um að verða meistarar í ár en við spyrjum að leikslokum ;) Kem með eitthvað ferskt inn á morgun, með RISING kveðjum, L&I_23. ![]() ![]() Maður dagsins: Meistari Bennó stórvinur minn úr Kaplakrika sem sendi mér reyktan silung sem ég borðaði fyrir leikinn í gær ;) Þú átt inn greiða hjá mér... Gersemi dagsins: Því meira sem við lærum, þess betur skynjum við hversu lítið við vitum Lag dagsins: Yellow Ledbetter, með Pearl Jam |
02.03.2008 |
| Svona á lífið að vera gott fólk!!! |
|---|
| Shit hvað er gott að koma heim eftir sigurleik loksins, ég held ég hafi aldrei á ævinni tapað 4 leikjum í röð áður og óhætt að segja að maður hafi gefið allt í þetta í dag.10 mörk litu dagsins ljós og þetta er nú bara byrjunin skal ég segja ykkur:) við unnum sannfærandi 36:29 (19:15) og þetta auðveldar okkur framhaldið til muna. Ég spilaði bæði í skyttu og horni og tók vítin, yessss ég er svo sáttur. Ég er ekki frá því að þessi músik sem maður er farinn að hlusta á sé að koma manni aftur á sporið. Annars er nú stutt í næsta leik og það er ”derby slagur” á móti Einari Jóns og félögum í Minden á laugardaginn næsta á útivelli. Þetta verður þétt prógram á næstunni svo maður verður að vera á tánum, næsti heimaleikur hjá okkur er svo á móti Flensburg í næstu viku. Binni ég tileinka þér þessum leik þetta PEPP var það sem ég þurfti, betur sjá augu en auga ;). Svo eru foreldrarnir á leiðinni til mín á morgun svo það er bara hátíð í bæ hérna í Lemgo. En vel heppnaður dagur endar í notalegum svefni og það er það sem ég ætla að gera núna. Komast í djúpan svefn og mæta ferskur á æfingu á morgun, elska að vera Íslendingur… Með bestu marka-kveðjum, L&I_23. Maður dagsins: Ég er maður dagsins. Lag dagsins: Wind of Change með Scorpions. “Kemst í minn heim” Spakmæli dagsins: “Leti er ekki annað en að hvíla sig áður en maður verður þreyttur” Heilræði dagsins: Enginn veit hvers hann er megnugur fyrr en hann hefur reynt. Að hrósa einhverjum fyrir það að vera góður, verður oft tilefni fyrir hann að verða það. Myndir dagsins: Hérna eru nokkrar úr leiknum í gær ;) ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
28.02.2008 |
| Því lengri tíma sem maðurinn eyðir í einsemd, þess betur skilur hann aðra menn. |
|---|
| “Markahæstur, Tapleikur og Taka tvö” Vorum að spila á sunnudaginn á móti Rhein Neckar Löwen og til að gera langa sögu stutta þá töpuðum við 25-29 og áttum lítinn sem engan séns í að vinna þennan leik. Við spiluðum á stærri heimavellinum okkar fyrir framan 11.000 manns sem voru tilbúin að sjá okkur ná í 2 stig en það tókst ekki. Ég er samt að komast í fanta form og náði að setja 6 slummur sem reyndar dugði ekki þann daginn en ég er á réttri leið. Hef sjaldan eða aldrei verið að fíla mig jafnvel á parketinu svo það er bara eintóm hamingja. Næsti leikur er á móti Großwallstadt á morgun og það er að duga eða drepast, verðum að vinna þessi 2 stig. Það er enn að bætast á meiðslalistann hjá okkur og ekki auðveldar það allan pakkann en gamla góða maður í manns stað er bara ekki að virka hjá okkur ;) En spyrjum að leikslokum. Félagið er að senda mig í það allra nýjasta í hámarksárangri. Ég sest í stól og hlusta á músík í 30 mín og sá hálftími kostar 20.000 kr. Þetta er engu að síður það sem þýska landsliðið bæði í fótbolta og handbolta notuðu í heimsmeistarakeppnunum í fyrra og hittí fyrra þegar þau unnu og lentu í 3 sæti. Þetta eru svona hátíðnibylgjur sem eru í lögunum og hjálpa til við einbeitingu og ótrúlegustu hluti. Læt ykkur vita með hvernig þetta gengur allt. Svo er búið að ráða landsliðsþjálfara sem er snilld, Gummi tæklar þetta en það er erfitt verk fyrir höndum. Hann hefur sýnt það að hann kann að ná árangri og gaman að fá refinn aftur á hliðarlínuna. Maður dagsins: Nick Pitera, farið á youtube og finnið Bleeding Love sem hann syngur, þá skiljið þið mig. Lag dagsins: Bill withers – lean on me. Spakmæli dagsins: Ég hef lært að kveðja alla með hlýlegum orðum. Þú veist aldrei hvenær þú ert að kveðja þá í síðasta sinn. Hérna eru nokkrar myndir úr leiknum á sunnudaginn!!! ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
26.02.2008 |
| “Lífið er ef til vill eina gátan sem okkur óar við að ráða fram úr” |
|---|
| Var að velta einum fáránlegum hlut fyrir mér í dag þegar við strákarnir sátum inní klefa eftir æfingu. Sat og horfði á aðstoðarþjálfarann sem situr á móti mér og lítur svolítið skringilega út. Hann er orðinn frekar gamall en hann er frekar nettur náungi og allt það. Ég horfði á hann og velti því fyrir mér hvað MAÐURINN er flókið dæmi horfði á hann og allt sem hann sagði, hvernig hann brást við hinu og þessu sem kom upp í klefanum. Svo hugsaði ég bara vá einn daginn þá slökknar bara á öllu!!! Allt sem hann er/var, persónuleikinn, líkaminn, það mun bara slökkna á þessu öllu, ég held að ég hafi aldrei leitt hugann að þessu og efast um að þið séuð að fylgja mér en ákvað bara að deila þessu með ykkur ;) En að öðru, ég er búinn að fá ágætis feedback með videobloggið en ekki nógu góðar til þess að nenna því. Var búinn að hugsa mér að gera smá stúdío hérna heima, (allavega er nóg pláss). En það verður að fá að bíða betri tíma. Nú fer að styttast í Vigni og mér skilst af nýjustu upplýsingum að dæma að hann sé að semja á fullu enda er planið að setja upp smá stúdio næsta sumar. Við erum búnir að finna nafn á fyrsta lagið, “ The song for the people who got no friends”. Æfingarnar ganga hrikalega vel og það lítur út fyrir að hann ætli bara að gera þetta erfiðara ef eitthvað er en það kemur í ljós. Næsti leikur er á sunnudaginn á móti Kronau Östringen sem eru sem stendur í 5 sæti deildarinnar. Við erum undir svakalegri pressu og það er ekkert lát á því í pressunni og því á brattann að sækja, sérstaklega þjálfarinn okkar sem er ekki enn búinn að vinna leik! Ég verð bara að redda því enda er maður að komast á gott run í fyrsta skipta í langan tíma. Með bestu ísjaka-kveðjum, L&I_23. ![]() Íslendingur dagsins: Einar Ágúst fyrir massa gott comeback. Lag dagsins: Chasing Cars með Snow Patrol Spakmæli dagsins: “You give and you will get, you gave and you’ll get gift, you have a gift? use it” Brandari dagsins: A young businessman had just started his own firm. He had just rented a beautiful office and had it furnished with antiques.He saw a man come into the outer office. Wishing to appear the hot shot, the businessman picked up the phone and started to pretend he had a big deal working. He threw huge figures around and made giant commitments. Finally he hung up and asked the visitor, “Can I help you?” “Yeah, I”ve come to activate your phone lines.” |
21.02.2008 |
| Sit hérna í stofunni enn einn daginn að æfa mig á gítarinn, datt í hug að þið mynduð fá að vilja vita hvaða lög ég er að taka! Nei sleppum því ;) Það er bara hvert metið á fætur öðru að falla í innlitum á síðuna og reikna ég fastlega með því að það sé myspace mikið að þakka. Ég kann að meta mailin og góðu straumana sem þið eruð að senda manni, maður hittist jú alltaf 2var á lífsleiðinni... Þegar það er svona langt á milli leikja þá er maður alltaf bara að blogga um veðrið og hvernig manni líður í það skiptið. Ég þarf að fara að koma með einhverjar nýjungar og ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti ekki að fara í smá Video-Blogg? Eins og Albert Einstein sagði long time ago “Imagination is more important than knowledge“. Ég sitjandi í þessar 3 mín sem ykkur tekur að lesa textann fyrir framan cameruna, takandi lög á gítarinn og heilaþvo ykkur, vil fá FeedBack á það í gegnum kontaktinn neðst á síðunni eða, logi.geirsson@gmx.de Ég er ekki frá því að það sé bara allt of mikið að gera hjá manni þessa dagana. Það er samt bara góð tilbreyting, þetta líf getur stundum verið svo gott að maður verður værukær og fer að hugsa alltof laust um hlutina og verður of góður við sig. Ekki misskilja mig að sjálfsögðu á maður að setja sjálfan sig í fyrsta sæti því hinir koma jú seinna, það er samt spurningin um þessa fínu línu. En með Big-Kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Spurning dagsins: Reynir spurði, Geturu útskýrt sjálfstraust? Það er hægt að skíra það á óteljandi vegu og það sjá jú engir 2 einstaklingar lífið með sömu augum, ég myndi samt túlka það svona. “Sjálfstraust þýðir að maður þorir að nota eigin persónu og gefa af sjálfum sér. Við þurfum að treysta öðrum fyrir okkur, standa með sjálfum okkur og nýta það besta sem okkur er gefið” Íslendingur dagsins: “The Super Model” O.L. Lag dagsins: Superstar. Misskilningur dagsins: Erum við ekki stöðugt í því að reyna að laða það besta fram hjá okkur... Hversu svakalega er hægt að túlka þetta svart og hvítt. Spakmæli dagsins: Gleðin býr ekki í hlutum, hún býr í okkur sjálfum. |
20.02.2008 |
| Koper |
|---|
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
17.02.2008 |
| Þvílíkur dagur að baki... |
|---|
| Jæja þá er dagurinn á enda og ég ætla að deila honum aðeins með ykkur. Vaknaði kl. 08.00 og fór með Lúnu litlu út að gera sína hefðbundnu hluti. Það var hrikalega kalt svo ég ákvað að setja bílinn í gang því ég ætlaði að skjótast í Bakaríið því það var jú leikdagur í dag og mikilvægt að næstast vel ;) Gott og blessað, fer ég með Lúnu upp og kveiki á tölvunni og dotta hreinlega yfir henni. Síðan vakna ég ferskur set egg og bacon á pönnuna og horfi létt á Tv. Þarna var klukkan 11.30 og ég vakna við að Reykskynjarinn fer í gang, ég hafði gleymt dótinu á pönnunni og þvílíkur stinkur í húsinu hehe. Síðan þegar ég er búinn að éta “frábært baconið” fór ég bara eitthvað á netið og chilla. Svo er kl. 15.00 og ég átti að fara að mæta í leik, síðan finn ég bíllyklana hvergi og var búinn að leita í 15 mín án árangurs. Síðan bara jæja Fuck it fer á draslinu, kem út þá er ennþá kveikt á bílnum síðan um kl.08.00. Ég er allavega sáttur við að hann stóð þarna ennþá ;) En að öðru. Vorum að spila áðan á móti Kopar frá Slóveniu sem eru með fanta gott lið og var þetta seinni leikurinn í 16 liða úrslitum EHF-CUP. Skemmst er frá því að segja að við töpuðum 24-28 og vorum því slegnir út með 9 marka mun sem er skandall!!! Ég fékk loksins að spila almennilega og vera með allan leikinn og var markahæstur með “8 MÖRK” og er mega sáttur að fá að spila loksins. Þetta er erfitt fyrir nýja þjálfarann okkar Marcus Baur að tapa fyrstu 3 leikjunum sínum sem þjálfari en ég hef trú á honum. En að öðru, nú er maður bara í því að kaupa og selja en ég losaði mig við bíl og hjól í gær ;) og í staðinn fæ ég mér eitthvað tryllitæki. Það er svo mikil snilld að nota ebay að það er engu lagi líkt, maður getur keypt sér allt þar án þess að fara útúr húsi, love it. Bið að heilsa með Business kveðjum frá Lemgo, L&I_23 on a run … ![]() Guðlaug er Fan vikunnar ;) Íslendingur dagsins: Gaui stykki og svei mér þá ef þetta er ekki í annað skiptið ;) Afmælisbarn vikunnar: Sigurður Aðalsteinn Þorgeirsson, aka SiggiAlliTogga Lag dagsins: Bleeding Love með Leona Lewis, þetta er spilað hérna 24/7. Spakmæli dagsins: Hamingjan er umfram allt fólgin í því einfalda og fábreytta: vínglasi, bökuðum hnetum, ofurlitlu glóðarkeri, nið frá sjónum... Allt sem til þarf er að þú gleymir ekki að hamingjan er hér og nú - að bústaðurinn sem hún kýs sér er einfalt og fábreytt hjartalag. Brandari dagsins: Gunni þessi er sá besti hingað til ;) A Good Gift A guy bought his wife a beautiful diamond ring for Christmas. After hearing about this extravagant gift, a friend of his said, "I thought she wanted one of those sporty four-wheel-drive vehicles." "She did," he replied. "But where the hell was I going to find a fake Jeep?" |
16.02.2008 |
| Mikasa Sukasa… |
|---|
| Man ekki alveg hvernig þetta á að vera skrifað en það skiptir heldur ekki öllu máli. Ég er búinn að vera mikið einn með sjálfum mér og hugsa og hugsa. Mér líður eins og ég sé bátur á miðju atlandshafi og eigi ekki séns á því að stranda. Ég ætlaði nú samt ekki að skrifa um það heldur er ég búinn að fá óvenju mikið af e-mailum uppá síðkastið, ég sem svei mér þá hélt að þið væruð hætt að nenna að maila mér. Í einu þeirra stóð orðrétt nenniru að gera top 10 lista yfir bestu myndirnar þínar og top 10 bestu lögin. Ég ætla að reyna að rumpa saman smá lista sem ég er með í hausunum. En lögin koma í næstu færslu. 1. Me Myself and Irene 2. Man on Fire 3. Godfather 4. Assassin 5. TNT Jackson 6. Casablanca 7. The Insider 8. Schindler's List 9. Shawshank Redemtion 10. One Flew Over the Cuckoo's Nest Held að þetta sé nú flest allt klassik en kannski eitthvað áhugavert fyrir ykkur, ég er yfirleitt sofnaður þegar mydnirnar eru hálfnaðar svo þið getið gert ráð fyrir að fyrri hluti þeirra sé mjög góður :). Þetta var allt of sumt í dag, enda á þessari mynd sem ég tileinka Árna Inga vini mínum því það styttist í hann. ![]() Íslendingur dagsins: Allir þeir sem eiga afmæli 29 febrúar, og þar af leiðandi fjórða hvert ár!!! Var bara að velta þessu fyrir mér. Já og Andri Berg fyrir að vera góður leikari ;) hann er snillingur. Afmælisbarn vikunnar: Mamma, Ingibjörg Eldon á nú bara afmæli þann 17, feb og best að setja það núna inn svo ég klikki ekki ;) Stoltur af þér. Lag dagsins: Better together – Jack Johnsson… Spurning dagsins: Ef þetta er spurning sem hefur svar, þá er þetta svar við spurningu. Brandari dagsins: Þessi er mega fyndinn frá Sigga Bakara. The gloves... Ungum manni langaði til að kaupa afmælisgjöf handa elskunni sinni.Þar sem að þau höfðu ekki verið lengi saman þá ákvað hann eftir mikla íhugun að hanskar væru rétta gjöfin: rómantískt en ekki of persónulegt. Í fylgd með yngri systur kærustunnar fór hann og keypti par af hvítum hönskum. Systirin keypti sér hinsvegar nærbuxur. Þegar afgreiðslumaðurinn var að pakka inn þá ruglaði hann þessu saman og systirin fékk hanskana en kærastan fékk nærbuxurnar. Án þess að athuga innihaldið þá innsiglaði ungi maðurinn pakkann og sendi til kærustunnarásamt miða sem á stóð: ”Ég valdi þetta af því að ég tók eftir því að þú hefur ekki haft það að vana að klæðast þessu þegar við förum út á kvöldin”. Ef systir þín hefði ekki hjálpað þá hefði ég valið löngu með tölunum en hún klæðist styttri sem er auðveldara að ná af. Þetta er í ljósum lit, en konan ég keypti þetta hjá sýndi mér parið sem hún hafðiverið í síðastliðnar þrjár vikur og það sá varla á þeim. Ég lét hana máta þetta sem ég keyptiog það fór henni mjög vel. Ég vildi að ég gæti verið hjá þér til að vera sá fyrsti sem hjálpaði þér í, þar sem að það leikur enginn vafi á því að aðrar hendur munu snerta áður en ég hef tækifæri á því að sjá þig aftur. Þegar þú ferðu úr, mundu þá eftir að blása í þær áður en þú leggur þær frá þérþar sem að þær munu náttúrulega vera nokkuð rakar eftir notkun. Hugsaðu þér bara hvað ég mun koma til með að kyssa þær oft á komandi ári! Ástarkveðjur. P.S. Það nýjasta er að bretta örlítið uppá þannig að smá brúskur sjáist |
15.02.2008 |
| The Secret to Living is Giving… |
|---|
| So another day in paradise… Ætla að byrja á að minna ykkur á að myndin Me Myself and Irene er masterpiece, þið verðið að leigja og horfa á hana ég er ennþá að hlægja af henni. Annars er ennþá þetta fína veður hérna svona miðað við Ísland allavega og nú er það nýjasta að maður er farinn að geta látið sjá sig á golfvellinum aftur eftir langa og þráða fjarveru. Svo er ég líklegast að ná að klára þetta blessaða mótorhjólapróf núna innan 2 vikna en sökum mikilla anna og fleira hefur maður ekki fundið tíma fyrir þetta ;) Ef að þetta verður ekki THE Sommer þá veit ég ekki hvað. Ég fékk ekki fyrir löngu síðan mynd senda sem var afmælisgjöf og leit hún svona út ;) ![]() Þetta er frekar fyndið en snilldar hugmynd, Koddaver… Ég er að fara í nudd og reyna að tjasla mér öllum saman því nú verður á brattann að sækja í þessum leik á móti Kopar äa laugardaginn. Með sunshine boogie kveðjum frá Germany og Jóni Ara, L&I_23. Íslendingur dagsins: Hreiðar Leví Guðmundsson Afmælisbarn dagsins: Stórvinur minn og umboðsmaður Frakklands, Jeal Micheal Paoli 41... Lag dagsins: Boston by Augustana Spurning dagsins: Hefur þessi spurning svar? Brandari dagsins: Gunni Magg heldur áfram að senda mér brandara... Hvað fer upp brekku með 4 fætur en kemur niður með 3? **Maður sem fer upp brekkuna með 4 gervifætur og missir einn þar uppi og labbar niður með restina! Gunni svona í slvöru talað það þarf engan Sherlock Holmes til að skilja þetta hjá þér ;) |
14.02.2008 |
| Taktu mig eins og ég er!!! |
|---|
| Þessi gæji sem er að þjálfa okkur gæti plömmað sig vel í hernum, maður kemur heim eftir æfingu og maður er heppinn ef maður hefur kraft í að taka uppúr töskunni. Það er langt síðan maður hefur þurft að hafa svona mikið fyrir hlutunum en ég held bara svei mér þá að maður hafi gott af þessu, “Ásgeir ég veit að þú ert hlægjandi”. Það er góð stemmning í liðinu og nú verðum við bara að fara skila því í leikina enda ekki seinna vænna. Við erum undir mikilli pressu sem og nýji þjálfarinn sem ég kýs að kalla MB. Annars sýnist mér vorið vera að fara að kicka inn miðað við hitann sem er loksins að koma en það eru 14 stig einn daginn og 2 þann næsta þannig að maður lætur sér nægja að rölta á wifebeaternum innandyra. Maður kemst samt einhverra hluta vegna í góðan fíling þegar sólin er farin að hlýja manni og maður nennir allt í einu að gera allt. Mig er strax farið að hlakka til sumarsins og gera allt sem mig dettur í hug. Eins skipulagðir og þjóverjar eru þá eru þeir búnir að spá frábæru veðri þetta sumarið og ef það er sagt þá stenst það hér. Það er ótrúlegt hvað t.d veðurspáin hefur aldrei klikkað allavega þessi 4 ár sem ég hef búið hérna. En á Íslandi wow ætla nú ekki að ræða það neitt frekar. P.s Bara svo það sé á hreinu er hvíti Ferrari bíllinn í síðustu færslu ekki sá sem ég er að fá... væri óskandi samt Annars er ég búinn að vera með Lúnu útum allt í dag og ætla að fara að drífa mig á æfingu, það er dýrt að vera of seinn, 1000 kjell mínútan. Bestu army kveðjur frá Germany, Logi Geirsson. ![]() Maður dagsins: Geir Oliver Nínuson sem var 2 ára í gær ;) Heimasíða dagsins: www.leikjaland.is Lag dagsins: Hey - Pixies Spakmæli dagsins: Ekki tala nema þú getir bætt þögnina. Pæling dagsins: Íslenska orðið trúlofun, truelove ? |
12.02.2008 |
| Ekkert er ómögulegt... |
|---|
| Var að koma frá Ítalíu, Slóveníu og Króatíu en við vorum að spila á landamærunum á móti slóvenska liðinu Kopar. Þeir unnu okkur verðskuldað með 5 mörum 34-29 minnir mig en ég nenni ekki að fletta því upp. Þetta var svakalega illa spilaður leikur hjá okkur og kannski eina jákvæða var það að þeir létu mig spila síðustu 10 mín ;). Svei mér þá ef menn eru ekki bara búnir að grafa stríðsexirnar, gott að komast aftur á völlinn! Þeir þurfa núna að koma til okkar og spila á laugardaginn og það verður harður leikur skal ég segja ykkur. Við þurfum sem sagt að vinna með meira en 5 mörkum til að komast áfram, en 5 duga líka ef þeir skora minna en 29 mörk. Þetta umhverfi þarna var ekkert smá flott, maður var bara að skokka í hlýrabolnum meðfram strönd miðjarðrahafsins í 15 gráðum og sól. Svo sá maður Alpana úr suðri og það er ekkert smá flott sjón. Þetta var einnig eitt af fáu jákvæðu í ferðinni;) Svo er komið líka þetta fína veður í Germany, 13 gráður og sól, maður situr bara á svölunum í laptopnum að reyna að sóla sig. Maður er víst að lesa um eitthvað óveður á klakanum hehe. Tók nokkrar myndir þegar ég leit við í umboðinu um daginn og þessi var nú að heilla mest, þetta er samt í fyrsta skipti sem ég sé hvítan ;) ![]() ![]() ![]() Með Ferrari kveðjum, L&I_23. Maður dagsins: Þórey Anna sem er orðin óstöðvandi markamaskína;) Heimasíða dagsins: www.sport1.de hér getur maður eytt ágætis tíma. Lag dagsins: Somewhere over the rainbow - IZ Spakmæli dagsins: “Að treysta einhverjum er eitthvað sem ekki allir geta” |
10.02.2008 |
| On my way to Slovenia… |
|---|
| Þá er ég búinn að prófa þennan umtalaða Ferrari 355 og þetta var alveg stuð ;) Reikna fastlega með því að kaupa hann í apríl þegar maður getur gefið honum malbik að borða. Það er ekkert nema rigning hér í Þýskalandi svo er þessi bíll engin þægindi en það spilar enga rullu þegar þú gefur í. Svo er ég að fara að koma með eftir 2 vikur brjálað video þar sem þið eigið eftir að hlæja ykkur máttlaus, einmitt tengt þessu... Finn það að ég er núna á þeim stað í lífinu þar sem ég geri það sem ég vil þegar ég vil, ef það er ekki núna þá aldrei, eins og þjóðverjarnir sungu svo skemmtilega ;( hehe. Ég er samt núna að einbeita mér að boltanum á fullu og við hreinlega verðum að eiga góðan leik á móti Kopar á föstudaginn. Því svo eftir viku er seinni leikurinn og menn eru búnir að gefa það út að við ætlum að vinna þessa keppni. Með 3-2-1 kveðjum, L&I_23. Fólk dagsins: Family S. 10 Heimasíða dagsins: Vignir Svavars fær hana, http://www.vignir.blog.is/blog/vignir/ Get ekki linkað? Lag dagsins: Fallegi dagur með Bubba Mortens. Spakmæli dagsins: “I don´t mind what other people think or tell about me, I’m in this world competing for my self” |
07.02.2008 |
| Það kemur lítið sem ekkert frá engu… |
|---|
| Yes ég veit ekki hvar ég á að byrja þetta blog ég er ekkert eðlilega sáttur, ferskur og fullur af jákvæðni. Búið að vera allt að gerast undanfarna daga, dagurinn í dag búinn að vera alveg vel gelaður ekki vottur af pepsi í honum. Vaknaði kl. 08.00 við það að ráðskonurnar komu að taka til í húsinu, ekki það að ég sé eitthvað latur náungi ég kemst bara ekki yfir þetta allt eins og staðan er á málunum núna. Það er fátt betra en að fá bara allt slétt og strauað á morgnana, tandur hrein gólfin og allt húsið bara eins og maður sé að labba í húsgagnaverslun love it. En bara svona til þess að koma í veg fyrir allan misskilning þá er ég ekki latur og hef þvegið og séð um mig sjálfur og eldað frá því ég var 17 ára;) En nóg af því. Ég var að kaupa mér bíl í dag, helvíti svalur en vil samt ekki gefa það upp svo ég fái nú ekki alla vinina í heimsókn ég nenni engum heimsóknum núna. Ég er nefnilega að keyra glænýtt plan í gegn, kallað ”THE TOP”. Æfingarnar ganga ekkert smá vel og við erum að fara að spila á móti Kopar einhverju svaka fínu liði frá Slóveniu í evrópukeppninni á laugardaginn. Nýji þjálfarinn er alveg að taka á okkur og það fyrsta sem maður gerir þegar maður kemur heim er að láta renna í feitt heitt bað og liggja þar í góðan hálftíma. Ég er að fara að reyna að læra eitthvað og gangi ykkur vel í öllu sem þið eruð að gera;) ”Lífið er jafn stutt og það er langt, notaðu tímann því annars notar hann þig”… Þetta er í dag uppáhalds spakmælið mitt sem ég samdi fyrir 3 árum. Skora á einhvern að henda einu heimatilbúnu spakmæli á mig! Kveðjur frá Spork, Geirsson. Maður dagsins: Hjörtur Hinriks, las það sem hann skrifaði inná handbolti.is, kallinn minn “Spegill” Heimasíða dagsins: www.69.is Lag dagsins: All gone með Sign, þeir eru svo fáránlega góðir. Spakmæli dagsins: Það var komið hér að ofan en litla sögubrot dagsins er: Víða til þess vott ég fann þó venjist tíðar hinu. Að Guð á margan gimstein þann sem glóir í mannsorpinu |
04.02.2008 |
| Þeir sem eru góðir njóta góðs… |
|---|
| “We are here to laugh at the odds and live our lives so well that Death will tremble to take us”… Jæja sælt veri fólkið. Þetta er svona eitt af fáum skiptum þar sem ég hugsa um það hvað þið haldið að sé að koma frá mér! Ég er allavega mættur til Lemgo aftur og er bara mjög ferskur á því. Maður nennir varla að hripa niður einhverja punkta úr þessu EM. Held að það sé búið að fara yfir það sem hafi farið úrskeiðis og menn hafi fengið það í smettið það sem við þurftum. Ég ætla bara að fara “mega” jákvæður úr þessu og halda mínu striki, mér fannst þrátt fyrir lélegt gengi gaman að vera þarna og Þrándheimur fær bara fína einkunn fyrir gestrisninna, en stemmningin á pöllunum var rusl. Ótrúlegt að þeir hafi ekki komið fyrir meira en 500-1000 manns á svona stórleiki en hvað um það. Nú tekur bara við lífið hérna í Lemgo og næsti leikur er núna strax á laugardaginn. Núna er bara að koma sér í gírinn og fara að geta eitthvað enda ekki seinna vænna;) Ég ætla að fara að koma með einhverjar ferskar fréttir núna á næstunni enda af nógu að taka. Skjáumst, L&I_23. Menn vikunnar: Ég var nú bara að kynnast þeim í fyrsta skipti fyrir alvöru og það skein húmor frá þeim báðum sama hversu slakir við vorum. Henry Birgir og Hjalti fá þennan heiður og Örnólfur læknir fær líka sitt pláss fyrir skemmtilegt viðhorf á lífið. ![]() Heimasíða dagsins: http://blogg.visir.is/henry Þetta er klárlega besta bloggsíða Íslands. Lag dagsins: Here comes your man með Pixies Spakmæli dagsins: Guð hjálpi þeim sem bjargar sér ekki sjálfur ;) |
01.02.2008 |
| Logi |
|---|
![]() |
23.01.2008 |
| Frá Herbergi 211 i Þrándheimi... |
|---|
| Ég og Ásgeir Örn erum og verðum saman í herbergi hérna á þessu líka glæsilega hóteli í hjarta bæjarins meðan á keppninni stendur. Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem að við vinirnir eyðum tíma á hótelum en atvinnumennskan fer jú mikið fram á ferðalagi og hótelum. Ferðalagið tók sinn toll þvi það liðu 12 tímar þangað til að við vorum mættir á sinn stað eftir að hafa vaknað kl. 05.00 í gærmorgun. Nú eru 2 dagar í fyrsta leikinn á móti Svíunum og við vorum að enda við að detta í hús eftir æfinguna áðan en það var tekið létt á því enda menn að ná úr sér ferðaþreytunni. Maður tekur eftir miklum áhuga fyrir keppnina og Norsararnir ætla greinilega að hafa þetta til fyrirmyndar. Það er ekkert öfundsvert að halda standard eftir HM 07 í Þýskalandi í fyrra en við sjáum hvað setur. Ég og Ásgeir ætlum á eftir að skella okkur í gufuna og hlaða batteryin fyrir þessi átök næstu 2 vikurnar. Það er ekkert sjálfgefið að komast í gegnum þetta klakklaust þannig að maður reynir að nýta allan þann frítíma í að sinna líkamanum og andlega þættinum einnig. Við erum staðráðnir í því að gera ykkur heima stolt af okkur og nú er bara um að gera að klæða sig í búninginn fyrir framan skjáinn og keppa með okkur. Ég ætla að vera duglegur að senda ykkur helstu fréttir héðan af herbergi 211, með bestu MISSION-Gold-kveðjum, Logi Geirsson. ![]() Íslendingar dagsins: Valdi, Kristín, Birgir og Bryndís fyrir að vera lang flottust, það er Grill hjá Binna í sumar. Hrós Mánaðarins: Ingvar á Salatbarnum sem hefur hlaðið í okkur góðgætinu á meðan dvöl okkar á Íslandi stóð yfir. Ekki nóg með það að hann kemur fyrir hvern leik með ávextabakka fyrir okkur og hann er mættur hérna líka og ég held ég hafi séð hann niðri í lobby að skera niður ávexti ;) Þetta er dæmi um karakter. Stuðningur vikunnar: Þessi stuðningur sem við fengum frá ykkur í leikjunum á móti Tékkum var frábær og sýnir enn og aftur að við sýnum stuðning í verki, Áfram Ísland. Heimasíða vikunnar: www.logigeirsson.de |
16.01.2008 |
| Ekki hérna í gegn kallinn minn... |
|---|
| Þetta voru orðin sem maður fékk að heyra frá öryggisvörðunum í Kastrup þegar ég ætlaði í gegnum öryggishliðið. Þú ferð ekki með þessar Byssur hérna inn og ég skildi ekkert hvað hann var að tala um fyrr en hann greip í upphandleggina á mér á glotti;) Spiluðum á móti Dönum í gær og það var þokkalegasti leikur, það er bara orðið hálfþreytt að þegar við komumst í 2-4 marka mun að slátra þeim ekki og rúlla yfir þá. Þurfum við annars eitthvað að ræða þennan leik eitthvað frekar, held að allir þeir sem lesi síðuna mína hafi nú séð leikinn. Einn leiðinlegasti endir á leik sem ég hef nokkurn tíma upplifað og að þetta hafi verið sami gaurinn og skoraði lokamarkið á HM´07 ég ætlaði bara ekki að trúa þessu. Þetta var svona grát-broslegt en jákvætt var að þetta var ekki á EM. Þetta var engu að síður fín ferð og snilld að vera kominn á fullt aftur. Með bestu landsliðs-kveðjum, Logi Geirsson. -- www.logi-geirsson.de ![]() |
07.01.2008 |
| Manni líður eins og Salómon í Stellu í orlofi... |
|---|
| Jæja þetta var klassa betri leikur í gær við fengum sanngjarnt 1 stig úr leiknum. Við hefðum að sjálfsögðu getað stolið sigrinum en það styttist alltaf í að þetta fari að snúast. Þegar ég vaknaði í morgun leið mér eins og það hefði hefði verið keyrt yfir mig en slík voru átökin á móti pólverjunum í fyrsta leiknum. Eftir gott nudd og smá afslöppun náði ég að hleypa í mig smá lífi og spilaði síðustu 20 mín og setti 3 mörk. Ástæðan fyrir því að ég var að tala um stellu í orlofi er sú að við fáum lax í morgunmat, hádegismat, kvöldmat og maður er bara farinn að laxera;). Þetta er bara grín en þetta fer engu að síður vel í mann og maður hefur jú upplifað það verra. Á eftir er svo leikur á móti Dönum það sem verður allt troðið í höllina og hörku stemmning. Það eru skemmtilegustu leikirnir og það væri gott mál að enda þessa keppni hérna með sigri enda þurfum við að fara að venja okkur á að vinna þessa leiki. ![]() En hérna eru markaskorarar gærdagsins á móti Noregi: Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 7(9), Snorri Steinn Guðjónsson 4(6), Einar Hólmgeirsson 4(7), Guðjón Valur Sigurðsson 3(7), Logi Geirsson 3(4), Arnór Atlason 2(5), Ásgeir Örn Hallgrímsson 2(3), Róbert Gunnarsson 2(5) og Hannes Jón Jónsson 1(1). Í markinu varði Birkir Ívar Guðmundsson 8 bolta og Hreiðar Guðmundsson 4. Líf og fjör lakkrísrör héðan frá Danmörku kveðja, Logi Geirsson. -- www.logi-geirsson.de |
06.01.2008 |
| Mótið er farið af stað og lítur vel út... |
|---|
| Núna er allt farið á fullt og við erum nýkomnir heim eftir fyrsta leikinn í æfingamótinu hérna í danmörku. Við mættum Pólverjum af hörku og spiluðum ágætis fyrri hálfleik sem einkenndist samt af hátt í 10 tecknískum feilum sem á jú eftir að lagast. Þeir leiddu með 2 mörkum í hálfleik 15-13 og má segja að við séum ennþá ryðgaðir enda eigum við eftir að slípa hópinn saman fyrir átökin sem bíða okkar á EM. En að leiknum aftur, þegar 10 mínútur lifðu af leiknum vorum við búnir að jafna en missum mann út undir lokin og náum að klúðra þessu í 4 marka tap 35-31 sem gefa engan veginn rétta mynd af leiknum. Við rúlluðum mannskapnum vel og allir leikmenn hópsins spreyttu sig enda gífurlega mikilvægt að jafna út álag á menn enda eru 3 leikir á 3 dögum þéttur pakki. Markaskorarar dagsins voru sem hér segir: Guðjón Valur Sigurðsson - 9 mörk Ólafur Stefánsson - 7 mörk (1 víti) Logi Geirsson - 5 mörk Róbert Gunnarsson - 4 mörk Vignir Svavarsson - 3 mörk Arnór Atlason - 1 mark Einar Hólmgeirsson - 1 mark Ásgeir Örn Hallgrímsson 1 mark ![]() Ég ætla nú að fara að henda mér í svefn þar sem strákarnir eru sofnaðir hérna við hliðina á mér en ég rændi fartölvunni hans Hreiðars til þess að henda inn smá línum. Á morgun er svo leikur við Noreg sem við þurfum að spila betur í en á móti Pólverjum, svo ég ætla að henda mér á koddann svo ég geti hlaðið í mig smá breakfast of chapions á morgun í "buffeyinu". Með bestu Egg og Bacon kveðjum frá danmörku, Logi Geirsson. |
05.01.2008 |
| News |
|---|
| Við erum mættir til Danmerkur, nánar tiltekið Forum. Lögðum af stað eldsnemma í morgun til þess að ná að æfa smá taktik og fleira. Allir voru orðnir svangir þegar á flugvöllinn kom, svo við ákváðum bara að drífa okkur á hótelið að borða. Hvað haldiði að hafi gerst, jú auðvita gleymdum við Brynjólfi lækni sem ákvað að elta einhvern annan hóp út á hinum enda flugstöðvarinnar. Þetta er nú samt ekkert nýtt, en þetta getur verið hressandi fyrir móralinn. Fyrsti leikurinn er á morgun á móti pólverjum þar sem vid munum væntanlega rúlla hópnum, mjög mikið sökum þess að við náðum aðeins 1 æfingu. Veðrið hérna er verra en á Íslandi, allavega ekki betra og ískuldi. Ég er sem fyrr med Hreiðari Guðmunds markmanni í herbergi sem og Sigurbergi Sveins, sem er nýr i landsliðinu. Gott fyrir þessa nýliða að vera sendir til mín þar sem maður getur miðlað einhverju úr viskubrunninum og reynslunni til þeirra ;) En jæja við erum farnir á æfingu og svo spyrjum við að leikslokum eftir leikinn á morgun, en þangad til þá, gleðilegt nýtt ár 2008, Logi Geirsson. ![]() -- www.logi-geirsson.de |
04.01.2008 |
| Mæti til Íslands á morgun... |
|---|
| Jólin búin að vera klassa góð og ljúf í þorpinu sem ég bý í, mætti vera jólalegra en það er víst ekki hægt að ætlast til þess að þjóðverjar haldi jólin eins og Íslendingar. Síðasti leikurinn er í dag á móti Wetzlar kl. 19.00 og svo er ég farinn í flug í fyrramálið til Íslands. Mig hlakkar ekkert smá að breyta aðeins um vinnu umhverfi og fara að spila með landsliðinu og einbeita mér að því verkefni. Þeir sem hafa verið að reyna að ná í mig undanfarið mega vita það að síminn minn liggur í leigubíl sem ég er ekki ennþá búinn að finna. En á Íslandi verð ég með gamla góða númerið 847499? Bið að heilsa öllum og þegar ég mæti á klakann á morgun kemur annállinn 2007, með bestu kveðjum frá þýskalandi, ykkar Logi Geirsson. ![]() |
29.12.2007 |
| Gleðilega hátíð, gleður mig að fá þig á síðuna... |
|---|
| Jæja jólin eru komin enn eina ferðina og ég sit hérna frammi í stofu með fartölvuna og finn lyktina af hryggnum ilma hér um allt hús. Þetta er alltaf jafn skemmtilegur tími og þægilegur. Við erum núna 5 saman hérna um jólin að hafa góðar stundir saman, ég þarf nú reyndar að vakna kl. 07.00 í fyrramálið, setjast uppí rútu og bruna til Göppingen þar sem við erum að fara að spila leik þann 26. des. Ég er nú bara sáttur við að fá frí í dag og ætla mér að nýta það til hins ýtrasta, maður hefur upplifað það verra í atvinnumennskunni. Ég er svo fáranlega sáttur og hamingjusamur að vera til í þessu lífi og geta gert það sem mér dettur í hug, ég er í hugarleiðangri. Tími hugmynda og drauma er núna hjá mér og það er eitthvað sem ég get ekki sagt frá sem er að senda mér “innblástur”. Sendi einstaklega góðar kveðjur til fjölskyldu minnar og vina og óska ykkur öllum frábærra jóla, gleði og betri tíma. Ykkur sem finnst pakkarnir vera að skipta máli verð ég að segja að “Bestu hlutirnir í lífinu eru jú ekki hlutir”. Fjölskyldan, heilsan og karakterinn er það sem stendur uppúr þegar upp er staðið. Aftansöngurinn er að byrja svo ég ætla að njóta hans og hjálpa til í eldhúsinu. Líf og fjör frá Þýskalandi, Logi Geirsson on the road to my goals... |
24.12.2007 |
| Allir sem tekið hafa þátt í maraþoni vita að startið skiptir ekki öllu, heldur hvernig maður endar.. |
|---|
| Loksins stórleikur, á morgun erum við að fara að spila á móti Nordhorn sem hafa komið mest á óvart allra liða í deildinni á þessu ári og sitja í 2 sæti deildarinnar. Við erum í því 6 og erum á winning streak en við höfum verið að spila betur og betur undanfarið og eigum möguleika á að komast í það 4 með því að vinna þrjá síðustu leikina sem eftir eru á árinu. Þann 26 des eigum við leik á móti Göppingen hjá þeim og svo 29. des er síðasti leikur ársins á móti Wetzlar. Þá tekur landsliðið við og verður það virkilega gaman að standa undir þeirri pressu sem gerð er á liðið eftir “gott” HM í byrjun þessa árs. Eins og flestir sem lesa þessa síðu hafa tekið eftir verður þétt prógram fram að EM, leikir í danmörku og einnig heima á móti Tékkum í byrjun janúar. Mann er strax farið að klæja í fingurna að spila fyrir landsliðið og taka vonandi þátt í öðru eins ævintýri líkt og HM var hér fyrr á árinu. Nema núna veit maður hvað þarf til. En að allt öðru, varðandi keppnistreyjuna hans Ásgeirs Arnar #9 þá vann Styrmir Sigurðsson hana með bestu röksemdarfærslu sem ég hef nokkurn tíma lesið en það verður engu að síður ekki birt hér. Ég ætla mér líka að taka smá ANNÁL ársins núna í lok mánaðarins og fara yfir helstu og merkilegstu hluti ársins hjá mér, bæði handboltalega og persónulega. Held að þar muni koma margt nýtt fram sem hefur aldrei komist í texta á síðunni. Annars ætla ég bara að óska ykkur lesendum síðunnar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, allavega ætla ég að hafa það þannig hjá mér. Svo hittumst við hress á nýju ári með helling af nýjungum, skemmtilegheitum og óvæntum breytingum. Með bestu kveðjum, L&1_23 ![]() Maður dagsins: Andri Már Ingólfsson forstjóri Spakmæli dagsins: “Í slagsmálum skiptir stærðin á hundinum ekki máli heldur baráttan í honum” Lag dagsins: Svört sól með Sóldögg Muna dagsins: Vissulega er best að spila alltaf vel, en ef ekki þá allavega í mikilvægustu leikjunum... Heimasíða dagsins: www.ruv.is og www.handbolti.is ![]() |
21.12.2007 |
| Jæja þá er búið að draga í jólagetrauninni! |
|---|
| Þessi spurningakeppni var ekki fyrir hvern sem er enda frekar erfið en kom mér engu að síður á óvart hvað margir gátu verið nákvæmir og haft þetta vel á hreinu. Ég byrjaði á að sigta út 5 af þeim 14 sem voru með þetta rétt. Þeir sem komust í gegn voru eftirfarandi: Pálina Pax Birkirhk1 Hjalti Þór Kristmann Ágústa Ósk Óskar Adams Styrmir Sig Jón Árni Jóns Gummi Ped Björk FH Síðan voru þetta heiðarlegasti dráttur sem sögur fara af því að ég gerði eftirfarandi. Ég skrifaði nöfnin á þeim hér að ofan á miða og dreifði þeim á gólfið. Síðan er litla Lúna sem er hundurinn minn sem elskar að tæta í sig pappír því hún getur ekki eyðilagt neitt annað hleypt inní herbergið og sá miði sem hún myndi velja fyrst væri sigurvegarinn. ![]() Nafnið sem var á miðanum var Ágústa úr Mosó og fær hún því þennan fína glaðning í pósti til sín í lok næstu viku. En þar sem mér fannst virðingarvert að svona margir skildu spreyta sig og ekki fleiri en þetta komast í gegn ætla ég að setja upp smá spurningu einungis fyrir þá sem eru á listanum hér að ofan. Það sem er í vinning er medium keppnistreyja frá Ásgeiri Erni frá því í fyrra og ég skal senda keppnisstuttbuxur með, spurningin er afhverju ættir þú að fá hana? Með bestu kveðjum, L&1_23 Maður dagsins: Aron Pálmarsson Spakmæli dagsins: “Flest sem er sjaldgæft er dýrmætt, til dæmis hrós” LG Lag dagsins: Out Of Control með Hoobastank Muna dagsins: Taka jólastressið og gíra það niður, gjafir og þetta stuff er ekki allt. Maður er búinn að upplifa það alltof oft að skerða ánægju þessa tíma með því að vera endalaust að stressa sig á algjörum óþarfa. Heimasíða dagsins: www.ebay.com þar sem ég kaupi mér allan fjandann, hvort sem ég þarfnist þess eða ekki. |
17.12.2007 |
| Met þátttaka í Jólagetrauninni... |
|---|
| Ég setti spurningarnar inn í fyrradag og ég er búinn að fá 46 svör og þar á meðal eru 13 þeirra rétt. Ég ætla að draga út vinningshafann í dag og þá sjáið þið hver hefur farið með sigur af hólmi. Annars spiluðum við leik á móti Berlín í gær og ég er mega sáttur enda unnum við stórsigur 38-24. Berlín sem eru nýliðar í deildinni og eru sem stendur í 14 sæti og virðast að öllu ábreyttu ætla að halda sér í deildinni. Engu að síður er mikið eftir að mótinu þó svo það sé nú næstum hálfnað. Við erum í því 6 sem stendur og næsti leikur á móti Nordhorn eftir viku sker virkilega út um það hvort við séum að spila góðan bolta eða ekki. Nýju myndirnar eru á leiðinni inn en ég hef ekki fundið tíma í það að hlaða þeim öllum hér inn. Það virðist vera að fólk hafi oft meira gaman af því að skoða myndir en að lesa færslunar hjá manni miðað við tölurnar um síðuflettingar. Þannig að ég ætla að vanda valið á þeim;) Einnig má vænta nýju videoi sem verða jólin 2007 en videoið í fyrra virtist gleðja marga, þar sem að familian fór á kostum. Maður svona hálf-saknar jólanna heima, vonda veðrið og snjókoman en hérna er alltaf eins. Náttúran leyfir manni aldrei að skipta um gír eins og heima, hér er alltaf sama veðrið. Í handboltanum er allt byrjað að ganga eins og það á að vera. Maður er farinn að geta tekið loksins vel á því á æfingum án þess að vera haltrandi 2-3 tíma eftir hverja æfingu svo markmiðið mitt um að vera orðinn 100% með landsliðinu er að ganga eftir. Með bestu kveðjum, L&1_23 Maður dagsins: Guðmundur Pedersen, er búinn að ná því að spila 500 leiki fyrir FH, til hamingju með það. Spakmæli dagsins: Segið aldrei meira en þið getið staðið við! Lag dagsins: Not an addict með K’s Choise Muna dagsins: www.myspace.com/logigeirsson23 Heimasíða dagsins: www.eas.is hellingur af nýju og góðu dóti komið inn, lítið við. |
16.12.2007 |
| Myndastuffið er komið í hús, Jólagetraun, og myndirnar mæta á morgun... |
|---|
Get nú ekki sagt að það hafi eitthvað sérstaklega merkilegt gerst hérna síðan ég skrifaði síðustu færslu. Maður er nú byrjaður að undirbúa þessi blessuðu jól, maður leyfir sér að dreyma um þann tíma þar sem maður var bara í fríi yfir jólin. Núna þarf maður að spila 3 leiki yfir hátíðarnar og æfing á þorláksmessu og enginn friður. Maður er nú samt orðinn vanur þessu og þetta verður nú samt ekkert sem maður getur ekki tæklað. Ég er nú þegar búinn að kaupa og setja upp jólatréð sem tekur sig mun betur út hér en í gömlu íbúðinni. Einnig datt það nú inn líka að setja með inn á morgun einhverjar myndir úr íbúðinni ef ég hef tíma í það. ![]() ![]() Ég held líka að það sé kominn tími á getraun mánaðarins, hvað er skemmtilegra en að vinna Lemgo búninginn í heild sinni. Þá erum vði að tala um Treyju, buxur, Sokka, skó og svitaband en það verður aðalvinninur getraunarinnar. Köllum þetta Jólagetraunina, ég veit að það eiga margir eftir að reyna við þetta svo ég hef þetta erfitt í þetta skiptið svo það séu mesta lagi 2-3 sem nái að svar öllu réttu. * Númer hvað spilar íslenski leikmaðurinn sem er að koma til Lemgo á næsta ári í skjern? A) 2 B) 12 C) 20 * Hvað eru margar tær á Hænufæti? A) 2 B) 4 C) 5 * Hver skoraði sigurmark Real Madrid gegn Juventus í úrslitaleik CL 1998? A) Predrag Míjatóvits B) Cruyff C) Colemann * Hver var frambjóðandi Demókrata fyrir forsetakosningar í USA 1988? A) Michael Smith B) Michael Dukakis C) Michael Jordan * Hvaða lönd eiga landamæri að Mosambik? A) Swasiland, Suður Afríka, Zambía, Zimbabve, Tanzania og Malaví B) Suður Afríka, Zambódía, Zimbabve, Tanzania og Malaví C) Zambódía, Zimbabve, Swasiland, Suður Afríka Geri mér fullkomlega grein fyrir því að þú hafir einfaldlega gefist upp og svörin koma inn á laugardaginn, með bestu kveðjum frá Þýskalandi, Logi Geirsson. Maður dagsins: Þýska stelpan sem kom í kastljósinu með rottuna ég bara er enn að jafna mig. Brandari dagsins: Einar Már sendi þennan inn. Reiður maður kom í kjötborðið í Nóatúni og hélt á elduðu læri í hendinni - sagðist vera með matarboð og lærið hefði rýrnað svo við eldunina að hann gæti ekki gefið öllum matargestunum sínum að borða. Nóatúnsmaðurinn þagði í smástund en sagði svo: Þetta er stórundarlegt! Í síðasta mánuði keypti ég mér lopapeysu og þegar hún varð skítug henti ég henni í þvottavélina og þaðan í þurrkarann og hún varð ekki neitt neitt - skildi þetta vera af sömu rollunni!!! Lag dagsins: Porch með Peal Jam Spakmæli dagsins: Hlustaðu 1000 sinnum, hugsaðu 100 sinnum en talaðu aðeins einu sinni! |
14.12.2007 |
| “Sinntu starfi þínu eins og þú þarfnist ekki peninganna.” |
|---|
| Þá er leiknum lokið á móti Nettelsted og mér fannst ég til þess knúinn að setja smá fréttir um leikinn eins og ég lofaði. Ég byrjaði inná og spilaði fyrstu 10 mín og svo síðustu 10 af leiknum og var frekar sáttur við að koma loksins inná í mínum fyrsta alvöru leik síðan á 17 júni á Íslandi. Ég er samt ekkert að hoppa hæð mína yfir frammistöðunni og spilaði í þessu frábæra vinstra horni! þar sem mér tókst að klikka á Birki, hann varði ekki ég skaut í hann. Ég skoraði ekki mark en læt sigur liðsins nægja að þessu sinni 22-27 þrátt fyrir að vera brjálaður inní mér, hata að spila leik og skora ekki. Það er svona eins og að ég veit það ekki, vera leigubílstjóri og skutla manni frá Reykjavík til Akureyrar og gleyma að setja mælinn í gang, nei vá þetta var slök viðlíking. Mér tókst engu að síður að gleyma báðum búningunum mínum heima og spilaði því í númer 35 og teypaði LOGI aftan á hann. Þetta var því miður sjónvarpsleikur og það er búið að rigna yfir mig SMS í kvöld, hvað hefði gerst fyrir #23, þar hafið þið það. Annars er ég bara hrikalega hress og vona að þið séuð það líka, ég er alltaf að fatta það hversu auðveldlega maður stjórnar hamingjunni Næsti leikur hjá mér er á laugardaginn á móti Fuchse Berlin og ég ætla mér að setja nokkur góð mörk þar og fara að stimpla mig rækilega í þessa deild hérna, maður verður alltaf að vera á tánum svo maður gleymist ekki. Maður dagsins: Geirs Ólafs fyrir gott viðtal með Erpi í Ísland í dag. Spakmæli dagsins: Því fleira sem lögin banna því fátækara verður fólkið “Don´t cry because it´s over. Smile because it happened.” Lag dagsins: Somewhere over the Rainbow, Israel eitthvað. Fæ ekki nóg af þessu lagi. Hamingja dagsins Við teljum okkur trú um að lífið verði betra eftir að við: göngum í hjónaband, eignumst barn og síðan þegar við eignumst annað barn. Síðan verðum við ómöguleg yfir því að börnin eru enn svo ung og teljum að við verðum miklu ánægðari er þau eldast. Þegar það gerist verðum við pirruð á því að þurfa að takast á við unglingana okkar og teljum okkur verða ánægðari þegar þeir vaxa upp úr því aldursskeiði. Við teljum okkur trú um að við munum öðlast meiri lífsfyllingu loksins þegar: maki okkar tekur sig taki, þegar við fáum betri bíl, þegar við komumst í almennilegt frí eða þegar við setjumst í helgan stein.Sannleikurinn er sá að það er ekki til betri tími til að verða hamingjusamur heldur en einmitt núna!…....... Því ef ekki núna..... hvenær þá? Lífið er alltaf fullt af vandamálum. Það er best að horfast í augu við það og ákveða að vera hamingusamur þrátt fyrir það. Alfred D. Souza sagði eitt sinn: “Lengi vel fannst mér alltaf sem lífið væri rétt að byrja – þetta eina sanna líf. En það var alltaf eitthvað sem stóð í vegi fyrir því, eitthvað sem þurfti að yfirstíga fyrst, einhver ókláruð mál, tími sem þurfti að eyða í eitthvað, ógreiddar skuldir. Síðan myndi lífið byrja. Dag einn rann það upp fyrir mér að allar þessar hindranir voru lífið sjálft.” Þetta viðhorf hjálpar okkur að skilja að það er engin leið að hamingjunni. Hamingjan er leiðin. Brandari dagsins: 4 ljóskur voru að keyra til Disneylands og svo komu þær að skilti sem sagði "Disneyland left" og þær séru við og fóru heim he he he he he ![]() "Dýrasta Lemgo treyja frá upphafi, eftir þetta uppboð"... Jónsi í svörtum fötum passaði samt bara í small ;) |
12.12.2007 |
| No matter if you´r Black or White... |
|---|
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
09.12.2007 |
| "Listin að lifa lífinu er að leiða það hjá sér sem skiptir ekki máli" |
|---|
| Sæl verið, ég var í gær notaður í myndatökur fyrir einhvern ljósmyndaskóla í Bielefeld og ég dealaði við fólkið að fá að eiga myndirnar og birta þær hérna á síðunni. Þannig að þið megið búsast við því að fá einn vænan skammt af myndum seinni partinn í dag. Þessir krakkar fengu verkefni að fylgjast með og búa til creative myndir af atvinnu íþróttamönnum og ég varð fyrir valinu. Ég stakk uppá og nýtti mér að setja upp smá Adidas “þema” þar sem ég er jú sponsoraður af Adidas. En að allt öðru, ég ætla mér núna að fara að fjalla meira um handboltann þar sem maður er jú að komast inní þetta allt aftur. Næsti leikur hjá okkur er núna á þriðjudaginn næstkomandi 20.15 í Nettelsted þar sem Birkir Ívar og Þórir Ólafs spila. Leikurinn verður að þessu sinni sjónvarpsleikur þar sem yfirleitt eru þetta skemmtilegir leikir. Þessir leikir titlist undir derby þrátt fyrir að við Lemgo menn höfum alltaf betur. Í fyrra var þetta spennandi leikur fram á síðustu sekúndur sem endaði þannig að við fengum víti þegar 20 sek voru eftir og ég skoraði á Birki og tryggði okkur sigurinn, frekar leiðinlegt að segja það en hann snerti boltann ;) Hvorugt liðið hefur verið að sýna flottan handbolta það sem af er vetri og engin lið í deildinni lent í jafn miklum meiðslum og þessi tvö. Við erum sem stendur í 8. sæti en Nettelsted í því 17. með aðeins 5 stig eftir 14 leiki sem verður að teljast svakalega slakur árangur miðað við góðan mannskap. Við munum mæta með fullt lið en Nettelsted er með einhverja 4-5 lykilmenn í meiðslum og þar á meðal Þóri okkar Ólafsson sem varð fyrir því ólani að viðbeinsbrjóta sig á æfingu fyrir skömmu síðan. En ég mun líka koma með ítarlega umfjöllun eftir leikinn því ég reikna nú með að fá loksins að spreyta mig, með bestu bolta-kveðjum, Logi Geirsson. Maður dagsins: Jean Michell Paoli fyrir að vera lang svalastur. Brandari dagsins: Hafiði heyrt um Kínverjann sem var svo gráðugur að hann borðaði með prjónavél Bwahahahahahahahaha Spakmæli dagsins: Never let the fear of striking out....keep you from playing the game" Heimasíða dagsins: www.gillz.is mér þykir alltaf jafn gaman að skoða þetta og nýja videoið með Geir Ólafs, ég er ekki frá því að hann sé með eitt ferskasta bloggið um þessar mundir. Maður fer bara að hlæja þegar maður les skrifin hans! |
08.12.2007 |
| Ég er í metnaðarfullu lofti þessa dagana!!! |
|---|
| Verð nú að viðkunna að tvær síðustu blogg færslur séu með þeim allra lélegustu sem ég hef sett hérna inn frá upphafi síðunnar. Ég er samt ekki að skjóta á brandarann hjá Alfreð frekar en gamla viðtalið. Ég hafði það bara ekki á samviskunni að láta ykkur þurfa að lesa þetta. Veit samt ekki hvort að þetta verður eitthvað skrárra nema fyrir þá sem eru að fara að koma í heimsókn næsta sumar því ég er að fara að fá mér Ferrari GTS Targa 355. Þá hefur mér tekist að láta enn einn drauminn rætast og ef þetta er ekki tíminn þá hvenær. Maður er barnslaus, í miðri Evrópu, stutt í öll lönd. Held að þetta sé málið og ætla mér að keyra um á honum í ár eða svo. ![]() Ég er búinn að keyra til þessara landa síðan ég flutti út. Frakkland – París Danmörki – Köben Ítalíu – Mílano Austurríki – Bodensee Tékkland – Prag Holland - Amsterdam Monaco St. Tropez Ég hefði aldrei nennt að keyra þetta nema að hafa verið í blæjubíl og núna ætla ég að fara lengra og þarf þ.a.l. öflugri og nýjan bíl til þess. Þessi hérna er búin að fara til allra þessa staða og hef ég ósjaldan þurft að smygla henni inná hótelherbergi, hún er ekkert að fara að slá af heldur. ![]() Ég bið ykkur vel að lifa og þykir alltaf jafn gaman að deila hluta af mér hérna með ykkur á veraldarvefnum, einnig gaman að sjá hvað fólk er áhugasamt að koma inná síðuna þrátt fyrir að maður sé ekkert að spila, Logi Geirsson. Maður vikunnar: Anni Ólafsdóttir Lög vikunnar: Band of Horse – Funeral Jet Black Joe – Full Circle Á móti Sól – Sæt Guðmundur Jónsson – Jólainnkaupin “en þetta er fyndnasta lag allra tíma.” Spakmæli dagsins: “Gerðu það sem þú vilt, þú gætir verið dauður á morgun” Brandari dagsins: Innsendur frá Aroni Pálmasyni. Einu sinni var maður nokkur sem hitti galdrakarl sem var að hrapa fram af fjallsbrún og hann bjargaði auðvitað galdramanninum og þá gaf galdrakallinn honum eina ósk og þá sagði maðurinn ég vil fá að pissa víni strax á morgunn svo sagði galdrakallinn að þetta væri ekkert mál og maðurinn fór heimtil sín og fór að sofa svo auðvitað vaknaði hann og ákvað að láta reyna á óskina og meig í glasið og viti menn það kom dýrndis rauðvín og hann kláraði úr glasinu,vakti svo konuna sína og sagði henn frá þessu og þá vildi hun auðvitað smakka en þá sagði mauðurinn........jájá,en þú verður að drekka á stút [:D Beiðni dagsins: Stúlka að nafni Jóhanna sem sér um myspace síðu um mig bað mig að setja linkinn á hana hérna svo einhverjir forvitnir geti addað manni. Ég skoða hana sjálfur reglulega en þetta er ekki mín síða. www.myspace.com/logigeirsson23 |
05.12.2007 |
| Brandari frá Alfreð Gísla!!! |
|---|
Tveir gaurar frá Íslandi dóu og vakna upp í helvíti. Daginn eftir tékkar Djöfullinn sjálfur á þeim og sér að þeir sitja í mestu makindum í úlpunum sínum, með vettlinga og húfur og orna sér við eldinn. Djöfullinn spyr þá hvað þeir séu eiginlega að gera? Er ekki nógu heitt í helvíti fyrir ykkur ? Gaurarnir svara, "Sko, þú veist, við erum frá Íslandi, landi snjós,íss og kulda. Við erum bara ánægðir að fá smá yl í kroppinn." Djöfullinn ákveður að þeir séu nú ekki að þjást nóg svo hann skrúfar upp hitann. Morguninn eftir kíkir hann aftur á gaurana tvo og þarna sitja þeir ennþá í úlpum með húfurnar og vettlingana ennþá á. Það er nú ferlega heitt hérna, finnst ykkur það ekki? Aftur svara gaurarnir því til að þeir komi jú frá Íslandi, landi snjóa, íss og kulda, við erum bara fegnir að fá smá yl í kroppinn ! Það fór nú að fjúka nett í Kölska og hann ákveður að jafna örlítið um þessa tvo gaura. Hann fer og setur hitann á "Fáránlegt". Fólk fer að veina og væla út um allt helvíti. Hann fer svo og kíkir á gaurana tvo frá Íslandi og sér að þeir eru komnir á skyrtuna með upprúllaðar ermar og eru að grilla pylsur og þamba bjór. Djöfsi verður steinhissa " Allir hérna inni þjást og veina, en þið virðist bara njóta ykkar?" Já sko, það er svo hrikalega sjaldan að við fáum svona gott veður heima á Íslandi, að við urðum bara að grípa tækifærið og grilla aðeins og súpa á öli. Alveg óður af bræði, strunsar Djöfsi í burtu og hugsar málið. Að lokum kemst hann að þeirri niðurstöðu að þessir gaurar hafi verið að krókna allt sitt auma líf á Íslandi, þess vegna eru þeir svona kátir yfir öllum hitanum. Djöfullinn ákveður að skrúfa fyrir allan hitann í öllu Helvíti. Daginn eftir er orðið ískalt í Helvíti og héla og grýlukerti allsstaðar. Fólki orðið svo kalt að það gat varla gert neitt annað en veinað og aumkað sér yfir kuldanum. Tannaglamur yfirgnæði samt að mestu veinin. Djöfullinn glotti með sjálfum sér og fór að kíkja á gaurana frá Íslandi. Þar eru þeir komnir í úlpuna, húfuna og með vettlingana á sér...en Djöfsa til mikillar furðu, eru þeir að hoppa og öskra Ole ole af mikilli gleði !? Ég skil ekki, sagði Djöfsi, ég skrúfaði hitann upp úr öllu valdi og þið voruð bara ánægðir og núna er bullandi frost hérna og þið bara öskrandi af gleði?? Hvað í fjárnaum er að ykkur tveim? Íslendingarnir líta á Djöfsa með spurn í augum, " Ha, veistu það ekki? Ef það frýs í helvíti, þýðir það bara að Íslendingar hafa unnið Dani loksins á Parken!" |
04.12.2007 |
| Eld gamalt viðtal úr Focus (2004)... |
|---|
| "Ég, bróðir minn og nokkrir félagar okkar vorum í hljómsveit heima á Íslandi þar sem við vorum eitthvað að fíflast saman að semja lög og skemmta okkur en ég hef átt gítar í einhver sex ár. Ég hef alltaf verið að spila og semja og svo setti ég þetta lag inná síðuna þegar mér fannst rétti tíminn til, segir Logi Geirsson handknattleiksmaður með Lemgo í Þýskalandi. Hann hefur verið að fást við tónlist í frístundum sínum sem hefur vakið athygli stuðningsmanna liðsins sem hafa nú beðið hann að semja nýtt lag fyrir klúbbinn. Einn af Lemgo-fjölskyldunni Það er mikill traffík á heimasíðunni minni þannig að maður er stundum svolítið smeykur við að setja meira af lögum þarna inn en það er aldrei að vita," segir Logi sem hefur komið sér ágætlega fyrir í Þýskalandi þar sem hann spilar sem atvinnumaður. Lið hans hefur unnið fjölda tiltla á síðustu árum og þar eru alltaf gerðar miklar kröfur til liðsins. "Þetta er stór klúbbur en lítill bær og allt mjög heimilslegt hérna. Stuðningsmenn liðsins og allir aðrir hafa tekið mér frábærlega. Fólk er að bjóða mér í mat eða heimsóknir hingað og þangað. Stundum hefur fólk meira að segja komið með kvöldmat handa mér sem kemur sér ágætlega þar sem ég er ekkert sérstakur í eldhúsinu, en er allur að koma til eftir miklar æfingar," segir Logi sem er óðum að ná tökum á þýskunni. Á heimasíðu hans, sem er ótrúlega vel sótt, hefur hann líka skrifað hugleiðingar sínar sem yngsta kynslóðin hefur sérstaklega gott af því að lesa. Þar hefur Logi m.a. fjallað um markmiðasetningu og hversu mikilvægt það er að hrósa fólki. Hann hefur fengið marga pósta frá fólki sem finnst textinn fróðlegur og kæmi sér að góðu eða vantar leiðsögn um hvernig það nær markmiðum sínum og hefur hann svarað þeim að bragði, með jákvæðni. "Fólkið hefur tekið mér það vel að ég reyni að gefa eitthvað af mér í staðinn og skila einhverju til aðdáenda liðsins. Ég hef t.d. verið að þjálfa yngri stráka hérna fyrir fólkið í bænum og virðist það kunna vel að meta það sem ég hef upp á að bjóða. Ég fæ alla vega fjölda þakkarpósta á dag frá alls konar fólki," segir Logi. Verðandi bankkaufmann en gítarinn fer hvergi Blaðamaður snýr sér aftur að tónlistinni og spyr Loga út í lagið sem hann var beðinn að gera fyrir liðið. "Stuðningsmennirnir báðu mig um að gera lag sem yrði svo alltaf spilað fyrir leiki, þetta þótti mér nú aðeins of mikið en ákvað svo að slá til (NO gutts NO glory). Ég er búinn með lagið, sem hljómar nokkuð flott en það þarf eitthvað að endurskoða textann. Maður er ekki alveg kominn með þýskuna 100%, þ.e. málfræðina en þetta verður vonandi frumflutt stuttu eftir áramót," segir Logi sem segist hafa talsverðan frítíma þarna úti og að tónlistin hafi stytt honum stundirnar, þó að bestu hlutirnir í lífinu séu yfirleitt ekki hlutir. Ég reyni að nýta tímann eins og ég get, hafa samband við fjölskylduna, les mikið, læri að elda og finnst ég hafa þroskast um mörg ár á þessum síðustu mánuðum. Maður lærir af reynslunni, allt annað eru bara upplýsingar. "Fólk er alltaf að spyrja mig hvort ég syngi lagið sem er á síðunni en svo er ekki. Við Be Not-arar tókum upp fjögur lög áður en ég fór út, ég samdi öll þeirra og söng ég tvö þeirra en ekki þetta lag, engu að síður á ég upptökunna af því þegar ég tek lagið en það er óhætt að segja að það sé slakari útgáfan," segir Logi hlæandi en vonar að hann geti bætt við lögum á síðuna þegar nær dregur jólum. Lagið hans fer að fara að koma sem hringitónn sem hægt verður að sækja frítt á síðunni hans www.logi-geirsson.de. Ennfremur segir hann að þeir stefni á að koma saman næsta sumar á Íslandi og slá upp í tónleika sem verða án efa vel sóttir, en lagið þeirra hefur fengið talsverða spilun í útvarpinu og hefur vakið mikla lukku. Hann er þegar búinn að koma sér upp fullt af tónlistarforritum þannig að nú er bara að bíða og sjá hvort Logi hristi ekki fleiri slagara fram úr erminni en það verður bara að segjast eins og er að lagið Kemur dagur!, sem er að finna á heimasíðu Loga, er langt um betra en margt af því sem er að finna á vinsældarlistunum. "Ég mun alla vega halda áfram að reyna að þróa mína tónlist en hvað úr því verður veit ég ekki. Námið á auðvitað eftir að taka sinn tíma en ég er samt ekkert á leiðinni að henda gítarnum strax," segir verðandi háskólaneminn, tónlistarmaðurinn og umfram allt handknattleiksmaðurinn Logi Geirsson, L&I_23. |
02.12.2007 |
| Johnny Cash - Hurt |
|---|
| 28.11.2007 |
| Alte Geschichte, für und über Eros Ramota!!! |
|---|
| Ich wollte diese Geschichte schon lange einmal auf dieser Seite erzählen, deswegen mache ich das jetzt endlich! Die Geschichte ist schon sehr alt, genaugenommen aus dem Jahr 2004, wir haben damals gegen Vezprem in der Championsleague gespielt und danach gab es eine geile Party bei Eros Ramotas Kumpel. Es war in Detmold und wie Ihr auf dem ersten Bild seht, wohnte der Kumpel in der 3 Etage. Ich hatte damals 4 Kumpels zum Besuch und habe sie mitgenommen. ![]() Als ich dort ankam mussten wir über den Rasen laufen und es war Arschkalt draußen und alles war gefroren. Dann hatte ich wie so oft eine geile Idee und habe viele Kastanien auf der Erde gesehen. Davon wollte ich eine hoch zum Eros ans Fenster werfen - der dort saß, aber ich habe es nicht geschafft. Dann kam ein Kumpel von mir und hatte mir eine eiskaltese gefrone Kastanie gegeben und die war schön schwer. Im selben Moment als ich das Ding geworfen habe, ist Eros vom Fenster weggegangen und sein bester Freund guckt raus und kriegt das Ding direkt auf die Nase. Ich habe mich fast nicht hoch getraut, weil ich damals erst 21 war und die anderen alle schon über 30. Aber das war nicht das schlimmste, sondern als ich hoch kam war das Ding, dass ich geworfen habe keine Kastanie vom Baum !!! Da oben lag ein riesen großer Haufen Hundekacke und der Kumpel von Eros stand da mit Nasenbluten. Alle haben sich totgelacht und zu meinem Glück war das ein netter Typ und hat mir nicht eins auf die Fresse gegeben. ![]() Mann des Tages: Der Göppinger Mimi Kraus. Lied des Tages: Manic Street Preachers – You are Tender and zou are Tired Witz des Tages: Was ist der Unterschied zwischen Borussia Dortmund und Karstadt? Beide sind Pleite nur Karstadt hat die bessere Sportabteilung... Was macht der Holländer wenn er Weltmeister geworden ist? Er schaltet die Playstation aus und geht ins Bett! Sprichwort des tages: “Mancher verdankt seinen Erfolg den Ratschlägen, die er nicht angenommen hat“ LG |
26.11.2007 |
| Handball is in my blood… |
|---|
| Það voru komnar ákoranir um það að skrifa aðeins meira um Handboltann héðan. Það ætti nú ekki að vera mikið mál. Við erum staddir núna í 5 sæti deildarinnar og búnir að dragast töluvert úr lestinni um að berjast um titilinn. Hamburg, Kiel , Flensburg munu líklega keppa um titilinn svo koma Lemgo Nordhorn og Kronau. Við spiluðum á sunnudaginn á móti Kiel og sýndum fínan leik til að byrja með og leiddum leikinn 6-1 en svo hrukku þeir í gang. Þeir enduðu á að vinna með einhverjum 8 marka mun sem var sanngjarn. Næsti leikur verður á móti Hamburg sem eru sem stendur í 1. sæti á miðvikudaginn næstkomandi hjá þeim. Þetta verður hörkuslagur því við munum selja okkur dýrt. Þið þarna heima eruð farin að geta séð næstum hvern einasta leik sem er frábært hjá Sýn. Ekki skemmir heldur fyrir að Gaupi er að lýsa þessu en hann hefur í svakalega mikið vit á þessu enda tíður gestur á leiki hérna í deildinni. Eins og þjóðverjar segja alltaf, “Stekustu deild í heimi.” Hérna getið þið séð spilplanið sem ég er búinn að setja upp: Mi, 21.11.2007 20:15 HSV Hamburg - TBV Lemgo Su, 25.11.2007 16:00 Aarhus GF- TBV Lemgo “EHF-CUP” La, 01.12.2007 17:00 TBV Lemgo - Aarhus GF “ EHF-CUP” Þr, 11.12.2007 20:15 TuS N-Lübbecke - TBV Lemgo La, 15.12.2007 19:00 TBV Lemgo - Füchse Berlin La, 22.12.2007 15:00 TBV Lemgo - HSG Nordhorn Maður dagsins: Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari, gaman að sjá liðið undir hans stjórn. Lag dagsins: Bubbly með Colbie Caillat Brandari dagsins: Sturla litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin. Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar. " Sturla minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar aukaspurningar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?" "Enginn", svarar Sturla. "Hvað meinar þú... enginn?", spyr kennslukonan? "Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu" segir Sturla Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar" Örstuttu seinna réttir Sturla litli upp hendi. "Já Sturla " "Má ég spyrja þig einnar spurningar?" "Endilega" segir kennslukonan. "Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?" Spyr Sturla Kennslukonan roðnar og segir, "Eee....ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn?....eða eitthvað" "Neeiiii" segir Sturla litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar" Með bestu mömmu-kveðjum frá Þýskalandi, Logi Geirsson. ![]() |
19.11.2007 |
| Good Old Geirsson Again… |
|---|
| Um að gera að setja smá slettur í fyrirsögnina. Ég verð nú samt bara að segja að ég held svei mér þá að ég sé búinn að finna mig aftur , hungrið, metnaðinn og öllu sem mér fylgir. Ég er loksins búinn að ná að setja mér markmið aftur og það líður ekki á löngu þangað til að ég verð farinn að ná þeim. Ég er ótrúlega ánægður með hvernig æfingarnar eru að ganga hjá mér og ég er loksins á hraðri uppleið og nú er no turning back. Nú er ég að fara að bæta mig sem leikmaður og gefa meira í þetta en ég hef áður gert og það er klárt mál að það er að fara að skila sér. Ég ætla mér að spila með á móti Arhus í EHF-CUP sem verður spilað á sunnudaginn næstkomandi í Danmörku. Þetta er eins og flestum er kunnugt, leikir heima og heiman og úrslitin samanlagt. Ég held líka að það sé óhætt að segja að þetta sé keppnin mín og mig langar að vinna hana aftur þrátt fyrir að vita vel hversu erfitt það verður. Ég vil nú ekki tala um að ég sé að koma með eitthvað “Comeback” í Danmörku þar sem ég er nú búinn að koma með þau nokkur á síðustu árum. Segjum bara að ég komi Fit í leikinn og hafi aldrei verið jafn hungraður í Handbolta eins og nákvæmlega núna. Yfir og Út Maður dagsins: Einar Ágúst fyrir að vera farinn að semja aftur... Lag dagsins: Last Caress með hinni stórgóðu pönksveit Misfits, þetta er óskalag! ![]() Beiðni dagsins: Ég var beðinn um að posta því hér á síðunni að það sé komin official myspace síða með url: www.myspace.com/logigeirsson23 Með bestu uppgangs-kveðjum frá Þýskalandi, Logi Geirsson. |
18.11.2007 |
| Það eru 24 stundir á sólarhring og ég er vakandi 18 af þeim… |
|---|
| Eins og fyrirsögnin segir þá er allt á full swing hérna hjá mér í Germany. Ég held ég hafi aldrei haft jafn mikið að gera og akkurat núna. Það er góðs viti held ég bara en eins og Pabbi segir alltaf þá er betra að vera ofvirkur en aðgerðalaus svo ég tek hann á orðinu. Þessar blessuðu færslur sem ég var búinn að lofa verða blastaðar hérna inn á næstu dögum, byggir bara upp spennu, þið þekkið þetta. Ég er byrjaður að æfa og það gengur vel, var heldur ekki von á öðru þar sem ég hef haft alveg ágætis tíma til að jafna mig. Mig er líka farið að hlakka til að fara að lesa jákvæðar greinar um mig en ekki endalaust um þessi blessuðu meiðsli. Lemgo eru að spila fínt þessa dagana, við erum í 5 sæti og eigum næsta leik á móti Kiel í Gerry Weber höllinni á laugardaginn næstkomandi. Síðan miðvikudaginn þar á eftir forum við til Hamburgar, ég ætla ekki að henda mér beint í djúpu laugina heldur að byggja mig upp. Þannig að þar hafið þið það ég verð ekki með í þessum leikjum. Fyrstu vörurnar úr fatalínunni fara að detta í hús, þetta er “handmade” og eflaust gaman fyrir ykkur að sjá. Tölfræðin tekur sinn skerf í skólanum, en maður GÆS ar þetta bara ( Get Ætla SKal). Ég hef oft mælt með þessu með vinnu að fara í viðskiptafræðina en það geta komið erfiðir tímar í þessu eins og öðru. Snilld dagsins: Valsmenn að vinna Celje Lasko. Maður Dagsins: Ragnhildur Steinunn fyrir að standa sig vel. Brandari dagsins: Eiginkona manns nokkurs var heldur dauf til kynlífsins, eiginlega bara algjörlega áhugalaus. En mannauminginn var eins og allir aðrir karlmenn, ávalt til í tuskið. Maðurinn vildi ekki gefast upp á kerlu. Eitt laugardagskvöldið eldaði hann frábæran mat, hafði gott vín með og stjanaði við konu sína allt kvöldið. Þegar þau fóru í háttinn og voru komin uppí fannst manninum hann hafa unnið fyrir sínu og vonaði að kerla myndi loksins gefa undan. Hann lagðist þétt upp að sinni heittelskuðu og hvíslaði í eyra hennar: ,,Heldurðu að það sé einhver möguleiki fyrir íþróttaálfinn að fara í Latabæ núna? Lag dagsins: The Champ Song með mér sjálfum mér. ![]() |
12.11.2007 |
| Was macht mann nicht alles für Deutchland ;) |
|---|
| So ich bin weider da und will mein Versprechen einhalten. Viele haben mich gefragt warum ich nie auch deutsch schreibe, mein Antwort ist, dass eigentlich nur Isländer auf meine Seite kommen. Die verstehen aber fast alle Deutch, so dass ich glaube, dass ich öfter paar Nachrichten in Eurer Sprache machen kann. Ja endlich kann ich wieder anfangen zu trainieren, ich muss mir aber ein bißchen Zeit lassen, sonst kann es sein, dass ich am Ende wieder bei 0% anfange und dadrauf habe ich absolut keinen Bock. Mein erstes richtiges Training wird morgen (Montag) sein. Wie ich so oft gesagt habe “Bald scheint die Sonne wieder”! Ich freue mich riesig, dass ich bald wieder Fit bin und in der Lipperlandhalle für die tollen Zuschauer spielen kann. Ich finde es auch so geil wie unsere Sportart hoch steigt hier in Deutchland seit der Weltmeisterschaft. Es ware schön gewesen, wenn Island das gewonnen hätte, aber wenn nicht wir dann ihr auf jeden Fall. HEHE. Ich glaube ja auch, dass kein anderes Land solche Stimmung und Atmosphäre hat im Handballsport. Ich will Euch auch nicht zu viel loben, aber Ihr seit wirklich fast immer Top, egal welche Sportart es ist und das ist vorbildlich! :) Sonst schönen Sonntag noch und bis bald... Mit comback Grüße von Lemgo, L&I_23. Mann des Tages: Amedeo Cannetti - Chef im Vesuvio - ich liebe das Essen da! Sprichwort des Tages: Auge für Auge und die ganze Welt wäre blind. Lied des Tages: California, með Phantom Planet, das lied ist so gut. Punkt des Tages: Versuch ma alle deine Ziele zu schreiben und guck mal später wie viele davon Du erreicht hast. Witz des Tages: Zwei Sportler treffen sich. Sagt der Dieter: "Hey, ich habe jetzt einen Golfsack!" Darauf der Blacky: "Tut denn das auch so weh wie ein Tennisarm?" ![]() |
11.11.2007 |
| Á leiðinni á toppinn í fylgd þeirra ósýnilegu... |
|---|
Ég er búinn að vera að fá heilan helling af myndum sendum inn frá hinum og þessum og það var ein sem kannski stóð uppúr. Sú mynd var tekin í bænum fyrir 1-2 árum ca og ef mér skjátlast ekki þá er þessi maður líklegast að fara að taka þátt í Eurovision. Ég er svo sáttur með það hvað við erum hætt að stressa okkur á þessari keppni sem er btw handónýt sökum klíkurskaparins. Ég get lofað ykkur því að ég ætla að sjá þessa keppni ef þetta lag hans fer áfram. ![]() En að öðru ég er alltaf að velta því fyrir mér hversu heppinn ég er að búa í Þýskalandi og hversu gott er að vera hérna. Kostirnir eru óneitanlega miklu miklu fleiri en ókostirnir og það er alveg sama hvern þið spyjið varðandi það. Ég get eiginlega lofað því að ég ætla að búa á Íslandi í framtíðinni en eins og staðan er í dag er óhætt að segja að ég gæti vart hugsað mér betra land til að búa í. Hérna eru nokkur dæmi um það hvað sé gott: * Ódýrt að lifa, sama hvernig á það er litið. Matvörur, föt, húsaleiga og þaðan frameftir. * Skólakerfin hérna eru fáránlega öflug, og krakkarnir eru orðin flugáfuð 10 ára. * Gatnakerfið er snilld, að keyra hérna er bara easy peasy, með þessum reglum. * Veðrið hérna er passlegt fyrir íslending eins og mig, heitt og gott. * Auðvelt að læra tungumálið og þeir hérna sjá til þess að þú verður að læra það! * Stutt í öll lönd í evrópu enda má segja að ég sé miðsvæðis. * Flug héðan hvert sem er nema til Íslands kostar skít og kanel. Hérna er dæmi um ókosti: Það vantar allt “fútt” í þjóðverja þeir eru of lokaðir og of reglusamir annars fínir. But you get my point, næsta færsla verður á spænsku því það hafa 150 heimsóknir komið á síðuna frá því í byrjun mánaðar. Ég veit nú ekki með gæðin á þessu hjá mér en ég er búinn að vera að læra spænsku í kvöldskóla að undanförnu og ætla að láta reyna á frumraunina hjá mér á morgun. Það eru eflaust einhverjir sem eru svekktir að hugsa núna útaf hverju ég setti ekki inn nýja sögu í dag. Það hefur allt sínar ástæður. Með mótorhjóla-spænskum kveðjum kveð ég ykkur í bili, endum á dagsins besta, L&I_23. Íslendingur dagsins: Bubbi Mortens fær það fyrir að gera ódauðlega músik og verða bara flottari með árunum. Spakmæli dagsins: Auga fyrir auga og allur heimurinn væri blindur… Lag dagsins: California, með Phantom Planet en maður kemst í góðan fíling við þetta. Heilræði dagsins: Settu allt sem þú ætlar að afreka niður á blað áður en dagurinn hefst og sjáðu hvað gerist. Reminder dagsins: Lemgo er að spila við Balingen í dag kl. 20.00 á heimavelli okkar og ég byrjaður að æfa;) |
07.11.2007 |
| Stundum getur reynst erfitt að finna fyrirsögn... |
|---|
Ég er mættur aftur til Lemgo eftir að hafa farið í helgarferð til Köben. Ég byrjaði á að fara á leik FCK-GOG sem eru bæði í top 4 í Danmörku. Ég verð nú að viðurkenna það að þessi umgjörð í kringum leikinn olli mér fáránlega miklum vonbrigðum. Þarna voru hellingur af góðum leikmönnum saman komnir og ekki nema kannski 1000 manns í pöllunum sem byrjuðu fyrst að klappa þegar leikurinn var búinn.![]() Ætla bara að þessu sinni að setja upp smá ferðalista: * Snilldar hótel i miðbænum og öllu tilheyrandi. * Hitti svona 200 Íslendinga án þess að ég sé nokkuð að grínast. * Danskur handbolti er ekki eins skemmtilegur og ég hélt, sökum áhorfenda. * Veitingastaðurinn Indian Thai var ágætur, Frikki Weiß var fínn og Dóra Takefúsa er farin á hausinn. * Arnór, Guðrún og Nóel takk fyrir heimboðið, gaman að hitta ykkur og sjá hvað þið hafið það gott þarna. * Matti takk fyrir að taka okkur í göngutúrinn ég er enn að drepast í löppunum. * Íslendingarnir í Óðinsvé, Ásgeir, Snorri og co snilld að kíkja út með ykkur, ekki skemmdi fyrir að hafa Stebba Redskin og Hannes á kjantinum. * Stikið var með opinn sunnudag og loksins gat maður verslað eitthvað af viti. * Köben er fáránlega svöl borg sem lætur mann ekki líta út fyrir stílbrot. Þetta var svona það helsta sem stóð uppúr þessari ferð minni. Á morgun kemur næsta saga og ég lofa því að hún er ekki fyrir alla, með spænskum kveðjum frá Þýskalandi, L&I_23. ![]() |
05.11.2007 |
| Kurze Meldung für die Lemgoer Fans og Íslendinga neðst... |
|---|
| So liebe Leute, jemand hat mir gesagt das ich Euch kurz schreiben sollte, über meine Gesundheit und mehr. Erstmal, ich war vor paar Tagen in “Kernspin” hier in Lemgo und mein Knie sieht viel viel besser aus, endlich und ich freue mich bald auf das Parkett zu sein. Es ist nicht leicht so lange verletzt zu sein und ich habe ja extrem wenig Glück gehabet als es zur Verletzung kamm. Eigentlich ist es manchmal schwerer für den Kopf als den körper, aber wie wir sagen immer in Island, “was mich nicht tötet macht mich starker”. Ich war von 8. Oktober bis 24 Oktober in Behandlung in Island und das hat mir gut getan. Manchmal braucht mann was frisches und neues um den Kopf frei zu machen und ich weiß das es hat geklappt bei mir. Mit gute Laune und überragende Leistung warte ich auf Euch, dass ich endlich spielen kann und wenn ich ehrlich bin, dann war ich nie so hungrig auf Handball wie jetzt. Ich glaube das ich kann Lemgo viel helfen wenn ich Gesund bin, aber kann das nur zeigen wenn ich fit bin. So bis bald ;) Sprichwort des Tages: Unter Blinden ist der Einäugige König. Mann des Tages: Fallt mir nicht schwer ein, Angela Grewe. Witz des Tages: (Immer 1 witz am tag ;) Klein-Fitzchen fährt mit dem Fahrrad im Dunkeln nach Hause... Da kommt ihm ein Polizist auf nem Pferd entgegen. Der beugt sich runter und sagt: "Na mein Kleiner, Du hast aber da ein schönes Fahrrad, hast Du das vom Christkind bekommen?" "Ja..." "Dann sag dem Christkind doch, es soll nächstes mal ein Rücklicht montieren, das macht jetzt 30 Euro!" Da beugt sich Fritzchen zum Polizisten hoch und erwidert ganz gelassen: "Du hast da aber ein schönes Pferd... Hast das auch vom Christkind bekommen?" Der Polizist lächelt milde. "Ja, wieso?" "Dann sag dem Christkind doch, es soll das nächste mal das Arschloch hinten montieren und nicht oben drauf..." *** Að lokum vil ég óska Snorra Steini og Óla Stef til hamingju með að vera valdir í heimsliðið, þeir eiga þetta virkilega skilið og ég samgleðst þeim mjög. Ég er núna í þessum skrifuðu að pakka saman og fara í helgarferð til Köpen takk fyrir. Hitti fyrir Ásgeir Örn, Snorra og Arnór Atla en liðin þeirra eigast einmitt við á morgun. Það er ekki bara leiðindi að vera meiddur ;) Með kveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
02.11.2007 |
| Saga 1. Eggjarúnturinn |
|---|
| Sæll kallinn minn, langaði að setja eina sem lifir lengi. Man alltaf eftir því þegar við vorum að spila í 3 .fl turnerningu í Valsheimilinu þegar við vorum nýorðnir 17 ára og komnir með bílpróf. Þú varst að sjálfsögðu eini sem áttir bíl enda skemmtilega góður að fara með pengs og keyrðir um á einum splúnkunýjum. Svo stakkst þú uppá því að fara á bensínstöðina sem liggur þarna við öskjuhlíðina og keyptir 2 eggjabakka. Við allir í bílnum skildum ekkert í þessu þar sem við vorum jú að fara að spila næsta leik eftir 3 tíma. Nei nei helduru að þú hafir ekki komið inní bílinn og sagt strákar ég nenni ekki þessu hangsi nú förum við og málum bæinn rauðann. Til að byrja með voru nú ekki góð viðbrögð enda vorum við flestir frekar siðprúðir menn og sáum strax í hvað stefndi. Svo byrjaðiru að skipta eggjunum 20 á okkur og sagðir okkur að hafa opna gluggana, svo byrjaði ballið. “Strákar þessi með skólatöskuna” svo var gefið í og 2 egg flugu útum hægri hliðina á bílnum og annað þeirra rataði beint framan á gæjann og adrenalínið sem kickaði inn við þetta var svakalegt. Þér fannst þetta svo fyndið að þú varðst að stoppa bílinn í hliðargötu og grenjaðir úr hlátri, þetta var nú bara byrjunin á þessum eggjarúnta ævintýrum sem stóðu yfir í einhvern tíma. Svo man ég extra vel eftir 2 atriðum þessu tengdu þegar við vorum að keyra á hlemm og þú varst orðinn þreyttur á að fá aldrei að kasta svo þú ákvaðst að reyna að henda einu og það útum gluggann hægra megin. Það var rigning og Gunni Gunn sat framí og var búinn að opna gluggann og þú varst tilbúinn að negla því út þegar þú hættir við og við keyrðum áfram, þá hafði Gunni snillingur lokað glugganum á meðan og skyndilega sérðu “target” þú þrumar egginu beint í lokaðan gluggann og helvítis hvellurinn haha ég man hann ennþá og hvað þú varst svakalega pirraður ahahhahaha. Bílinn var ógeð að innan og lyktin var svo slæm að við gátum vart setið í honum. Þú ert fucking snillingur og það voru forréttindi að fá að upplifa allan þennan skít með þér. Ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra en ég verð að enda á sögunni þar sem við vorum á laugardagskvöldi búnir að vera í þessu allt kvöldið á leiðinni heim, öll egg búin. Þá kemur Mási sem aldrei fékk að kasta og segist eiga 1, það er kannski við hæfi að segja að þetta hafi verið síðasta eggið sem við köstuðum. Erum á leiðinni framhjá Kringlunni og þar stendur fólk í jakkafötum örugglega verið að koma úr leikhúsi eða einhverju álíka. Mási hálfur útum gluggann og þrumar egginu beint í eða við konfektið á manninum og við heyrum öskurin þrátt fyrir að vera á 90 km hraða. Svo hlæjum við og sáttir með að enda kvöldið með þvílíku snilldarskoti. Svo er ferðinni heitið í partý í Hafnarfirði og við vorum ekki fyrr komnir fyrr en Mási fer að monta sig af þessu og allt partýið veltist um af hlátri. 20 mín síðar kemur taxi fyrir utan húsið og þá eru foreldrar stelpunnar sem hélt partýið að koma heim. Þarf ég að segja meira, hahahahahahaha. Gæjinn kemur labbandi inní húsið með egg yfir allar buxurnar og það hafði greinilega slettst konuna líka. Ég get bara ekki lýst svipnum á krökkunum þegar þau gengu inní húsið ég hló svo mikið að það enduðu dropar í buxunum og ég viðurkenni það fúslega. Hinsvegar voru við ekki svona brattir þegar við þurftum að skipta 15.000 kr á milli okkar fyrir nýjum buxum. Ég sendi aðra sem er ennþá ruglaðri ef það koma ekki einhverjar krassandi, með gömlum vinakveðjum gæjinn í miðjunni. ![]() |
01.11.2007 |
| Þeir sem þora þeir skora... |
|---|
| Haha ég vænti þess að flestir sem lesi síðuna kannist við fyrirsögnina frá því í den. Hún datt bara inn hjá mér þegar ég var að lesa sögurnar sem eru orðnar 4 talsins en ég get því miður ekki birt 1 þeirra þar sem hún er einum of fyndin en ég kem með fyrstu söguna á morgun. Hún er alveg fáranlega fyndin og og það eiga eflaust nokkrir eftir að glotta í eitt þegar hún kemur hérna upp, málið er líka að hún var skrifuð nafnlaus en ég held ég viti hvaða skoffín þetta var ;). Ég segi nú bara sem betur fer telst þetta til gamla daga og maður er vaxinn uppúr þessu. Þið megið ekki láta þetta fara framhjá ykkur. En að öðru! Ég er búinn að vera að fylgjast með þessu máli varðandi landsliðið í fótbolta og gaman að sjá að Óli Jó sé tekinn við. Kannski var það bara húmorinn sem vantaði í hópinn, nei vona ekki en ég held að hann eigi eftir að hressa vel uppí þessu enda skemmtilega líflegur og flottur náungi. Nú á ég líka meiri möguleika á að vera valinn í þetta lið þar sem ég fór á æfingu hjá FH ingunum í sumar og var án þess að ég sé að ýkja besti maðurinn. Spiluðum 2 lið í 50 mín á stóran völl og ég setti 2 mörk í 3-1 sigri yngri á eldri. Það var mjög fyndið að þegar ég mætti fóru allir að hlægja því ég á ETO skóna sem eru dýrari en hjá öllum hinum í liðinu en svo kom bara í ljós að sá hlær best sem síðast hlær. Ég gæti alveg séð mig í framlínunni með Eiði. Ég er nokkurn veginn sure á að ég myndi skora móti Lichtenstein og jafnvel Lettum. Allavega Óli ef þú ert að lesa þetta sem ég geri fastlega ráð fyrir þá er ég tilbúinn ef kallið kemur og ég mun ekki valda þér vonbrigðum. Ég hef meira að segja spilað heimsmetsleik á fótboltavellinum í Schalke fyrir framan 33.000 manns þannig að ég er ekki að takast á við eitthvað nýtt ;) Svo að lokum þá ætla ég bara að leyfa mér að skrifa það hérna á síðuna þrátt fyrir að þjóðverjar þýði allt sem ég skrifa yfir. En Peter Meisinger var rekinn í dag sem þjálfari liðs okkar, hann gerði upphaflega 3 ára samning en dugði ekki lengur en 4 mánuði. Volker Zerbe tekur við liðinu, AFTUR þangað til að Markus Baur tekur við því 1.1. 2008. Meira hef ég ekki að segja í dag og lengi lifi kónugurinn. Með bestu kveðjum frá Germany, Logi Geirsson. ![]() |
30.10.2007 |
| Óska eftir vinum og kunningjum... |
|---|
| Þá er komið að smá nýjung á síðunni, það tókst einum einstaklingi sem ég hef verið mjög tengdur í gegnum e-mail undanfarið að fá mig á þessa hugmynd. Hún gengur útá það að vinir, fjölskylda og kunningjar eða bara hver sem er kemur hérna inn á að skrifa smá sögu af mér sem talist gæti sem gott lesefni og helst fyndna. Þetta má hafa verið slysa saga, stríðnis saga, skemmdarverkaa saga, brandara saga, handbolta saga eða hvað sem er. Af nógu er að taka og mun ég birta þær allar í röð um leið og þær fara að berast. Ég held að úr nógu sé að taka og það má eiginlega segja að þetta sé einskonar áskorun á mig því ég átti það til að vera mjög svo uppátækjasamur á yngri árum. En tíminn líður og mennirnir með svo þetta hefur nú elst þónokkuð vel af manni en þá ekki alveg. Mig hlakkar einstaklega til að birta nokkrar þar sem ég veit nú þegar um ákveðna aðila sem bíða eftir þessu tækifæri að láta ljós sitt skína. Nú er bara að sjá hverjir eru menn og hverjir mýs, það þarf ekkert að skafa af þessu. Ég hef fulla trú á því að þetta mun vekja mikla lukku. Svo ég hendi boltanum til ykkar og mailið þessu á mig á logi.geirsson@gmx.de Með miklum eftirvæntings-kveðjum frá Germany, Logi Geirsson. ![]() |
29.10.2007 |
| 3 vikum seinna og sjaldan liðið jafn vel... |
|---|
| Jæja þá er maður mættur aftur til Germany og mikið er það gott. Hefði viljað vera lengur á Íslandi horfa á landsleikina og hitta fjölskyldu og vini en þurfti að redda nokkrum málum og koma að hitta liðið og forráðamennina. Þetta var engu að síður ekkert smá skemmtilegur tími og takk fyrir allt þarna heima. Nú er hinsvegar alvaran tekin við og maður þarf að gíra sig inní þýska culturinn sem er svo ótrúlega ólíkur þeim íslenska að það er varla fyndið. En eins og áður sagði þá er gott að vera kominn “heim” og mun ég væntanlega verða mikið fyrir framan tölvuna á næstu misserum sökum meiðslanna en ég verð ekki farinn á fullt fyrr en eftir 3 vikur ef þá svo snemma. Stundum er betra bara að vinna að þessu í rólegheitunum í staðinn fyrir að vera að setja of mikla pressu á mann því tíminn er dýrmætur. Ætla að punkta það sem stóð uppúr í ferðinni: *Stebbi Stoke sjúkraþjálfari er fáránlega góður. *Svöl auglýsingaherferðin frá EAS. *Partýið hjá MFL karla FH hjá Elvari Erlings. *Gaman að lesa og horfa á íslenska fjölmiðla. *Vinna Sverri Garðars 13-2 í Pool og hætta öllum samskiptum við hann,haha. *Lyfta aftur með “Markusi Strength Coach” í German Volume Training. *Hádegishlaðborðið á Nordica, VOX held ég að það heiti. *Adidas klárlega fyrir að vera flottur SPONSOR. *Maturinn og allt sem fór fram á Sævangi 10. *Pokerkvöldið þar sem ég vann ;) YES sir. *Vinna Aron Pálma í öllu sem við kepptum í. *Éta endalaust mikinn harðfisk, fiskiolíu, og þetta týpical íslenska stuff. *Skotæfingin með Nóri Markmanni. *Allar skyndibitaferðinnar með félögunum. Afmælisbörn vikunnar: * Binni Geirs er 30 ára, og til hamingju með það og bara ef ég gæti lýst því hversu mikið ég lít upp til hans. * Susan varð líka 26 ára í vikunni og innilega til lukku með það. Íslendingur dagsins: Það er bara einn Grjónaldo og hann er einfaldlega maður dagsins. Lag dagsins: Gamla góða “Rangur maður” með sólstrandargæjunum, mikið svakalega eldist þetta vel. Með bestu mótorhjóla-kveðjum frá Germany, L&I_23. ![]() |
26.10.2007 |
| Damien Rice - Cannonball |
|---|
| 26.10.2007 |
| Ég er á leiðinni til Íslands... |
|---|
| Ég er núna að pakka í töskur og undirbúa mig fyrir heimferð vegna þess að ég að er að koma heim til að fá hjálp læknanna Sveinbjörns Brandssonar og Brynjólfs Jónssonar. Það sem að báðir þessir læknar virðast vera mjög þekktir, allavega hérna í Þýskalandi og eru með góðan orðstýr sér var ákveðið að senda mig með fyrstu vél í myndatökur og skoðanir hjá þeim. Ég var nú bara að frétta þetta fyrir 5 mín þannig að félagar ég get ekki látið vita nema hér. Sjáumst hress á morgun á Íslandi, ekki láta þessa mynd hneyksla ykkur of mikið fann hana bara á netinu og fannst hún einhverra hluta vegna passa fínt við þessa færslu. Með bestu kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Svo er stórafmæli á miðvikudaginn 10.10 maður er orðinn 25 ára gamall þannig að aldrei að vita að maður þrumi upp einhverju "Giggi" þarna heima just stay Tuned!!! ![]() |
05.10.2007 |
| Hef lítið sem ekkert að segja en það er betra en að þegja... |
|---|
![]() Það er orðið svolítið langt síðan maður fékk svona útrás... |
04.10.2007 |
| Never Say Never Again |
|---|
| Ég man aldrei drauma, en í gær kom þessi í gegn og dæmi hver fyrir sig. Sá fyrir mér eitthvað sem ég get vart lýst, dimma var úti nokkur flögrandi laufblöð sem vindurinn bar með sér með tilheyrandi skrjáfi. Engin ljós, ekkert nema myrkrið ég og og það sem ég var að hugsa, fannst ég vera að fara að sækja eitthvað. Sé mér til hjálpar bílljós í fjarska, þau fóru aðra leið, skynjaði hættu. Húsin voru í anda fornaldar og kertaljósin glömpuðu í húsi einu langt uppi á akrinum. Ákvað að leita þangað en þá var ég staddur í báti á rúmsjó og fannst ég finna fyrir íslensku sjávarlyktinni. Eitthvað fékk mig til þess að berjast við að róa inn stóran fjörð sem ljómaði eins og ég hefði séð ljósið, það var ískalt og ég var að berjast fyrir lífi mínu. Síðan dundu hættunar á, það kom hákarl, sem reyndi að bíta í bátinn en ég var greinilega það vel undirbúinn að báturinn var úr járni og átti engan séns. Síðan kom Hvalurinn og reyndi að hvolfa bátnum mér tókst að þykjast vera dáinn í bátnum svo hann hætti að skipta sér af mér en síðan kom sverðfiskurinn sem ég vanmat og átti í hvað mestum erfiðleikum með þangað til að ég lék á hann. Ég stefndi enn nær firðinum og áttaði mig allt í einu á því að ég var staddur við strendur Noregs. Ég færist rólega uppað bryggjunni þegar ég sé að það stendur þar hópur manna bíðandi sem neita að hjálpa mér á land, vildu ekki henda til mín landfestum. Þá lét ég líta útfyrir að ég hefði gefist upp og réri útúr firðinum en þegar ég var kominn þeim úr augsýn klifraði ég upp fjöruborðið yfir fjallið og gekk til baka þar sem þeir stóðu allir, ég kom aftan að þeim og losaði bryggjuna eins og hún lagði sig og hún rak útá fjörðinn með öllum á. Skyndilega fannst mér ég ekki vera einn heldur að það væri verið að fylgjast með mér. Eftir það hélt ég af stað í átt að bænum og sá þar eins og kastala sem var lýstur upp af hundruðum kastara, það glampaði í eitthvað. Eitthvað togaði mig þangað þegar að ég sá að ég var ekki sá eini sem vildi komast þarna upp. Allt í einu áttaði ég mig á því að þetta væri minn tilgangur, ég þurfti að berjast, fela mig, nota klókindi og fórna mér 100% fyrir það eitt að komast þarna upp. Að lokum stóð ég þar uppi og hélt á einhverjum hlut og leið eins og ég væri á toppi veraldar. Ég er strax búinn að kryfja þennan draum og veit hvað hann þýðir, kem með það á morgun! Með kveðjum frá Germany, Logi Geirsson ![]() Beste Kellner der Welt, Herr Marinko. |
01.10.2007 |
| Aldrei skal vanmeta þráina, því hún ýtir undir drauminn... |
|---|
| Jæja þá er það enn einn dagurinn í tölvunni og ég var enda við að horfa á Champions League í handboltanum Flensburg var að spila móti Ciudad. Meðan ég sat með lappirnar uppí loft var ekki laust við því að gamlar minningar hraunuðust upp frá árinu 2004 og 2005 þar sem ég var að spila með Lemgo og “Plaffaði” inn helling af mörkum og svei mér þá ef það voru bara ekki nokkrir af bestu leikjum ferilsins þar inná milli. Við komumst meira að segja í 8 liða úrslit þar sem við duttum út á móti Celje sem reyndar unnu keppnina það árið. Þetta er draumur hvers leikmanns að spila í þessari deild og sorglegt hreinlega að horfa á þetta úr fjarlægð. En það kemur að því að ég fái að minna á mig þarna og þá verður kátt í höllinni. Flensburg steinlágu 28-34 og mér gæti ekki verið sama um það en hinsvegar virtist Einar Hólmgeirs hafa verið að meiða sig illa miðað við það sem maður sá, sem er ekki gott svona stutt fyrir EM. Með auknum leikjum aukast jú meiðslin eins og þjóðverjarnir segja alltaf “það kemur ekkert af engu”. Ég ætti nú að þekkja þessa vel enda búinn að þurfa að ganga í gegnum súrt og sætt undanfarin 2 ár. En sólin kemur alltaf upp aftur það er nú það góða, en að öðru. Nú fer að styttast í að landsliðið fari að koma saman á Íslandi, ef mér skilst rétt þá er hittingur 20. október þar sem við verðum við æfingar og væntanlega einhverja leiki. Við þurfum jú að kýla upp stemmninguna fyrir EM í Noregi sem hefst í janúar, mikið svakalega verður gaman að stíga þar á stokk fyrir Íslands hönd. Ætli það skíni ekki hérna í gegnum skrifin hversu hungraður ég er í að komast á parketið og sýna mitt rétta andlit og jafnvel nýtt andlit!!! ![]() Heimasíða dagsins: Henry Birgir er í Flensburg með myndum úr heimsókninni hjá strákunum. Maður vikunnar: Logi Eldon afi minn sem hefði orðið 100 ára. Lag dagsins: Asleep – A single quiet tear Með Handbolta-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
27.09.2007 |
| Sá sem margt veit talar fátt... |
|---|
| Ég sit núna heima meira og minna allan daginn að grúska í gömlum bókum og er má segja kominn með nýtt áhugamál. Ég hef nú ekki hingað til verið einhver bókarormur fyrir utan skólabækurnar sem maður kemst jú ekki hjá að lesa en eins og mamma sagði alltaf við mig “Blindur er bóklaus maður“. En þetta nýjasta eru samsæriskenningar, ég hef alltaf reynt að sjá fyrir mér báðar hliðar á öllum málum en það er svo algengt að við fáum bara að heyra aðra þeirra!!! Ég er gjörsamlega að sökkva mér í þetta nokkra tíma á dag og myndi segja að þetta hafi slegið mig aðeins. Ef það er einhver með góðar kenningar þarna og væri til í að deila þeim með mér er ég eins og svampur í augnablikinu. Það er samt alveg merkilegt hverju maður tekur uppá þegar maður er fastur heima hjá sér í 10 daga. Ég kemst ekki einu sinni að horfa á æfingu þar sem ég þyrfti að troða mér í aftursætið og vesen sem ég nenni ekki að standa í. Ég hangi þá frekar heima spila á gítarinn, læra, horfa á DVD, pílukast, playstation, hehe mér finnst þegar ég er að skrifa þetta ríkja hálfgert vonleysi yfir þessu öllu haha en þetta er samt fínt ;). Enn einn málshátturinn úr viskubrunninum “Heima er best í hófi“ En þrátt fyrir þennan málshátt “Sjaldan hlýst gott af gestum” held ég að það eigi ekki alltaf við. Lasse Boesen Danski landsliðsmaðurinn sem var einn af þeim sló okkur út í 8 liða á HM er búinn að veita mér þennan fína félagsskap í allan dag og færa mér mat á silfurfati enda drengur góður. ![]() Málsháttur dagsins: Ef að þetta á ekki vel við þá hvað? Betra er að standa á eigin fótum en annarra Íslendingur dagsins: Guðmundur Atli Ásgeirsson Pókermeistari og yfir-kittari. P.S. (Munið EM strákar) Brandari dagsins: Frá Hannesi kom þessi í morgun! Jói:-Hvers vegna mála fílarnir táneglurnar sínar rauðar? Maggi:-Ég veit það ekki! Jói:-Til að fela sig í rifsberjarunnum! Maggi:-En ég hef aldrei séð fíla í rifsberjarunna. Jói:-Sko,þarna sérðu hvað þetta virkar vel hjá þeim... Lag dagsins: Doesn’t remind me – Audioslave Kveðjur dagsins: Fara til Guðjóns Vals, láttu þér batna maður við þurfum þig á EM... kv. Ísland Þangað til á morgun með bestu batnaðar-kveðjum frá Lemgo, Logi Geirsson. |
25.09.2007 |
| Gott er að bregða útaf vananum af og til... |
|---|
Ég er komin í “gibs” já þið eruð að lesa rétt. Allt var í góðu þar til að læknarnir tóku uppá því að setja mig í 10 daga í gips til þess að láta hnéð hvílast og ná þessari sýkingu 100% út. Ég gat lítið sagt við því og er því bara að reyna að ná fullum bata því allt er jú á fleygiferð í boltanum hérna. Það er nú samt ekki það eina sem var á fleygiferð en eins og ég tjáði ykkur kom “Golfklúbburinn Kiddi” í heimsókn hérna í Lippstadt sem er klst frá Lemgo og ég ákvað að bjóða þeim 11 sem klúbbnum tilheyra í RISA grill og með því og heppnaðist frábærlega. Skildist að ég sé orðinn meðlimur eftir kræsingarnar sem breytist svo stuttu seinna í Sendiherra en nóg um það.![]() Verð að koma með frekari fréttir á morgun, með bestu kveðjum frá Germany, Logi Geirsson. |
24.09.2007 |
| Enn og aftur er ég að læra hvað það er mikilvægt að vita hvert maður stefnir!!! |
|---|
| Góða kvöldið fólk, ég er í frekar góðri stemmningu hérna að hlusta á nokkur brjáluð lög með Audioslave var eiginlega búinn að gleyma því hvað þeir eru góðir. Erum að fara að spila í bikarnum á morgun á móti Leipzig eða einhverju álíka. Spila í 4 deildinni hérna sem kallast oberliga og eru víst engar hetjur án þess að ég hafi hugmynd um það. Búinn að vera að lenda í skemmtilegum og gefandi hlutum undanfarið og er alltaf að sjá meira og meira hvað ég held að mitt innsæji sé bara rétta leiðin. Held að þeir sem að nái alltaf að vera í jafnvægi sama hvað bjátar á séu þeir sem eru að gera rétt og missa aldrei sjónar á því sem maður ætlar sér. Handboltinn er rúllandi á fullu hjá okkur og það eru leikir eftir leiki, myndi tippa á að það sé spilað á 4 daga fresti núna samfleytt í 3 mánuði. Svo kemur “EM” í Noregi, oley þokkalegt tilhlökkunarefni það og sérstaklega að spila í þessum riðli sem reyndar er ekkert spes góður;) Öll liðin þarna eru að reyna að fara að hefna ófaranna frá síðustu viðureignum á móti okkur. Highlight vikunnar er það að “gamlir” kunningjar og vinir eru að koma í golf-ferð hérna rétt við Lemgo 10 stykki og Gaui stykki. Ég skil engan veginn hvernig þeim datt í hug að koma hingað að spila golf haha, það er liggur við komið frost í jörðu. Ég ákvað nú samt að bjóða þeim í grill og set inn einhverjar ferskar myndir um helgina. Engu að síður er ein af aðalástæðunum fyrir því að ég er að eyða mínum dýrmæta lærdóms tíma í þessa færslu er sú að þið verðið að koma ykkur upp SKYPE ég er að eyða þvílíkum pening í þessi símtöl sem ég get fengið ókeypis hér. Þannig að þar sem ég veit að þið lesið þetta öll sem ég er að hringja í daglega látið ykkur ekki bregða að ég er hættur að hringja í ykkur... Fékk í fyrradag reikning uppá 1137 evrur fyrir ágúst, og reikni hver fyrir sig. Samt á maður að vera á einhverjum Business pro samning. Addið mig sem (logigeirs) Þetta var allt sem ég vildi skrifað haft í dag og bið ykkur vel að lifa og kaupið ykkur HEADPHONES og MICROPHONE og málið er dautt, með bestu kveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
18.09.2007 |
| Svona á þetta að vera!!! |
|---|
| Heyrðu núna er síðan gjörsamlega að kicka loksins inn hérna. Við erum að spila við Grosswallstadt á morgun kl. 20.05 á ykkar tíma 18.05. Þetta verður væntanlega heitur slagur en bæði lið hafa hikstað svolítið í byrjun móts. Það er allt undir í þessum leikjum núna því að þau lið sem síga afturúr í byrjuninni eiga erfitt með að vinna sig upp sökum margra góðra liða í deildinni þetta árið. * Ætla að láta fylgja með smá statistik með þeim sem komu á síðuna í dag! Island (is) 1054 Deutchland (de) 221 Danemark (dk) 65 Unbekannt (?) 38 USA (us) 14 Griechenland (gr) 10 Spanien (es) 7 Norwegen (no) 4 Schweden (se) 3 Großbritanien (gb) 3 Niederlande (nl) 2 Ungarn (hu) 2 Frankreich (fr) 1 Italien (it) 1 Belgien (be) 1 Luxemburg (lu) 1 Latvia (lv) 1 Grönland (gl) 1 Zypern (cy) 1 Rumanien (ro) 1 Eins og þessar tölur gefa til kynna þá er óhætt að segja að síðan sé orðin “International”. Ég kem til með að koma með ferskar fréttir að leik loknum á morgun, svo stay tuned. Með bestu kveðjum frá Germany, L&I_23. ![]() "Ég var að baða Lúnu" |
11.09.2007 |
| Aðeins þeir hörðu fá reista af sér vörðu... |
|---|
| Leikur á morgun á móti Melsungen og undirbúningurinn á fullu, ég er væntanlega að fá að spila eitthvað þá en það kemur í ljós. Annars er voða lítið í fréttum, þýðingin á Tattooinu var að sjálfsögðu “Ég fer mína leið” á elstu stöfum veraldar. Var eiginlega merkilega hissa á því hversu margir voru með þetta á hreinu og þá sérstaklega krakkarnir. Ég ætla samt að hafa þetta merkilega stutt í dag en deila með ykkur réttinum sem ég er að fara að elda í kvöld en mikilvægt er að næra sig vel þegar það er stutt í leik. Steiktur saltfiskur með sexlaukasósu... Svona matreiði ég steiktan saltfisk með sexlaukasósu. Byrja á því að steikja saltfiskinn upp úr smjöri og læt roðið snúa upp. Svo sný ég saltfisknum yfir á roðið bæti laukunum út í. Laukarnir sem ég nota eru t.d. rauðlaukur, perlulaukur, blaðlaukur, hvítlaukur, charlottulaukur og kínalaukur. Út í pönnuna bætir ég svo skvettu af fiskisoði og hvítvíni og læt fiskinn sjóða örlitla stund í því, ekki of lengi!. Síðan ískalt smjör bætt út í pönnuna. Fiskurinn er svo einfaldlega kryddaður við borðið með svörtum pipar eða því sem hvern lystir, “mæli með svörtum pipar”. Sem meðlæti ber ég fram soðnar kartöflur. Þetta eiga allir að geta gert og smakkast hrikalega vel. Verði ykkur að góðu. Með bestu eldamennsku kveðjum frá Lemgo, L&I_23. ![]() Nýjasta dagsins: Í downloads á síðunni er að finna nýjasta “autogrammkarte” mitt fyrir 2007-2008. Rakspírar dagsins: Ég hef verið reglulega spurður hvaða raksíra ég hef verið að nota og mæli ég eindregið með Scorpion. Maður dagsins: Giuseppe Cannetti. Lag dagsins: Synthia THE NEW ONE – FM Belfast |
07.09.2007 |
| Loksins farinn að hrinda þessu í framkvæmd... |
|---|
![]() Eftir að ég bað ykkur um að finna logo og nafn á fatalínunni létu hvorki fleiri né færri en 13 einstaklingar á 3 dögum góðar hugmyndir sínar í keppnina og viti menn ég er búinn að velja sigurvegara. Veit að þetta hljómar ósanngjarnt þar sem ég sagði að dregið yrði úr keppninni 17. sept en vegna þess hversu einn einstaklingur hitti vel í mark ákvað ég bara að velja þetta strax. Hann er nú þegar orðinn 50.000 kr ríkari og ég er búinn að senda logoið til grafískar hönnuðar og mun ég sýna það á síðunni um leið og ég hef fengið það full unnið. En að handboltanum, finnst stundum eins og ég sé að gleyma að tala um það sem mestu máli skiptir:) Við erum búnir að vinna 2 fyrstu leikina okkar og næsti leikur er á laugardaginn á móti Melsungen á heimavelli okkar. Við höfum ekki verið að spila neitt stórkostlega vel en mikilvægast er að ná a landa þessum stigum sem í boði eru. Ég persónulega er búinn að lýsa því yfir að ég sé orðinn spilfær en læknarnir segjast ekki vilja taka neina áhættu sem ég er orðinn frekar pirraður útaf en ég fer að massa þetta upp. Maður verður samt bara að taka það jákvæða með sér og nota tímann þangað til, enda er ég ekki búinn að spila leik síðan á móti Serbum í höllinni 17 júni. Eigið góðan dag og endum á dagsins besta, með kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Maður dagsins: Gaui stykki fær þann heiður. Spakmæli dagsins: Þetta er top10 spakmælið mitt. ”Everything should be made as simple as possible, but not simpler” Lag dagsins: Lagið sem hljóðar á síðunni sem svo margir eru búnir að vera að spyrja um! El Kilo - Orishas |
06.09.2007 |
| Ferskir straumar og nýjar víddir... |
|---|
| Er í smá viðskipta erindum við nokkra stóra aðila um að auglýsa á síðunni hjá mér, það sem ég er hinsvegar er að fara framá segja þeir vera þess virði að yfir 2500 heimsóknir komi inn á dag. Ég er held ég alveg búinn að sjá það maður þarf að vera einhver mogga bloggari til þess að vera stöðugt í þeim tölum en ég hef fulla trú á að mér takist þetta, hver annar á að hafa það! Fór að velta fyrir mér rétt í þessu hvað mér finnst mikil synd af þessu myspace dóti, að fólk skuli bara hafa beilað á síðunum sínum yfir höfuð. Mér fannst ekkert skemmtilegra en að taka einn góðan blogg hring og fá að fylgjast með því sem fólk var að eiga við en ekki bara einhver slök 4 orða komment á myspace en kannski er þetta bara mín skoðun. Ég er samt með smá dæmi fyrir ykkur þarna úti, “betur sjá sugu en auga”. Málið er það að ég er að fara af stað með fatalínu já þú varst að lesa það, F A T A L Í N U og var meira að segja búinn að tala um það fyrir um ári síðan og fékk líkar góðar hugmyndir en þó engin sem féll í kramið. Ef að þið viljið vinna ykkur inn 50.000 kr þá sendið þið mér nr.1 nafn á Fatalínu og nr. 2 Logo, eða mixið þetta saman, þið eruð að skilja mig. Valið verður þann 17. sept ef einhver verður það öflugur að hitta naglann á höfuðið. Það er kannski rétt að minnast á það að þetta er komið töluvert langt og verið að að plana RISA partý í byrjun janúar. Partýin hafa jú farið stækkandi með hverju árinu og ef ég segi Risa þá stenst það. En að öðru myndirnar sem ég var búinn að lofa ykkur fá að bíða betri tíma því ég get ekki litið lengur uppúr bókunum, verkefnaskil eftir klst. Ég verð að segja að það kom mér virkilega á óvart hversu margir voru með tattoið á hreinu. Þannig að látið ykkur líða vel og skjáumst á morgun, L&I_23. ![]() |
03.09.2007 |
| Lucky Luke mættur í módelbransann… |
|---|
| Hvað haldiði að sé það nýjasta sem er að koma uppá hérna í Germany, það var ljósmyndastofa sem var að biðja mig um að fá að skjóta á mig í heilan dag. Það þýðir að þeir fengu að fara með mér hvert sem ég fór, æfingu, út að borða, í golf og fleira í þessum dúr. Ég svaraði strax að þetta væri laugardagur og væri á næstu 2 vikum eini frídagurinn minn þannig að ég er ekki í neinni góðgerðarstarfsemi. Má eiginlega segja að þetta hafi verið taka 2 í módel skotunum en síðast var einhver á Íslandi að reyna að fá mig til þess að stökkva í sjóinn í Hvalfirði fyrir 30 þúsund fyrir bílaauglýsingu. Ég sagði þeim gæja bara að hnefa sig, bensínið á bílinn minn er 15.000 í Hvalfjörðinn og til baka. En ég gat sagt það með góðri samvisku að þetta var MJÖG vel launaður laugardagur og fæ ég allar myndirnar 517 á mánudaginn og set þær inná síðuna. Ég held persónulega að það verði nokkrar sem munu gleðja ykkur, tók smá flip á þetta lið sem það tók líka vel í en sjón er sögu ríkari. ”I go my own Way” Heyrðu við drógum út vinningshafa í getrauninni og viti menn loksins var hann dreginn út og það er enginn annar en Kiddi bjé sem hefur samviskusamlega tekið þátt í öllum getraunum hingað til en aldrei unnið. Þetta sýnir enn og aftur að maður eigi aldrei að gefast upp;). Minni enn og aftur á síðuna hans www.kiddibje.blogspot.com sem hefur aldrei verið jafn flott og fyndin enda virkilega skemmtilegur penni. Með bestu jafnvægis kveðjum frá Germany, L&I_23. Nýjasta dagsins: Ég er kominn með nýtt Tattoo, og það ekkert smá. Set myndir hérna af því á síðuna og sá fyrsti sem getur lesið útúr því hvar þar stendur fær að velja sér hvaða Hummel skó sem hann vill, verður sent samdægurs. En ef viðkomandi vill frekar búning þá er það heldur ekki málið. ![]() Maður dagsins: Allt Eldon gengið eins og það leggur sig, þó aðallega Áslaug Eldon. Spakmæli dagsins: “Sá sem leitar að gallalausum vini finnur engan” Brandari dagsins: Þrír gæjar voru týndir djúpt inni í regnskógi þegar þeir voru teknir höndum af mannætum. Höfðingi mannætuættbálksins sagði við þá ef þeir vildu lifa þetta af þyrftu þeir að ganga í gegnum nokkur próf. Fyrsta stig prófsins var að fara inn í skóginn og safna tíu ávöxtum af sömu tegund. Þetta var nú lítið mál þannig að gaurarnir skokkuðu allir í sitt hvoru lagi inn í skóginn. Fyrsti gæjinn kom trítlandi aftur skömmu seinna haldandi á tíu eplum. Þá útskýrði höfðinginn næsta skref prófsins, en það var þannig að hann þurfti að stinga eplunum einu í einu upp í rassinn án þess að sýna nein svipbrigði. En ef að hann gæti þetta mætti hann fara sem frjáls maður, ef ekki þá yrði hann étinn. Maðurinn átti sér engra kostar völ nema byrja, fyrsta eplið rann inn, en þegar seinna seig upp þá veinaði hann af sársauka..hann var því étinn! Annar gaurinn kom andartaki síðar til ættbálksins með tíu lítil skógarber. Fékk hann sömu leiðbeiningar og sá fyrsti...1 ber...2....3....4...5...6...7...8..en á níundaberi sprakk hann úr hlátri!!! Og var því líka étinn... Fyrsti gaurinn og annar gaurinn hittust svo þegar upp til himna var komið. Sá fyrsti spyr þann annann, “Af hverju fórstu að hlægja?? Þú varst nánast búinn” . Þá svaraði sá seinni, “Ég gat bara ekki gert af því, ég sá að þriðji gaurinn var að koma hlaupandi með ananas” ![]() |
01.09.2007 |
| Endlich etwas auf Deutsch… |
|---|
| Kaum zu glauben, aber ich möchte endlich wieder was auf Deutsch schreiben. Ich glaube ja, dass die Leute in Island das auch verstehen können. Wir haben unser erstes Saisonspiel gut gemacht. Göppingen ist ja normalerweise ein starker Gegner, aber die haben diesmal keine Chance in der Lipperlandhalle gehabt. Ein klarer 27-23 Sieg für uns. Ich wurde leider nicht eingesetzt, aber hoffentlich kann ich beim nächsten Spiel gegen Wetzlar spielen. Leider habe ich ein wenig Schmerzen in meinem linken Knie, aber dass sieht immer besser und besser aus. Mann muss ja immer positiv bleiben und auf dem Weg nach vorne schauen. Momentan haben wir ja Verletzungspech gehabt, aber es springt immer einer anderer für die verletzten ein. Das wird uns in dieser Saison sehr helfen, dass wir einen so großen Kader haben. Ich glaube, dass ich gelesen habe, dass Lemgo noch nie mit so vielen Spielern in die Bundesliga reingehauen hat. Ja was gibt es denn noch? TBV Provital Lemgo heißen wir jetzt. Nicht schlecht für uns, dass wir so einen starken Sponsor bekommen haben und ich bin mir 100% sicher, dass es uns noch höher bringen wird in den nächsten Jahren. Lemgo ist ja auch ein Verein, der immer um die Titel spielen will und wenn wir auf diesem Weg bleiben, ist dass ja keine Frage was wir schaffen können. ![]() Witz des Tages: „Es ist lang aber lustig muss ich sagen“ Schulprüfung Eine Grundschullehrerin geht zu ihrem Rektor und beschwert sich: "Mit dem kleinen Uwe aus der ersten Klasse ist es kaum auszuhalten! Der weiß alles besser! Er sagt, er ist mindestens so schlau wie seine Schwester, und die ist schon in der dritten Klasse! Jetzt will er auch in die dritte Klasse gehen!" Der Rektor: "Beruhigen Sie sich. Wenn er wirklich so schlau ist, können wir ihn ja einfach mal testen." Gesagt, getan, und am nächsten Tag steht der kleine Uwe zusammen mit seiner Lehrerin vor dem Rektor. "Uwe," sagt der Direktor, "es gibt zwei Möglichkeiten. Wir stellen dir jetzt ein paar Fragen. Wenn du die richtig beantwortest, kannst du ab heute in die dritte Klasse gehen. Wenn du aber falsch antwortest, gehst du zurück in die erste Klasse und benimmst dich!!" Uwe nickt eifrig. Rektor: "Wie viel ist 6 mal 6?" Uwe: "36" . Rektor: "Wie heißt die Hauptstadt von Deutschland?" Uwe: "Berlin" Und so weiter, der Rektor stellt seine Fragen und Uwe kann alles richtig beantworten. Rektor zur Lehrerin: "Ich glaube, Uwe ist wirklich weit genug für die dritte Klasse." Lehrerin: "Darf ich ihm auch ein paar Fragen stellen?" Rektor: "Bitte schön." Lehrerin: "Uwe, wovon habe ich zwei, eine Kuh aber vier?" Uwe, nach kurzem Überlegen: "Beine." Lehrerin: "Was hast du in deiner Hose, ich aber nicht?" Der Rektor wundert sich etwas über diese Frage, aber da antwortet Uwe schon: "Taschen." Lehrerin: "Was macht ein Mann im Stehen, eine Frau im Sitzen und ein Hund auf drei Beinen?" Dem Rektor steht der Mund offen, doch Uwe nickt uns sagt: "Die Hand geben." Lehrerin: "Was ist hart und rosa, wenn es reingeht, aber weich und klebrig, wenn es rauskommt?" Der Rektor bekommt einen Hustenanfall, und danach antwortet Uwe gelassen: "Kaugummi." Lehrerin: "Gut, Uwe, eine Frage noch. Sag mir ein Wort, das mit F anfängt, mit N aufhört und etwas mit Hitze und Aufregung zu tun hat!" Dem Rektor stehen die Tränen in den Augen. Uwe freudig: "Feuerwehrmann!" Rektor: "Schon gut, schon gut. Von mir aus kann Uwe auch in die vierte Klasse gehen oder gleich auf's Gymnasium. Ich hätte die letzten fünf Fragen falsch gehabt ..." Mit freundlichen Grüßen, Logi Geirsson. |
30.08.2007 |
| Staðið við stóru orðin... |
|---|
| Jæja þá er komið að því að sýna þetta marg umtalaða video frá Túnis 2005 þar sem allt hótelherbergið fór á flot sökum þess að klósettið sprakk. Veit að þetta hljómar fáránlega en þið verðið bara að meta þetta sjálf. Þetta byrjaði þannig að við vorum farnir að heyra mikil hljóð um daginn sem ágerðist með kvöldinu, svo þegar við vorum að bursta tennurnar “kaboom”. Lokið skaust uppí loftið og flæddi vatn um allt herbergið, sem betur fer vorum við með góða nágranna sem náðu baráttunni upp á vídeo. P.s Til þess að geta hlustað á videoið er best að fletta alveg niður í news og slökkva á laginu sem er þar í gangi. Heimasíða dagsins: www.gillz.is en þessi maður er án efa einn besti penninn á netinu. Getraun dagsins: Hver er maðurinn og hvar spilar hann? Í vinning er glænýr “SpinBall”. ![]() Þetta er bara stutt og laggott í þetta skiptið, það er svo hrikalega mikil aðsókn þessa dagana og hvetur það mig til að vakna fyrr á morgnana og skrifa fyrir ykkur sem hafið ekkert að gera;). Með bestu kveðjum, L&I_23. |
29.08.2007 |
| Besta innsenda mynd sumarsins!!! |
|---|
| Svakalega er maður orðinn aktívur að henda hérna á síðuna, það er bara eitthvað nýtt á hverjum degi, jákvætt ekki satt. Það eru allir að reyna að vinna búninginn hans Einars en það eru ekki nema 20-30% sem eru að svara rétt þannig að það eru 17 komir í pottinn. Á laugardaginn fá allir númer og dregið verður um búninginn. Ég held ég hafi aldrei fengið jafn margar fyrirspurnir og núna um lagið sem hljómar á síðunni, ég verð bara að viðurkenna það að ég hef ekki hugmynd, sá eða sú sem veit svarið er vinsamlega beðinn um að meila mér það takk, það er pressa á mér ;). Videoið sem ég lofaði ykkur kemur inn seinni partinn, þarf bara aðeins að vesenast í að klína því á síðuna. Ég fékk líka smá hugmynd sem er að ef svo skemmtilega vill til að þið eigið video af mér einhverjar myndir eða svo að senda mér það, og fer það þá beint í loftið en innsendingar vikunnar er nýr liður hér á síðunni. Með bestu kveðjum frá Germany, L&I_23. ![]() Spakmæli dagsins: “Hver velur sér vini eftir viti” Íslendingur dagsins: Vinur minn Jón Ari Ólafsson og myndin er tileinkuð honum. |
28.08.2007 |
| Spurningakeppni vikunnar!!! |
|---|
| Mættur aftur en einungis vegna mikilla aðsókna síðustu daga, veit ekki hvers vegna en það hefur væntanlega einhver fjölmiðill auglýst síðuna og svo eru jú skólarnir aftur byrjaðir eftir sumarfríið. Færslan í dag er spurningarkeppni eins og áður var sagt og í verðlaun er hvorki meira né minna en spilbúningur stórskyttunnar Einars Hólmgeirssonar frá því að hann spilaði í Großwallstadt á síðasta ári. Spurningarnar eru því líka sniðnar að honum það eru 4 möguleikar við hverri spurningu en aðeins einn er réttur, dregið verður úr um helgina: *Best er að senda svörin á logi.geirsson@gmx.de 1. Hvaða ár er Einar Hólmgeirsson fæddur? a) 1980 b) 1981 c) 1982 d) 1983 2. Hversu lengi spilaði hann með Großwallstadt? a) 2 b) 3 c) 4 d) 2 og hálft. 3. Númer hvað spilaði hann á þessum tíma? a) 3 b) 13 c) 31 d) 33 4. Hvaða meiðsli hafa haldið honum frá æfingum í ca hálft ár? a) Beinverkir b) Axlarmeiðsli c) Höfuðkúpubrot d) Brjósklos Í næstu viku verður búningur frá einum af nýju Lemgo leikmönnunum til vinnings, en þetta verður reglulega gert og má búast við að Guðjón Valur, Ásgeir Örn, ég og fleiri munu setja einn búning í þetta eða svo. Með bestu kveðjum til Íslands, L&I_23. ![]() Íslendingur dagsins: Tinna Barkardóttir Video vikunnar kemur inn á morgun sem tekið var í Túnis í Afríku á meðan HM stóð, en þá vorum við Einar að bursta tennurnar þegar að klósettið einfaldlega springur;) hahaha megið ekki missa af þessu. |
27.08.2007 |
| Það er ekkert að fara að stoppa mig!!! |
|---|
| Góðan og blessaðan sunnudag, vorum að spila í gær á móti Göppingen á heimavelli í gær og unnum þá sannfærandi 29-22. Jákvæðar fréttir frá mér en hnéð er hætt að láta vita af sér og ég er byrjaður að geta æft aftur á 100% sem ég er búinn að þrá frekar lengi. Þannig að þetta er allt á uppleið og maður getur farið að einbeita sér á fullu fyrir þetta tímabil sem verður langt og stangt með keppnum á við EM, bikarinn, EHF og deildina þannig að nóg er af leikjum og fjöri og málið er bara að fara að gíra sig inní þetta. Næsti leikur er samt ekki fyrr en eftir 10 daga á móti Wetzlar þar sem gamli þjálfarinn okkar Lemgo manna Volker Mudrow er að þjálfa og gera flotta hluti. Við erum í ár með einhvern breiðasta hóp deildarinnar en mikið er um meiðsli eins og staðan er í dag, held að 4 leikmenn séu frá núna vegna meiðsla en ef allt gengur upp hjá okkur verðum við í báráttunni í ár. Lífið hérna í þýskalandi er annars bara ljúft og má segja að sé orðið enn betra eftir flutninginn lengra útí sveitina þar sem maður rúllar um á “vezpu”. Þetta sumar er engu að síður búið að vera hálfgert klúður en sólina hefur algjörlega vantað, maður verður bara að fljúga heim yfir helgi til að komast í sólina ;). ![]() Nú er skólinn að byrja á morgun og allt fer á fullt, Viðskiptafræðin tekur sinn toll en marg borgar sig þegar ferillinn verður búinn að það er engu að síður ekki tímabært að hugsa svo langt núna, heldur taka frekar eitt í einu. Það er oft erfitt að koma heim eftir kannski 5 tíma æfingar yfir daginn og ætla að leggjast yfir bókunum en það er ótrúlegt hvað maður lætur sig hafa það. Ég ætla að keppa í gengum þetta og klára, maðr verður að vera tilbúinn að leggja meira á sig til að uppskera eitthvað af viti. ![]() Maður dagsins: Álfhildur vinkona mín og FH-ingur með meiru. Rakspíri dagsins: Nýja Lacost í rauðu glasi. Spakmæli dagsins: There are no shortcuts to any place worth going Lag dagsins: "Gone Till November" - Wyclef Jean Bíll dagsins: Chrystler 300 c Með bestu kveðjum frá Spork í Dörentrup, L&I_23. ![]() |
26.08.2007 |
| Ásgeir Örn Hallgrímsson. |
|---|
| Ef ég ætti að byrja á byrjuninni þá var það þegar við ólumst upp 500 metra frá hvor öðrum í Hafnarfirði en töluðumst ekki við þar sem að hann var í Haukum og ég var í FH. Ég verð nú að segja að þetta var kjánalegt þegar maður hugsar tilbaka en svona voru tímarnir þá. Hann var reyndar 2 árum yngri en ég og það var heldur ekki hægt þá að eiga yngri vini. Við vorum alltaf mótherjar og samkeppnin þvílík en það gerði þetta allt skemmtilegra fyrir vikið. Svo nokkrum árum seinna erum við valdir í landsliðið og hittist þannig á að við vorum saman í hótelherbergi í Berlín að spila við þjóðverja sem voru með rosalegt lið og í höll sem að tók 12.000 manns. Ég man að þegar ég gekk inní höllina trúði ég því ekki að þetta væri að gerast. Ég sem hafði bara spilað fyrir framan 500-1000 áhorfendur og lenti í þessu, man alltaf að við vorum að peppa hvorn annan upp fyrir leikinn og var það skrýtið að fara að berjast saman í fyrsta skipti. Svo einhverjum árum seinna þegar ég var kominn til Lemgo fóru þeir að hafa áhuga á Ásgeiri sem leikmanni eins og svo mörg önnur lið og man að ég vildi ólmur fá hann hingað í liðið þar sem hann gæti líklega hjálpað mér að vinna minn fyrsta titil og það plan hjá mér gekk allt eftir og uppskárum við Evrópumeistaratitilinn á síðasta ári. Hann er jú líklega búinn að vinna flesta titla allra þegar aldurinn er tekinn inní og hvað hefur verið í boði. Við upplifðum ótrúlega mikið saman og þvílíkur fagmaður sem hann er og ég sem dæmdi þig fyrir að vera Haukari. Við erum báðir að læra í Bifröst Viðskiptafræðina saman þar sem ég fæ reglulega hjálp hans enda reglulega greindur og samviskusamur drengur. Engu að síður er Ásgeir einn af þeim sem getur læst sig úti tvisvar sama daginn með lögguna að pikka upp lásin hjá honum. Hann gleymdi alltaf einhverju og ef það voru ekki þessir venjulegu hlutir þá var það hann sjálfur sem gleymdist. Ótrúlega skemmtilegur tími þar sem endalaust mikið af fyndnum hlutum áttu sér stað, það datt strax inn sagan þegar þið Hanna buðuð mér í mat, var alltaf það sama “Burrito draslið, eina sem þið kunnuð að gera sem er reyndar alltaf jafn gott” hehe ekki það að þú hafir ekki alltaf borðað bara kjúlla hjá mér hahaha en shit hvað það vantaði fjölbreytileikann í þetta. EN að sögunni aftur ég mætti til ykkar eftir erfiða æfingu alveg glor soltinn og réðst beint á borðið og þið inní eldhúsi og tók allt meðlætið og kjúllann og setti á eina samloku á kláraði á 20 sek svo komið þið inn í stofu og setjist og ég bara shit, “hélt að þið væruð búin að borða þar sem ég kom svo seint” Hanna lítur á Ásgeir og þið bæði á mig, meðlætið farið, ég tók þarna allan kvölverðinn á nokkrum sek vá hvað þetta var fyndið, allavega eftirá ;) Have to be there saga. ![]() Gaurinn á Vesuvio með djúpu röddina hahahaha, ertu ekki að grínast. Verð að segja frá þessu hérna. Við Geiri vorum að fara að borða á veitingastað í Lemgo þegar einhver risa maður labbar að borðinu hjá okkur og segir “sælir strákar verði ykkur að góðu” svo skrækt að við héldum að hann hefði misst eistun. Ásgeir náði ekki að halda hlátrinum inní sér og sprakk fyrir framan gaurinn og sko ekkert eðlilega heldur bara frussaði hann á borðið og maðurinn horfði á hann eins og hann væri illa gefinn. Ásgeir var ekki lengi að hugsa og henti sér á gólfið og þóttist vera að hnerra þá endanlega missti ég mig líka og sprakk úr hlátri. Greyið maðurinn labbaði að borðinu sínu aftur og við fórum svo og báðum hann afsökunar, eða ég gerði það fyrir Ásgeir:) man ekki hvort ég var búinn að skrifa um þetta einhverntíma á síðunni. ![]() Svo keppnisferðinar, þar sem við lærðum að kynnast ótrúlegu liði,t.d. í Ísrael vá hvað það var gaman þegar við vorum chillandi á strödinni og klósettin í Króatíu þar sem maður þurfti að kúka standandi haha og þú varst auðvita sá eini sem varst mál. Ég er bara búinn að eiga geðveika tíma með þér sem ég myndi ekki skipta út fyrir neitt og ég er klár á því að við eigum eftir að spila saman aftur, þú verður bara að koma í Barcelona 2010 ég er mjög líklega að fara þangað;). Með bestu vina kveðjum frá Lemgo, Logi Geirsson. Fyndnasta setning Ásgeirs: “Já, bíddu er þú ekki Laddi” hahah (Fulla konan í Rvik) Vandræðalegasta mómentið: Tannlæknirinn, hahaha. Uppáhalds lög: Allt með Jack Johnson |
16.08.2007 |
| Lykillinn að árangri... |
|---|
| Þú + Markús... Langar til þess að skrifa smá grein um þjálfara sem ykkur stendur til boða þarna á Íslandi. Ég fór til hans í 2 vikur eftir landsleikina á móti Serbum og ég hef aldrei kynnst öðru eins. Ég tel mig hafa þokkalega mikið vit á líkamsrækt og þjálfun yfir höfuð en hans kenningar sprengdu allar mínar hugmyndir og kenningar um það hvernig eigi að stykja sig og fá vöðvamassa og það eins og skot. Maðurinn heitir Markús Kislich kemur frá Þýskalandi og er styrktarþjálfari, heitir á fagmáli V.V.V.Athletic Strengt Coach. Ég stórbætti mig þvílíkt og langar svo að kynna ykkur fyrir þessum manni að mér líður eins og ég sé að selja einhverja auglýsingu í sjónvarpsmarkaðnum. Hann tekur ykkur í prufutíma og mælir út styrkleyka og veikleika og allt sem hann þarf að vita til að geta gert nákvæmt þjálfunarplan. Daginn eftir þegar þú mætir til hans er No Way Back eins og hann segir “Go heavy or Go home” Hann byggir upp æfingarnar á 10 x 10 reps og þetta er mesti killer sem ég veit um ég gat ekki labbað eftir fyrsta daginn en honum fannst það allt í lagi því daginn eftir var ég að taka Bekk og Bak hehe. Þessi náungi er magnaður og 100% besti þjálfari sem ég hef haft varðandi líkamsrækt og hef ég í gegnum atvinnumennskuna kynnst fleiri en einum og fleiri en tveimur. Hann leggur mikið uppúr hollu matarræði og réttu fæðubótarefnunum. Ég held bara að hver og einn verði að fá að kynnast þessu og hann sýnir ykkur hvernig á að fara rétt að, eitt af því fyrsta sem ég hugsaði eftir fyrri vikuna! Hvað er ég búinn að vera að gera í þessi 8 ár sem ég hef notað í ræktinni? Vona að þið getið nýtt ykkur þennan mann sem er ekki bara frábær þjálfari heldur frábær persónuleiki og félagi, þið kynnst því sjálf. Ps hann vill engann sem er ekki til í að gefa sig 110% fram í allar æfingar hvað sem það kostar, þetta er ekkert grín... Have Fun *Hafið engar áhyggur af þýskunni, hann kennir á ensku og skilur slatta góða íslensku ![]() Hafðu samband við Markús Kislich: V.V.V. Athletic Strength Coaching # 8565862 . Með bestu kveðjum frá þýskalandi, Logi Geirsson. |
14.08.2007 |
| Aðalatriðið er að hafa gaman af lífinu!!! |
|---|
| Ég get bara ekki byrjað á því að að skrifa neitt nema þakka öllum fyrir Íslands-ferðina í sumar og landsliðsdæmið á móti Serbunum. Þetta var geðveikur tími á lélegri íslensku og þvílík stemmning sem við íslendingar erum farin að geta myndað, þetta á bara eftir að verða betra og mig er strax farið að hlakka til að fara á EM í Noregi í janúar og gera allt vitlaust. Ég sit hérna á svölunum með laptopinn í nýja húsinu að hlusta á Billy Joel (only the good die young). Búið að vera fínt veður og foreldara mínir í heimsókn og ætla að slaka á hérna í nokkrar vikur. Skrýtið að Ásgeir sé farinn ég ætlaði eiginlega að eyða heilli færslu um hann og allt það góða sem hann bar með sér hingað, ég sakna hans. Þessi drengur er frábær og ætli við hittumst ekki aftur í Barcelona eftir nokkur ár og vinnum annan titil saman ;) Ég held að við höfum lært mikið af hvorum öðrum og hann þá sérstaklega af mér! Ég ætla að tileinka honum næstu færslu og opinbera nokkrar góðar sögur sem eiga eftir að lifa lengi. Heyrðu hvert var ég kominn, já fríið. Eftir að við tókum Serbana slakaði ég á í viku heima og fór svo í smá “Roadtrip”, rykið dustað og blæjubílinn tekinn úr skúrnum og áfangastaðurinn Mónaco. Keyrðum í gegnum Alpana sem er geðveikt, Mílano og sváfum líka í Genúa sem er á ítölsku riverunni og keyrðum svo með fram allri stöndinni til Mónaco þar sem við gistum, fórum á Jet-ski, lentum í löggunni, borðuðum brjálaðan mat og lágum í sólinni. Gæti talið upp endalaust af hlutum og geggjuðum sögum, hitti í Mónaco vin minn Jean Michell ásamt family og þakka þeim hérna obinberlega fyrir flott kvöld. Plötuðum okkur inní flottasta Partý sem ég hef orðið vitni af, en það var kynning á Bavaria bjórnum og samvinnu þeirra með fyrsta ítalska bjórnum Perrona og ég sagði að bróðir minn væri stærsti IMporterinn á íslenskum bjórmarkaði og áður en ég vissi af var Bossinn mættur, við búin að fá sloppa, jakkaföt, og snytikörfu og sátum þarna með Lúnu, ég ætla að sýna ykkur myndir af þessu haha þetta var geggjað hahahhahah ég sit hérna hlæjandi hugsandi um þetta og endaði á að okkur var boðið í eftirpartý af flottustu gerð, enda er Mónaco þekkt fyrir allt annað en slor. Eftir þetta ævintýri fórum við til St. Tropez þar sem við vorum búin að finna okkur Villu til að leigja og VÁÁÁÁ, það er ekki að ástæðulausu að stjörnurnar fari þangað þetta er brjálað plaze og við hittum ruglað lið þarna. Fórum á klúbbana og ég var ekki í nógu flottum skóm og þeir skutluðust í 30 mín með okkur heim á geðveikum BenZ sem ég get ekkert lýst hérna og það var bara allt svo ýkt þarna. Fengum hús með okkar eigin hliði og snekkjurnar þarna, eruð þið ekki að grínast, sá þarna Sher, Beyoncé Knowles og helling af þekktu fólki. Þetta var nú samt fríið í grófum dráttum, sagan af humrinum usssss. En það hafið eflaust margt betra en að vera að lesa þetta endalaust, næsta færsla verður um Geira og handbolta meira. Ég set inn nokkrar myndir úr ferðinni seinna í dag;) Með bestu kveðjum frá Germany, L&I_23. Spakmæli dagsins: “I've never been afraid to fail.” Afmælisbörn síðustu daga: Nói Arnarsson Hinrik Geir Kristinsson Geir Hallsteinsson Daniel Stephan Brandari dagsins: A guy shows up late for work. The boss yells "You should have been here at 8:30!" he replies: "Why? What happened at 8:30?" |
09.08.2007 |
| Ég sé aldrei eftir neinu sem fær mig til þess að brosa… |
|---|
| Ég opnaði e-mailið mitt fyrir nokkru og fór yfir allan póstinn, ég ákvað bara að setja einhverjar línur til þess að láta hótunarbréfunum linna, ég var bara í sumarfrí eins og allir þurfa á að halda:). En eruð þið ekki að grínast hvað ég er með mikið af ferskum og krassandi sögum úr fríinu mínu og því sem hefur verið að gerast hérna í Lemgo. Ég veit vart hvar skal byrja en ég tek í næsta bloggi eitthvað fréttnæmt og skemmtilegt framúr erminni svo þið hafið eitthvað að gera fyrir framan tölvurnar. Það sem ég ætla að skrifa um er: 1. Handboltinn, landsliðið og Lemgo. 2. Fríið mitt í Mónaco, Mílan og St. Tropez. 3. Allt um það sem hefur verið að gerast hérna í nýja bænum sem ég er fluttur í. 4. Svo er ég með margt margt fleira. (myndir og stuff) Lag dagsins: Ti amo sem er í augnablikinu flottasta lag í heimi. Spakmæli dagsins: "Often in life we forget the things we should remember and remember the things we should forget" Með bestu kveðjum, L&I_23 ![]() |
02.08.2007 |
| hummel Charity Cup 2007 |
|---|
![]() |
30.07.2007 |
| Næstum því búinn að gleyma því hver er bestur... |
|---|
| Long time no words, hvernig væri nú að fara að setja niður smá texta fyrir mig og senda mér eitthvað ferskt frá Íslandi. Ég er búinn að vera einangraður í hitanum aðeins of lengi og þarf að fá smá uppörvandi texta frá einhverjum skemmtilegum sem rekst á færsluna mína. Ég er samt í massa góðu stuði núna og hlakka til að sjá hversu margir munu lesa þetta og senda mér línu til baka. Það er greinilegt að veðrið er orðið gott á íslandi því heimsóknunum á síðuna hefur farið fækkandi síðustu 5 vikurnar, úr ca. 1150 manns á dag í 730. Þetta er bara eins og allt annað maður þarf alltaf að fá smá feedback sem pumpar mann upp og ég ætla að treysta á ykkur til þess. Þá er ég aðallega að tala um koma með einhverjar ferskar hugmyndir fyrir síðuna og eitthvað þess háttar, jákvæða strauma sem leiða af sér gott. Annars meðan ég man er 1 leikur eftir í deildinni og þá er þetta BÚIÐ. Vorum að spila á móti Hamburg um helgina og töpuðum 33-28 þrátt fyrir að það hafi verið jafnt 5 mín fyrir leikslok. Síðasti leikurinn er á móti Balingen á laugardaginn næstkomandi og svo er landsliðið tekið við. Var ég búinn að segja ykkur frá Flugeldasýningunni á móti Serbum? Ég er nefnilega búinn að hlaða byssurnar í 2 mánuði ef einhver var að spurja eftir mér. Það er samt bara best að spyrja bara að leikslokum. Hlakkar allavega til að koma til landsins, vera ég sjálfur og lifa lífinu. Maður vikunnar: Knattspyrnumaðurinn Sverrir Garðarsson sem hefur verið að brillera undanfarið. Kom að því vikunnar: Davið Beckham og greiðslan sem hann er með, þið sem eruð að copy pasta hann vitið hvað hann var að gera...!!! Afmælisbarn vikunnar: Kristján Pálsson “stór” vinur minn. Brandari dagsins: Einu sinni var Íslendingur,Frakki,Tékki,Rússi,tveir Eistar og Kínverji.Þeir voru á bar. Íslendingurinn vissi ekki hvað hann átti að gera. “Hann fór með alla kallana niðrá Hótel Sögu. Daginn eftir klæddi hann sig í frakkann, klóraði sér í eistunum, borgaði tékkann, sprengdi kínverjann og fór á rússanum heim” Smá djók í brók. Með kveðjum frá svölunum í Lemgo, Logi Geirsson. ![]() |
27.05.2007 |
| “There is no |
|---|
| Síðustu dagar búnir að einkenna jákvæða strauma, prófin eru að klárast á þriðjudaginn, 2 leikir eftir í deildinni, landsliðið að fara að koma saman, sumarfrí og hlaða batteryin. Það er löngu ljóst að við erum hvorki að fara að færast upp um sæti né niður og sitjum því pikkfastir í því 7.þegar deildin verður flautuð af. Síðustu 2 leikir enduðu með jafntefli og voða fátt um það allt að segja. Ég er alveg dottin út úr tilkynningarskyldunni sökum flutninganna en ég er kominn í draumahúsið. Lífið er einum of nice hérna í Germany, en ég ætla að sturta mér í bækurnar, með sólarkveðjum, L&I_23. Dregið var í getrauninni langþráðu og vinningshafinn sem var dreginn út heitir Hinrik Geir. Afmælisbarn vikunnar: Hinn eiturhressi Henry Birgir varð þrítugur á föstudaginn síðasta og óska ég honum alls hins besta. Án efa litríkasti íþróttafréttamaður landsins að öðrum ólöstuðum. Spakmæli dagsins: I've failed over and over and over again in my life and that is why I succeed. Lög dagsins: "Under The Bridge" - Red Hot Chili Peppers "Gone Till November" - Wyclef Jean Dolfins cry - Live Like a Rolling Stone - Dylan David Gray - This Years Love ![]() |
20.05.2007 |
| “Some people want it to happen, some wish it would happen, others make it happen.” |
|---|
| Ákvað að taka mér smá brake frá lærdómnum, en talandi um það hvað maður er orðinn súr á honum þá minnist ég brake eins þegar ég og Ásgeir vorum að labba í Bielefeld fyrir alls ekki löngu síðan ég ég var eitthvað að rugla í hinum og hann segir “Logi, Give me a Brake” ég fleygði mér á jörðina fyrir framan nokkra þarna í miðbænum og tók orminn fræga með smá lófaklappi viðstaddra, Ásgeri þetta kallar maður að standa sig í stykkinu (Mr. Fair Play). Finnst svolítið fáranlegt að segja frá þessu sjálfur en það er kannski ekki aðalmálið. Við erum að fara að spila leik á morgun á Móti Kronau Östringen en þeir eru 1 sæti á eftir okkur í deildinni. Þeir eru með nokkuð frambærilegt lið og voru t.a.m. að vinna Kiel fyrir fáeinum dögum síðan þannig að það verður hart barist. Leikurinn hefst kl. 15.00 á okkar tíma sem þýðir að hann er kl. 13.00 á Íslandi. Langar til að benda ykkur á þessa síðu en þar eru sýndir fyrir vægu gjaldi allir leikir og samantekt úr deildinni, síðan er www.hbl.tv mæli með henni fyrir þá sem nenna ekki alltaf að sitja fyrir framan Livetickerinn. Ég er kominn í gamla góða formið og til í slaginn, unaðslegt að geta mætt á æfingu og tekið á því. Lögin 5 sem verða í dag eru eftirfarandi: 1. Cranberries, Dreaming my dreams 2. "Bohemian Rhapsody" - Queen 3. Iris goo goo dolls 4. Switchfoot - This is your life 5. Robbie Williams - Angels Spakmæli dagsins: “Til að fara í hæstu hæðir þarf að þekkja lægstu lægðir, L..E.G” Spurning dagsins: Eftir hvern er spakmælið sem er notað í fyrirsögninni? Með geggjuðum kveðjum frá endalaust svölu húsi, L&I_23. ![]() |
04.05.2007 |
| Held að ég hafi fundið The Power aftur... |
|---|
| Er ekkert búinn að tikka á lyklaborðið því ég hef einfaldlega ekki haft neitt merkilegt né skemmtilegt að segja. Ég er búinn að vera nýta allan daginn alla daga undanfarið en það er búið að vera einstaklega mikið um að vera. Skólinn er búinn að taka sinn toll og það er ekkert “walk in the park” það er annað að koma þessu heim og saman eins og að koma þessu vel saman. Handboltinn er allur að koma til og ég er búinn að finna gleðina þar á ný sem er reyndar yndislegt, svo eru flutningarnir einnig að minna á sig svo það er líklegt að maður komi til með að nýta sér fríðið í sumar vel. Annars langar mig að setja inn í þessari viku 5 lög á hverjum degi sem hafa hvað mest áhrif á mig en það getur verið xxxvíti gott að sökkva sér í góða músik þegar maður þarf að hugsa mikið. Hérna koma fyrstu 5 lögin og ég mæli sjálfsögðu með því að því náið ykkur í þau á netinu: 1. David Gray - This Years Love 2. My hero - Foo fighers 3. Creed – Overcome 4. Every Breath You Take - The Police 5. Like a Rolling Stone - Dylan Spakmæli dagsins: "We all have a witness inside us which we have to answer to and which is with us always, and that is our concience\" Maður dagsins: Birgir Valdimarsson Afskakið dagsins: Myndirnar sem ég var búinn að lofa að setja inná, þær eru að fara að detta inn en búferlaflutningarnir höfðu þessi áhrif Stutt og gott CIAO frá Germany. ![]() |
02.05.2007 |
| You can talk the talk but can you walk the walk!!! |
|---|
| Enn einn Mánudagur mættur með ykkur, en við vorum að spila í gær. Fórum til Gummersbach og unnum þar örugglega 29 : 32, við erum ennþá fastir í 7. sæti en það er aldeilis búið að styttast í liðin fyrir ofan okkur enda búnir að vinna 9 af síðustu 10 leikjum. Ég er samt engan veginn í stuði til að tala um boltann þó að hann rúlli ágætlega. * Meðan ég man þá svöruðu 36 getrauninni á síðunni rétt, hátt í 200 vitlaust en svörin voru: 1. Hvaða lið situr á botni deildarinnar eins og staðan er í dag? Svar: Eintracht Hildesheim 2. Hvaða millinafn hef ég? Svar: Eldon 3. Hvar verður næsta HM í handknattleik haldið árið 2009? Svar: Króatíu Ég ætla að láta draga út þann heppna í vikunni af einum af leikmönnunum hér í liðinu svo enginn haldi að ég sé að gera upp á milli manna enda með eindæmum heiðarlegur maður. Svo það kemur í ljós seinna í vikunni hver verður sigurvegarinn. En snúum okkur af því sem ég er búinn að vera að hugsa undanfarið en eins og flestir vita þá líður tíminn og mennirnir með. Það er mér enn í fersku minni þegar Ögmundur nokkur Sverris sagði þetta á æfingu í 4. fl. en það er önnur saga. Ég er svo stoltur af því að vera Íslendingur og myndi aldrei vilja vera neitt annað, búinn að segja það áður og segi það enn að mér finnst þetta vera forrréttindi að koma frá þessari litlu eyju. Ég hef verið að hugsa undanfarið svo langt fram í tímann, þetta held ég að maður læri af Þjóðverjunum en þeir plana það mánuði áður að þeir ætli uppá stöð að kaupa sér pulsu og það er ekkert grín. Mig langar stundum bara að losa frá mér endalaust mikið af stuffi hingað inn en ég er ekki viss um að þið mynduð meika það. 1. Leikirnir við Serba í júni 2. Klára skólann 3. Sumarfrí 4. Nýtt tímabil 5. Nýtt Hús. Þetta er svona það helsta sem hefur verið að detta inn hjá mér og eins og sjá má er um margt að hugsa. Ég er farinn að slaka á enda er frídagur í dag sem gerist ekki oft, svo ég bið að heilsa ykkur með Íslendinga kveðjum frá Lemgo. Spakmæli dagsins: If you can’t sit the time dont do the Crime... Íslendingur dagsins: Björgólfur Thor. Heimasíða dagsins: www.progolf.is ![]() |
23.04.2007 |
| Í æsku lærum við af bókum, en í elli hefur lífið kennt okkur að skilja... |
|---|
| Það er einhvernveginn allt að gerast þessa dagana, handboltinn er kominn á fullt aftur eftir smá páskafrí og unnum við Hildesheim í síðustu viku örugglega 37-30. Við erum að fara að spila á morgun á móti Nettelsted, en þar spila eins og flestir vita Þórir Ólafs og Birkir Ívar. Þeir eru sem stendur í einu af neðstu sætunum sem er næstum óskiljanlegt miðað við mannskapinn sem þeir hafa. Svo verður næsti leikur þar á eftir á móti Íslendingaliðinu Gummersbach hjá þeim en það verður klárt um mikinn spennuleik verður að ræða eins og alltaf þegar þessi lið mætast. Ég er búinn að vera mjög heitur með myndavélina undanfarið og tekið myndir af flestu því sem á daga okkar rekur hér í Lemgo en þær munu koma allar inn í Photogalleryið á morgun. Þetta eru myndir af helstu veitingahúsunum héðan, lyftingaaðstöðunni okkar, frá fríinu í París nýja húsinu og matarboð hjá Ásgeiri svo eitthvað sé nefnt. Held að þessar myndir segi meira en mörg orð og látum því hér við sitja. Ég á eina landsliðstreyju frá því á HM 2007 sem ég ætla að gefa þeim heppna sem svarar spurningunum 3 hér að neðan rétt. Það verður dregið úr hópi þeirra sem rétt svara, hér koma spurningarnar. 1. Hvaða lið situr á botni deildarinnar eins og staðan er í dag? a) Eintracht Hildesheim b) TuS N-Lübbecke c) HSG Wetzlar 2. Hvaða millinafn hef ég? a) Ekkert b) Eldon c) Sigfús 3. Hvar verður næsta HM í handknattleik haldið árið 2009? a) Frakklandi b) Noregi c) Króatíu Frábærar myndavéla kveðjur frá Þýskalandi í 25 gráðum og sól, L&I_23. Spakmæli dagsins: Segið aldrei meira en þið getið staðið við. ![]() |
17.04.2007 |
| Óreglan er Reglan... |
|---|
| Þessi fyrirsögn að ofan lýsir því hvernig umferðin í París er en ég skellti mér ásamt Vivian og Lúnu í helgarheimsókn þangað og sló tvær flugur í einu höggi. Við vorum það heppnir að fá frí yfir páskahelgina og ég sá strákana í landsliðinu keppa og naut þess að liggja í sólinni í 20 stiga hita fyrir framan Effel turninn. Þessi borg er svo hrikalega flott að það er engu lagi líkt, þið sem hafið verið þar vitið hvað ég er að tala um. Það tók cirka 6 tíma að keyra þangað og ég gerði þau mistök að keyra með blæjuna niðri og andlitið á mér er að flagna í tætlur, maður er alltaf að læra. Ég er núna í þessum töluðu að fara að taka mig til fyrir leik en við erum að fara að spila við Hildesheim í kvöld. Þetta er fyrsti leikurinn minn eftir meiðslin sem ég er orðinn næstum 100% af. Við eigum núna á næstunni hrikalega erfitt prógram fyrir höndum en öll liðin í toppbaráttunni eru að fara að spila við okkur. Verð að drífa mig og bið að heilsa með leyndardóms kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Lag dagsins: Overcome með Creed Maður dagsins: Jean Michell vinur minn fyrir að vera snillingur. Spakmæli dagins: Lífið er ef til vill eina gátan sem okkur óar við að ráða fram úr |
10.04.2007 |
| “Ég elska þetta líf” |
|---|
| Það er frekar mikið búið að gerast að undanförnu. Ég hélt áfram í þessum meðferðum og þarf ekki að fara í aðgerð en það er það allra nýjasta. Fyrstu sprauturnar voru ekkert að virka en nú virðist líta út fyrir að ég geti farið að ganga á meðal ykkar í góðum fíling aftur. Þessi meiðsla pakki var bara kominn útí það að ég var hættur að taka mark á þessum læknum og farinn að finna mínar eigin leiðir útúr þessu en það virtust allir hafa mismunandi skoðanir á þessu. En þetta er leiðinlegt umræðuefni og ég nenni ekki að ræða það framar. Tíminn líður og margt breytist, þess vegna er nýtt upphaf hjá mér. Ég varð því miður að draga mig útúr landsliðinu þegar það kemur saman yfir páskana í móti í Frakklandi þar sem ég hef ekki getað æft í 4 vikur. Ég ætla samt að gera allt sem í mínu veldi stendur til þess að verða tilbúinn í leikina á móti Serbum 10. og 17 juni. Staðan hjá okkur í deildinni er sem fyrr 7. sætið en við höfum verið að sýna ágætis leiki undanfarið. Við höfum aðallega verið í umfjölluninni undanfarið sökum mikilla mannabreytinga en Lemgo ætlar að skipta gjörsamlega út fyrir næsta tímabil þannig að það verður gaman að fylgjast með gangi mála hér. En vá eruð þið ekki að grínast með hvað veðrið hérna er geðveikkkt. Maður vaknar 08.00 bara til að fara í sólina og slaka á í bænum. Það var 19 gráður og glampandi sól í dag eins og síðustu daga. Það er eitthvað við sólina sem gerir allt svo gott og einfalt, erum við bara ekki eins og blómin og erum í endalausri ljóstillífun? Næsti leikur hjá okkur er á móti Wetzlar á morgun en gamli þjálfarinn minn er einmitt nýbúinn að taka við þeim og er að reyna að redda þeim frá falli. Leikurinn verður háður kl.19.00, ég er samt að fara að byrja á fullu á mánudaginn og ætla að spila með á móti Hildesheim í næstu viku. Lag dagsins: Honour kill með Luke Envoy Spakmæli dagsins: Verstu erfiðleikar mannsins byrja þegar hann getur gert það sem honum sýnist Bið að heilsa ykkur frá Lemgo og gerið eins gott úr öllu og þið getið, Logi Eldon Geirsson. |
31.03.2007 |
| There are no things good or bad, but thinking makes them so… |
|---|
| Smá uppfærsla, en ég var að koma frá læknunum í Bochum þar sem ég var búinn að vera í öllum mögulegum testum í allan dag. Það sem kom út var að bakið er ennþá ekki alveg gróið en það á ekki að geta brotnað meira upp þannig að ég er núna í þessum skrifuðu orðum í 2 daga sprutumeðferð og gæti ef allt færi að óskum verið kominn á gott ról eftir viku. Maður verður bara að vona það besta en þetta má taka sinn tíma svo lengi sem að þetta fari vel að lokum, en ég er jú bara rétt að byrja ferilinn! Ég er búinn að spila með brotið bak frá því í maí 2005 þannig að þetta er loksins að fara að taka enda og maður getur farið að skila einhverju á parketinu. Mín hinsta ósk er einungis það að geta verið laus við endalaust mikinn verk úr bakinu og stundað það sem mér þykir skemmtilegast. Gangi ykkur vel líka og sjáumst á toppnum. Þetta var það helsta með Eldon kveðjum frá þýskalandi, Logi Geirsson. Punktur dagsins: Minni ykkur á að commenta á myndasíðunni en það er alltaf gaman að fá smá “feedback”. ![]() |
21.03.2007 |
| Léttara er að sóla sig en skóla sig... |
|---|
| Fyrirsögnin segir meira en mörg orð, en undanfarna daga hefur lærdómurinn fallið í skuggann á sólinni sem hefur verið með Showtime að undanförnu. Veðrið hérna hefur verið frábærlega gott og fór uppí 18 gráður á fimmtudaginn sem er þokkalegt fyrir mars. Það er bara allt að lifna við, bæði menningin og náttúran og ekki veitir af hérna í Lemgo. Alltaf jafn þreytt að vera inni að læra þegar sólin skín en maður fær það endurgoldið seinna. Ég er að undirbúa enn eitt comebackið en ég er að fara til Bochum á miðvikudaginn í læknistestið. Vona að þetta blessaða meiðslastríð sé að fara að taka enda og maður geti hafið nýtt meiðslalaust winning streak með liðinu. Ég vænti þess engu að síður að þurfa að fara í sprautumeðferð í kjölfarið en það er ekkert að gera við því nema taka því fagnandi. Eins og JFK sagði einu sinni “Best er að gera við þakið þegar sólin skín”:) Meðan ég man þá er verið að fara kjósa 31.mars um stækkun álversins í Hafnarfirði, þeir sem hafa séð Kompás hljóta að hugsa sig vel um áður en gengið er að kjörborðinu. Koltvísýringur, brennisteinsýra og flúorkolefni eru helstu efnin sem blásið er útí andrúmsloftið, það sem kannski verra er að Alcan er staðsett í suðurhluta Hafnarfjarðar. Ef við samþykkjum þetta þá verður þetta þarna um ókomna framtíð óhagganlegt, og það er öruggt mál að mengun verður til staðar, og hvaða ávinning höfum við af þessu? Þrátt fyrir góðar tilraunir til að fegra þetta með því að að bjóða 1200 ný störf. Ég skil líka að það er hátt í 1000 manns búsett með fjölskyldur sínar í hafnarfirði sem vinna í Alcan og einnig minni fyrirtæki sem eru rekin í samvinnnu við þá, þetta er virkilega stór ákvörðun. Í hátt 40 ár eru þeir búnir að vera stór hluti atvinnulífs í firðinum en eins og einhver sagði koma tímar koma ráð. Mín skoðun er að við gleymum þessu og höldum áfram eðlilegri þróun eins flottasta bæjarfélags landins. Þetta er einfaldlega of loðið og það er ekki komið hreint fram, en eins og Pálmi Stefánsson efnaverkfræðingurinn sem vann þarna í mörg ár sagði að þetta væri bara pólitík og þar er leitað allra leiða. Þetta var nú bara smá útúrdúr frá annars fínni færslu and I rest my case.. Með Hafnfirskum kveðjum frá Germany, Logi Geirsson. P.S dagsins: Inní photogallery er hægt að skilja eftir comment sem mér þætti vænt um að fá frá ykkur! Spakmæli dagsins: Að þora er að missa fótfestuna um stund, að ekki þora er að tapa sjálfum sér. ![]() |
18.03.2007 |
| Success is imagination... |
|---|
| Handboltinn er loksins að vakna hjá okkur í Lemgo en við erum búnir að vinna 2 síðustu leiki, í síðustu viku á móti Flensburg 34-30 og í gær unnum við Melsungen á útivelli með einu marki 26-27. Við sitjum engu að síður fastir í 7. sæti og þurfum að eiga dúndur leiki á næstunni ef við ætlum okkur að vinna okkur pláss í top 4. Það hefur sýnt sig að það er allt hægt í þessu og ég held ég geti lofað því að það verður spennandi endasprettur í deildinni hjá mörgum liðum. Kiel eru efstir og þar þétt á eftir koma Flensburg og Hamburg, áhuginn er að stig magnast eftir HM og fleiri leikir eru sýndir nú en áður. Ég ætla að láta fylgja með nokkra linka sem ykkur gæti þótt gaman að skoða í tengslum við deildina. Ég er farinn að skipuleggja mig og bið að heilsa í bili frá Spork, L&I. TBV Lemgo Þetta er heimasíðan okkar. Handball-World Hér er allt á þýsku um allt sem er að gerast. HBL.TV Virkilega áhugaverð en þar er hægt að sjá brot úr leikjum og einnig LIVE. Handballwoche Blað um deildina sem gefið er út vikulega. ![]() |
17.03.2007 |
| „Síðan er eins og þið sjáið öll að lifna við” |
|---|
| Loksins er ég búinn að finna tíma til að færa inn nýja og ferska hluti á síðuna til að lífga hana vel við. Það má líka segja að maður hafi verið kominn með nett ógeð á henni, betra þó seint en aldrei. Lagið sem þið heyrið á upphafssíðunni er hulið leyndardómum sem ég hef aldrei viljað segja frá en það fer að detta inn í næstu færslum ef ég fer í þann tranz. Mæli með því að þið hlustið vel og vandlega á það, svo er ég með fréttir úr tónlista bransanum en ég er kominn í pásu frá Be Not. Ég mun spila í sumar með hljómsveitinni Be Sirkuz og set ég lag inn með okkur seinna í dag undir medien. Þar er einnig að finna nokkra nýja hluti auk þess sem photogalleryið er komið á fullt. Virkilega flottar og pro myndir eftir atvinnu ljósmyndara sem elti okkur meðal annars útum allt á HM en þið sjáið bara sjálf. Svo er allt að gerast í nýju íbúðinni en þangað verð ég fluttur inn 1. maí, ég tók í gær nokkrar ferskar myndir af því hvernig þetta lítur út. Gasgrillið er komið á sinn stað og sundlaugin í garðinn þannig að þetta er bara að fara að smella ;). Spakmæli dagsins: A true friend never gets in your way unless you happen to be going down. Íslendingur dagsins: Bubbi Mortens fyrir það að vera hann sjálfur. Ég er með mynd af bílnum mínum hérna því ég er að losa mig þennan skemmtilega grip og ef þið getið lagt út 2.500.000 á borðið þá er hann ykkar. Eftir að maður fékk sér Lúnu litlu þá er ekkert pláss fyrir farþega, þannig að “mens gotta do what mens gotta do”. “It’s not only the car your driving, It’s also the size of the arm hanging out of the window” ![]() |
10.03.2007 |
| “Batnandi manni er best að lifa” |
|---|
| Smá tilkynning til ykkar sem eruð tíðir gestir hingað inn. Á föstudaginn síðasta lenti ég í því á æfingu að detta illa á gólfið og bólgur komu upp í bakinu á sama stað og áður sem gera það að verkum að ég verð því miður frá í 2 vikur. Læknarnir vilja ekki taka neina sénsa þó að ég væri alveg til í að reyna að harka þetta af mér og spila þessa leiki sem framundan eru. Til seinni tíma litið er sterkara að ná góðum bata af þessu, því það er aðeins erfiðara að vinna úr þessu en tognun. Satt best að segja var ég ánægður með að þetta skuli ekki taka lengri tíma og verð kominn á fleygi ferð áður en ég sný mér við. Síðasta ár fór meira og minna í að vinna úr þessu sem ég var að glíma við þá eða 7 mánuði og ég nenni ekki aftur andvökunóttum og aðgerðaleysi;). Ég held líka svei mér þá að ég sé kominn yfir það að vera að pirra mig endalaust á einhverjum leiðindar meiðslum, þetta er greinilega bara eitthvað sem ég þarf að lifa með og vinna úr í mínu ferli sem handboltamaður, ég ætla bara að koma sigurvegari útúr þessu stríði. Með tilkynningar kveðjum frá Lemgo, Logi Geirson. Íslendingur dagsins: Sverri Garðarsson og er ég með spakmæli sérstaklega fyrir hann. “Hver vegur að heiman er vegurinn heim”!!! ![]() One Last Breath með Creed. |
07.03.2007 |
| Heimurinn er stútfullur af hlutum sem mann hafði aldrei grunað... |
|---|
| Datt í hug að henda því inná skjáinn hvað er búið að vera að henda mig undanfarið. Handboltinn rúllar eins og áður nema þá að hann er pínu linur og fer vinstri hægri á leið sinni á gólfinu. En það þarf höfuð til að kasta boltanum og þar er allt 100% og hefur aldrei verið betra. Við sitjum núna í 7. sæti í deildinni sem er grín en mikið er um mannaskipti í liðinu okkar á næstu misserum. Liðin í efstu sætunum eru að stinga okkur af og við þurfum á öllu okkar að halda til þess að vinna okkur sæti í Evrópukeppninni. Næsti leikur verður á miðvikudaginn kl. 20.00 í Magdeburg og það verður væntanlega svakalegur leikur og verður að sjálfsögðu á Sýn. Þegar ég skrifa þetta hellast yfir mig indislegar minningar frá HM þar sem við unnum riðilinn fræga í Magdeburg, það er engu að síður ekki hægt að lifa endalaust í minningunni. Einn stuttur sem datt inn, “Eftir höfðinu dansa limirnir”. Lærdómurinn í Bifröst er strax farinn að skila sér en ég er byrjaður að fjárfesta í hinu og þessu, aðallega þessu. Svo á dögunum var ég að finna nýja íbúð þar sem við erum að fara að flytja inní 7 km frá Lemgo í sveitinni. 160 fermetra hlussa með svölum, garði, bílskúr og öllu tilheyrandi og flytjum við inn 1. maí. Læt ykkur vita betur í sumar hvenær innflutningspartýið verður. *Ekki nóg með það heldur dreymdi mig um daginn sem gerist 1 sinni á ári hjá mér og það var verið að selja mér heimasíðu. Ég vaknaði uppúr draumnum kveikti á tölvunni og startaði síðunni og viti menn ég fann þarna næsta Tatoo sem mig langar í. Ég verð væntanlega kominn með það fyrir sumarið og eftir það er ég endanlega hættur þessari fíkn;). En ég er farinn í göngutúr með Lúnu og var þetta allt það helsta héðan, með business kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Kvikmynd dagsins: SWAT Heimasíða dagsins: www.progolf.is Spakmæli dagsins: “Allt sem á sér stað var einu sinni draumur” Íslendingur dagsins: Kolbrún Kjerúlf en ef ég væri að reka fyrirtæki myndi ég ráða hana í vinnu! ![]() |
03.03.2007 |
| Það eru snillingar þarna á meðal okkar... |
|---|
| Ákvað að birta eina gestafærslu sem ég fékk senda á síðuna og ég læt hana bara um restina. Þú þráir eitthvað rosalega heitt í lífinu og byrjar að setja þér raunhæf markmið til að ná á fyrirheitna tindinn á fjallinu fagra. Ferðin reynist erfið í fyrstu... 5 skref upp-4 til baka-10 skref upp-10 skref upp-3 til baka-10 skref upp-10 skref upp-fánanum flaggað..standandi á toppnum. Þráin feykti þér á tindinn. Uppi á tindinum stenduru eftir allan þennan tíma, búin að gleyma hversu fyrstu 5 skrefin upp voru þér mikilvæg. Þú hálf vanmetur árangurinn. Finnst þetta ekki vera neitt meir en aðrir hafa náð. Ekkert merkilegt svo sem, ekkert til að monta sig af. Þú þráir meira...fögur er fjallasýnin. Fjallið hinum megin við þig er nokkuð fallegt, hví ekki að klífa það á góðum degi. Þú leggur í næstu ferð. Hrasar. Það fer að hvessa. Þú efast, sest við rætur fjallsins og hugleiðir. Horfir á toppinn á tindinum sem er að baki. Rifjar upp ferðina upp það fjall og hugsar með þér hversu flott þetta hafi verið að komast upp allt þetta. Klappar þér á bakið. Þú seivar ferðina í minniskubb heilans, í möppuna "afrek lífs míns" Möppuna skreytiru með sólargeislum hjartans, setur hana á góðan stað þar sem alltaf er hægt að glugga í hana við rætur hins næsta fjalls. More and more I want less and less. Less and less do I want more. I get at least what I need and what I need is less than I thought. “More is less and less is more.” ------------------------ Að lokum eitt gott spakmæli: "Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru því að þar eru uppsprettur lífsins" Bestu kveðjur, Steffý |
25.02.2007 |
| VINI VIDI VICI… |
|---|
| Hver sagði þessi orð og afhverju? Annars er ég loksins að koma með geðveika færslu á morgun;) |
23.02.2007 |
| Time of my life… |
|---|
| * Til að byrja með setti ég video sem er ekki fullunnið á síðuna undir medien, á eftir að klára það en henti því samt inná. Sælt veri fólkið, nær og fjær. Ég er ekkert eðlilega hress í dag en veit samt ekki af hverju það stafar, kannski tilhlökkun eða einfaldlega sáttur með lífið. Sama rullan er komin í gang hérna í Lemgo nema það að ég er að vinna í að bæta í og við nokkur atriði. Maður er loksins að ná HM æðinu úr sér og komast almennilega á jörðina. Við vorum að spila við Düsseldorf í gær hérna hjá okkur þar sem við unnum þá með einhverjum 10 mörkum eða 35:25 (18:11). Ég fékk líka þennan fína víruz eftir HM sem réðst á lungun á mér og ég er enn að jafna mig á því, ætla að vera tilbúinn fyrir þriðjudaginn en þá kemur Kiel í 8 liða úrslitum bikarsins. Ég er búinn að vera duglegur að hakka í mig pensilín svo þetta ætti að fara að drepast og maður komist sem fyrst á parkettið aftur. Þetta verður sjónvarpsleikur en það er alltaf skemmtilegast að spila þegar þessu er sjónvarpað. Það er líka yndislegt af því að vita að Handboltinn er þvílíkt vaxandi hérna í Þýskalandi og Evrópu og umgjörðin að stækka gífurlega. Var að lesa það í blöðunum að það hafi 18.500.000 manns séð úrslitaleikinn á HM og það bara hér í Þýskalandi. Var að velta fyrir mér einu og það veltur aðallega á undirtektum ykkar. Ég er að setja af stað á morgun svona myndahorn þar sem þið getið sent skemmtilegar myndir af ykkur, eða hverju sem er, sem birtist síðan á síðunni. Í lok hvers mánaðar verður svo valin besta myndin og hún fær verðlaun sem verður ekki af verri endanum. Ef ég ætti að koma með einhverjar hugmyndir gæti það verið mynd af ykkur í Lemgo búning eða þið að spila, látið bara hugmyndaaflið fljóta. Eða einfaldlega bara venjulega mynd þarf ekkert að vera tengd handbolta. Held að þetta gæti ferskað svolítið uppá síðuna og allir gætu haft gaman af. Þið sendið einfaldlega á logi.geirsson@gmx.de og myndin birtist innan skamms. Með bestu sunnudags kveðjum frá Lemgo, Logi Geirsson. Brandari dagsins: 17 ljóskur stóðu að krókna úr kulda fyrir framan Gauk á Stöng þegar dyravörðurinn spyr: hvað eruði að gera þarna úti? Við þurfum að vera 18 til að komast inn!! Hehe þessi er snilld, verið duglegri að senda. Íslendingur dagsins: Geir Oliver litli frændi minn en hann er farinn að sýna yfirnáttúrulega góða danstakta, vídeoið kemur inn á morgun af honum. Spakmæli dagsins: “You cannot discover new oceans unless you have the courage to lose sight of the shore” |
11.02.2007 |
| Selbsterkenntnis ist der erste Weg zur Besserung!!! |
|---|
| WM und Lemgo... So endlich ist die WM vorbei und ich bin wieder zurück in Lemgo. Jetzt muss man die Zeit nutzen um den Kopf wieder frei zu bekommen, vor dem ersten Spiel am Samstag gegen Düsseldorf. Die Deutschen sind Weltmeister geworden... herzlichen Glückwunsch zum Titel!!! Super geil, vor allem das wir 6 Lemgoer dabei haben. Das ist so gut für den Handball in Deutschland. Dadurch wird Handball noch populärer und steht mehr in Focus. Nach diesem riesen Erfolg bei der Deutschen Nationalmannschaft hoffe ich auf eine große Entwicklung in der Handballwelt hier in Deutschland und Europa. Ich habe natürlich für Island gespielt, und wie alle wissen haben wir den 8 Platz erreicht. Das ist schon ok, aber meine Hoffnung war auf jedem Fall im Halbfinale zu spielen. Leider haben wir gegen Dänemark im Viertelfinale in der Verlängerung in letzter Sekunde verloren. Insgesamt bin ich eigentlich zufrieden mit dem WM für mich und Island. Das hat so viel Spaß gemacht. Die Hallen waren fast immer ausverkauft und die Stimmung und Atmosphäre war sensationell. Bravo Deutschland für diese erfolgreiche WM. Ich hoffe wirklich, dass die Weltmeisterschaften in Zukunft immer hier gespielt werden, aber so einfach ist das ja auch nicht. Das war die schönste WM aller Zeiten und ich bin stolz, dass ich dabei war und das alles erleben konnte. Das einzige was mich gestört hat war, dass wir 10 Spiele in 14 Tagen spielen mussten. Das ist fast unmenschlich schwer. Klar haben alle Mannschaften so gespielt aber für den Körper ist das nicht gut und wir hatten nur einen kleinen Mannschaftskader. Die Mannschaften mit dem besten Kader (den meisten Spielern) haben ja um die Medalie gespielt, da hatten wir mit unserem 8-Mann starken Kader keine Chance. Ich habe nebenbei immer noch für mein Studium an der Fern-Uni lernen müssen und habe Prüfungen bestanden. Womit ich sehr zufrieden bin. Jetzt wissen wir schon gegen wen wir in der EM Qualifikation für Norwegen 2008 spielen müssen. Das ist Serbien Montenegro. Die Spiele sind am 10. und 17. Juni. Wir wollen was gutes zeigen bei der EM. Die Qualifikation zu schaffen ist der erste Schritt für uns. Die Serben haben die Tschechen letztes Jahr bei der WM Qualifikation geschlagen, also wird das eine schwere aber interessante Aufgabe für uns. Bis nächstes mal, Logi Geirsson |
07.02.2007 |
| Lífið heldur áfram og verður bara betra!!! |
|---|
| Ein löng færsla um allt og ekkert og til að loka þessu í bili... Þá er mótið búið og ég er mættur heim til Lemgo til að fría hugann eftir góðan tíma með landsliðinu hér í Þýskalandi. Þjóðverjarnir urðu meistarar og hvorki meira né minna en 7 leikmenn þeirra spila með mér í Lemgo og ég heyri nú í þessum skrifuðu alla bíla hérna flautandi og fólk dansandi á götum úti. Er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fara og fagna með þeim en lét skynsemina ráða, þeir gleyma engu þessir gæjar hérna hehe. Ég er í heildina nokkuð sáttur eftir þessa keppni og framhaldið lofar góðu enda eru kynslóðaskiptin búin að ganga í gegn og næstu árin verða blómatími Íslenska landsliðsins. Við sýndum virkilega góða leiki inn á milli og karakter og stuðning beint frá hjarta þjóðarinnar. Ég held bara svei mér þá að þessi keppni sé flottasta HM frá upphafi og ég er stoltur að hafa fengið að taka þátt í þessu ævintýri fyrir hönd Íslands, stemmningin, tilfinningarnar og metnaðurinn. Ég er bara svona smá saman að átta mig á því hversu mikill heiður og stolt er að fá að spila fyrir landið sitt og þetta verður einhverra hluta vegna miklu meira en bara handbolti. Niðurstaðan í mótinu varð 8 sætið því miður en það má segja að fyrir Danaleikinn þá hafi verið jafn erfitt að verða heimsmeistarar og lenda í 5 sætinu, þó að þetta hljómi kjánalega. Svona er þetta bara, “skammt stórra högga á milli”. Það má segja að botninn hafi dottið úr leik okkar eftir Danina og það sat verulega í okkur í framhaldinu án þess að kenna því einu saman um. Leikjaálagið var ekkert til að hrópa húrra fyrir en 10 leikir á 15 dögum er ómannlegt ef menn eiga að geta lagt sig 100% fram í hvern leik og breiddin þarf að vera gríðarleg, enda sýndi það sig að liðin með mestu breiddina náðu lengst. En að öðru, nú er það ljóst að við mætum Serbíu Svartfjallalandi í leikjum um sæti á EM og verða þeir líkt og á síðasta ári á þjóðhátíðardaginn okkar 17. júni. Þetta er eilíf barátta og ætlum við okkur að tryggja okkur þar inn og halda áfram þessum stíganda og þróun sem er að fara fram í liðinu. Ég er ekki í vafa um að við erum að fara að keppa um titla á næstu árum í þessum stórkeppnum ef áfram heldur sem horfir. Ég ætla að nota tækifærið hér til að þakka kærlega fyrir mig og stuðninginn í gegnum keppnina og einnig www.ibliðuogstridu.is þetta er vissulega eitthvað sem erfitt er að endurgjalda en ég geri það á vellinum í framtíðinni. Ekki nóg með að vera að drukkna í álagi í keppninni þá var ég líka að ná að klára prófin mín frá Bifröst og er virkilega hamingjusamur og vil einnig þakka sérstaklega, Braga Rúnari og Ingibjörgu Guðmunds og mörgum öðrum sem hafa sýnt tillitsemi meðan á keppninni stóð. Með Íslendingakveðjum frá Lemgo, L&I_23 og www.logi-geirsson.de Maður ferðarinnar: Friðrik Oddsson. Lag dagsins: Sexual Healing með Ben Harper. Spakmæli dagsins: Do, or do not. There is no 'try'." Sérstakar þakkir: Adidas, Salatbarinn og EAS Upplýsingar dagsins: Ólafur Stefánssson og Snorri Steinn Guðjónsson eru ásamt Króatanum Ivano Balic í fimmta sæti yfir markahæstu menn en þeir skoruðu allir 53 mörk. Þá eru Logi Geirsson og Alexandar Petterson í tíunda sæti ásamt Suður-Kóreumanninum Chi-Hyo Cho með 48 mörk. Þá bar Ólafur Stefánsson höfuð og herðar yfir aðra menn þegar kom að stoðsendingum en hann átti 53 sendingar á félaga sína sem skiluðu marki. Næstur á eftir honum kom Króatinn Ivano Balic með 44 stoðsendingar. Þá varð Logi Geirsson fjórði á þeim lista með 33 stoðsendingar. Þegar mörk og stoðsendingar eru lagðar saman kemur í ljós að Ólafur Stefánsson er þar einnig yfirburðamaður með samtals 106 sendingar og mörk, Ivano Balic annar með 97 og Logi Geirsson og Guðjón Valur Sigurðsson í 4. og 5. sæti með 81 og 79 sendingar og mörk. |
04.02.2007 |
| Skemmtilegasti Tapleikur sem ég hef upplifað!!! |
|---|
| Leikurinn á móti þjóðverjum var eins og hálfgerður æfingaleikur, sem er mjög skrýtið svona rétt fyrir 8 liða úrslitin. Við náðum að rúlla á liðinu alveg eins og við ætluðum okkur og úrslitin skiptu ekki höfuð máli. Það er sam margt mjög jákvætt við tapið: Vinnum alltaf eftir tapleik. Hvíldum og mætum allir 100% í leikinn. Næsta lið vanmetur okkur. Erum nákvæmlega þar sem við viljum vera og spilum á móti Dönum í 8 liða úrslitum. Ef við spilum aftur á móti Þjóverjum í keppninni þá vinnum við þá, og upp með brosið þetta var eitt stórt TRIX hjá okkur. Mér tókst að fá alla 12000 áhorfendurnar til að klappa fyrir mér í hvert skipti sem ég fékk boltann sem er ekki amalegt. Maður er jú búinn að spila hérna í Germany á 3ja ár og þeir þekkja mig vinir mínir. Á morgun er ferðadagur en þá förum við til Hamburgar á nýtt hótel og búum okkur undir 8 liða sem verða spiluð á þriðjudaginn á móti Danmörku. Maður dagsins: Christian Zeitz fyrir að eyðileggja næstum boltan þegar hann lenti í hárinu á honum. Lag dagsins: Förum alla leið með SS sól. Þakkir dagsins: Fær Vestfiskur fyrir að senda okkur harðfisk, hélt að Góa væru tryggir en það er eitthvað að klikka, hafa alltaf verið öflugir. Með tilhlökkunar kveðjum frá Þýskalandi, L&I. |
28.01.2007 |
| Iceland og landsliðið… |
|---|
| Því miður get ég ekki verið nógu duglegur að setja inn einhverjar fréttir því það er allt að gerast í augnablikinu. Landsliðið er á fullu að spila æfingjaleiki, æfa og undirbúa sig fyrir HM núna síðar í mánuðinum. Vorum eins og allir vita að spila í æfingamóti í Danmörku sem kom vel út, við erum með þvílíkt gott lið sem ég tel að eigi eftir að toppa á réttum tíma. Við spilum á laugardaginn og sunnudaginn við Tékkana sem verða síðustu leikir liðsins fyrir HM. Á morgun er svo próf í bifröst í rekstrarhagfræðinni og er maður að reyna að koma þessu öllu heim og saman. Ætla mér samt að vera duglegur við að uppfæra það sem við erum að gera og leyfa ykkur að fylgjast með því helsta. Þessi færsla á bara að vera stutt og markviss en þess er vert að minnast að ég er kominn með gamla númerið mitt aftur 847499? Fyrir áhugasama þá eru tónleikar hjá hljómsveitinni minni “Be Not” um helgina og kem ég til með að láta frekari upplýsingar á síðuna þegar fram dregur. Við erum búnir að vera að semja 3 lög sem verða einnig frumflutt… En þangað til næst og bestu kveðjur af Íslandi, L&I_23. |
08.01.2007 |
| Betra er að kveikja á agnarlitlu kerti en að bölva myrkrinu... |
|---|
| Iceland ég er að koma heim á morgun og halda áramótin heima, þvílík snilld og sjaldan hlakkað jafn mikið til og að koma heim. Búið að ganga upp og ofan í boltanum að undanförnu og töpuðum aftur í síðasta leik sem var á móti Balingen, ég veit ég veit. Þeir voru í síðasta sæti og unnu okkur með einhverjum 8 mörkum sem er bara grín og fín stemmning í Lemgo þessa dagana, einmitt. Mikilvægt að ná einbeitingunni strax aftur því það er leikur í dag og er það síðasti leikur ársins en við Lemgo menn erum að fara til Minden og ná í 2 stig. Svo er bara flug heim á Ísland á morgun og landsliðið tekur við, HM verður svo mikil snilld. Aldrei hlakkað jafn mikið til neins á mínum ferli og ég kem til með að gera allt sem í mínu valdi stendur til að komast sem lengst. Nota tækifærið og óska Guðjóni Val til hamingju með tilnefningunna sem íþróttamaður ársins aldrei að vita nema maður reyni að gera tilkall í þennan titil seinna en ég lenti í 16 sæti og er bara þokkalega sáttur maður. Er búinn að vera að lesa Hámarks Árangur og ég er búinn að finna hamingjuna aftur, kannski skrýtið fyrir ykkur að lesa þetta en ég skora á alla að lesa þessa bók. Ef hún hjálpar ykkur ekki skal ég persónulega kaupa hana af ykkur. Eina leiðin til að kaupa hana er í bóksölu stúdenta en þar er hún á tilboðsverði eftir jólin, ég er bara að reyna að láta gott af mér leiða. Ég er búinn að ákveða það að þegar ég verð einhvern tíma yfirmaður þó ekki væri nema á pulsubarnum þá gef ég öllum starfmönnum mína þessa bók. Ætla að tileinka þessari loksfærslu ársins bókinni og birta nokkrar góðar setningar sem þið getið velt fyrir ykkur. Heilbrigði, ríkidæmi, hamingja, brautargengi og hugarró fylgja sömu meiginreglu. Með því að gera hið rétta á réttan hátt öðlast þú það sem þú þráir. Ef þú veist hvað þú vilt geturu skoðaðhvernig aðrir hafa nálgast sama markmið. Ef þú ferð eins að nærðu sama árangri. Þetta er “leyndarmál farsældarinnar” og er svo einfalt að flestum yfirsést það. Smá texti um sannfæringarlögmálið: “Trúin skapar staðreyndina” Í biblíunni stendur: “Svo sem þér trúið er gegn yður breytt”. Með öðrum orðum, menn trúa ekki endilega eigin augum en þeir SJÁ hins vegar það sem þeir trúa. Svolítið erfitt að geta ekki útskýrt þetta betur og gefa dæmi en sannfæringarlögmáliðkveður á um að það sem þú trúir í raun og sannleika verður hluti af veruleika þínum og það er svo satt að ég veit ekkert meira rétt. Rangt er alltaf rangt það er rétt en ég er hættur í bili! Hehe. Goethe var þýskur hugsuður og hanna sagði eitt sinn ”Menn verða að vera eitthvað ætli þeir sér að gera eitthvað” Svolítið djúpt en það er verið að tala um að allt hið ytra kemur að innan. Ég skal koma með meira og skemmtilegra næst því ég þarf að gera mig til fyrir leik, hittumst vonandi hress á Íslandi, þarf að fara og gera eitthvað af viti með bestu kveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
30.12.2006 |
| Maður verður að leggja inn fyrir því sem maður ætlar að taka út... |
|---|
| Byrja á að óska ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, takk fyrir viðveruna á árinu og hlakka til að hitta ykkur á skjánum í framtíðinni. Aðfangadagur, efast um að einhver heilvita maður sé að skoða þessa færslu í dag 24. des. Vorum að spila í gær á móti Hamburg í Gerry Weber Halle sem er tennishöll sem við getum spilað heimaleikina okkar í líka og tekur 14000 manns. Leiðinlegt að segja frá því en við töpuðum leiknum 33:37 (18:18), við vorum yfir í byrjun 11-3 en þeir náðu að jafna fyrir hálfleik og sérstaklega er það Kóreu gaurnum Yoon að þakka en hann skoraði 18 mörk takk fyrir og góða nótt, “Hryllingur”. Hefði getað verið skemmtilegt að vinna og gefa sér 2 stig í jólagjöf en það verður bara að gerast seinna. Ásgeir var skástur í liðinu okkar og ég var hrikalega góður, mjög góður í vörn, frábær skot og einstaklega einbeittur í leiknum svo getið þið snúið þessu 180 gráður og þá vitiði að ég er enn að draga mig uppúr gólfinu En það eru jú einu sinni jólin og lífið er meira en Handbolti, næsti leikur er á móti Balingen þann 27.des og svo er síðasti leikurinn fyrir HM pásuna á móti Snorra Stein og co þann 30. des, mikið verður ánægjulegt að komast heim í undirbúninginn. Foreldrar mínir ákvaðu að koma halda jólin með okkur hérna í Lemgo og óhætt að segja að jólin hérna séu mjög frábrugðin því sem gerist á Íslandi. Hérna er varla jólasería á lofti nema bara rétt fyrir nóttina og þá hefur fólk kveikt á þeim í max 2-3 tíma til þess að spara rafmagnið, hehe hversu snjallir eru Þjóðverjar. Ég er núna að henda hamborgarahryggnum í ofninn og er búinn að undirbúa allt. Það vantar samt svona smá stemmninguna eins og maður upplifir jólin á Íslandi, stressið á þorláksmessu, allir á síðasta snúning og keppnin í götunni um það hver er með flestu jólaljósin. Hérna er ekki bíl á ferð en það er sól á himni, svolítið erfitt að komast í fílinginn og minnir mig á jólin 2004 þar sem ég var einn hérna með eina pítzu í 2 daga. Ef að það var ekki leiðinlegasti tími lífs míns þá veit ég ekki hvað, en maður á að venja sig á það að vera jákvæður og ekki bara um jólin. Bið að heilsa frá Braker Mitte í Lemgo og óska ykkur vellíðunar yfir hátíðarnar. Íslendingur dagsins: Móðir mín Ingibjörg Eldon Logadóttir, en hún er viskubrunnur. Lag dagsins: White Christmas Spakmæli dagsins: You laugh at me because I'm different, I laugh at you because you are all the same!! |
24.12.2006 |
| Ein blindes Huhn findet auch mal ein Korn!!! |
|---|
| Jetzt ist es klar, dass wir im DHB Pokal gegen Kiel hier zuhause spielen müssen. Wir haben in den letzten Jahren immer gegen Kiel gespielt und verloren. Als ich die Auslosung live im Fernsehen gesehen habe, habe ich mich gefreut, dass wir jetzt die Möglichkeit haben alles zurück zuzahlen für die letzten Jahre! Ich werde auch eine bessere Leistung zeigen als beim letzten mal und ich freue mich schon jetzt auf das Spiel. Ich glaube auch, dass Flo und Daniel dann beide wieder spielen können, so dass wir dann alle wieder komplett sind. Kiel ist nicht unschlagbar und eigentlich, meiner Meinung nach, sind wir nicht schlechter. Klar haben die 14 internationale klasse Spieler, aber es können immer nur 7 auf dem Feld sein. Wir reden noch mal nach dem Spiel und bleib immer positiv, „von positiv kommt nur positiv“. Aber erst haben wir jetzt in der nächsten Zeit ein paar wichtige Spiele. Unsere nächste schwere Aufgabe ist am Samstag auswärts gegen Nordhorn. Die haben in den letzten Spielen in der Liga fast alle überrannt mit ihrer Leistung. Aber wir sind besser und können uns nach der letzten Zeit nur nach oben krabbeln. „Wenn alles schlecht läuft, dann soll man nicht aufhören, weil das genau die Zeit ist, wenn alles anfängt wieder gut zulaufen!“ Ich fand es so witzig, was in der Zeitung gestanden hat, das ich hatte meine Schuhe nach dem Spiele gegen Kiel weggeworfen habe. Das stimmt eigentlich nicht, aber trotzdem ist es sehr lustig. Es scheint so, das die „Lippische“ momentan eine „Gurken-Zeit“ hat. Sonst läuft alles super. Ich habe gerade meine Weihnachtsprüfung an der Fern-Uni in Island geschafft und das ist immer ein gutes Gefühl, etwas zupacken. Ich studiere da übrigens Wirtschaft. Das war es für heute. Sprichwort des Tages: „Wenn der letzte der erste wird!“ Mann des Tages: Ásgeir Örn unser (Örni), was er gestern beim Training gezeigt hat, ist das witzigste aller Zeiten. Ich lache bald immer noch darüber. Ihr müsst ihn selber Fragen, wenn Ihr wissen wollt was es war. Aber mann hätte eigentlich dabei sein müssen um das zu sehen, versteht ihr! ;) Witz des Tages: Die Beamten bei der Post öffnen einen Brief, der an den "Weihnachtsmann", adressiert ist. Ein Beamter beginnt zu lesen... "Lieber Weihnachtsmann. Ich bin 10 Jahre alt und Vollwaise. Hier im Heim bekommen immer alle Kinder nette Geschenke, nur ich nicht. Ich wünsche mir so sehr einen Füller, eine Mappe und ein Lineal." Die Beamten sind sehr gerührt und sammeln untereinander. Leider reicht es nur für einen Füller und eine Mappe. Nach 3 Wochen kommt wieder ein Brief vom selben Absender. Sofort öffnet einer den Brief und beginnt laut zu lesen: "Lieber Weihnachtsmann! Vielen Dank für die schönen Geschenke! Ich habe mich sehr gefreut! Leider hat das Lineal gefehlt, aber das haben bestimmt die Voll Idioten von der Post geklaut!" Mit optimistischen Grüßen aus Lemgo, L&I_23. |
13.12.2006 |
| "Líf laðar að sér líf og gott leiðir af sér gott" |
|---|
| Þokkalega mikið að gera undanfarið væri ekki einu sinni nóg að segja því það er allt að gerast þessa dagana. Við erum búnir að vera að spila undanfarið nokkra leiki og það hefur ekkert verið til að hrópa húrra fyrir, en við erum að spila virkilega illa síðustu vikurnar og botninn dottinn úr þessu hjá okkur. En það er bara svo að þegar maður er kominn ofan í holu að þá hættir maður að moka. Við spiluðum á móti Dunkerque frá Frakklandi og duttum þar úr leik með því að tapa samanlagt með 1 marki úr tveimur leikjum í EHF, heima og heiman. Það varð ákveðin spenna sem myndaðist við að við sem Evrópumeistarar skildum detta úr leik svona snemma og fór þannig að lokum að þjálfarinn okkar Volker Mudrow þarf að taka “möppuna” sína eftir tímabilið og leita á önnur mið. Stuttu eftir það þá spiluðum við á móti Kiel í deildinni sem við töpuðum verðskuldað 37-31 þrátt fyrir mjög slakan leik hjá okkur. Næsti leikur er á móti Nordhorn á laugardaginn á heimavellinum þeirra en þeir hafa komið mest á óvart allra liða í deildinni og sitja í 2-3 sæti en við erum hinsvegar dottnir í 6 sætið. Það lítur út fyrir að þetta verði mikilvægsti leikur vetrarins til þessa fyrir okkur því ef við ætlum að vera með á topnum þá er þetta leikurinn til að sigra. Rakst á þetta gefur ykkur hugmynd um það sem ég var alltaf að reyna að útskýra. “Það gerist allt tvisvar, fyrst í huganum og svo raunveruleikanum”. Prepare yourself fully for the opportunity you seek. And that opportunity will surely come. When it does come, your preparation will put you in an ideal position. You'll have what it takes to make the most of the opportunity that comes your way. Races are won not only in the competition itself, but also in the preparation. Those who win are those who take the time and effort to best prepare. Preparation can be tedious. It is usually not very glamorous or exciting. And yet preparation most certainly leads to many exciting and magnificent things. Preparation puts you in control of your own destiny, and opens the door to spectacular achievement. Prepare yourself to the highest degree that you can. And that preparation will pay off many times over in the valuable rewards it brings. *Ég ætla að prófa að fara eftir þessu betur og athuga hvort ég nái ekki meira jafnvægi í leikinn hjá mér, sem er að skora ekki 7 mörk í einum hálfleik og ekkert í þeim næsta;) það er samt bara fyndið enda er lífið svo miklu meira en bara handbolti. Í gær var haldið jólaboð Íslendingana í þýskalandi hjá Guðjóni Val og Þóru. Þetta var hin mesta skemmtun og fá þau hrós Desembersmánaðar fyrir þetta boð. Þetta var haldið í hjarta Gummerbach í nýja húsinu þeirra sem er stærra en “Lemgo”. Þarna komu íslenskir jólasveinar og skemmtu krökkunum, ég hló svo mikið af þeim að mér var illt í kjálkanum en fyrir þá sem ekki vita voru þetta Snorkurinn( Snorri Steinn) sem skyrgámur og Hákon( Ásgeir Örn) sem stekkjastaur. Við tókum þetta uppá video og verður komið innan skamms á einhverjar af síðunum sem við höldum uppi hér frá þýskalandi, ég er bara hlæjandi núna við tilhugsunina. Fann líka fyrir því að vera þarna innan um 30 Íslendinga hlóð bara batteryin næstu mánuðina félagslega. Og meðan ég man þá var ég að klára jólaprófin í viðskipafræðinni úr Bifröst og svei mér þá ef þetta hefur ekki bara gengið glymrandi vel. Að vera að gera eitthvað með boltanum er ómetanlegt og kemur góðu jafnvægi í tilveruna og frítímann sem maður hefur milli æfingja og leikja. Nú er maður bara að setja íbúðina í jólabúninginn og þá getur maður andað léttar, ekki það að maður sé ekki mjúkur. Hafið það gott í desember og munið að bestu hlutirnir í lífinu eru ekki hlutir, með ríkum kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Spakmæli dagsins: No gutts No glory. Setning dagsins: Snorri og Ásgeir að leika jólasveinana í jólaboðinu í Gummersbach: Já krakkar svo þekkið þið foreldra okkar, hann Grýlu og Leppalúða. Ef að þetta var ekki fyndið Íslendingur dagsins: Brynjar Eldon Geirsson en hann var að taka við starfi íþróttastjóra hjá GR. Lag dagsins: Stuck in rewerse með Coldplay, (you try your best but you don’t...) Heimasíða dagsins: www.metacafe.com |
11.12.2006 |
| Ich gehe immer meinen Weg... |
|---|
| In der letzten Zeit haben wir viel mit dem TBV Lemgo gespielt. Es waren gute und schlechte Spiele dabei. Wir spielten erst gegen Kronau Östringen aber das war ein Witz. Ich kann mich nicht erinnern wann ich je so schlecht gespielt habe. So etwas passiert, wenn du über 50 Spiele spielst in der Saison. Die Sonne scheint immer, aber manchmal braucht man einfach eine Niederlage um aufzuwachen. Letztes Wochenende hatten wir die Vereins-EM in Köln mit den Mannschaften Ciudad Real, Gummersbach und Moskau. Wie wir alle wissen haben wir den 3. Platz erreicht. Leider habe ich mich im Spiel gegen Gummersbach verletzt und habe mir meine Schulter ausgekugelt. Das war echt gut! Ihr müsst das alle unbedingt probieren!!! hehe!!! Aber ohne Spaß jetzt: nun falle ich die nächsten 2-3 Wochen aus. Ich hoffe aber, dass ich gegen Kiel spielen kann. Ich hasse es gegen Kiel zu verlieren. Das ist nun mein Ziel und ich glaube mit der Hilfe von der Reha-Lemgo schaffe ich das. Eigentlich habe ich ein bisschen Glück mit der Verletzung, wir haben ein paar leichte Spiele momentan. Ich bin stolz drauf wie gut wir in dieser Saison bisher gespielt haben. Wir sind überall dabei: EHF, DHB und in der Liga sieht es auch gut aus. Ich glaube ich bin noch nie so glücklich gewesen in meinem ganzen Leben wie jetzt. Ich fühle das ich da bin wo ich immer hin wollte. Lemgo ist vielleicht nicht die schönste Stadt der Welt aber ich fühle mich wie zuhause. Ich sehe immer was das Leben so bietet und wie wichtig es ist nach allen Möglichkeiten zu schauen und ruhig zu bleiben. Meine Balance ist fast perfekt aber ich sehe auch wie die Leute immer wieder nicht das Leben genießen. Ich weiß das klingt komisch aber ich finde es so wichtig zwei Dinge gleichzeitig zu machen z. B. Handballspielen und studieren, so wie ich es tue. Ich lebe trotzdem immer die Tage nacheinander, es gibt ja nicht den Tag gestern oder morgen, es gibt nur einen Tag und dieser ist Heute. Ich habe ein paar neue Tricks geübt, versprochen! Bleibt sauber bis zum nächsten Mal in der Lipperlandhalle!!! Sprichwort des Tages: Ein Tag ohne Lächeln ist ein verlorener Tag! Menschen des Tages: Alle Lemgoer Fans Film des Tages: „Voll Normal“ Lied des Tages: Far Behind mit Candlebox. Ich liebe es. Witz des Tages: "Aber Herr Ober, der Kaffee ist ja kalt!" "Gut, dass Sie mir das sagen, mein Herr! Eiskaffee kostet nämlich einen Euro mehr ..." Mit freundlichen Grüßen und bis zum nächsten mal aus Lemgo, Euer L&I_23 |
29.11.2006 |
| Til að gera langa sögu stutta þá er þetta málið... |
|---|
| Við erum búnir að vera á fullu að undanförnu og gengið upp og ofan. Fyrst ber að nefna að við spiluðum sjónvarpsleik á móti Kronau Östringen fyrir rúmri viku síðan og það var nú meira djókið. Þeir unnu okkur 24:35 (13:18) og er óhætt að segja að þetta hafi verið hörmung en það er fínt að spila illa annað slagið, sama hversu illa það hljómar! Sólin kemur alltaf upp á morgun aftur og þegar við spilum 50 leiki á tímabili þá getur bara svona skeð. En svo vorum við um helgina að spila í Köln í Evrópukeppni félagsliða ásamt Ciudad Real, Gummersbach og Moskau um hvað væri besta lið Evrópu. Við lékum vel í mótinu og enduðum í 3 sæti eftir að hafa verið sigraðir af Gummerbach með 1 marki í undanúrslitum og sigra svo Moskau með 4 mörkum í leiknum um 3 sætið. Í þeim leik lenti ég í því að fara úr lið á vinstri öxlinni og mæli eindregið með því að fólk prófi að kippa sér úr lið. Öllu bulli sleppt þá verð ég frá boltanum næstu 2-3 vikurnar því vöðvar og sinar trosnuðu en slitnuðu ekki til allrar hamingju og blæddi mikið inná liðinn. Ég fer þá bara eitthvert í sólina í 2 vikur, það er alltaf eitthvað jákvætt sem fylgir svona. Ég missi til að mynda bara af leik í bikarnum á móti Stralsund og svo EHF á móti Dunkerque frá Frakklandi þannig að þetta eru svo sem ekkert slæm tímasetning fyrir smá meiðsli;). Ég ætla að stefna að því að spila á móti Kiel eftir 2 vikur því ég er löngu orðinn þreyttur á að tapa alltaf fyrir þessu liði, það er allavega smá markmið sem fær mig til þess að fara í sjúkraþjálfun daglega ef ekki tvisvar á dag. Ég held að ég hafi aldrei verið hamingjusamari en núna, mér finnst ég vera nákvæmlega þar sem ég vil vera og líður þar af leiðandi þannig. Er alltaf að sjá meira uppá hvað lífið hefur að bjóða og hvað það er mikilvægt að staldra við og líta í kringum sig og sjá hvað og hvort maður sé að gera það sem maður vill. Er kominn í ákveðið jafnvægi sem mig hefur alltaf langað að vera í hef svo góða tilfinningu og líðan. Mér finnst ég bara sjá fólkið þjóta framhjá mér í þessu lífsgæða kapphlaupi sem allir eru að rembast við. Ég velti þessu oft fyrir mér og er feginn að hafa komist uppá bakkann og horfa á flótið. Svo held ég að það sé fátt skemmtilegra en að ná að gera tvennt í einu. Bæði spila handbolta, mennta mig og sinna þeim sem skipta mig máli og ég þeim. Ég er alveg búinn að átta mig á því hvernig mér líður best, nr. 1 forgangsraða hlutunum og vinna í veraldslegu hlutunum því tíminn kemur aldrei aftur. Það er ekki til dagurinn í gær eða dagurinn á morgun, það er bara til dagurinn í dag. Maður dagsins: Fjármálaráðgjafinn minn Björn Schulz. Spakmæli dagsins: "Betra er yndi en auður" Held að það sé ekkert sem lýsi færslunni betur. Fróðleikur dagsins: Hvert ár er 365,24 dagar, og því er hlaupár á fjögurra ára fresti til að bæta fyrir uppsafnaða daginn sem við teljum ekki. Hlaupár er þá öll þau ár sem deila má með fjórum og fá út heila tölu. þetta gildir þó ekki um aldamót nema deila megi fjórum í þau og útkoman verði slétt hundraðstala. Ég var að velta þessu fyrir mér um daginn og þetta var niðurstaðan sem ég fékk, kannski getur einhver leiðrétt mig ef þetta passar ekki? Brandari dagsins: Hafið þið heyrt um manninn sem tók of stóran skammt af Viagra??? Honum er haldið sofandi í mjaltavél 4fjögurrablaðasmári eða Eiður Smári, bestu kveðjur frá Lemgo L&I_23. |
27.11.2006 |
| Frestaðu aldrei til morguns því sem þú getur gert fljótlega eftir helgi!!! |
|---|
| Góðan daginn gott fólk, það er ekki leiðinlegt að setjast niður og skrifa nokkrar ljúfar línur á þessum blessaða föstudegi. Ég var að komast í helgarfrí sem er frekar sjaldgæft í heimi atvinnumannsins. Ég er með helling af nýjum fréttum og takið ykkur smá tíma á minni “tíðni”. Vorum að spila við Gummersbach í uppgjöri toppliðanna í deildinni, þeir voru í fyrsta sæti og við í 2 sæti fyrir leikinn og var hann að sjálfsögðu sjónvarpsleikur á DSF. Þetta var svakalegur leikur eins og við var að búast sem einkennir handboltann sem bæði lið spila, það var búið að vera mikið rætt um þennan leik og hversu sterkir Gummersbach væru. Alfreð má eiga það hann er er búinn að gera dúndur lið úr öllum þessum nýkomnu mönnum til liðsins. En aftur að leiknum þetta var jafnt á flestum tölum en við sýndum styrk okkar í þessum leik, hann endaði 34:29 (19:19) og sitjum við í 1. sæti. Þarna áttust við hvorki fleiri né færri en 7 Íslendingar og mér finnst skandall að þetta skuli ekki vera sýnt heima, toppslgur úr bestu deild í heimi. Svo smá punktur til sport.is en það vantar miklu meiri umfjöllun um deildina hjá ykkur. Með fullri virðingu fyrir öllu sem er fjallað um á sportinu þá verður maður að forgangsraða, annars er þetta klassa síða hjá ykkur. Við spiluðum seinni leikinn okkar við Maccabi í Evrópukeppninni á sunnudaginn síðasta og rúlluðum þeim upp 37:22 (20:8) og komumst því öruggir áfram í næstu umferð. En dregið var fyrr í vikunni og lentum við á móti Dunkerque HB frá Frakklandi sem er gamla liðið hans Ragga Óskars en þeir sigla einhverstaðar um miðja deild í frönsku deildinni. Í gær var 20 stiga hiti og sól, ég lá á einhverjum bekk uppí fjalli í sólbaði. Það er einhver Hæð að ganga yfir Þýskaland og megum við búast við ágætis veðri á næstu dögum. Eins og gefur að skilja eru líka allir yfir sig hrifnir af því að við sitjum á Toppnum í deildinni og erum við stolt bæjarins að vissu leiti. Næsti leikur hjá okkur verður sjónvarpsleikur á DSF á miðvikudaginn næstkomandi. Það verður væntanlega uppselt í Sap-Arena á miðvikudaginn. Íslendingur dagsins: Jón Ásgeir Jóhannesson fyrir að kunna að stunda viðskipti. Spakmæli dagsins: “Betra er að fá fræ og láta rósina blómstra en að fá rósina tilbúna og horfa á hana deyja” V.D.Ó Veganesti dagsins: Munið að þið hafið ákveðinn lykil sem gengur að ákveðið mörgum hurðum, hvaða hurðir sem þið veljir er undir ykkur sjálfum komið. Kem fljótlega með nýja færlslu inn, með bestu kveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
17.11.2006 |
| Sætur sigur og enn og aftur var það tæpt, elska þessi móment... |
|---|
| Vorum að spila í gær í Nettelsted þar sem Birkir Ívar og Þórir spila. Þetta var hörku leikur frá byrjun og sýndu þeir hvað í þeim býr í þessum leik. Þeir höfðu yfirhöndina mestan hluta leiksins en það var ekki fyrr en 10 mín fyrir leikslok að við komumst yfir. Lokamínúturnar voru dramatískar en við fengum víti þegar 20 sek voru eftir og staðan 30-30. Ég vildi taka vítið og stóð enginn annar en Birkir í rammanum á þeim tíma, ég setti boltann MJÖG auðveldlega framhjá honum þrátt fyrir góða tilraun hans til að verja og lokatölur 31-30 (16:17) okkur í vil. Við Íslendingarnir í nágrannaslagnum stóðum okkur fínt, Ásgeir spilaði vörnina og ég sá um að setja 5/2 slummur allt frekar ljót mörk. Birkir spilaði 30 mín fyrir Nettelsted en Þórir kom ekkert við sögu í leiknum. Við höldum áfram á sigurbraut og höfum unnið hvern leikinn á fætur öðrum undanfarið og erum í 2-4 sæti 1 stigi á eftir Gummersbach sem við mætum á þriðjudaginn næstkomandi hérna í Lemgo og verður það sjónvarpsleikur. Enda verður það toppslagur bestu deildar í heimi, en í millitíðinni þá eigum við leik á móti “Maccabi Rishon Le Zion” frá Ísrael á sunnudaginn í EHF-CUP. Handboltinn hefur held ég bara aldrei gengið betur og skólinn er að “funkera” vel með þessu, eins og ég hef oft sagt, mæli með fjarnámi. Lífið hérna er fínt þó að það sé orðið skítkalt og fer að líða að því að maður fari að sjá snjókorn en það er ekkert skemmtilegra hérna í Lemgo en þegar fer að líða að jólunum. Þetta er alveg magnað hvað þjóðverjar eru góðir í að búa til góða stemmningu í kringum allt. Í byrjun desember þá er kominn upp jólamarkaður sem stendur út allan mánuðinn og mikið húllumhæ í kringum það. Þá eru nokkur þúsund manns að rölta um að drekka Glühwein til að halda á sér hita meðan að foreldrarnir hleypa börnunum sínum í tívolítækin. Til þess að toppa jólastemmninguna þá ákvað ég að bjóða foreldrum mínum systur og frænda til okkar um jólin til þess að njóta þess sem best hérna. Þetta er eitthvað sem hver og einn verður að upplifa, en Þjóðverjar eru snillingar að vissu leiti. Mikilvægt að minna sig reglulega á það að maður lifir ekki endalaust en minningarnar lifa. Íslendingur dagsins: Vivian fær það fyrir að vera að massa skólann og yfirburða dugleg;). Spakmæli dagsins: Það verður ekki endilega alltaf einn að tapa eða sigra, _________? Bið að heilsa ykkur með flottum hvolpa-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
09.11.2006 |
| My Home is My Page... |
|---|
| Svona til að byrja þetta þá ef þið eruð að leita ykkur að einum flottasta stað í heimi til að heimsækja þá Ísrael nánar tiltekið Tel Aviv. Ég ákvað áður en ég fór að kynna mér staðinn ekki neitt, eina sem ég vissi var úr sjónvarpinu. Flogið var frá Hannover í -3 gráðum til Munchen í -5 gráður og þaðan til Tel Aviv í 26 gráður og sól. Flugið tók 5 og ½ tíma allt í allt og var mjög skrýtið að finna hitamuninn á svona skömmum tíma. Á leiðinni flugum við yfir helling af frábærum stöðum, t.d. Krít, Kýpur og Tyrkland. Ég ákvað að taka með mér kíkji ef ég skyldi vera svo heppinn að það væri heiðskýrt í fluginu og viti menn, ég mæli með kíkji í flug! Þegar við lentum þurfti endilega að vera verkfall á flugvellinum og fengum við ekki töskurnar okkar fyrr en seint um kvöldið en það er saga að segja frá því öllu. Öryggisgæslan er svakaleg, maður er spurður spjörunum úr um allt og ekkert en þetta er mjög athygglisvert og árangursríkt að mér skilst því þarna er mikið um hryðjuverk. Liðið sem við vorum að fara að spila við Maccabi sendi fulltrúa frá sér á völlinn til að hjálpa okkur í gegn. Fyrsta sem hann sagði var Follow We og okkur leist nú ekki alveg á blikuna en ég get sagt ykkur það að enskukunnáttan í þessu landi er frábær, krakkar niður í 6 ára tala 100% ensku. Á leið okkar á hótelið keyrðum við meðfram ströndinni þar sem hótelið okkar var staðsett og þetta land er ekki eins og maður sér það í sjónvarpinu. Það er ekki mikil sjáanleg fátækt, engir vopnaðir á götunum, flottar byggingar og háhýsi og fólkið er mjög almennilegt. Þetta kom mér frekar mikið á óvart því ég var ekki búinn að gera mér þetta í hugarlund. Aðeins örfáum km frá því þar sem við gistum var Jerúsalem og aldrei hafði mig grunað að ég myndi spila handbolta á þessum sögulegu slóðum. Þeir sem ekki vita þá var Kristur krossfestur þarna og má sjá alla þessa staði sem enn er verið að deila um með berum augum. Já og á meðan ég man þá vorum við að spila handbolta þarna, leikurinn fór 42:25 (20:13) eða 17 marka sigur. Ég náði bara að spila fyrri hálfleik og skoraði 6/1 mörk því ég fékk þungt högg á þumalputtann og þarf að fara í röntgen í fyrramálið til að athuga hvort það sé ekki allt í lagi. Alveg vert að láta það fylgja með að þegar ég meiddist þá skoraði ég flottasta mark mitt á ferlinum ef ég ætti að velja einn en það var af 13 metrum undirkot í vinkilinn. En nóg um það hvar vorum við, já strendurnar þarna og hitinn er gjörsamlega fullkomið á þessum árstíma, hvítar strendurnar, heitur sjórinn og miðjarðarhafið skartar sínu fegursta. Þetta er algjör paradís, ég er búinn að ferðast alveg fáránlega mikið á minni stuttu ævi en þetta kemst á top 3 flottustu satðina. Við fórum svo eftir sigurinn á næturlífið og er það talið eitthvað það fjölbreyttasta og flottasta sem fyrir finnst og ég tek undir það. Ég er farinn að læra en næsti leikur hjá okkur er á miðvikudaginn á móti Nettelsted en þar spila Birkir og Þórir Ólafs, með bestu jólaskaps-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Spakmæli dagsins: You can talk the talk but can you WALK the WALK. |
05.11.2006 |
| Svona nær maður markmiðum sínum, aldrei að missa sjónar á takmarkinu... |
|---|
| Það er búið að vera allt á fullu undanfarið handboltalega séð, landsliðið í Ungverjalandi og leikur í bikarnum í gær og fer á morgun til Ísrael að spila í EHF-CUP. Leikirnir á móti Ungverjum um síðustu helgi var fínn undirbúningur þar sem lagt var uppúr ákveðnum hlutum fyrir HM. Því miður voru margir hverjir meiddir og sumir áttu við þreytu að stríða sökum Evrópukeppninnar, margt gott og annað má gera betur. Alltaf gaman að brjóta upp lífið hérna í Lemgo og mæta hress með landsliðinu, það vill oft gefa manni auka power. Í gær spiluðum við á móti Emsdetten í þýsku bikarkeppninni og sigruðum þá örugglega 41-23, hérna má sjá smá statistik um leikinn, en ég var sjóðheitur: TV Emsdetten - TBV 23:41 (11:18 ) Emsdetten: Blank (8/3), Fridjonsson (4), Thünemann (3), Cordes (3), Kreft (2), Weevers (1), Abelmann (1), Waltermann (1) TBV : Geirsson (12/3), Mocsai (7), Kehrmann (6), Binder (5), Hegemann (5), Hallgrimsson (3), Baur (3) Gaman að vera kominn á skrið í skyttuna aftur og mörkin hrúgast inn en það eru eru virkilega spennandi tímar framundan hjá okkur Lemgo mönnum. Við erum í toppbaráttunni í deildinni, góðu róli í bikarnum og erum væntanlega að fara að slá út meistarana frá Ísrael á föstudaginn. Svo verður EM félagsliða í Köln Arena 25. og 26. nóvember en það spilum við einmitt við Íslendingaliðið Gummersbach í undanúrslitum og hin tvö liðin sem mætast eru Óli Stef með Ciudad á móti Rússnesku meisturunum Medvedi. Ég hendi inn einni færslu frá Ísrael ef ég kemst á netið en þangað til þá með dúndur kveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
01.11.2006 |
| Ljós í andlitsglugganum sem sýnir að hjartað er heima!!! |
|---|
| Mættur, gaman að koma með eina færslu núna því það er loksins allt á uppleið aftur, verkurinn farinn úr hendinni og búinn að ná 100% ein sog markmiðið var. Við vorum að spila á laugardaginn á móti Melsungen hérna í Lemgo með 4500 manns í húsinu. Þetta var frekar erfið fæðing en við sigum fram úr þeim á lokakaflanum og sigruðum leikinn 35:30 (17:14). Framhaldið hjá okkur lofar góðu og eru nokkrir mikilvægir leikmenn að fara að koma inn aftur eftir meiðsla-vesen sem hefur samt haft lítil áhrif á spilamennsku liðsins. Ég og Ásgeir spiluðum báðir fanta vel í gær, hann skorði 2 mörk og spilaði vörnina allan tímann fyrir framan og ég gerði 8 slummur. Tímabilið hjá okkur hefur gengið klassa vel og erum við nú staddir í 2-3 sætinu með Kiel en þeir eru með betra markahlutfall eins og sjá má. Við erum aðeins 1 stigi eftir Gummersbach en það styttist í leikinn við þá... 1 VfL Gummersbach 9 8 0 1 16:2 2 THW Kiel 9 7 1 1 15:3 3 TBV Lemgo 9 7 1 1 15:3 En núna er komin smá pása í deildinni og við erum að koma saman landsliðið í Frankfurt á morgun og er ég bara í óða önn að pakka og gera mig til og hef í rauninni engan tíma í þetta! Þetta verða 7 daga æfingabúðir sem enda með 2 leikjum á móti Ungverjum eins og ykkur er kunnugt um og verður spilað fös/lau. Þetta er alveg topp tímasetning fyrir í undirbúninginn fyrir HM. Við í Lemgo förum svo viku seinna til Ísrael að spila á móti Maccabi Rishon Le Zion í EHF-CUP en þeir vildu ekki selja okkur leikinn þannig að það verður bara að mæta þangað og hafa varan á. Síðan er næsti leikur í deildinni á móti Birki Ívari og Þóri í TuS N-Lübbecke 11/11/. Annars er bara ljómandi að frétta héðan frá Lemgo og gott að geta verið kominn á fullt aftur í boltann, það er nú einmitt þess vegna sem ég er hérna. Er væntanlega að fara að stækka við mig hvað og hverju, finnst að ég ætla að vera hérna til ársins 2010. Svo bara þetta sama gamla, skólinn, afslöppun og þetta venjulega. Með bestu stolts-kveðjum frá Braker Mitte í Lemgo, L&I_23. Íslendingur dagsins: Eiður Smári fyrir að vera í hópi bestu knattspyrnumanna í heimi. Heimasíða dagsins: www.handbolti.net en mætti vera meira uppfærð, það er nóg að gerast í heimi handboltans núna ;) mæli með þessari síðu. Lag dagsins: Far Behind með Candlebox en það er besta lag allra tíma. Spurning dagsins: Hvaða spakmæli eru þetta? 1) I measure one-pulled with it 2) Now there won't do any mitten-takes |
22.10.2006 |
| Vika í 100 % prósentin... |
|---|
| Vorum að spila við Wetzlar í gærkvöldi, óhætt að segja að það hafi staðið tæpt. Leikurinn endaði 29-30 fyrir okkur og var töluverð stemmning í höllinni hjá þeim með 4500 stuðningsmenn. Eins og flestir vita þá var þetta fraumraun Róberts Sighvats sem þjálfara liðsins, honum hefur heldur betur tekist að hleypa smá lífi í þá og spiluðu þeir hörku bolta og eiga væntanlega eftir að vinna einhverja leiki á næstunni. Ég spilaði 20 mín og gerði einhver 4 mörk og 2 úr vítum. Ég er alveg að ná að púzzla mér saman en ég hef ekkert spilað að viti að undanförnu. Í leiknum í Flensburg þegar ég fékk högg á olnbogann og kom vökvi inná og mynduðust bólgur en og ég er að verða góður, Yesssss. Eftir viku verð ég kominn í 100% líkamlegt ástand, en þetta álag hérna er ekkert venjulegt og það má lítið sem ekkert bregða útaf. Við sitjum núna í 2 sæti ásamt Kiel og ætlum okkur að komast ennþá hærra og erum með 13-3 á stigatöflunni. Landsliðið er að fara að koma saman 23. oktober og æfa í Frankfurt í viku áður en haldið er til Ungverjalands til að spila 2 æfingaleiki, en í hópnum eru 16 leikmenn. Mér heyrist og skilst á öllu að það er hellingur af Íslendingum að koma á HM hérna í janúar. Einn punktur til ykkar, ég veit því miður ekki hvar þið kaupið miða eða hvaða hótel eru best fyrir ykkur. Best er fyrir ykkur að fara inná heimasíðu handknattleikssambandsins www.hsi.is og senda þeim póst. Íslendingur dagsins: Hjalti Þór Hreinsson fjölmiðlafræðinemi , takk fyrir magnaðan texta. Heimasíða dagsins: Kristinn Björgúlfsson atvinnumaðurinn í Noregi er að fara á kostum og er hann augljóslega á top 5 listanum yfir fyndnustu blogsíðurnar. www.kiddibje.blogspot.com Fróðleikur dagsins: Í næstu færslu verður spurningakeppni og verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin. Þetta verður skemmtileg keppni og verðlaunin ekki af verri endanum en þau verða gefin upp með spurningunum. Spakmæli dagsins: Sókrates var eins og allir vita grískur heimspekingur og hefur orðið tákngervingur húmanískrar heimssýnar og afneitun kreddufestu. Spakmæli hans, "þekktu sjálfan þig", er grundvöllur þekkingar og virðingar fyrir sjálfum sér og öðrum, án tillits til mismunar. Þessi orð voru letruð á hof Delphis fyrir um tveimur öldum síðan, eiga enn mikið við í dag. Góð leið til að byggja upp sjálfstraustið er að fara í sjálfsskoðun og velta fyrir sér hvar þú stendur í dag. Sjálfsskoðun gefur okkur innsýn í hver við erum, hvaða afleiðingar hegðun okkar hefur, hverjir okkar styrkleikar eru og hvað það er sem dregur úr árangrinum sem við náum. Mikilvægt er síðan að leggja ekki of mikla áherslu á mögulega galla heldur frekar að einbeita sér að því sem maður gerir vel. Enginn er fullkominn, eða eins og Henry Ward Beecher orðaði það: "Þegar einhver segist vera fullkominn þá eru bara tveir staðir sem koma til greina: Himnaríki eða hæli." Lag dagsins: Bohemian Rhapsody með QUEEN. Nýtt dagsins: Sýnt hefur verið fram á að rafsegulsviðið sem hjartað gefur frá sér er 5000 sinnum öflugara en það sem heilinn gefur frá sér. Er einhver hérna sem þekkir “Rafeindakenninguna”. Með bestu batnandi-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
14.10.2006 |
| Hugarfar er það sem stjórnar öllu!!! |
|---|
| Byrja á því að þakka ykkur öllum fyrir gjafirnar, e-mailin og afmæliskveðjurnar þann 10.10. Þótti virkilega vænt um þetta og nota ég því tækifærið hér til þess að þakka ykkur öllum. Síðustu 2 afmælisdaga hef ég í bæði skiptin verið í keppnisferðum bæði í Noregi og svo minnir mig í Slóveníu sem var vonlaust en í ár fékk ég að vera heima og slaka á:). Heimsóknirnar á síðuna á mánudaginn voru 1317 og eru það fínar tölur, og fara núna væntanlega hækkandi þegar umfjöllunin um deildina fer að vaxa heima. Eina leiðinlega við það er að það komu ca. 450 af erlendum síðum, en ég sé alltaf hvaðan er komið á síðuna, þessi tækni í dag er bara bull. Leiðinlegt fyrir þessa Þjóðverja að koma á síðuna á hverjum degi og geta ekkert lesið! Besta afmælisgjöfin mín frá ykkur hefði verið að ná því að slá aðsóknarmetið á síðuna sem var sett þann 27. janúar 2005 þegar ég var að skrifa frá Túnis í Afríku með landsliðinu. Þá var síðan auglýst í öllum blöðum og vefmiðlum sem og í Lemgo og komu alls 8289 manns þann daginn. Það verður erfitt að slá þessum tölum við en ég veit að það mun gerast þegar HM hérna í í janúar fer fram, en athyglin sem keppnin er að fá er gífurleg. Verð þó að segja ykkur frá einni afmælisgjöfinni minni en það var dregið í EHF-CUP á mánudaginn. Hvað haldið þið að hafi komið uppúr pottinum? “Booom Jarðsprengja”, nei næstum því en við erum að fara til Ísrael nánar tiltekið Tel Aviv og allir sem eiga sjónvarp vita hvað er að gerast þar! Hefði verið gaman að lenda á móti Haukunum en aldrei að vita í næsta drætti. Mér skilst samt að við munum kaupa leikinn frá Ísrael og verða þeir því báðir spilaðir hér í Lemgo, til allrar hamingju. Ég get samt ekki farið að sofa sáttur nema segja ykkur sögu af Ásgeiri Erni héðan frá Lemgo. Við vorum á sunnudagskvöldið að borða saman á Vesuvio, hvað annað? Og erum á heimleið, þegar við erum að kveðja fólkið gengur inn maður á fimmtugsaldri. Hann heilsar okkur kurteisislega og óskar okkur til hamingju með sigurinn, það væri ekki frásögu færandi nema hvað að röddin í honum var engu lík. Ég hafði aldrei í lífu mínu heyrt mann tala í þvílíkum bassa, hann gæti sómað sig vel í skottinu á einhverri Hondu á Selfossi. Hann stendur þarna fyrir framan okkur og ég barðist við brosið meðan hann talaði við Ásgeir þegar allt í einu ÁSGEIR springur úr hlátri fyrir framan hann það var hálfur meter á milli þeirra. Ekki nóg með það heldur reyndi hann að redda sér útúr þessu með því að henda sér í jörðina og þykjast hafa fengið krampa, öskrandi grát/brosandi. Ég hélt ég yrði ekki eldri, hirti Ásgeir uppúr götunni, gengum í burtu og við hlógum í klukkustund á eftir. Mæli með að þið farið með Ásgeiri eitthvað ef þið viljið óvæntar uppákomur. Samt er eitt í þessu sem við fréttum eftirá, þetta var gott á manninn því hann kastaði flösku í höfuðið á Gerhard Schröder kanslara Þýskalands til margra ára í höllinni okkar 2004 og fékk ævilangt bann í höllina. Hann fékk það heldur betur í hausinn tilbaka, eins og ég hef sagt áður, “What comes around goes around”. Þetta verður ekki lengra í dag en ég ætla að enda á góðum orðum sem veður veganesti ykkar útí daginn, með ekkilengurtape-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. "Leiðtogar eru búnir til, þeir fæðast ekki sem slíkir. Þeir eru búnir til með mikilli vinnu, sem er nákvæmlega það sem við öll verðum að leggja á okkur ef við ætlum að ná þeim markmiðum sem skipta okkur máli." |
12.10.2006 |
| Lífið er eins og einstefna, nema bara þín stefna!!! |
|---|
| Vorum að spila á móti Grosswallstadt í deildinni á laugardaginn hérna í Lemgo. Fyrir leik var búist við miklum hasar því þeir unnu okkur tvisvar sinnum á síðasta ári og áttum við í stökustu vandræðum með þá. Sú varð samt ekki raunin í þetta skiptið því við tókum þá örugglega 30:23 (15:10) og bættum fyrir leikinn móti Magdeburg á fyrir skömmu. Við sitjum núna í 4 sæti deildarinnar og eigum fyrir höndum leiki á móti liðum öllu slakari en við og eigum þ.a.l eftir að stíga jafnt og þétt upp töfluna. Það er búið að ganga á ýmsu hjá okkur varðandi sjúkralistann og menn að hópast saman á hann en ég hef engar áhyggjum af því að Ég og Ásgeir tökum þetta að okkur. Næsti leikur er í bikarnum á miðvikudaginn en þá mætum við Emsdetten á útivelli en eftir því sem ég best veit þá spilar Einar Logi Friðjónsson þar, þeir eru í 2. bundesligu. Svo fer bráðum að líða að því að það verði dregið í Evrópukeppninni EHF-CUP sem við unnum svo eftirminnilega í ár og ætlum við okkur klárlega að verja þann titil því við teljum það vera mjög raunhæft. Þetta er ekki allt því landsliðið fer að koma saman í lok þessa mánaðar fyrir undirbúning HM hérna í janúar, þannig að það er nóg að gerast hérna. Lífið hérna í Lemgo er búið að vera alveg í blóma undanfarið og ekki svekkir maður sig yfir því að fá 2 extra mánuði í sumar og sól hérna í þýskalandi. Var mjög gott að fara heim um daginn og hlaða hin svokölluðu batterí. Skólinn tekur alltaf sinn tíma svo maður er vel skipulagður til þess að pakka þessu öllu saman. Reyndar mæli ég eindregið með því að þeir sem þurfa að vinna hafa áhuga á háskóla og hafa ekki tíma fyrir fullan vinnudag kynni sér það sem fer fram á bifröst, www.bifrost.is. Menntun er máttur... Íslendingur dagsins: Smári Jósafatsson einkaþjálfari Íslands, takk fyrir gjöfina! Afmælisbarn vikunnar: Ég verð 24 ára á morgun 10.10. Sáttur við að skrifa þessa tölu:) Spakmæli dagsins: Sönn vinátta er eins og góð heilsa. Gildi hennar getum við sjaldan metið fyrr en við höfum glatað henni. Heimasíður dagsins: Á www.fhingar.is má finna undir handknattleiksdeild mjög góða pistla um liðið, leikina þeirra umfjöllun og fleira skemmtilegt sem kannski önnur lið mættu taka sér til fyrirmyndar á Íslandi. Einnig er efnilegur þjálfari kominn í raðir Fh-inga sem er strax farinn að gefa gott orð af sér og heldur hann úti síðunni, www.krissi.bloggar.is mæli með honum. Kvikmynd dagsins: Enemy Of The State með (Will Smith) er eitthvað sem þið gætuð kíkt á, meira en bara góð afþreying. Með bestu Hugsunar-kveðjum frá Lemgo, L&I_23(4). |
09.10.2006 |
| Ég er nýr maður, velkomin á síðuna mína!!! |
|---|
| Ég er búinn að taka aðeins til hjá mér og setja mér ný markmið og pæla aðeins í hlutunum sem eru að skipta mig raunverulega máli. Eins og gamla góða dæmisagan um krukkuna og hvernig forgangsraða og fylla eigi í hana. Fyrst stóru hlutirnir og svo hinir smáu. Ég á alltof mikið inni til þess að að fara að koma þessu ekki almennilega frá mér, “verður hver með sjálfum sér lengst að fara”. Ég er fullur eftirvæntingar og metnaðar sem ég er að fara að sýna í verki núna á næstunni. Ég er búinn held ég að vakna rólega síðustu vikuna upp af draumi sem er að vísa mér ákveðna leið og mun ég fylgja henni, því ef maður trúir ekki á það sjálfur, hver á þá að gera það? Sókrates sagði einusinni að sagnarandinn sem byggi í hjarta hvers manns varaði fólk einungis við en hvetti það aldrei til dáða: "Það er einhver rödd, sem lætur til sín heyra og letur mig jafnan þess, sem ég ætla þá að gera, en hvetur aldrei," sagði hann. Ef þessi innri rödd þegði væri sennilega engin hætta á ferðum, en þegar manneskjan væri við það að taka ranga ákvörðun segði hún eins konar nei. Fínn heimspekingur en ekki með mér því það er eitthvað annað sem er að stýra mér! Með kveðjum frá Lemgo, Logi Eldon Geirsson. |
01.10.2006 |
| Sígandi lukka er alltaf best... |
|---|
| Hvernig væri að leggja handboltann og allt tal um hann aðeins á hilluna, hvar er samt eiginlega þessi hilla sem allir leggja allt á, smá pæling? Nenni ekki núna að skrifa: Fór í handbolta, var í handbolta og er í handbolta. Aldrei að vita nema að við séum með svipaðar skoðanir um lífið og tilveruna og þið gætuð víkkað hjá mér hugsunina. Ég er mjög þakklátur einstaklingur ég veit vel mína kosti og galla sem er reyndar lykill af fullkomnu jafnvægi. Að vera í jafnvægi er yfirleitt það sem stendur uppúr hjá farsælu fólki í starfi, samskiptum og lífinu Ég geri mér vel grein fyrir hversu heppinn ég er og ég reyni líka að gefa af mér það jákvæða sem hefur hjálpað mér í því skyni að aðrir geti fundið slíkt hið sama. Hversu mikið þjáumst við ekki vegna hörmunga sem aldrei verða á vegi okkar, ég pæli oft í þessari setningu og er alltaf með varan á. Ég hef mikla trú á sjálfum mér, ég upplifi allt 2var sinnum. Við erum mjög flókin lífvera en krafturinn meðal okkar liggur hjá okkur sjálfum, og það er allt hægt með einbeitingu, trú og vinnu í sjálfum sér. Flestir, vil ekki alhæfa að allir sem ná árangri tileinka sér það hugarfar að sjá hlutina fyrir sér. Þetta er kallað “visual training” og er ákveðin tegund af hugarþálfun. Það er til málsháttur sem segir, það gerist allt tvisvar, fyrst í huganum svo í raunveruleikanum. Ég gæti ekki verið meira sammála þessu. Ég ætla að taka eitt dæmi: Ég bíð ennþá eftir því að Ólafur Már atvinnumaður í golfi hringi í mig og segist hafa horft á Ryder Cup og sagt við sjálfan sig ég slæ ekki verr, heldur betur en þessir menn. Hvers vegna er ég ekki þarna? Þegar þessi hugsun er komin þá byrjar ballið og allt fer í gang. Allt fer að ganga upp, þú ert jákvæður, þú ert búinn að setja þér markmið, þú færð trú á sjálfan þig óháð röddum og skoðunum annarra. Ég veit að margir eru ekki alveg að fylgja mér, ég þekki þetta samt og hef komist þangað sem ég er í dag á nákvæmlega þessu. Finnst oft bara sorglegt að sjá hæfileikaríka menn sitja við árbakkann horfa dofinn á tækifærin fljóta framhjá sér, aðgerðalaus! Allir eiga sinn draum. Maður þarf að vera rosalega duglegu(ur) að vinna í sjálfum sér og finnst mér einveran gera mér best. “Gefðu þér tíma fyrir þig, hinir koma seinna“ þetta kann að hljóma sem eigingirni en “Eigingirni er sá hæfileiki að sjá ýmislegt gott við sjálfan sig sem aðrir koma ekki auga á”. Ég finn dag frá degi hvernig ég næ sífelt betri tökum á lífinu og því sem er að gerast í kringum mig. Ég geri það sem ég vil og hef trú á því. “Að þarf hæfileika til að komast á toppinn en það þarf karakter til að halda sér þar”. Logi Geirsson atvinnumaður í Lemgo... |
27.09.2006 |
| Stutt heimsókn á klakann í dag... |
|---|
| Ég er að koma til Íslands í kvöld, ekki leiðinlegt það. Við erum búnir að vera að æfa stíft undanfarið því það er pása fyrir landsliðin að koma saman og æfa en við Íslendingarnir þurfum ekkert á því að halda, eins og eitt gott þýskt máltæki segir, “stundum er minna meira”. Við fórum nú samt til Wuppertal að hitta Alfreð á miðvikudaginn þar sem hann tók okkur í hlaupatest til að sjá í hvernig formi menn væru í. Auðvita var því bara rúllað upp eins og mönnum sæmir og öllum farið að hlakka til HM hérna í janúar. Varðandi búningana þá hefur það nú farið uppúr öllu valdi en við reddum þessu eins og öllu öðru. Í næstu viku eru að koma ný liðsmynd af okkur Lemgo mönnum og er hún einum of svöl skal ég segja ykkur. Ætla að skanna hana hérna inná síðuna og er klár á því að hún á eftir að slá í gegn. Ég sendi hana til þeirra sem vilja þegar þar að kemur en eitt í einu. Íslendingur dagsins: Birgir Valdimarsson, strákurinn sem ég bauð út 2005, en hann er að klára meðferðina eftir 4 daga. Það þarf sterk bein til að koma svona vel útúr þessu. Spakmæli dagsins: “Gefðu svöngum manni fisk að borða og það dugir honum í einn dag. Kenndu honum að veiða þá sveltur hann aldrei“ Lag dagsins: What’s up með 4 non blondies. Sjáumst á Íslandi eða á skjánum á mánudaginn næstkomandi, með jakkafata-kveðjum frá Lemgo Germany, L&I_23. |
22.09.2006 |
| Gott rennsli á færslum, vandamálið leyst… |
|---|
| Þetta er allt að koma, ég er loksins kominn aftur í gamla góða heimasíðu gírinn sem hefur svolítið vantað uppá síðkastið. Ég setti á föstudaginn síðastu myndirnar í póst og mér skilst að þær hafi komist á leiðarenda til flest allra. Gaman að segja frá því að ég sendi, til Svíþjóðar, Danmerkur, Grænlands, og Belgíu og allt til Íslendinga. Ég er búinn að fá allt uppí 20 fyrirspurnir síðustu tvær vikurnar um það hvernig fólk geti keypt sér nýja keppnisbúninginn okkar. Ég er búinn að finna góða lausn á því og er nú þegar búinn að senda 2 búninga til Íslands. Þetta lýsir sér þannig að þið hafið einfaldlega samband við mig á logi.geirsson@gmx.de, gefið mér upp allar upplýsingar, og ég sendi ykkur verðið og reikningnúmer sem þið leggið inná. Meðan ég man þá seldust 16 af Geirsson búningum til Íslands árið 2004 og virðist vera enn meiri áhugi núna. Enda eru búningarnir orðnir flottari og er kjörnir í gjafir og til að vera í á æfingum og til í öllum stærðum og litirnir eru blár og hvítur og mæli ég frekar með hvítum þó blár sé flottur. Verðið á búningunum er á frá 5000kr til 6000kr og fer allt eftir stærðunum og er þetta með sendingakostnaði sem ég redda sjálfur. Ég mun einnig senda liðsmynd áritaða af öllum leikmönnum sem kostar 1800kr og verður það mín gjöf til ykkar. Þannig að þið sem hafið verið að senda mér póst þetta er lausnin. “Taktu þátt í lífinu í kringum þig, það er skemmtilegra en að vera áhorfandi!” Íslendingur dagsins: Hann er hálf grænlenskur og spilar handbolta í Danmörku. Hann heitir, Eqalunnac og væri þýtt á íslensku “litli silungur”. Kvikmynd dagsins: POWDER þessi mynd er meistaraverk, takið hana. Spakmæli dagsins: Keep away from people who try to belittle your ambitions. Small people always do that, but the really great make you feel that you, too, can become great. Lag dagsins: Last Goodby með Jeff Buckley. Með bestu keppnis-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
20.09.2006 |
| Það kemur dagur... |
|---|
| Ég held að það sé það eina sem mér detti í hug í dag en í gær komu Magdeburg til okkar og það gekk bókstaflega ekkert. Manni þykir bara hálf leiðinlegt að þiggja peninga frá félaginu með svona spilamennsku en það er allt hægt í þessum bransa. Leikurinn var góður hjá okkur fram á 40 mínútu en þá hrundi allt, tölurnar gefa ekki rétta mynd af leiknum því þeir skoruðu held ég 9 síðustu mörkin, leikurinn endaði 27:39 (16:18). “Lífið er aldrei svo slæmt í sinnu verstu mynd að því sé ólifandi og aldrei svo gott í sinni bestu mynd að því sé auðlifað”. Maður er búinn að læra það í atvinnumennskunni að það hjálpar aldrei að horfa til baka og mikilvægt að missa ekki coolið. Hérna í þýskalandi viljar áhorfendurnir bara sjá árangur, mér fannst eitt mjög fyndið en fyrir leikinn þá gefum við svona litla áritaða bolta sem allir keppast við að grípa þegar við köstum þeim uppí stúkuna. Þegar leikurinn var flautaður af flugu þeir allir inná gólfið aftur, hahaha mér finnst þetta ennþá fyndið. Ég held að ég hafi verið sá eini sem hló að þessu. Ég skoraði 2 mörk í leiknum sem er bara grín, og spilaði útum allt sem var frekar þreytt því ég spilaði 4 stöður og einginlega aldrei 2 sóknir í röð á sama staðnum, það er bara eitthvað sem maður verður að vinna í. Það eru þessir leikir sem herða mann en núna erum við komnir í frí frá leikjum og held ég að við ættum að geta unnið í og bætt okkur á næstu 2 vikum áður en Grosso, liðið hans Einars og Alex kemur til okkar þann 7.okt. Í næstu færslu veður smá glaðningur fyrir ykkur því þið sem eruð búin að vera að spyrja hvernig þið getið fengið keppnisbúninginn okkar, ég er búinn að finna góða lausn á því vandamáli, til þess eru jú vandamálin, leysa þau. Held að margir verði mjög ánægðir með það. Í dag verður ekki farið yfir dagsins besta heldur verður eitt spakmæli látið flakka sem lýsir þessari færslu 100%. Spakmæli dagsins: Að viðurkenna að manni hafi mistekist er að sýna að maður sé vitrari í dag en í gær. Með höfuðið hátt bið ég að heilsa frá Þýskalandi þar sem sólin er að gefa okkur 27 gráður og gangi ykkur vel, L&I_23. |
17.09.2006 |
| Að toppa á réttum tíma, og leiðum deildina... |
|---|
| Spiluðum í gær á móti Viggó Sig og lærisveinum í Flensburg í Campus höllinni þeirra sem var fullsetin af 7000 stuðningmönnum. Þetta var 5 leikurinn í deildinni og vorum við fyrir hann taplausir í fyrsta sæti með 8 stig ásamt Flensburg. Leikurinn var spennandi frá upphafi og var jafn á flestum tölum í fyrri hálfleik. Þjálfarinn okkar gerði óvænta breytingu 5 mín fyrir leik þegar hann setti mig sem skyttu hægra megin til þess að koma Flensburg úr jafnvægi. Flensburg hafði yfirleitt frumkvæðið og náðu rétt fyrir hálfleik 5 marka forustu 17-12. Við komum sterkir til baka og spiluðum yfirvegað út allan leikinn og endaði þetta í jafntefli 31-31 og stigum við góðan fagnaðardans í lokin. Við ætlum okkar að halda fyrsta sætinu og gott að vera búnir með einn erfiðasta útivöllinn. Við áttum flestir góðan dag ég skoðaði 3 mörk úr hægri skyttunni sem hefðu getað orðið fleiri en bíð bara spenntur eftir næsta leik. Þegar liðinu gengur svona vel þá er engin þörf á sólói. Næsti leikur er á móti gamla Íslendingaliðinu Magdeburg og koma þeir í grifjuna okkar á laugardaginn og hefst leikurinn kl. 20.00. Við ætlum okkur auðvita sigur og gefum 1. sætið ekki svo auðveldlega af hendi. Bendi ykkur á “liveticker” á síðunni okkar www.tbv-lemgo.de en þar eru yfirleitt 50 manns frá Íslandi sem ég veit af að fylgjast með gangi leiksins mínútu til mínútu. Meðan ég man þá er ég að senda á föstudaginn síðustu sendinguna af myndunum af mér, svo þið sem viljið fá myndina skulið skilja eftir nafn og fullt heimilsfang og það verður komið til ykkar innan viku :). E-mailið mitt er logi.geirsson@gmx.de eða logigeirsson@hotmail.com Íslendingar dagsins: Litla nýfædda frænka mín og foreldrar hennar Brynjar Eldon og Gunnur Sveins. Spakmæli dagsins: Að láta boltann tala. Lag dagsins: I’m your Villain – Franz Ferdinant Ljóð dagsins: Jón Örn meistari með enn eitt ljóðið: Vonir mínar á þig bind, nú tala undir rós. Viltu senda eina mynd, norður á Blönduós:) Með bestu Meistarakveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
14.09.2006 |
| Á toppnum í deildinni og á sigurgöngu... |
|---|
| Í gær tókum við á móti Wilhelmshaven í höllinni þeirra sem var þéttsetin af háværum stuðningmönnum beggja liða. Þetta var 4 leikurinn okkar í deildinni og höfum við unnið þá alla og trónum í 1. sæti sökum markatölu en Flensburg, liðið hans Viggó fylgir okkur fast á eftir í 2. sætinu einnig með 8 stig. En aftur að leiknum, 41-31 okkur í hag og gefa tölurnar augljóslega í skyn að við vorum betri aðilinn í þessum leik. Við náðum strax forustu í leiknum sem við héldum allt til loka og spiluðum að mínu mati okkar besta leik á tímabilinu. Ég skoraði 7 mörk í leiknum og var í heildina sáttur með þetta, loksins og mér var hleypt aðeins í skyttuna. Ásgeir spilaði seinni hálfleikinn í skyttunni en náði ekki að skora, Gylfi skorði 2 fyrir Wilhelmhaven. Næsti leikur hjá okkur er á miðvikudaginn næstkomandi í Flensburg en Gummersbach spilaði einmitt þar í gær og tapaði frekar stórt. Ég hef fulla trú á því að við vinnum þá núna enda erum við að spila vel og taplausir enn sem komið er. Þess má þó geta að Íslendingarnir í deildinni eru að spila fanta vel og er það mjög jákvætt fyrir landliðið okkar. Ég held að við séum einir 20 og erum með flesta útlendingana í deildinni, ekki slæmt það. Varðandi autogrammkarte myndina sem ég lofaði ykkur þá eru bara 26 búnir að senda heimilisfang þannig að girðið ykkur í brók, þeir sem vilja mynd. Ég get eiginlega lofað ykkur því að þetta mun verða í tísku á Íslandi innan skamms. *Rétt í þessu var Binni bróðir að hringja af fæðingardeildinni og ég er búinn að eignast litla frænku sem ég ætla að dekra rækilega. Hún fæddist rétt eftir kl. 07 í morgun, til hamingju:) Heimasíða dagsins: www.dadamo.com Þetta er mjög mikilvæg og skemmtileg síða sem getur bætt árangur ykkar en þar er greint frá því hverslags matur hentar ykkar blóðflokk, mjög áhugavert! Spakmæli dagsins: Líkur sækir líkan heim. Íslendingur dagsins: Sigurður Ingimundar landliðsþjálfari í Körfubolta. Ráðleggingar dagsins: Góð spakmæli eru aldrei of oft sögð, * Vertu vingjarnlegur við fólk á leið þinni á toppinn því þú átt eftir að hitta það aftur á leiðinni niður. * Lífið er dans á rósum, en stundum snúa þyrnarnir upp. * "Ekki er hægt að vita allt - sá sem veit allt veit ekki hvað hann veit ekki." Lag dagsins: Jeff Buckley með – Grace. Með bestu markakveðjum frá Lemgo, L&I_23. |
10.09.2006 |
| Ég elska að gera tvennt í einu!!! |
|---|
| Ég er loksins búinn að kaupa mér geðveika tölvu og þ.a.l. má búast við einhverjum flottum fídusum eins og Árni segir alltaf á síðuna. Síðasti leikur var á laugardaginn á móti Hildesheim sem eru nýliðar í deildinni og óhætt að segja að leikurinn hafi verið einstefna frá byrjun. Við yfirspiluðum þá trekk í trekk og beittum sterkri 5-1 vörn með Ásgeir fyrir framan en hann átti góðan dag, skoraði 5 mörk og spilaði allan leikinn. Við unnum leikinn 34-20 og myndaðist góð stemmning í uppseldri höllinni hjá okkur. Ég spilaði bara seinni hálfleik en þjálfarinn ákvað að láta “byrjunarliðið” hvíla í þetta skiptið. Ég skoraði 3 mörk sem er frekar dapurt en ég skoraði mjög svalt mark. Kom einn á móti markmanni í hraðaupphlaupi og stökk upp og laumaði honum með vinstri framhjá honum án þess að hann tæki eftir því við mikinn fögnuð áhorfenda. Þeir vilja jú fá eitthvað fyrir peninginn eins og einhver góður maður sagði. Þetta stóð á síðunni okkar um markið, nú er bara að taka upp orðabókina. “Was für ein Ding von Logi, da narrt er den guten alten Krieter ganz gewaltig beim TG. Kullert den Ball mit links bevor er abspringt. Geiles Ding zum 26:15.“ Við erum efstir í deildinni ásamt Íslendingaliðinu Gummersbach og næsti leikur er á morgun á móti Gylfa og félögum í Wilhelmshaven. Deildin stefnir í það að verða meira spennandi en síðustu ár en þá hafa alltaf sömu 3 liðin verið að berjast um titilinn, núna verða minnst 4-5 lið. Lag dagsins: Mick Jagger – God Gave Me Everything. Mæli með dagsins: Við vorum að fá flottar myndir af okkur leikmönnum sem eru áritaðar og kallast autogrammkarte hérna. Ef einhver hefur áhuga að fá flotta mynd þá sendið þið mér nafn og fullt heimilsfang og þið fáið það í pósti innan viku. Þjóðverjar lifa alveg fyrir þessar myndir sínar, kannski að það sé framtíðin á Íslandi. Spakmæli dagsins: Stundum er of seint í rassinn gripið. Ljóð vikunnar: Meistari Jón Þór stórskáld sendir mér alltaf reglulega ljóð og fleira skemmtilegt. Þetta var það sem kom í vikunni frá honum. Nú tendrar þú baráttu-bálið Og berst svo af hörku í leik. Við horfum nú á þýska stálið, verða bogið er Logi er á kreik. Íslendingur dagsins: Gunnur Sveinsdóttir landliðskona í handknattleik. Heimasíða dagsins: www.handball-welt.de , en hérna getið þið fylgst með öllu því besta sem er að gerast í deildinni h´ja okkur, hverjir eru að standa sig og hverjir ekki. Með tæknivæddustu-kveðjum í Evrópu, L&I_23. |
08.09.2006 |
| Er lífið einn stór Fórnarkostnaður? |
|---|
| Skipulagning er eitthvað sem ég hef verið að koma í röð og reglu undanfarið og ekki veitir af. Handboltinn, háskólinn, heimasíðan, lyftingarnar og einkalífið svo eitthvað sé nefnt eru allt hlutir sem ég þarf að sinna og standa mig í, maður verður að setja á sig pressu því annars er ekkert gaman að þessu. Þykir það virkilega leitt að hafa ekki getað sinnt síðunni sem skyldi en betra er seint en aldrei og eins og eitt gott spakmæli hljómar, “stundum er minna meira”. En vindum okkur í það helsta sem hefur verið að gerast. Handboltinn: Við erum búnir að spila 2 leiki í deildinni og vinna þá báða örugglega þó að tölurnar hafi sýnt annað. Við erum frekar þéttir þetta árið og erum að spila allt annan bolta en á síðasta ári. Við erum með sneggra lið og erum að spila hraðari bolta sem hentar mér líka betur og er ég mjög sáttur með það. Í dag erum við að fara að spila á móti Hildesheim hér á heimavellinum okkar í Lemgo og hefst leikurinn 19.30, ég sit hérna heima að koma mér og gírinn því þetta verður ekkert “Walk in the Park” eins og Binni segir alltaf. Hver einasti leikur í deildinni er uppá líf og dauða og liðin á toppnum mega ekki við því að stíga feilspor, það er svakalega stutt á milli hérna í bundesligunni. Mér hefur gengið bara vel og farið fínt af stað, hef lítið sem ekkert spilað fyrir utan en það fer að detta allsvakalega inn á næstunni. Aðalatriðið er líka að vinna leikina og að ég haldi mér meiðslalausum út tímabilið, það er minn draumur í augnablikinu. Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur og erum við búnir að setja okkur markmið fyrir veturinn. Þau eru eftirfarandi: Vera í topp 3 í deildinni, komast til Hamburgar þar sem bikarúrlitin eru spiluð og verja Evrópumeistara titilinn sem verður skemmtilegt verkefni. Skólinn: Viðskiptafræðin í Bifröst er byrjuð á fullu og tekur sinn tíma. Það sem er mjög gott er það að við Ásgeir erum að læra það sama og eigum eftir að fljúga í gegnum Bachelorinn á 4 árum. Það passar alveg fullkomlega fyrir mig því þá er ég að klára samninginn við Lemgo árið 2010 og mun væntanlega leita á önnur mið, en það kemur allt í ljós. Maður verður að muna að lifa líka fyrir momentið, þetta er eins og ég sagði einhverntíma. Lífinu má líkja við bók. Heimskinginn flettir henni kæruleysislega. En greindur lesandi les hana vandlega, því honum er ljóst að honum gefst aldrei færi á að lesa hana aftur. Það sem ég er kannski að reyna að segja er að “geymdu ekki bros dagsins til morgundagsins”. Heimasíðan: Hún hefur töluvert fengið að sitja á hakanum á kostnað þessara áður nefndu hluta. Maður er alltaf að fórna einhverju einu gæði fyrir eitthvað annað og kallast það fórnarkostnaður, vona að kennarinn minn sé að lesa þetta, hehe. Ég er samt ánægður og með samviskubit yfir því að það komu ca. 700 heimsóknir á dag allann síðasta mánuð þrátt fyrir að ég væri ekkert að standa mig í tilkynningarskyldunni. Ég er samt harðákveðinn í því að setja inn eftir leiki hjá okkur smá umsögn, markaskorara, gang leiksins og birta einnig stöðuna í deildinni. Mig langar virkilega til þess að gefa ykkur smá ”inside story” um það hvað er að gerast hérna hjá okkur atvinnumönnunum og hvernig þetta gengur allt fyrir sig. Þetta var það helsta og ég ætla að fara að koma mér í leikinn því við þurfum að vinna hann. Með bestu fjárfestingar-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Íslendingur dagsins: Magni er víst að standa sig eins og hetja og fær þann heiður. Kvikmynd vikunnar: LEON Lag vikunnar: Teenage Wasteland en ég mæli eindregið með því svala lagi. Spakmæli dagsins: Betur sjá augu en auga nema viðkomandi sé sjónskertur. Heimasíða vikunnar: www.skjarinn.is en þeir eru með virkilega gott vefsjónvarp sem gerir okkur Íslendingunum í útlöndum það kleift að horfa á íslanska þætti og fleira. |
02.09.2006 |
| Þú verður það sem þú vilt… |
|---|
| Handboltinn og lífið gengur ljómandi vel núna. Ég er kominn í hörkuform og bara 8 dagar í það að mótið byrjar og stendur það yfir næstu 9 mánuðina hérna í Þýskalandi. Við vorum að spila síðustu helgi í mótinu í Stuttgart og töpuðum þar fyrir Viggó og félögum í Flensburg í úrslitaleik með 10 mörkum. Fyrir þann leik vorum við búnir að vinna Íslendingaliðin Grosswallstadt, Göppingen og Gummersbach. Núna er loka undirbúningurinn að detta í hús og það er aðeins vika í fyrsta leikinn á móti Minden. Við erum í dag að spila okkar síðasta æfingaleik og er það bara ágætt því það hefur verið alveg nóg af þeim undanfarið. Ég er því miður lítið sem ekkert búinn að spila að undanförnu sökum meiðsla en ég verð tilbúinn fyrir fyrsta leikinn á móti Minden. Það eru gerðar miklar væntingar til okkar á þessu ári og við erum staðráðnir í því að standa undir þeim. Mig langar í titil eða tvo í ár svo maður haldi sér nú á tánum og stefni hátt. Það er voðalega rólegt yfir öllu hérna í Lemgo og búið að vera þannig undanfarið. Veðrið hefur ekki verið að leika við okkur eins og var í síðasta mánuði en samt alltaf yfir 20 gráðunum. Ég er alltaf meira og minna í sama pakkanum hérna, þ.e semja á gítarinn, lyfta, fara í sund og þaðan eftir götunum. Reyndar er ég að fara að taka mótorhjólapróf því ég ætla að fá mér stórt hjól hið fyrsta. Veit að mamma verður ekkert hrifin af því en málið er bara að fara varlega. Jú svo er bifröst að skella á þannig að maður verður ekkert mikið í því að sofa alltaf út eins og síðustu 2 árin:). Taka þennan Bachelor og rumpa honum af hið snarasta og vera búinn með masterinn þegar ég legg boltann á hilluna, það er mitt markmið í menntun eins og staðan er í dag. Með bestu morgun-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Lag dagsins: Time of my life Spakmæli dagsins: *Successful people are always looking for opportunities to help others. Unsuccessful people are always asking, "What's in it for me?" *A true friend never gets in your way unless you happen to be going down. Heilræði dagsins: Horfa alltaf fram á við og sjá hlutina fyrir þér eins og þú vilt að þeir verði. Afmælisbarn dagsins: Inga Ásta 22 ára. Heimasíða dagsins: www.kvikmynd.is Íslendingur dagsins: Björk stórvinkona mín |
19.08.2006 |
| Að sníða sér stakk eftir vexti… |
|---|
| Það er óhætt að segja að það sé brjálað að gera í vinnunni. Við vorum að spila í Sparkassen-Cup og duttum því miður þar út í undanúrlitum fyrir Kronau Östringen. Þetta var fyrsti leikurinn sem við töpum á þessu ári og endaði hann í vítakeppni þar sem við lutum í lægra haldi. Þetta mót var samt mikilvægt fyrir okkur og náðum við að slípa saman marga góða þætti og bættum okkur á flestum sviðum. Í næstu viku erum við að fara að taka þátt í öðru móti sem er í svipuðum styrkleika og verður það haldið í Stuttgart. Núna eru nákvæmlega 3 vikur í fyrsta leik á móti Minden sem verður hér í Lipperland Halle þann 27. ágúst. Okkur hlakkar mikið til að fara að byrja mótið en undirbúningurinn hefur gengið næstum framar vonum og erum við með skemmtilegt lið í ár. Ég ætla samt ekki að enda þennan texta um handboltann án þess að minnast á Ásgeir Örn Hallgrímsson. Han hefur verið að fara á kostum undanfarið bæði innan sem utan vallar og var maður ferðarinn án nokkurs vafa. En eins og hann myndi segja, CIAO. Lítið sem ekkert merkilegt er að gerast í privat lífinu þar sem handboltinn yfirgnæfir allt sem kallast afslöppun og frítími. Sofa, borða, æfa og innrétta íbúðina er það eina sem rúllar hjá mér. En að öðrum skemmtilegri hlutum, nýr pistill er væntanlegur í næstu viku og er talið líklegt að hann muni slá öðrum við, bis bald með bestu innblásturs-kveðjum frá Lemg0, L&I_23. Íslendingur dagsins: Gamla stórskyttan Hilmar Þórlinds, því ég er búinn að vera að þróa nýtt úlnliðsskot sem ég stal frá honum. Spakmæli dagsins: Spegillinn hefur 2 andlit. Mikilvægi dagsins: Gefa sér tíma fyrir sjálfan sig því hinir koma seinna. Hugsa og láta hugann reika setja sér markmið og muna að það er allt hægt ef maður vil og er tilbúinn að fórna sér. Heimasíða dagsins: www.gitargrip.net Afmælisbarn dagsins: Faðir minn Geir Hallsteinsson á 60 ára stórafmæli a morgun og óska ég honum innilega til hamingju með daginn. Þjóðverjar segja alltaf, á bakvið öflugan og árangurríkan mann er alltaf sterk kona. En eins og ég hef sagt áður þá er mitt markmið í lífinu að verða eins og hann. Vera jafn góður faðir, eiginmaður, vinur og fyrirmynd í einu og öllu. |
06.08.2006 |
| Fyrsti titillinn kominn í hús!!! |
|---|
| Æfingarnar halda áfram á fullu og mikið er um æfingaleiki og lítil mót eru spiluð víðsvegar um þýskaland yfir sumartímann. Á laugardaginn síðasta unnum við Hummel-Cup sem var haldið nálægt landamærum Danmerkur. Þar voru komin saman 6 sterk lið sem kepptu og voru þetta allt lið í betri kantinum en það einkennir oft undirbúningsleiki að við spilum við lið úr 4. deild eða verra. En þarna voru lið eins og Flensburg, Hamburg, Granolliers frá Spáni og unnum við þá einmitt í úrslitunum. Fyrir sigurinn fengum við ca. 300.000 kr. Núna í vikunni þá erum við að fara að taka þátt í stærsta mótinu sem haldið er yfir sumarið og nefnist það Sparkassen-Cup, þess má geta að við unnum það á síðasta ári. Meðan ég man þá ætla ég að þakka ykkur fyrir e-mailin og heillaóskirnar varðandi nýja samninginn sem ég er búinn að gera til ársins 2010, fannst bara best að þakka svona fyrir mig. Skólinn er að fara að taka við á fullu en ég ætla að klára Viðskiptafræðina BS í gegnum Bifröst á næstu 4 árunum þannig að það verður nóg um að vera hjá mér. Draumurinn minn er því á réttri leið en hjá mér. Eins og stjórnendur vita, ef hugarfarið er rétt þá “verða draumarnir að veruleika og veruleikinn að draumi”. Annars er lífið hérna í Lemgo eins ljúft og á væri kosið. Ég er búinn að vera að nýta tímann og skoða staði og náttúruna hérna í kring að undanförnu og fundið annsi margt athygglisvert. Fann um daginn frábært vatn sem er notað mikið sem útivistarsvæði, þar er hægt að leigja mótorbáta, hjólabáta, veitingastaður við vatnið og flottir fídusar. Svo er auðvita Hollywood Safari Park einhverja 40 km frá mér. Það er dýra- og skemmtigarður með öllu tilheyrandi og mæli ég eindregið með honum. Magnað þegar maður fær að keyra í gegnum skóginn sem er fullur af ljónum og bannað er að opna gluggana! Ég verð að rjúka á æfingu og bið að heilsa heim á Íslandið góða, með bestu sólar-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Heimasíða dagsins: Þar sem ég fer inná þegar ég tek í gítarinn, Gítarsíða Jómma. http://frontpage.simnet.is/jommi Íslendingur dagsins: Ólafur Már Sigurðsson nýbakaður faðir. Spakmæli dagsins: Ekki sóa tárum á gamlar sorgir. Lag dagsins: Maneater með Nelly Furtato. Draumur dagsins: Sjá faðir minn spila með mér handbolta. Hrós dagsins: Þið öll sem gáfuð ykkur tíma í að lesa færsluna og vonandi hugsað, en það er jú tilgangurinn. |
31.07.2006 |
| Eftir höfðinu dansa limirnir... |
|---|
| Dagarnir líða og nýjir hlutir koma fyrir á hverjum degi. Það eru einmitt hlutirnir sem marka sjálfið og móta mann og styrkja fyrir erfiðum tímum í lífinu. Lífið er misjafnt og leiðinlegt að vita af því að það fá ekki allir sama séns í byrjun en það eru ekki alltaf jólin. Ég ætla nú ekki að fara að missa mig í of miklum pælingum en stundum þarf maður einfaldlega að losa til að endurheimta. Engu að síður hefur lífið hjá mér verið virkilega jákvætt og skemmtilegt að undanförnu. Ætla að henda hérna inn nokkrum mikilvægustu punktunum: • Ég er búinn að gera nýjan 4 ára samning við Lemgo og fór á ströndina í Ostsee til að fagna því brosandi í 33 gráðum og sól yfir helgina. • Bakið virðist vera búið að gróa saman og undirbúningurinn gengur alveg eftir áætlun hjá okkur Lemgo mönnum, við vinnum hvern leikinn á fætur öðrum. • Ég læt engan segja mér það að Ísland geti ekki orðið Heimsmeistari á HM hér í Þýskalandi 2007. • Varðandi getraunina þá hefur enginn af 73 innsendum haft rétt fyrir sér. Það lítur út fyrir að ég muni bara eiga búninginn sjálfur en síðasti séns er í dag, það er bannað að spyrja Ásgeir. • Ég er loksins búinn að láta gömlu hárgreiðsluna fjúka, takk fyrir og góða nótt. Þannig að það verður glænýr og betri L&I á dúknum í Lemgo í ár. Ég sit núna fyrir framan tölvuna gjörsamlega kófsveittur með viftuna í botni að reyna að ná andanum en þannig er heima hjá mér yfir sumartímann. Stundum vildi ég óska þess að vera í kalda loftinu á Íslandi en ef ég ætti að velja þá myndi ég væntanlega velja Þýskaland sama hversu asnalega það hljómar. Ég bið ykkur vel að lifa og gangi ykkur vel með bestu samninga-kveðjum frá Lemgo, L&I_23. Hérna er dagsins besta: Maður dagsins: Meistari Valdi, starfsmaður tollgæslunnar á Keflavíkurvelli. Lag dagsins: Popular með Nada Surf. Spakmæli dagsins: Ást er ekkert nema vinna. Hrós dagsins: Fær gaurinn sem rammaði fyrir mig mynd fyrir 50.000! Heimasíða dagsins: www.tbv-lemgo.de, en þar eru nýjar liðsmyndir og fréttir af því sem er að gerast hjá okkur. |
25.07.2006 |
| Það er ekkert nýtt undir sólinni!!! |
|---|
| Þessi fleygu orð kom Ásgeir með í vikunni þegar hann sat hugsandi eftir erfiða æfingu. Ég var nú ekki alveg sammála honum og endaði það í skemmtilegum samræðum sem verður ekkert farið nánar útí hér. Þessi rúmlega vika sem undirbúningurinn hefur staðið yfir er sú erfiðasta sem ég get grafið upp í mínu minni. Hitinn hérna er næstum óbærilegur til að æfa svona mikið og þegar þetta er komið í 5 tíma á dag er líkaminn farinn að segja til sín. Engu að síður þá lætur á |











































































































































































































































































